Morgunblaðið - 13.08.1988, Síða 54

Morgunblaðið - 13.08.1988, Síða 54
54 MORGUNBLAÐE) IÞROTT1R LAUGARDAGUR 13. ÁGÚST 1988 FRJÁLSAR Lewis á 19,82 sekúndum Carl Lewis náði þrið]a bezta tíma frá upphafi í 200 metra hlaupi á fijálsíþróttamótinu í Sestri- ere á Ítalíu. Hann náði tímanum 19,82 sek og var meðvindur innan löglegra marka. Bezti árangur Lew- is í 200 metra hlaupi er 19,75 sek en heimsmetið, 19,72 sek, setti ítal- inn Pietro Mennea árið 1979. Lewis keppti ekki í 100 m hlaupinu en þar varð heimsmethafinn Ben Johnson öruggur sigurvegari. Hann hljóp á tímanum 9,98 sek, sem er góður árangur miðað við að mót- vindur var. Joe DeLoach varð annar á 10,11 sek. Roger Kingdom náði öðrum bezta tíma frá upphafi í 110 m grinda- hlaupi á mótinu. Hann hljóp á 12,97 sek en heimsmetið, 12,93 sek, setti Renaldo Nehemiah fyrir sjö árum. MARAÞON um næstu helgi Reykjavíkurmaraþon fer fram í fímmta skipti sunnudaginn 21.ágúst. Boðið er upp á þrjár vega- lengdir, maraþonhlaup, hálfmara- þon og 7 km hlaup. Þeir, sem hyggjast taka þátt, eiga að skrá sig í hlaupið fyrir 15. ágúst. Eftir þann tíma tvöfaldast gjald til skráningar. Skráning fer fram hjá Ferðaskrifstofunni Úrval. RÓÐUR Islenzkur róðrarkappi gerir það gott í Bandaríkjunum ÍSLENZKUR námsmaður í Bandaríkjunum, Jón Magnús Jónsson, hefur gert það gott á háskólamótum í kappróðri þar í landi. Hann náði til dæm- is þeim árangri að verða i þriðja sæti í flokki feræringa með stýrimanni, með liði sínu frá Madison Wisconsin há- skólanum á sterku móti í Syracuse í New York fylki en þar kepptu lið alls staðar að úr Bandaríkjunum. Amótinu í Syracuse, sem fram fór í júní, kepptu lið frá tæplega 30 háskólum og 12 í flokki Jóns og félaga. Miami frá Flórída sigraði en Brown frá Rhode Island varð í öðru sæti. Jóni og félögum frá Madison Wis- consin tókst síðan að tryggja sér þriðja sætið eftir harða baráttu við Loyla frá Kalífomíu. Jón og félagar hans hafa einn- ig gert það gott á öðrum mótum. Þeir unnu til dæmis sigur í há- skólakeppni í Miðríkjum Banda- ríkjanna 'apríl. Jón fór að æfa róður eiginlega fyrir tilviljun. „Ég fór til náms í landbúnaðardeildinni í Madison Wisconsin síðasta haust og þekkti þar engan til að byrja með. Síðan rakst ég á róðrarkappa á æfingu Uð háskólans í Madlson Wlsconsln í flokki ferærínga með stýrimanni. Jón Magnús Jónsson er lengst til hægri. fyrir tilviljun, heillaðist af íþrótt- inni og þeir drifu mig með, þrátt fyrir að ég kynni þá ekkert í íþróttinni. Eftir það fór ég að æfa og eftir erfiðar æfingar og bar- áttu tókst mér að komast í skóla- liðið í mínum flokki", sagði Jón í samtali við Morgunblaðið en hann er staddur hér á landi í sumar. Jón segir að róður njóti vax- andi vinsælda sem íþróttagrein í Bandaríkjunum. Keppnismenn í róðri þurfa að vera í geysilega góðu úthaldsformi og stundaði Jón æfingar í tvo til þtjá tíma á dag sex sinnum í viku. „En það er þess virði og ég ætla að halda ótrauður áfram", sagði Jón. TILBOÐ VEGNA SJÓTJÓNA Coleman fellihýsi verða seld með umtalsverðum afslætti Opið virka daga kl. 10-18. Sölusýning laugardag kl. 10-16. Bjóðum eilinig: Fortjöld fyrir Columbia. Gardínur fyrir rúm. Hjólkoppa. Ábreiður fyrir gaskúta. Ábreiður fyrir grill Grillteina. Sama lága verðið: Örfá Murry reiðhjól 20“, ýmsargerðir. Örf á grill óseld. Yofleikuf'88 Skeifan 3G símar 686204 og 686337. Síðasti opnunardagur laugardagur 20. ágúst ■ VESTUR-Þjóðverjar und- irbúa sig nú af krafti fyrir HM- leikinn í knattspymu gegn Finn- landi í lok mánaðarins. Liðið sigr- aði vestur-þýska FráJóni ólympíuliðið 4:3 ný- Halldóri lega. Mill, Eck- Gaiýarssyni stein, Littbarski og iÞyskaland, Klinsmann skor- uðu fyrir A-liðið en mörk ólympíuliðsins gerðu Bayem- leikmaðurinn Reuter 2 og Hörster 1. ■ GUNNAR Sauer, vamarmað- urinn snjalli hjá Werder Bremen, meiddist í leiknum við ólympíuliðið. Ekki er vitað hve slæm meiðslin em, en hann tognaði á fæti. Ekki er víst að hann geti verið með í leiknum gegn Finnum, en Becken- bauer hafði lýst því yfir að hann myndi byggja á Sauer, þar sem Matthias Herget hefur verið meiddur síðan í Evrópukeppninni. ■ OTTO Rehagel þjálfari Werder Bremen varð fimmtugur á þriðjudaginn. ■ LAJOS Detari og félagar í griska liðinu Olympiakos Piröus tóku á móti vestur-þýska liðinu Bayer Leverkusen í vináttuleik í Aþenu í vikunni. Leikurinn fór 1:0 fyrir Grikkina og lagði Detari upp markið, en var slakur að öðm leyti. Samið var um þennan leik þegar Detari var seldur frá Leverkusen til gríska liðsins fyrir 22 milljónir marka; andvirði um 550 milljóna ísi. króna, á sl. sumri. ■ CHELSEA hefur keypt vam- armanninn eitilharða Graham Ro- berts frá Glasgow Rangers fyrir 470.000 pund. Rangers keypti hann fyrir 450.000 í desember 1986, en eftir rifrildi við Souness, stjóra Rangers í fyrravetur, til- kjmnti stjórinn að Roberts léki ekki framar fyrir félagið.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.