Morgunblaðið - 13.08.1988, Blaðsíða 1
64 SIÐUR B OG LESBOK
STOFNAÐ 1913
182. tbl. 76. árg.______________________________LAUGARDAGUR 13. ÁGÚST 1988____________________________Prentsmiðja Morgnnblaðsms
neuter.
Á vinstri myndinni fylgjast þijár sovéskar konur með 300 sovéskum hermönnum koma yfír landamærin til Sovétríkjanna í gær frá
suð-vestur héruðum Afganistans. Á hægri myndinni fagnar gömul kona hermanni í fjöldagöngu sem haldin var til heiðurs sovésku
hermönnunum sem börðust í Afganistan. Á mánudag á helmingur sovéskra hermanna að hafa yfirgefið Afganistan og fyrirhugað er
að brottflutningunum Ijúki 15. febrúar á næsta ári.
Afganistan:
Skæruliðar ná mikilvægri borg*
Termer í Sovétríkjunum. Reuter.
AFGANSKIR skæruliðar náðu í fyrsta
skipti mikilvægri borg á sitt vald í gær,
er þeir tóku höfuðborg Kunduz-héraðs í
Norður-Afganistan meðan sovéskir her-
menn drógu sig til baka, að þvi er heimild-
ir frá Sovétríkj unum herma.
Heimildarmennimir, þar á meðal háttsettir
embættismenn, sögðu að skæruliðamir hefðu
misst borgina í eina klukkustund í gærmorg-
un, en náð henni síðan aftur.
„Þetta er í fyrsta sinn sem þeir ná mikil-
vægri borg,“ sagði einn heimildarmannanna
í Termez, þar sem um þúsund sovéskir her-
menn komu í gær frá Kunduz-héraði. Skæm-
liðamir hafa sótt mjög á víðs vegar um Afgan-
istan að undanfömu, en samkvæmt Genfar-
samkomulaginu sem tók gildi 15. maí á helm-
ingur sovéskra hermanna að hafa yfirgefíð
landið á mánudag.
Heimildarmenn í Termez sögðu að her Afg-
anistanstjómarinnar héldi enn flugvellinum í
Kunduz, 60 kílómetrum sunnan við landa-
mæri Sovétríkjanna. Þeir sögðu að sovésk
hersveit sem hefði yfírgefíð Kabul í þessari
viku hefði frestað för sinni til Sovétríkjanna
til að aðstoða stjómarhersveitir við að veíja
flugvöllinn.
Sein Lwin forseti Burma segir af sér:
AUt að þúsund marnis tald-
ír hafa fallið í óeirðiinum
Bandaríkin:
Eldur í
háhýsi
New York. Reuter.
ÞRÍR slösuðust í gær þegar eldur
braust út í Empire State-bygg-
ingunni, einni af hæstu bygging-
um heims.
Homer Bishop slökkviliðsstjóri
sagði að eldurinn hefði brotist út á
86. hæð byggingarinnar og borist
upp á efstu hæðina, þá 102. Á báð-
um þessum hæðum eru vinsælir
útsýnisstaðir.
Bishop sagði að enginn hefði
slasast alvarlega. Eldurinn hefði
brotist út frá stokk fyrir kapla sjón-
varps- og útvarpsstöðva sem eru í
byggingunni. Eldurinn hefði borist
upp stokkinn en ekki komist á
ganga byggingarinnar.
Skipta sov-
éskir millj-
ónamæringar
þúsundum?
Moskvu. Reuter.
SOVÉSKA neðaiyarðarhag-
kerfið hefur gert þúsundir
Sovétmanna að miHjónamær-
ingum að sögn háttsetts sov-
ésks hagfræðings, Tatjanas
Korjagínas.
í viðtali við dagblað sovésku
verkalýðshreyfíngarinnar, Trud,
segir Koijagína að Sovétmenn
hafí greitt 14-16 milljarða rúbla
(1-1,2 billjónir ísl. kr.) á ári fyrir
þjónustu sem einstaklingar veita.
45 milljarðar rúbla (3,3 billjónir
ísl. kr.) eru greiddir fyrir þjón-
ustu innan hins opinbera hag-
kerfis.
Korjagína segir að innanhús-
arkitektar, viðgerðarmenn, fata-
hönnuðir, læknar, leigubílstjórar
og útfararstjórar séu á meðal
þeirra sem veita þjónustu innan
neðanjarðarhagkerfisins. Þegar
hún var spurð hversu margir
þeirra væru milljónamæringar
svaraði hún: „Að mínu mati eru
þeir nokkur þúsund."
Bangkok. Reuter.
SEIN Lwin sagði í gær af sér sem
forseti Burma eftir aðeins átján
daga við stjórnvölinn. Grimmúð-
ug mótmæli höfðu staðið yfir i
fimm daga víða um landið og
vestrænir stjórnarerindrekar
segja að um 500 til 1.000 manns
hafi fallið.
Lwin hefur verið óvinsælasti
stjómmálamaðurinn í Burma vegna
26 ára þjónustu hans við fyrirrenn-
arann, Ne Win, og baráttu hans
gegn stjómarandstöðunni. Vest-
rænir stjómarerindrekar höfðu sagt
að óhjákvæmilegt væri að Lwin
segði af sér, en fæstir bjuggust við
afsögn hans svo fljótt. Aðeins einum
degi áður, á fímmtudag, hafði hann
sagt á neyðarfundi að herinn væri
fær um að bæla mótmælin niður.
Stjómarerindrekar segja að ekki
sé vitað hvort afsögfn Lwins merki
að burmísk stjómvöld séu reiðubúin
að slaka til og koma til móts við
kröfur almennings um frelsi í efna-
hagslífinu og lýðræði. Að sögn út-
varpsins í Rangoon verður ekki
ákveðið fyrr en á fundi miðstjórnar
flokksins 19. ágúst hver taki við
af Lwin. Flokkur landsins, sem hef-
ur verið einn við völd í áratugi, og
hemefndir hafa einnig boðað til
fundar 18. ágúst. Talið er að Ne
Win, fyrrum leiðtogi Burma, muni
gegni lykilhlutverki í forystu lands-
ins á næstu dögum.
Að sögn sjónarvotta, sem rætt
var við í síma, héldu óeirðirnar
áfram í úthverfum Rangoon í gær
og gekk fjöldi manna berserksgang
um skrifstofur flokksins, auk þess
sem þúsundum poka af hrísgijónum
Austur-Þjóðveijar hafa verið
hnepptir í fangelsi af stjórn-
málaástæðum síðan austur þýsk
fangelsi tæmdust næstum eftir
almenna sakaruppgjöf fyrir ári,
að þvi er mannréttindahreyfing
í Vestur-Berlín skýrði frá á
fimmtudag.
Mannréttindahreyfíngin nefnist
13. ágúst samtökin, en þann dag
árið 1961 var bygging Berlínar-
múrsins hafin. Hreyfíngin heldur
því fram að 400 manns hafí verið
var stolið úr kommyllum. Nokkrir
hermenn í Rangoon og fleiri borg-
um em sagðir hafa gengið til liðs
við mótmælendur eða neitað að
fylgja skipunum um að skjóta á
óbreytta borgara.
dæmdir í fangelsi fyrir að reyna
að flýja land. Um 90 prósent hinna
fanganna 600 hafí reynt að knýja
á um að fá leyfí til að flyijast úr
landi með því að dreifa bæklingum
eða taka opinberar byggingar á sitt
vald. Hreyfíngin byggir þessar tölur
á viðtölum við fyrrverandi fanga í
Austur-Þýskalandi.
Austur-þýska fréttastofan ADN
sendi frá sér stutta fréttatilkynn-
ingu í gær þar sem segir að stað-
hæfíngar mannréttindahreyfingar-
innar séu „uppspuni frá rótum."
Sjá ennfremur frétt á bls. 26.
Eiffel-turninn málaður
Nú er verið að mála Eiffel-turninn í París fyrir tveggja alda
afmæli frönsku sljórnarbyltingarinnar. Eiffel-turninn, sem
réistur var árið 1899, er málaður sjöundá hvert ár og fara í
það 45 tonn af málningu.
Austur-Þýskaland:
Pólitískir fangar eru
taldir minnst þúsund
Vestur-Berlín. Reuter.
AÐ MINNSTA kosti þúsund