Morgunblaðið - 13.08.1988, Page 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. ÁGÚST 1988
( DAG er laugardagur 13.
ágúst, sem er 226. dagur
ársins 1988. Árdegisflóð í
Reykjavík kl. 7.00 og síð-
degisflóð kl. 19.13. Sólar-
upprás í Rvík. kl. 5.13 og
sólarlag kl. 21.50. Myrkur
kl. 22.56. Sólin er í hádegis-
stað í Rvík kl. 13.32 og
tunglið er í suöri kl. 14.19.
Almanak Háskóla íslands.)
Ef þér reiðist, þá syndgið
ekki. Sólin má ekki etjast
yfir reiði yðar.
(Efes. 4, 26.)
1 2 3 |4
■
6 J 1
■ M
8 9 10 m
11 M' 13
14 16 m
16
LÁRÉTT: - 1 fjárigörð, 5 sjá, 6
dugnaður, 7 tveir eins, 8 innan á
flik, 11 Ukamshluti, 12 lik, 14 tott-
aði, 16 malla.
X^ÓÐRÉTT: — 1 sjávardýr, 2 kona,
3 spil, 4 baðstaður, 7 á litinn, 9
belti, 10 ekki gömlu, 13 kyrra, 15
sárh(jóðar.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
LÁRÉTT: — 1 horska, 5 ek, 6
œrlegt, 9 gúl, 10 óa, 11 ið, 12 far,
13 laga, 15 ata, 17 gátina.
LÓÐRÉTT: - 1 hlægileg, 2 rell,
3 ske, 4 altari, 7 rúða, 8 góa, 12
fati, 14 gat, 16 an.
Gullbrúðkaup. í dag, laugar-
daginn 13. ágúst, eiga 50 ára
hjúskaparafmæli hjónin
Ragnheiður Jónsdóttir og
Trausti Guðjónsson, Ás-
braut 13 í Kópavogi. Þau áttu
lengst af heima í Vestmanna-
eyjum, en hafa búið í Kópa-
vogi síðan 1965. Þau Ragn-
heiður og Trausti eignuðust
7 böm og bamabömin era
orðin 23. Trausti er húsa-
smíðameistari. Þau hjón
dvelja í dag, á gullbrúðkaups-
daginn, að Löngumýri í
Skagafírði.
P A ára afæli. Á morgun,
Ovl sunnudaginn 14. þ.m.,
verður sextugur Hörður
Ragnarsson, Selvogsgrunni
3, hér í bænum. Hann ætlar
að taka á móti gestum í sal
Múrarafélagsins f Síðumúla
23 milli kl. 15 og 17 á af-
mælisdaginn.
FRÉTTIR________________
ÞÁ hefur norðaustanátt
náð til landsins og Veður-
stofan gerir ráð fyrir held-
ur kólnandi veðri nyrðra
og bjartviðri hér syðra. í
fyrrinótt var minnstur hiti
á láglendinu 7 stig, t.d. á
Nautabúi í Skagafirði. Hér
í Reykjavík var 10 stiga
hiti og óveruleg úrkoma
hafði verið um nóttina, en
mest mældist hún austur á
Dalatanga, 7 millim. Sólin
hafði skinið hér í bænum i
um hálfa aðra klst. í fyrra-
dag. í gærmorgun,
snemma, var hitinn 4 stig
vestur í Iqaluit, 8 stig voru
í Nuuk. Þá var 13 stiga hiti
í Þrándheimi og 12 stig í
Sundsvall og Vaasa.
JÖKULSÁ á Breiðamerkurs-
andi. Fyrir nokkra auglýsti
Skipulagsstofa Austurlands
og Bjöm Ólafsson, oddviti
Borgarhafnarhrepps, í Lög-
birtingablaðinu eftir athuga-
semdum við tillögu að skipu-
lagi við Jökulsá á Breiða-
merkursandi. Það er gert með
tilliti til umferðar ferðafólks
á þeim stað og þjónustu við
það. Liggur skipulagið til sýn-
is í skrifstofu byggingarfull-
trúa A-Skaft. á Höfn fram til
7. sept. nk.
MESSAÐ verður á morgun,
sunnudag, í Háskólakapell-
unni. Sr. Gunnar Björnsson
fríkirkj uprestur og stuðn-
ingsmenn hans hafa fengið
kapelluna til guðsþjónustu-
halds á sunnudag kl. 11.
MORGUNBLAÐIÐ
FYRIR 60 ÁRUM
TALSVERÐ brögð era að
því um þessar mundir að
stolið sé uppskera fólks úr
matjurtagörðum, enda far-
ið að dimma og hausta að.
Hjá einum garðholueigenda
í Aldamótagörðunum var
gengið rösklega til starfa í
fyrrinótt er öllum rabarbar-
anum á 30 hnausum var
stolið.
★
í fréttum frá London segir
að í Berlín hafí félag hús-
eigenda gefíð öllum með-
limum sínum fýrirskipun
um að segja upp húsnæði
sem læknar af gyðingaætt-
um hafi á leigu. í þeirri
sömu frétt segir að helsti
foringi nazistastjómarinn-
ar á sviði ofsókna gegn
gyðingum hafí í borginni
Númberg staðið fyrir því
að skemmdarverk voru
framin á samkomuhúsi
gyðinga þar í borginni.
Samkomuhúsið spillti mið-
alda-andrúmslofti borgar-
innar, sagði foringinn Jul-
ius Streicher.
SKIPIN_____________
REYKJAVÍKURHÖFN: í
fyrradag fór Grundarfoss á
ströndina og danska eftirlits-
skipið _ Beskytteren fór út
aftur. í gær kom togarinn Jón
Baldvinsson inn til löndunar
og togarinn Viðey var vænt-
anlegur úr söluferð. Þá kom
Bakkafoss að utan í gær.
Skandía fór á ströndina og
rússneska rannsóknarskipið
sem kom á dögunum fór út
aftur. Þá fór malbikunarskip-
ið Stella Pollux út aftur í
gær._______________
HAFNARFJARÐARHÖFN:
í gær var ísberg væntanlegt
að utan og þá fór út aftur
olíuskipið Stokholm Texaco.
Morgunblaðið/Kr. Ben.
Þessar konur eru á rækju-færibandi í vinnslusal Þorbjörns hf. í Grindavik. Hér er
verið að skoða og hreinsa rækjurnar, er þær koma úr vélum en áður en þær halda
áfram af bandinu í næsta framleiðslustig sem er lausfrysting og loks pökkun á hinn
erlenda markað.
ÞESSIR strákar eiga heima á Vesturgötunni hér í bæn-
um. Þeir efndu til hlutaveltu til ágóða fyrir Rauða kross
íslands og söfnuðu 390 kr. Strákarnir heita: Kristján
Tómas Arnason, Skúli Amlaugsson og Haraldur Berg-
mann Ingvarsson.
Kvöld-, nœtur- og helgarþjónusta apótekanna í
Reykjavík dagana 12. ágúst til 18. ógúst, að bóöum dög-
um meötöldum, er í Ingólfs Apótekl. Auk þess er Laugar-
nes Apótek opiö til kl. 22 alla daga vaktvikunnar nema
sunnudag.
Lœknastofur eru lokaöar laugardaga og helgidaga.
Árbœjarapótek: Virka daga 9—18. Laugard. 9—12.
Nesapótek: Virka daga 9—19. Laugard. 10—12.
Lœknavakt fyrir Reykjavfk, Seltjarnarnes og Kópavog
í Heilsuverndarstöö Reykjavíkur viö Barónsstíg frá kl. kl.
17 til kl. 08 virka daga. Allan sólarhringinn, laugardaga
og helgidaga. Nónari uppl. í síma 21230.
Borgarapftalinn: Vakt 8—17 virka daga fyrir fólk sem
ekki hefur heimilislœkni eöa nær ekki til hans sími
696600). Slysa- og sjúkravakt allan sólarhringinn sami
8ími. Uppl. um lyfjabúöirog læknaþjón. í símsvara 18888.
ónæmisaögeröir fyrir fulloröna gegn mænusótt fara fram
í Heilauverndaratöó Reykjavfkur á þriöjudögum kl.
16.30-17.30 Fólk hafi meö sór ónæmisskírteini.
Tannlæknafól. hefur neyöarvakt fró og meö skirdegi til
annars í póskum. Símsvari 18888 gefur upplýsingar.
Ónæmistæring: Upplýsingar veittar varöandi ónæmis-
tæringu (alnæmi) í sfma 622280. Miililiöalaust samband
viö lækni. Fyrirspyrjendur þurfa ekki aö gefa upp nafn.
Viötalstímar miövikudag íd. 18-19. Þess ó milli er
símsvari tengdur viö númeriö. Upplýsinga- og róögjafa-
sími Samtaka »78 mónudags- og fimmtudagskvöld kl.
21-23. Sími 91-28539 - símsvari á öörum tímum.
Krabbamein. Uppl. og róögjöf. Krabbameinsfól. Virka
daga 9-11 s. 21122.
Samhjálp kvenna: Konur sem fengið hafa brjóstakrabba-
mein, hafa viötalstíma ó miövikudögum kl. 16—18 í húsi
Krabbameinsfélagsins Skógarhlíö 8. Tekiö ó móti viðtals-
beiönum í síma 621414.
Akureyri: Uppl. um lækna og apótek 22444 og 23718.
Seltjarnames: Heilsugæslustöö, sími 612070: Virka daga
8-17 og 20-21. Laugardaga 10-11.
Apótek Kópavogs: virka daga 9—19 laugard. 9—12.
Garöabær: Heilsugæslustöö: Læknavakt sfmi 51100.
ApótekiÖ: Virka daga kl. 9-18.30. Laugardaga kl. 11 -14.
Hafnarfjaröarapótek: Opiö virka daga 9—19. Laugardög-
um kl. 10—14. Apótek Noröurbæjar: OpiÖ mánudaga —
fimmtudaga kl. 9—18.30, föstudaga 9—19 laugardögum
10 til 14. Apótekin opin til skiptis sunnudaga 10—14.
Uppl. vaktþjónustu í sfma 51600.
Læknavakt fyrir bæinn og Álftanes sími 51100.
Keflavfk: Apótekiö er opiö kl. 9-19 mónudag til föstu-
dag. Laugardaga, heigidaga og aimenna frídaga ki.
10-12. Símþjónu8ta Heilsugæslustöövar allan solar-
hringinn, s. 4000.
Selfoas: Selfoss Apótek er opiÓ til kl. 18.30. OpiÖ er ó
laugardögum og sunnudögum kl. 10-12. Uppl. um lækna-
vakt fást í sím8vara 1300 eftir kl. 17.
Akranes: Uppl. um læknavakt í símsvara 2358. - Apótek-
iö opiö virka daga til kl. 18.30. Laugardaga 10-13. Sunnu-
daga 13-14.
Hjálparstöó RKÍ, Tjarnarg. 35: Ætluö börnum og ungling-
um í vanda t.d. vegna vímuefnaneyslu, erfiöra heimilisaö-
stæöna. Samskiptaerfiöleika, einangr. eöa persónui.
vandamóla. Neyöarþjón. til móttöku gesta allan sólar-
hringinn. Sími 622266. Foreldrasamtökin Vfmulaus
æska Borgartúni 28, s. 622217, veitir foreldrum og for-
eldrafól. upplýsingar. Opin mónud. 13—16. Þriöjud., miö-
vikud. og föstud. 9—12. Fimmtud. 9—10.
Kvennaathvarf: Opið allan sólarhringinn, sími 21205.
Húsaskjól og aöstoö við konur sem beittar hafa veriö
ofbeldi í heimahúsum eöa orðiö fyrir nauögun. Skrifstof-
an Hlaövarpanum, Vesturgötu 3: Opin virka daga kl.
10-12, sími 23720.
MS-fólag íslands: Dagvist og skrifstofa Álandi 13, sími
688620.
Lffsvon — landssamtök til verndar ófæddum börnum.
Símar 15111 eöa 15111/22723.
Kvennaráögjöfin Hlaövarpanum, Vesturgötu 3. Opin
þriðjud. kl. 20-22, sími 21500, símsvari. Sjálfshjólpar-
hópar þeirra sem orðiö hafa fyrir sifjaspellum, s. 21260.
SÁÁ Samtök áhugafólks um áfengisvandamáliö, Síöu-
múla 3-5, sími 82399 kl. 9-17. Sóluhjálp í viðlögum
681515 (símsvari) Kynningarfundir í Síöumúla 3-5
fimmtudaga kl. 20. Sjúkrast. Vogur 681615/84443.
Skrifstofa AL-ANON, aöstandenda alkohólista, Traöar-
kotssundi 6. Opin kl. 10-12 alla laugardaga, sími 19282.
AA-samtökin. Eigir þú viö áfengisvandamól að stríöa,
þá er sími samtakanna 16373, kl. 17-20 daglega.
Sálfræöistööin: Sálfræöileg ráögjöf s. 623075.
Fráttasendingar rfkisútvarpsins á stuttbylgju:
Til Noröurlanda, Betlands og meginlands Evrópu daglega
kl. 12.15 til 12.45 ó 15659 og 13790 kHz. Daglega kl.
18.55 til 19.30 ó 15659, 13770 og 9863 kHz. Til austur-
hluta Kanada og Bandaríkjanna: Daglega kl. 13.00 til
13.30 ó 15659 og 13790 kHz. Daglega kl. 19.35 til 20.10
og kl. 23.00 til 23.35 ó 17558 og 15659 kHz. Aö auki
laugardaga og sunnudaga, helztu fróttir liöinnar viku: Til
Evrópu kl. 7.00 ó 15659 og 13770 kHz. Til Ameríku kl.
16.00 ó 17558 og 15659 kHz.
íslenskur tími, sem er sami og GMT.
SJÚKRAHÚS — Heimsóknartímar
Landspftalinn: alla daga kl. 15 til 16 og kl. 19 til kl.
20.00. kvennadeildin. kl. 19.30-20. Sængurkvenna-
deild. Alla daga vikunnar kl. 15-16. Heimsóknartími fyr-
ir feður kl. 19.30-20.30. Barnaspftali Hringsins: Kl.
13-19 alla daga. öldrunarlækningadeild Landspftalans
Hótúni 10B: Kl. 14-20 og eftir samkomulagi. - Landa-
kotsspftali: Alla daga kl. 15 til kl. 16 og kl. 18.30 tii kl.
19. Barnadeild 16—17. — Borgarspftalinn f Fossvogi:
Mánudaga til föstudaga kl. 18.30 til kl. 19.30 og eftir
samkomulagi. á laugardögum og sunnudögum kl. 15-18.
Hafnarbúöir: Alla daga kl. 14 til kl. 17. - Hvftabandiö,
hjúkrunardeild: Heimsóknartimi frjóls alla daga. Grensás-
deild: Mánudaga til föstudaga kl. 16-19.30 - Laugar-
daga og sunnudaga kl. 14-19.30. - Hellsuverndarstöö-
in: Kl. 14 til kl. 19. - FϚingarheimili Reykjavfkur: Alla
daga kl. 15.30 til kl. 16.30. - Kleppsspftall: Alla daga
kl. 15.30 til kl. 16 og kl. 18.30 til kl. 19.30. - Flókadeild:
Alla daga kl. 15.30 til kl. 17. - Kópavogshæliö: Eftir
umtaii og kl. 15 til kl. 17 ó helgidögum. - Vffilsstaöaspft-
ali: Heimsóknartími daglega kl. 15-16 og kl. 19.30-20.
- St. Jósefsspftali Hafn.: Alla daga kl. 15-16 og
19-19.30. Sunnuhlfö hjúkrunarheimili í Kópavogi: Heim-
sóknartími kl. 14-20 og eftir samkomulagi. Sjúkrahús
Keflavíkurlæknishóraös og heilsugæslustöövar: Neyöar-
þjónusta er allan sólarhringinn á Heilsugæslustöö Suöur-
nesja. Sími 14000. Keflavfk - sjúkrahúsiö: Heimsókn-
artími virka daga kl. 18.30 - 19.30. Um helgar og ó hó-
tíöum: Kl. 15.00 - 16.00 og 19.00 - 19.30. Akureyrl -
8júkrahÚ8ÍÖ: Heimsóknartími alla daga kl. 15.30 - 16.00
og 19.00 - 20.00. Á barnadeild og hjúkrunardeild aldr-
aöra Sel 1: kl. 14.00 - 19.00. Slysavarðstofusími frá kl.
22.00 - 8.00, sími 22209.
BILANAVAKT
Vaktþjónusta. Vegna bilana á veitukerfi vatns og hha-
veitu, sími 27311, kl. 17 til kl. 8. Sami sími á helgidög-
um. Rafmagnsveitan bilanavakt 686230.
SÖFN
Landsbókasafn íslands Safnahúsinu: Lestrarsalir opnir
mánud.—föstud. kl. 9—19. Útlónasalur (vegna heimlána)
mánud.—föstud. kl. 13—16.
Háekólabókasafn: Aöalbyggingu Háskóla Islands. Opiö
mánudaga til föstudaga kl. 9-17. Upplýsingar um opnun-
artfma útibúa i aðalsafni, sími 694300.
Þjóöminja8afniö: Opiö alla daga nema mánudaga kl.
11-16.
Amtsbókasafniö Akureyri og Héraösskjalasafn Akur-
evrar og Eyjafjaröar, Amtsbókasafnshúsinu: Opiö mánu-
daga-föstudaga kl. 13-19.
Náttúrugrlpasafn Akureyrar: OpiÖ sunnudaga kl. 13-15.
Borgarbókasafn Reykjavfkur: Aöalsafn, Þingholtsstræti
29a, s. 27155. Borgarbókasafniö í GerÖubergi 3—5, s.
79122 og 79138. Bústaöasafn, Bústaðakirkju, s. 36270.
Sólheimasafn, Sóiheimum 27, s. 36814. Ofangreind
söfn eru opin sem hór segir: mónud.—fimmtud. kl. 9—21,
föstud. kl. 9—19, laugard. kl. 13—16. Aðalsafn — Lestrar-
salur, s. 27029. Opinn mánud.—laugard. kl. 13—19.
Hofsvallasafn, Hofsvallagötu 16, s. 27640. Opiö
mánud.—föstud. kl. 16—19. Bókabílar, s. 36270. Viö-
komustaóir víösvegar um borgina. Sögustundir fyrir börn:
Aöalsafn þriöjud. kl. 14—15. Borgarbókasafniö í Geröu-
bergi fimmtud. kl. 14—15. Bústaöasafn miövikud. kl.
10—11. Sólheimasafn, miðvikud. kl. 11—12.
Norræna húeiö. BókasafniÖ. 13-19, sunnud. 14-17. -
Sýningarsalir: 14-19/22.
Árbæjar8afn: Opiö alla daga nema mánudaga 10—18.
Ustasafn íslands, Fríkirkjuvegi: Opið alla daga nema
mánudaga kl. 11.00—17.00.
Ásgrfmssafn Bergstaöastræti: Lokaö um óókveöinn
tíma.
Höggmyndasafn Ásmundar Sveinssonar viö Sigtún er
opiö alla daga kl. 10—16.
Listasafn Einars Jónssonar: Opiö alla daga nema mónu-
daga kl. 13.30-16. Höggmyndagaröurinn opinn daglega
kl. 11.00-17.00.
Hús Jóns Sigurössonar í Kaupmannahöfn er opiö miö-
vikudaga til föstudaga fró kl. 17 til 22, laugardaga og
sunnudaga kl. 16-22.
Kjarval88taöir: Opiö alla daga vikunnar kl. 14-22.
Bókasafn Kópavogs, Fannborg 3-5: Opiö mán.-föst. kl.
9-21. Lesstofa opin mánud. til föstud. kl. 13—19.
Myntsafn Saölabanka/Þjóöminjasafns, Einholti 4: Opið
sunnudaga milli kl. 14 og 16. Sími 699964.
Náttúrugripasafniö, sýningarsalir Hverfisg. 116: Opnir
sunnud. þriðjud. fimmtud. og laugard. 13.30—16.
NáttúrufræöÍ8tofa Kópavogs: Opiö ó miövikudögum og
laugardögum kl. 13.30-16.
Sjóminja8afn íslands Hafnarfiröi: Opið alla daga vikunn-
ar nema mánudaga kl. 14—18. Hópargeta pantaötíma.
ORÐ DAGSINS Reykjavík simi 10000.
Akureyri simi 86-21840. Siglufjöröur 88-71777.
SUNDSTAÐIR
Sundstaöir f Reykjavík: Sundhöllin: Mánud.—föstud.
kl. 7.00—20.30. Laugard. kl. 7.30—17.30. Sunnud. 8.00—
15.00. Laugardalslaug: Ménud.—föstud. frá kl. 7.00—
20.30. Laugard. frá ki. 7.30—17.30. Sunnudaga frá kl.
8.00—17.30. Vesturbœjarlaug: Ménud.—föstud. fré kl.
7.00—20.30. Laugard. frá kl. 7.30-17.30. Sunnud. frá kl.
8.00—17.30. Breiöholtslaug: Ménud.—föstud. frá kl.
7.00-20.30. Laugard. frá 7.30-17.30. Sunnud. frá kl.
8.00-17.30.
Varmérlaug I Mosfellaavalt: Opin mánudaga - föstu-
daga kl. 6.30-21.30. Föstudaga kl. 6.30-20.30. Laugar-
daga kl. 10-18. Sunnudaga kl. 10-16.
Sundhöll Keflavlkur er opin mánudaga - fimmtudaga.
7- 9, 12-21. Föstudaga kl. 7-9 og 12-19. Laugardaga
8- 10 og 13-18. Sunnudaga 9-12. Kvennatímar þriöju-
daga og fimmtudaga 19.30-21.
Sundlaug Kópavogs: Opln mánudaga - föstudaga kl.
7-9 og kl. 17.30-19.30. Laugardaga kl. 8-17. Sunnu-
daga kl. 9—12. Kvennatimar eru þriöjudaga og miöviku-
daga kl. 20-21. Síminn er 41299.
Sundlaug Hafnarfjaröar er opin mánud. - föstud. kl.
7-21. Laugard. frá kl. 8-16ogsunnud. fré kl. 9-11.30.
Sundlaug Akureyrar er opin mánudaga - föstudaga kl.
7- 21, laugardaga kl. 8-18, sunnudaga 8-16- Simi 23260.
Sundlaug Seltjarnarness: Opin mánud. - föstud. kl.
7.10-20.30. Laugard. kl. 7.10-17.30. Sunnud. kl.
8- 17.30.