Morgunblaðið - 13.08.1988, Síða 14

Morgunblaðið - 13.08.1988, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. ÁGÚST 1988 Konur og fjölskyldan eftír Ragnhildi Helgadóttur Hér fer á eftir erindi flutt fyrir hönd sjálfstæðiskvenna hinn 2. ágúst sl. á kvennaráð- stefnunni í Olsó á sameiginlegum fundi kvennasamtaka Sjálfstæð- isflokksins og þeirra flokka á Norðurlöndum, sem honum eru líkastir og hann hefur á ýmsum vettvangi átt samstarf við undan- farna tvo áratugi. R.H. Mér er ánægja að fá tækifæri til þess að taka þátt í ráðstefnu „hægri" kvenna á Norðurlöndum um efnið „Konur og fjölskyldan". Enn meira gleðiefni er, að fundur- inn er haldinn í hinum fagra og gamla sumarskrýdda Noregi. Erindi mitt fjallar um fjölskyldu- stefnu Sjálfstæðisflokksins íslenska í nokkrum höfuðdráttum, sem reyndar eru að mestu sama eðlis og aðalatriðin í Qölskyldustefnu hinna norrænu flokkanna, sem standa að þessari ráðstefnu. Þeir eru: Samlingspartiet í Finnlandi, Moderata samlingspartiet í Svíþjóð, Det Konservative Folkeparti í Dan- mörku og Heyre í Noregi. Einstakir þættir í stefnunni verða ítarlega ræddir síðar í dag, eftir að ráðstefnugestir hafa skipt sér í umræðuhópa. Ég mun m.a. ræða samhengið milli jafiiréttis og fjölskyldustefnu og hve nauðsynlegt það er að leggja sjónarmið fjölskyldustefnunnar til grundvallar mörgum pólitískum ákvörðunum. Aðalumræðuefni ráðstefnunnar byggist á hugsjón jafnframt því sem það tekur mið af veruleika samtím- ans. Eftiisval undirbúningsnefndar- innar sýnir raunsætt mat á stöðu kvenna- og fjölskyldu í dag um leið og það dregur fram grundvöllinn í þeirri lífssýn, sem einkennir stefnu lýðræðislegu hægri flokkanna á Norðurlöndum. Þessi grundvöllur er orðaður með mismunandi hætti í stefnuskrám flokkanna, en aðal- hugmyndimar eru fimm: 1. Fjölskyldan sem grunneining þjóðfélagsins. 2. Heimilið sem rammi hennar, samastaður og kjölfesta. 3. Hjónaband, eða samband sem jafna má til þess, sem grundvöll- ur fjölskyldunnar. 4. Höfuðábyrgð foreldra sjálfra á uppeldi bama og réttur foreldra til að sú ábyrgð sé virt. 5. Jafnrétti karla og kvenna innan og utan heimilis. Við fyrstu sýn virðast þessi 5 atriði sjálfsagðir hlutir, en um þess- ar hugmyndir má segja hið sama og um frelsið og ástina — þær þurfa stuðning og hljómgrunn til að blómstra. 1. Fjölskyldan grunneining' Varla dregur nokkur í efa, að fjölskyldan sé grunneining þjóð- félagsins. Þetta er ekki siðferðisleg kennisetning heldur aðeins ein af staðreyndum lífsins. Það eru mann- réttindi, að menn viðurkenni þessa staðreynd. Þess vegna er þessa setningu ekki aðeins að finna í stefnuskrám margra stjómmála- flokka, heldur stendur hún í Mann- réttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna. Þar segir í 16. gr. 3. málsgrein: „Fjölskyldan er í eðli sínu frumeining þjóðfélagsins, og ber þjóðfélagi og ríki að vemda hans.“ Margir stjómmálaflokkar eru sammála um þetta, en stjómmála- ágreiningur getur orðið um það, að hve miklu leyti og með hvaða hætti þjóðfélag og ríki eiga að uppfylla þessa skyldu. 2. Heimilið Af hveiju lítum við á heimilið sem homstein? Það er af því að þar telj- um við hinn eðlilega og æskilega uppeldisstað bama. Þess vegna telj- um við skólana, dagheimilin og frístundaheimilin vera heimilum til hjálpar en ekki koma í þeirra stað. Ragnhildur Helgadóttir „Vonandi er sá tími brátt á enda að sá sem vinnur krefjandi starf utan heimilis o g er kona þurfi að hafa stöð- ugar áhyg-gjur af því að börnin sem hún elsk- ar fái ekki þá umönnun, sem þau eiga rétt á, og þá festu og hamingju, sem þau gætu annars notið.“ Það er ljóst að heimilið myndar þann jarðveg, sem gefur fjölskyld- unni og samkennd hennar kraft og næringu og þar fær innbyrðis vænt- umþylqa hennar framrás í daglegu lífi. Það er út frá þessu mati verð- mæta sem stjómarskrár Norður- landa friðlýsa heimilin. Spyija má hvort ekki sé ástæða til að draga þær stjómarskrárgreinar oftar fram og nota þær meira í hvers- dagslífinu. Slíkar bollaleggingar heyra þó fremur undir grenndarrétt („nærmiljo"), sem aðrar konur munu íjalla nánar um hér í dag. Sjálfstæðisflokkurinn hefur í steftiu sinni ætíð lagt áherslu á að fjölskyldan eigi sjálf sitt húsnæði. Sú skipan er síðan vitaskuld háð efnahagsstefnunni, peningamála- stefnunni og skattastefnunni. Það minnir okkur á hve margar hliðar stjómmálanna hafa áhrif á fjöl- skyldulíf. 3. Sambúðarform Sjálfstæðisflokkurinn íslenski hefur löngum talið hjónaband það sambýlisform, sem veitir fjölskyld- unni mesta festu. Þess vegna teljum við í Sjálfstæðisflokknum, að lög- gjöfin eigi að styðja hjónabandið og að minnsta kosti ekki í minna mæli en önnur sambúðarform. Komi það m.a. fram í löggjöf um skatta og um tryggingar svo og í framkvæmd ýmiss konar félags- legrar aðstoðar. Auðvitað verður að virða óskir þeirra, sem heldur kjósa annað sam- búðarform, þ.e.a.s. óvígða sambúð, og margur býr af ýmsum ástæðum einn með bömum sínum. Þó að aðstaða þessara fjölskyldna sé ólík teljum við nauðsynlegt, að þjóð- félagið — ríki og aðrir opinberir aðilar — stuðli að því svo sem verða má, að öll böm fái sömu tækifæri. Það er hagur bamsins, sem á að vera í fyrirrúmi. Á síðustu tveim áratugum hafa verið gerðar merkjar skýrslur um stöðu hjónabandsins, bæði samnor- rænar skýrslur og á vegum ein- stakra Norðurlandaríkja. Hafa þær leitt til margra lagabreytinga. Hin óvígða sambúð hefur fengið geysi- mikla umfjöllun og margir rætt aðgerðir til að veita henni réttar- áhrif hjúskapar. En nú er svo að sjá sem hjónabandið komist meir í tísku á nýjan leik og unga fólkið sjái að leiðin til að veita sambúð- inni æskileg réttaráhrif er einfald- lega að gifta sig. Samt eru blikur á lofti, því að á síðustu árum hafa 30% hjónabanda f Vestur-Evrópu farið út um þúfur og á Norðurlönd- um 50%. Miklu skiptir að bams- fæðingar eru á síðustu tveimur ámm og sérstaklega á síðasta ári fleiri en mannfjöldaspár gerðu ráð fyrir. Það sem að ofan er rætt um hjónabönd og bamsfæðingar gerir það enn nauðsynlegra að skynsam- legri og mannúðlegri fjölskyldu- stefnu sé fylgt við pólitískar ákvarð- anir. 4. Foreldrar og börn Sjálfstæðisflokkurinn leggur áherslu á að það eru foreldramir sjálfir, sem bera höfuðábyrgð á uppeldi og menntun bama sinna, og hið opinbera á með ýmsu móti að styðja foreldrana til að geta gegnt þessu ábyrgðarhlutverki sínu. Þeir eiga að hafa rétt og möguleika til að hafa samstarf við skólann og áhrif á aðferðir hans og innihald kennslu, þegar þeirra eigin böm eiga f hlut. Þetta leiðir m.a. af því, sem ég nefndi í 1. tölulið, þ.e. að fjölskyld- an hefur sem granneining þjóð- félagsins rétt til stuðnings og vemdar. Mikilvæg aðferð til að veita þann stuðning er að sjá um að foreldramir eigi kost á því að gegna uppeldisskyldu sinni á þann hátt sem þeir telja sjálfir að baminu sé hollast. Þetta er og í samræmi við grandvallarréttindi bamsins. Útivinnandi foreldrar ættu að eiga fleiri kosta völ en að senda böm sín til gæslu í stofnunum hins opinbera, er bjóða niðurgreidda vist, sem aðrir eiga ekki kost á. Enn er alllöng leið að því marki að við getum talað um raunveralegt val- frelsi foreldra þegar umönnun er annars vegar. Það verður fyrst þeg- ar hinir ýmsu kostir era fjárhags- lega sambærilegir, bæði á opin- beram stofnunum eða í höndum einkaaðila innan eða utan heimilis bamsins. Við getum ekki heldur talað um raunveralegt valfrelsi for- FINLANDIA 88 Séð yfir sýningarsal FINLANDIU 88. Frímerki Jón Aðalsteinn Jónsson Forsjármaður þessa frímerkja- þáttar í Mbl. hefur tekið sér smáhvíld frá skrifum um frímerki og annað þeim skylt, enda mun satt bezt að segja tæplega mikill tími hjá frímerkjasöfnurum til að sinna þessu tómstundagamni sínu um hásumarið. Hins vegar hef ég orðið þess var á liðnum vikum, að spurzt hefur verið fyrir um þessa þætti og þá einkum, hvort ekki verði sagt eitthvað frá síðustu al- heimsfrimerkjasýningunni, FIN- LANDIU 88, sem haldin var í Hels- inki í Finnlandi dagajia 1.-12. júní sl. Segja má og, að engum sé það skyldara en mér, þar sem ég var umboðsmaður sýningarinnar hér á landi. Vissulega var greint allræki- lega frá henni og undirbúningi hennar hér í blaðinu í þætti 30. apríl sl., og það muna vafalaust einhveijir. Hins vegar er þessi sýn- ing nú að baki, svo að auðveldara er að segja nákvæmlega frá henni að þessu sinni. Raunar sendi ég nokkra fréttapistla heim, meðan ég dvaldist í Helsinki, en vitaskuld má búast við, að þeir hafi farið fram hjá einhveijum. Þess vegna er nú rétt að birta nokkuð heillega frá- sögn frá FTNLANDIU 88 og hinu helzta, sem þar mátti sjá. Eins og venjulega verður samt að segja frá. flestu í sem stytztu máli og stikla á mörgu, þar sem hér var bæði margt og mikið að skoða. í fyrrgreindum þætti í apríllok var sagt allrækilega frá undirbún- ingi undir FINLANDIU 88 og vænt- anlegri þátttöku islenzkra safnara í sýningunni. Verður að vísa til þess, sem segir um þetta í téðum þætti. FINLANDIA 88 var opnuð með allmikilli viðhöfn 1. júní fyrir boðs- gesti, sem vora fjölmargir, í sýning- arhöll (Masshallen] Helsinki-borg- ar. Er þessi sýningarhöll mjög rúm- góð og björt og tekur að mínum dómi mjög fram Bella Center í Kaupmannahöfn, þar sem HAFNIA 87 var haldin í október síðastliðn- um. Hafa Finnar bætt þó nokkra rými við þennan sýningarstað frá 1985, en þá var NORDLA 1985 haldin þar. Hér var t. d. mjög rúmt á milli sýningarramma, svo að auð- velt var að skoða sýningarefnið vel og rækilega, þótt mannfjöldi væri á stundum mikill. Hið eina, sem ég gat fundið að þessum stað, var of mikill raki í húsinu. Mátti jafnvel sjá merki þess í ýmsum römmum, þegar líða tók á sýninguna, þar sem frimerki og umslög tóku að detta niður. Allt var þetta samt lagað jafnóðum og það uppgötvaðist. Rakavandamál hefur lengi fylgt frímerlg'asýningum og þá ekki sízt, þegar mjög heitt er í veðri eins og var þessa sýningardaga í Helsinki. Einn daginn komst hitinn t. d. upp undir 30 stig á Celsius og alla dag- ana var hann yfir 20 stig. Þótti Mörlandanum jafnvel nóg um suma dagana. Vafalaust hefur þessi hiti haft sömu áhrif og sólskinið hafði hér á landi sumarið 1984, þegar við héldum NORDIU 84 í Laugar- dalshöllinni, þ.e. dregið úr aðsókn að sýningunni. Finnar höfðu vænzt þess, að sýningargestir yrðu alls um 100 þúsund eða svo létu þeir uppi. Hins vegar varð niðurstaðan sú, að þeir urðu alls rúmlega 50 þúsund, að því er ég fregnaði. Má vera, að það hafí valdið aðstandend- um sýningarinnar einhveijum von- brigðum. Er það ofur skiljanlegt, því að hér hafði verið unnið mikið verk um fímm ára skeið til þess að koma á fót stórglæsilegri alheims- sýningu, sem jafnframt var af- mælissýning í tvennum skilningi. Engu að síður undraðist ég á stund- um, hversu margir sóttu sýninguna — og það jafnvel á rúmhelgum degi — þrátt fyrir sólskin og mikinn hita fyrir utan. Ekki var unnt að skoða þessa miklu sýningu nema með hvíldum, enda var víða í höllinni séð fyrir margs konar stöðum, þar sem fá mátti veitingar eftir hæfí og vild. En ekki vora þær gefnar þar, svö að ég held við þolum vel saman- burð við Finna, þótt flestum þyki allt orðið dýrt á veitingastöðum hérlendis. Sýningarsvæðið, sem fara þurfti yfir, var um tveir hektar- ar að flatarmáli, og þar vora til sýnis meira en milljón frímerki.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.