Morgunblaðið - 08.09.1988, Side 14

Morgunblaðið - 08.09.1988, Side 14
14 asor qjrtrM'n’rqq? c tiun/n ’Tt/Miq qxqt r:Ti/if iPOM MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. SEPTEMBER 1988 S8<*sy.ólTa^,wð98® DANSSKOLI AUÐAR HARALDS __ AaOsaV’ S>r6'^< sP°<a\ó<'"^>4a<'s' 11S*g$*&** w»\6- 'S&íSÍ^ s^& ® í0W • sO°^‘ Kennslustaðir: Ath: 2 nýir kennslustaðir: Heilsugarðurinn, Garðabæ, Garðatorgi 1 og ........ Gullsport við Gullinbrú, Stórhöfða 15. Reykjavík: Skeifan 17, (Ford-húsinu). Gerðuberg, Breiðholti. KR. heimilið v/Frostaskjól. Innritun í símum 656522 og 31360 frá kl. 13-19 alla virka daga. Keflavík: Hafnargata31. Innritun í síma 92-13030 frá kl. 14-19 alla virka daga. VISA9 Kennsla hefst mánudag- inn 12. sept. SÍMAR 656522 - 31360 - ÍMfl Afhending skírteina: Heilsugarðurinn, Garðabæ, laugardag 10. sept. kl. 10-12 f.h. KR heimilið v/Frostaskjól, laugardag 10. sept. kl. 14-16. Gerðuberg, Breiðholti, laugardag 10. sept. kl. 13-16. Keflavík, Hafnargata 31, laugardag kl. 13-18. Gullsport við Gullinbrú sunnudag 11. sept. kl. 14-16. Skeifan 17 sunnudag 11. sept. kl. 13-18. AuÐAR HA RA L D í þrígang stökk Guðbergur Guðbergsson á þessum ameríska dreka yfir hina bílana áður nóg. Guðbergur sá um áhættuatriði í kvikmyndinni Foxtrot og var því góðri æfingu. Torfærukeppni í Grindavík: Taugatitringnr í torfæruköppum ÞAÐ ER orðin veruleg spenna í íslandsmeistarakeppninni í tor- færuakstri eftir keppni í Grindavik á sunnudaginn. Aðeins á eftir að keppa á Akureyri og eiga fjórir ökumenn möguleika á meistaratitlinum í flokki sérút- búinna jeppa og tveir í flokki óbreyttra. Bergþór Guðjónsson frá Hvolsvelli sigraði í flokki sérútbúinna jeppa í Grindavík með miklum yfirburðum, en Gunnar Hafdal frá Skagaströnd vann flokk óbreyttra jeppa og náði með því forystu í stiga- keppninni um titilinn í sinum flokki. Bergþór Guðjónsson sýndi mikla lagni í sérútbúna flokknum í Grindavík og lagði grunnin að sigr- inum í fyrstu tveimur þrautunum, náði afgerandi forskoti, en sex þrautir voru eknar. Kannski það hafi slegið helstu andstæðinga hans út af laginu, því báðir ofkeyrðu í tímabraut í lokin. Guðbjöm Grímsson sem vann síðustu keppni á Egilsstöðum missti taktinn og sömuleiðis Haraldur Ásgeirsson, sem endaði þátttöku sína með því að bijóta öxul í millikassa eftir stökk. Tapaði hann þar með dýr- mætum stigum til íslandsmeistara en hefur þó enn forystu í sérútbúna flokknum. „Ég ætlaði að taka því rólega til að hala inn stig en maður æsir sig alltaf í þessum hamagangi. Ég ók alltof greitt í tímabrautinni, en ég held að forskotið sé það mikið að ef ég er rólegur í síðustu keppninni þá nái ég í titilinn," sagði Harald- ur. Haraldur hefur 4.340 stig, Guð- bjöm 4.165, Gunnar Guðmundsson 4.163 og Bergþór 4.135. „Ég get nánast gleymt því að ná titilinum," sagði Bergþór. „Þrátt fyrir þijá sigra á árinu, þá er möguleikinn lítill. Ég gekk út frá því sem vísu að fimm mót af sex ættu að gilda til íslandsmeistara, en nú hefur Landssambandið gefið það út að það sé misskilingur. Margir kepp- endur höfðu reiknað með þessu, m.a. nokkrir af Austfjörðum sem slepptu keppni í Reykjavík fyrir skömmu af þessum sökum. Mér finnst ég hafa ná tökum á jeppanum, eftir að ég setti endur- bætta vél í hann,“ sagði Bergþór eftir sigurinn í Grindavík. „Helstu andstæðingamir virtust ekki í formi, náðu ekki upp einbeitingu og líklega hefur forystan sem ég náði í byijun gert sitt.“ Guðbjörn Grímsson fór of geyst á köflum en náði samt öðru sæti. Hann vann keppni á Egilsstöðum fyrir skömmu og er í öðru sæti til íslandsmeistara. Bergþór Guðjónsson frá Hvolsvelli sýndi mikla lagni í torfærukeppni í Grindavík og vann sína þriðju keppni á árinu á Willys. Skagstrendingurinn Gunnar Hafdal er nú kominn á fullan skrið í flokki óbreyttra jeppa, eftir slæma byijun á árinu. Hann hefur nú nauma forystu til íslandsmeistara fyrir síðustu keppnina, Gunnar hef- ur 4.832 stig, en Þórður Gunnars- son 4.828. Gunnar hafði betur í Grindavík, var virkilega grimmur í akstri. Keppnin dróst of mikið á langinn, vegna þess að fjöldi keppn- isjeppa ar einfaldlega of mikill, miðað við fyrri mót. Oftast hefur verið reynt að miða við að hafa sex jeppa í hvomm flokki, sem brást núna og sýningaratriði töfðu keppn- ina óþarflega mikið. Það hafði þó lítil áhrif á keppendur, sem sjálf- sagt leggja allt í sölumar á Akur- eyri um miðjan mánuðinn. Lokastaðan í Grindavík Sérútbúnir jeppa 1. Bergþór Guðjónsson Willys 895 2. Guðbjöm Grímsson Bronco 753 3. Gunnar Guðmundss. Willys 692 4. Steinar Sigurðsson Willys 642 5. Sturla Jónsson Willys 567 6. HaraldurÁsgeirsson Jeepster 550 Óbreyttirjeppar 1. Gunnar Hafdal Willys 856 2. Þórður Gunnarsson Ford42 778 3. Ríkharður Jónsson Willys 758 4. Kári Jóhannsson Willys 747 5. Stefán Gunnarsson Willys 700 - G.R.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.