Morgunblaðið - 13.08.1988, Síða 55

Morgunblaðið - 13.08.1988, Síða 55
MORGUNBLAÐŒ) IÞROTTIR LAUGARDAGUR 13. ÁGÚST 1988 KNATTSPYRNA / 2.DEILD ÍÞRÚmR FOLK I HALLDÓR Halldórsson leik- ur í dag sinn 100. leik í meistara- flokki IR, er liðið mætir KS. Þetta er 113. leikur ÍR í meistaraflokki síðan hann var endurstofnaður 1983. ■ Zico, knattspyrauhetjan kunaa frá Brasilíu hefur skrifað undir nýjan samning við Flam- engo. Zico ætlar sér að halda áfram í knattspyrnunni að minnsta kosti til 37 ára aldurs. Samningur- inn sem er til eins árs er svokallað- ur áhættusamningur. „Ég vil ekki vera ásakaður um að afla mér pen- inga á auðveldan hátt Ef sú staða kemur upp að ég get eklci staðið við minn hluta samningsins þá rifti ég honum og skila hluta peninganna aftur“ sagði Zico. Hann segist hafa sterkar taugar til Flamengo enda hefur hann leikið með liðinu frá 1967 að undanskildum tveimur árum er hann lék með Udiense á ítaliu. ■ SVISSNESKA knattspyrnu- liðið Grasshopper mun leika í Basel í 1. umferð Evrópubikar- keppninnar. UEFA dæmdi Grass- hopper til þess að leika einn heima- leik í Evrópukeppninni utan Z“urich sem er heimaborg liðsins. ■ PATRIK Sjöberg, sænski heimsmethafínn í hástökki, er ekki meðal sænska meistaramótinu í fíjálsum íþróttum sem hefst í dag. Ástæðan er sú að hann á við meiðsli að stríða í fæti að sögn Vi|jo Nous- iainen þjálfara hans. Nousiainen neitaði þeim orðrómi að Sjöberg hefði hætt við þátttöku á mótinu vegna þess að hann væri pirraður á stanslausri umfjöllun um meiðsli sín og ágiskunum um hversu mikið hann þénaði á íþróttinni. „Patrik fínnur enn fyrir meiðslunum og það er eina ástæðan fyrr því að hann keppir ekki“, sagði Nousiainen sem einnig er fósturfaðir Sjöberg. ■ PERESTROJKA Mikhail Gorbachevs hefur sín áhrif á íþróttir í Sovétrflgunum. Nýjustu fréttir herma að nú eigi sovésk knattspymufélög að standa sjálf undir rekstri sínum, en þau hafa verið ríkisrekin til þessa. í sam- bandi við þá baráttu sem staðið hefur árum saman um hvort sov- éskir knattspymumenn eigi að fá leyfí til þess að fara út í atvinnu- mennsku, er á döfínni að stofna nýtt knattspymusamband skipað leikmönmnum, þjálfumm og dóm- umm. elleftu stundu FH-ingartryggðu sér sigur á Víðismönnum með tveimur mörkum á tveimur síðustu mínútunum Barlst um greinilega báðir að ná MorgunDiaoio/MjM Ragnarsson, FH og Vilhjálmur Einarsson, Víði, em einbeittir á svip og ætla sér setti sinn svip á leikinn. ÞAÐ voru aðeins rúmlega tvœr mínuútur eftir. Staðan var 2:1 fyrir Víði og blaðamaður Morg- unblaðsins var í huganum far- inn að semja fyrirsögn sem hljómaði eitthvað á þessa leið: „Gamla Víðisbaráttan setti FH-inga út af laginu." Þá skyndilega skoruðu FH-ingar tvívegis og sigruðu. Eftir þenn- an sigur er 17 stiga munur á FH„ sem er efst f 2. deild og Víði, sem er f þriðja sæti. Fátt markvert gerðist í upphafí leiks FH og Vfðis, sem fór fram á Kaplakrikavelli í gær. Er líða tók á hálfleikinn fóru bæði liðin að ■■■■■■ skapa sér færi en Guðmundur það voru Víðismenn, Jóhannsson Sem skoruðu eina skrifar mark hálfíeiksins. Bjöm Vilhelmsson skallaði þá boltann í markið eftir góða sókn. FH-ingar mættu ákveðnir til seinni hálfleiks, sóttu stíft. og jöfn- uðu fljótlega. Krisján Hilmarsson skaut föstum bolta fyrir markið og þar var Pálmi Jónsson fyrstur að átta sig og tókst að ýta knettinum inn í markið. FH-ingar fengu stuttu síðar víta- spymu eftir klaufalegt brot Víðis- manna í vítateig sínum. En Gísli Hreiðarsson, markvörður Víðis, gerði sér lítið fyrir og varði víta- spymu Guðmundar Hilmarssonar stórglæsilega. Þetta var vendipunktur í leikn- um. Víðismenn fóru að gera harða hríð að marki FH og þegar tíu mínútur voru eftir kom Heimir Karlsson, þjálfari Víðis, sínum mönnum yfír með marki af stuttu færi. Leikurinn snýst viA FH-ingar gáfust þó ekki upp eins og áður sagði og tókst þeim að skora tvö mörk á elleftu stundu. Baráttujaxlinn ólafur Jóhannesson jafnaði 2:2 þegar tvær mínútur voru eftir. Með mikilli ákveðni tókst honum að koma sér í gott skotfæri í teig Víðismann og sendi knöttinn glæsilega efst í fjærhomið. Sigurmarkið skoraði Kristján Gfslason á síðustu mfnútu. Hann sneri af sér vamarmenn Víðis og sendi boltann neðst í bláhomið. Þannig var sigur FH f höfn en Víðis- menn sátu eftir með sárt ennið og eiga nú enga möguleika á að kom- ast upp í 1. deild. Víðismenn börðust vel lengst af í leiknum en slökuðu stundum á og það var afdrifaríkt. FH-ingar geta leikið mun betur en þeir gerðu í þessum leik. Miðað við gang leiks- ins hefði jaftitefli verið sanngjamL FH-Víftir 3:2 (0:1) Mörk FH: Pálmi Jónsson (52.), Ólafur Jóhannesson (88.), Kristján Gislason (90.). Mörk Víðis: Bjöm Vilhelmsson (85.), Heimir Karlsson (81.). Maður leiksins: Ólafur Jóhannesson, FH. KNATTSPYRNA / 2. DEILD GOLF Dýrmætur sigur hjá Selfyssingum Ólafur Jónsson fór holu í höggi SELFYSSINGAR unnu dýrmæt- an sigur á Breiðabliki á heima- velli f gær. Það var baráttugleði Selfossliðsins sem skóp þenn- an sigur, en leikurinn var dýr- mætur báðum liðum vegna stöðu þeirra f deildinni. Ibyijun fyrri hálfleiks náðu Sel- fyssingar strax undirtökum sem þeir héldu allan hálfleikinn. Eina mark leiksins gerði Heimir Bergs- son eft*r góða send- Siguröur ingu frá Guðmundi Jonsson skrifar Magnússyni og frý Selfossi skoraði örugglega frá markteig. Eftir markið einkenndist leikur liðanna af nokkru miðjuþófi án þess að þau næðu afgerandi sóknarlot- um. Selfyssingar tókst þó undir lok- in að ógna aðeins marki Blikanna sem náðu sér illa á strik utan hvað Jón Þórir Jónsson skapaði nokkrum sinnum hættu við mark Selfyssinga f skyndisóknum. Blikamir komu ákveðnir til leiks í síðari hálfleik, staðráðnir í að jafna leikinn. Góð vamarbarátta Selfyss- inga undir stjóm Þórarins Ingólfs- sonar kom í veg fyrir það. Mikill darraðadans varð oft í vftateig Sel- fyssinga þegar háar sendingar Blik- anna komu fyrir markið. Þeir höfðu þó ekki heppnina með sér til að skora og mega því una við fallbar- áttuna enn um sinn. SeHöss-UBK 1 : 0 (1 : 0) Mark Selfoss: Heimir Bergsson (30. mín.). Maður leiksins: Þórarínn Ingólfsson, Selfossi. „ÞETTA var rosalegt — svona gerist ekki nema einu sinni á ævinni," sagði Ólafur Jónsson, fyrrum fyrirliði fslenska landsliðsins í hand- knattleik, við Morgunblaðið i gærkvöldi skömmu eftir að hann hafði farið holu f höggi á Öndverðarnessgolfvelli. Tíu Víkingar taka nú þátt í hinu árlega „Big 'M“ golf- móti, sem hófst í dag. Ólafur, sem var aðalfararstjóri lands- liðsins í handknattleik a * Spánar- mótinu, kom með liðinu til lands- ins í gaér. Hann komst ekki í golf í ferðinni, en átti von á góðu gengi í mótinu. „Þetta er æðsti draumur allra kylfínga, en ég náði takmarkinu á einni erfiðustu par þijú holu landsins og ekki skemmir það fyrir," sagði ólafur. Umrædd hola er á 6. braut og er 178 metrar. / Ólafur Jónsson 1.DEILD KV. Fyrsti sigur Fram Framstúlkurnar unnu sinn fyrsta sigur í 1. deildinni í sum- ar er þær sigruðu BÍ á Fram- velli í gærkvöldi. Leikurinn end- aði 2:0 fyrir Fram. Stigin þijú sem Fram fékk voru fyrstu stig liðsins í deildar- keppninni í sumar. Leikur botnlið- anna var vægast sagt slakur. Bar- átta Framstúlknanna var þó öllu meiri, enda uppskáru þær sigur. Fyrra mark Fram skoraði Lára Eymundsdóttir á 10. mínútu beint úr aukaspymu. Rétt fyrir leikhlé bætti Brynhildur Þórarinsdóttir öðru marki við fyrir Fram og fleiri urðu mörkin ekki í leiknum. 3. DEILD Grindavík tapaði! Tveir leikir voru í 3. deild í gærkvöldi. í Sandgerði vann Reynir Grindavík 2:1, en staðan var 1:1 í hálfleik. Jóhann Jónsson og Valþór Sigþórsson gerðu mörk heimamanna, en Páll Bjömsson skoraði fyrir Grindavík. Júlíus Ing- ólfsson misnotaði vítaspymu fyeWF,, gestina og Reynismenn léku 10 all- an seinni hálfleik, þar sem einum þeirra var vikið af veUi. Huginn gerði góða ferð á Höfn og sigraði Sindra 2:3. Staðan í leikhléi var jöfn 1:1. Hermann Stefánsson og Þrándur Sigurðsson gerðu mörk heimamanna en fyrir Huginn skor- aði Kristján Jónsson 2 mörk og Valdimar JúUusson eitt Um helgina Um helgina verður mikið að gerast í knattspyrnunni. Á laugardag leika ÍR- KS í 2. deild karla kl. 14 f Laugadal. í 1. deild kvenna verða tveir leikir kl. 14. Þá leika ÍBK-ÍA í Keflavfk og KA-Stjaman á Akureyri. Einn leikur verður í 2. deild kvenna, UBK-Þór A. mætast í Kópavogi kl. 14. Þá verða fjölmargir leikir í 3. og 4. deild. Sunnudagur Valur-Völsungur leika t 1. deild karla kl. 19 á Hliðarenda. í 1. deild kvenna verður einn leikur. KR-ÍBÍ spila á KR-velli kl. 14. Tveir leikir verða 1 4. deild. Mánudagur Fjónr leikir verfa f 1. deild karla. Fram-ÍBK á Framvelli, KA-KR á Akur- eyri, Leiftur-Víkingur á Ólafsfirði og ÍA-Þ6r á Akranesi. Allir leikimir heQ- ast kl. 19. Þá verður Islandsmeistaramótið f tennis á Víkingsvelli. Síðari hálf- leikurinn fór líkafram ■■■ ÞAU mistök urðu við vinnslu blaðsins í gær aö stöasta hluta frásagnar af leik Leifturs og ÍBK í undanúrslitum Mjólkur- bikarkeppni KSÍ vantaöi í grein- ina. Beðistervelvirðingará _ þessu, en hér birtist niöurlagio' eins og þaö átti aö vera: í síðari hálfleik vom Leifturs- menn mun ákveðnari en gekk illa að skapa sér hættuleg færi. Þeir pressuðu stíft mikinn hluta hálf- leiksins að marki Keflvíkinga en sóknir þeirra mnnu yfirleitt út S sandinn þegar kom að vítateignup^- Það vantaði broddinn í sóknina hjá þeim og herslumuninn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.