Morgunblaðið - 08.09.1988, Page 36

Morgunblaðið - 08.09.1988, Page 36
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. SEPTEMBER 1988 V 36 Leikfélag Akureyrar tekur til starfa: Lítum björtum aug- um til leikársins - segir Amór Benónýsson leikhússtjóri Leikfélag Akureyrar hóf formlega starfsemi sina á mánu- dagf með æfingum á fyrsta verki leikársins „Skjaldbakan kemst þangað líka“ eftir Árna Ibsen. Leikstjóri er Viðar Eggertsson og leikarar eru tveir, þeir Theódór Júlíusson og ♦r Þráinn Karlsson, báðir fastráðnir hjá Leikfélagi Akureyrar. Aðeins þrír leikarar verða fastráðnir hjá LA í ár, auk þeirra Theódórs og Þráins ér Marinó Þorsteinsson fastráðinn. Stefnt er að frumsýningu á Skjaldbökunni 7. október, en þó verður NÖRD Gríniðjunnar á fjölum gamla Samkomuhússins áður en kemur að fyrsta verki Leikfélags Akureyrar. NÖRD verð- ur sýnt 22.-25. september. íslenski dansflokkurinn kemur norður um mánaðamótin októ- ber/nóvember og verður með tvær sýningar á verðlaunaverki Hlífar Svavarsdóttur „Af mönnum“. Dansferðina tengir íslenski dans- flokkurinn kynningu sem hann ætlar að standa fyrir í skólum norðanlands þar sem ætlunin er að kynna nemendum listdansinn 1 sem listform. Amór sagði að slík kynningdansflokksins væri merki- leg nýjung enda hefði hann lítið verið kynntur utan höfuðborgar- svæðisins til þessa og vonandi yrði þetta til þess að dansflokkurinn færi víðar um landið. „íslenski dansflokkurinn hefur staðið mjög hátt innan leikhússins almennt hin síðari ár, en er ef til vill ekki nægilega þekktur á meðal almenn- ings, sagði Amór. Hið sívinsæla bamaleikrit „Em- Bladberar óskast Nú, þegar skólarnir eru að byija, vantar okkur blaðbera sem geta borið út fjrrir hádegi. Stariið hentar vel húsmæðrum sem eldri bæjarbúum. í boði er hressandi morgunganga, sem borgar sig. Akureyri, sími 23905. 4,i SKOLAVORUR Verslun á tveimur hæöum Kaupvangsstræti 4 sími 26100 Akureyri BÓKVAL SKOLA: REIKNIVELAR Verslun á tveimur hæöum Kaupvangsstræti 4 sími 26100 Akureyri BOKVAL il í Kattholti" undir leikstjóm Sunnu Borg verður jólaleikrit LA í ár og frumsýnt annan dag jóla, 26. desember. Þá verður tekið upp verk bandaríska höfundarins Ed- wards Albee, „Hver er hræddur við Virginiu Woolf?“. Inga Bjama- son leikstýrir verkmu og verða þau hjón Helgi Skúlason og Helga Bachmann, Ragnheiður Tryggva- dóttir og Ellert A. Ingimundarson í aðalhlutverkum. Leikmynda- teiknari verður Guðrún Svava Sva- varsdóttir. „Þau hjón Helgi og Helga hafa fengið leyfí hjá Þjóð- leikhúsinu til að taka þátt í leikn- um hjá okkur fyrir norðan og erum við mjög þakklát fyrir. Hinsvegar eru leikaraskipti ekki einvörðungu á annan veginn. Leikfélag Reykjavíkur hefur fengið lánaðan einn af okkar leikurum í vetur og mun Theódór Júlíusson taka Morgunblaðið/Rúnar Þór Leikendur og nokkrir aðstandendur Leikfélags Akureyrar á fyrsta formlega starfsdegi leikfélagsins í ár. Frá vinstri á myndinni eru: Guðrún Svava Svavarsdóttir, Guðrún Stefánsdóttir, Freygerður Magnús- dóttir, Sunna Borg, Nanna Ingibjörg Jónsdóttir, Þráinn Karlsson, Valgerður Bjamadóttir og Hallmund- ur Kristinsson. Aftari rðð skipa þeir Arnór Benónýsson leikhússtjóri, Theódór Júliusson og Viðar Eg- gertsson. þáttí„Maraþondansi“ sem LR hyggst setja upp í einhveiju af hinum glæsilegu danshúsum borgarinn- ar.“ Þá mun Amór taka áfram þátt í uppfærslu Þjóðleikhússins á„Marmara“. Lokaverkefni LA verður „Blúndur og blásýra“, en ekki er búið að manna það verk ennþá. Frumsýning verður vænt- anlega á lokaverkefninu í lok mars. Amór sagði að sett yrði upp sérstök leikhúsdagskrá seinnihluta ieikársins í samvinnu leikhús- skórsins, félaga í LA og starfs- manna leikfélagsins. „Með þessari verkefnaskrá telj- um við okkur uppfylla þær skyldur leikhússins að taka til sýninga hveiju sinni sem vönduðust leik- verk, innlend og erlend, og lítum björtum augum til leikársins," sagði leikhússtjórinn. í máli Ar- nórs Benónýssonar kom fram að á síðasta ári hefðu verið settar upp sex sýningar hjá Leikfélagi Akur- eyrar. Sýningar á verkunum urðu alls 123 og á þær munu hafa kom- ið 18.176 áhorfendur sem er met- aðsókn á einu leikári. Af heildarað- sóknartölunni voru 5.400 áhorf- enda böm, en í fyrra var bamaleik- ritið „Einar Áskell" sett upp hjá LA. Þess má geta að íbúar Ákur- eyrarbæjar telja rúmlega 14.000- manns.„Það er því ekki hægt að segja annað en að síðasta leikár hafí bæði verið með óvenju marg- ar uppfærslur og óvenju marga áhorfendur. Fjárhagsstaðan er ósköp_ hefðbundin miðað við leik- hús. Ég nefni ekki tölur í því sam- bandi enda erfítt að reka leikhús með gróða,“ sagði Amór. Árleg aðsókn að Þjóðleikhúsinu hefur verið á bilinu 80.000 til 120.000 áhorfendur og Leikfélag Reykjavíkur hefur dregið til sín 30 til 40 þúsund áhorfendur ár- lega. Viðar Eggertsson, leikstjóri „Skjaldbakan kemst þangað líka“, sagðist mjög sáttur við að vera kominn á heimaslóðir aftur. „Ég er frá Akureyri, bjó úti í þorpi og byijaði að leika hjá Leikfélagi Akureyrar fyrir nítján árum svo ég þykist þekkja mig töluvert hér um slóðir. Mér til mikillar ánægju er ég að selja hér upp það verk, sem mér þykir einna vænst um. Úr því að ég þekki svo vel slóðir og fólk hér, þá fínnst mér verkið eiga svo mikið erindi við allt lands- byggðarfólk. Það fjallar um tvö ljóðskáld — tvær manneskjur, sem taka sína stefnuna hvor í lífínu. Önnur þeirra er eins og ég, sem fór út í heim til að reyna að slá í gegn. Hin persónan er eins og Þráinn Karlsson, sem setið hefur á sínum heimaslóðum og ræktað garðinn sinn. Verkið er óður til þess sem vill yrkja ljóð og líf í því umhverfi sem hann er alinn upp í — einskonar óður til landsbyggð- annnar. Dan Jens Brynjarsson ráðinn hagsýslusljóri RITVELAR Kaupvangsstræti 4 simi 26100 Akureyri Akureyrarbær hefur ráðið - nýjan hagsýslustjóra til starfa. Aðeins ein umsókn barst eftir að umsóknarfrestur var liðinn, frá Dan Jens Bryiyarssyni og var hann ráðinn til starfans. Dan Jens tekur til starfa 1. októ- ber nk. Dan Jens er Akureyringur. Hann lauk grófi í viðskiptafræði frá Háskóla íslands vorið 1987 og hefur síðan starfað sem fjármála- legur framkvæmdastjóri hjá heild- verslun Axels Ó. í Reykjavík. Eins og fram hefur komið lætur Úlfar Hauksson af starfí hagsýslustjóra Akureyrarbæjar á sama tíma og tekur við starfí fjármálastjóra í fóðurverksmiðjunni ístess hf. Staða skipulagsstjóra Akur- eyrarbæjar hefur verið auglýst laus til umsóknar. Pinnur Birgis- son sagði upp störfum frá og með síðustu mánaðamótum eftir níu ára starf og tekur uppsögnin gildi þann 1. desember nk. Umsóknar- frestur um skipulagsstjórastöðuna rennur út 20. september. Tónleikar Gildr- unnar falla niður VEGNA óviðráðanlegra orsaka verður hljómsveitin Gildran ekki I Zebra á Akureyri föstudaginn 9. september. Hljómsveitin mun þess í stað heimsælqa Akureyringa helgina 30. september og 1. október. TÆKNIBYLTING + NY HONNUN * 35% VERÐLÆKKUN með: Þremurtímum, dagatali og vikudegi (á þremurtungumálum) niðurteljara, skeiðklutcku, vekjara o.fl. ffljteiag! □ca TISSOT fworimer Hágæða úr á #PI a 3.950 kr. JÓN BJARNASON & CO Kaupvangsstræti 4, Akureyri. S: 96-24175.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.