Morgunblaðið - 08.09.1988, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 08.09.1988, Qupperneq 42
42 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. SEPTEMBER 1988 Kveðjuorð: Vilhjálmur Ingvars- son framkvæmdastj. Fæddur 27. apríl 1940 Dáinn 18. ágúst 1988 Við hjónin vorum stödd erlendis þegar okkur barst fregn um andlát vinar okkar Vilhjálms Ingvarsson- ar. Okkur hefur ekki áður orðið meira brugðið við dánarfregn óskylds aðila. Okkur var þó kunn- ugt um hin alvarlegu veikindi, sem hijáðu hann og höfðu borið að með svo snöggum hætti sem raun varð á. Við Vilhjálmur kynntumst á skólaárum í Verzlunarskólanum. Tókst þá strax með okkur vinátta þótt nokkur aldursmunur væri. Vafalaust var það vegna sameigin- legra áhugamála og báðir höfðum við alist upp við mikla umræðu um málefni okkar aðalatvinnuvegs. Leiðir okkar lágu svo aftur sam- an þegar ég hóf störf hjá LÍÚ, en skrifstofur Isbjamarins voru þá til húsa í sama húsi. Æviatriðum Vilhjálms hafa verið gerð glögg skil hér í blaðinu og mun ég því ekki rifja þau upp um- fram það sem mér er hugleiknast. Það mun vera sjaldgæft að ung- um manni hafi verið treyst til þeirra ábyrgðarstarfa sem Vilhjálmi vom falin. Rúmlega tvítugum að aldri er honum falið að byggja upp stóra sfldarsöltunarstöð á Seyðisfirði og síðar sfldarverksmiðju, sem þó hef- ur mest verið notuð til bræðslu á loðnu. Hvort tveggja tókst honum mjög vel. Skapaði hann sér virðingu fyrir dugnað og áræði. Nýlega hafði hann hafist handa við endurbygg- ingu á loðnuverksmiðjunni í þeim tilgangi að framleiða gæðamjöl. Hafði hann fest kaup á vélum og tækjum í Noregi í þessum tilgangi. Er nú verið að setja þessi tæki upp á Seyðisfirði. Vilhjálmur hafði yfimmsjón með byggingu hraðfrystihúss ísbjamar- ins á Norðurgarði. Það var einkar athyglisvert að fylgjast með hvem- ig að þeirri byggingu var staðið. Hvert atriði var vel skipulagt og allt gert til þess að kostnaður væri í lágmarki, en þess jafnframt gætt að húsið fullnægði ýtrastu kröfum um framleiðslu á matvælum. Eg minnist margra ánægjulegra stunda á skrifstofu föður Vilhjálms. Ingvar Vilhjálmsson kvaddi mig oft á sinn fund og vom þá rædd þau mál sem ofarlega vom á baugi. Oft var Vilhjálmur viðstaddur þessa fundi og var fróðlegt fyrir okkur ungu mennina að hlusta á hinn lífsreynda öðling segja okkur frá skoðunum sínum. Ingvar hafði mikla reynslu af samningamálum og samskiptum við viðsemjendur bæði úr hópi verkafólks og sjó- manna. Tel ég mig ekki hafa feng- ið betri ráð frá öðmm í þessu efni. Vilhjálmur var tæplega meðal- maður á hæð. Frekar þéttur á velli, rauðbirkinn á hár, skarpleitur, ljúf- ur í skapi, frekar feiminn en fastur fyrir. Hann hafði erft höfðingslund foreldra sinna og fór ég ekki var- hiuta af henni. Hann var kjörinn í stjóm LÍÚ árið 1970 og átti þar sæti þar til Isbjöminn og Bæjarútgerðin vom sameinuð, en þá óskaði hann eftir að láta af störfum vegna breyttra aðstæðna. Hann gegndi einnig §ölda annarra trúnaðarstarfa fyrir sjávarútveginn. Vilhjálmur var allt- af tillögugóður og lagði ríka áherslu á framtak einstaklinganna» Hann var andvígur þáttöku hins opinbera í atvinnulífi og lagði mikla áherslu á ábyrgð einstaklinganna, sem tækju þátt í atvinnurekstri. Hann var alinn upp á heimili þar sem mikill listrænn áhugi ríkti. Þetta hafði mikil áhrif á hans lista- smekk, sem leiddi til þess, að hann eignaðist mörg falleg málverk og í seinni tíð einnig fágætar bækur. Það er mikill harmur kveðinn að fjölskyldu Vilhjálms við hið sviplega fráfall hans. Mér finnst ég hafa misst góðan vin sem ég sakna mjög. Við Kristín fæmm Önnu Fríðu, bömunum, öldmðum föður Vil- hjálms og öðmm aðstandendum okkar innilegustu samúðarkveðjur með ósk um að minningin um góð- an dreng megi létta sorgir þeirra. Kristján Ragnarsson smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar Mikið úrval af tónlist á plötum, snældum og diskum. Nýkomnar Bibliur af ýms- um geröum, m.a. tvær stærölr meö rennilás. Sendum í póstkröfu samdægurs. Simi 91-20735. l/erslunin UfW Lærið vélritun Sept.-námskeiö eru aö byrja. Vélritunarskólinn sími 28040. Hvrtasunnukirkjan Völvufelli Almennur biblíulestur í kvöld kl. 20.30. Allir hjartanlega velkomnir. Útivist c-'mi/símsvari: 14806 Sunnudagur 11. september: Strandganga f landnámi Ingólfs 21. ferö a og b. a. kl. 10.30. Selvogur - Þorláks- höfn. Þessi strandlengja kemur á óvart vegna fjölbreyttra jarö- myndana. Skemmtileg lelð. b. kl. 13. Flesjar - Þorlákshöfn - Óseyrarbrú. Létt ganga vest- an Þorlakshafnar. Einnig litast um i plássinu. Byggöasafniö skoöaö. Ferö viö allra hæfi. Á bakaleið verður eklð um Ós- eyrarbrúna nýju sem eflaust vekur forvitnl margra. Verð 900 kr., fritt f. börn m. full- orðnum. Brottför frá BSl, bensínsölu (kl. 13.15 frá Sjó- minjasafninu Hafnarfiriði.) Eng- inn ætti aö missa af þessum feröum. Sjáumstl Utivist. fSái inhjálp [ kvöld kl. 20.30 er almenn sam- koma í Þribúöum, Hverfisgötu 42. Mikill og fjölbreyttur söngur. Kórinn tekur lagiö. Samhjálpar- vinir gefa vitnisburöi mánaöar- ins. Allir velkomnir. Samkomur í Þríðbúöum alla sunnudaga kl. 16. Samhjálp. M! Útivist Sími/simsvari: 14606 Helgarferðir 9.-11. sept. a. Þórsmörk, haustlitaferö. Nú fer Mörkin brátt aö skarta sinum fegurstu haustlitum, ekki síst í Básum. Gist í góðum skála. Skipulagöar gönguferðir við allra hæfi. b. Löðmundur - Landmanna- laugar. Gengiö m.a. um Rauö- fossafjöllin og á Krakatind aust- an Heklu. Uppl. og farm. á skrifst., Grófinnl 1, simar: 14606 og 23732. Sjáumstl. Útivist. IMI Útivist Sfmi/símsvari: 14606 Haustlita- og grillveislu- ferð í Þórsmörk helgina 16.-18. sept. Gisting í Útivistarskálunum Bás- um meöan pláss leyfir, annars tjöld. Fjölbreyttar gönguferöir. Grillveisla og kvöldvaka á laugar- dagskvöldinu. Pantiötímanlega. Uppl. og farm. á skrifst. Grófinni 1, síma 14606 og 23732. Sjáumstl Útivist. Hjálpræðís- herínn Kirkjustræti 2 Almenn samkoma f kvöld kl. 20.30. Ofursti Odd Tellefsen og frú Joan tala og kaftelnn Danfel Óskarsson stjómar. Allir velkomnlr. FERDAFÉLAG ÍSLANDS ÖLDUGÖTU 3 SÍMAR11798 og 19533. Helgarferðir Ferðafólags- ins 9.-11. sept. 1) Landmannalaugar - Jökulgil. Jökulgil er fremur grunnur dalur sem liggur upp undir Torfajökul til suðausturs frá Landmanna- laugum. Jökulgil er rómað fyrir litfegurö fjalla sem að þvi liggja, eru þau úr líparíti og soðin sund- ur af brennisteinsgufum. Jökul- gilið er einungis ökufært á haustin, þegar vatn hefur minnk- aö i Jökulgilskvíslinni. Ekið með- fram og eftir árfarvegi. Gist i sæluhúsi Fl i Landmannalaug- um. Einstakt tækifæri, missið ekki af þessari ferð. 2) Þórsmörk - Langldalur Sérhver árstíö hefur sín áhrif á svipmót landsins, og er Þórs- mörk engin undantekning og þvi kjöriö aö leggja leiö sina þangaö á þessum árstíma. Notaleg gistl- aðstaða f Skagfjörðs- skála/Langadal, gönguferöir viö allra hæfi um Mörkina. Njótiö hvíldar meö Feröafélaginu í Þórsmörk. Upplýsingar og farmiðasala á skrifstofu Ff, Öldugötu 3. Brott- för í ferðirnar er kl. 20 föstudag. Feröafélag (slands. FERÐAFELAG ÍSLANDS OLDUGOTU 3 SÍMAR11798 og 19533. Dagsferðir Ferðafélags- ins sunnudaginn 11. sept.: 1) Kl. 08.00 - Þóramörk/dags- ferö. Dvalið veröur 4 klst. í Þórsmörk. Verð kr. 1.200,- 2) Kl. 10.00 - Ólafsskarð - Gertafell - Þrengslavegur. Gengið inn Jósepsdal, yfir Ólafs- skarð, á Geitafell aö Þrengsla- vegi. Verö kr. 600,- 3) Kl. 13.00 Nýja brúln yfir ölf- usárósa/ökuferð. Ekiö um Þrengslaveg, Hafnar- skeiö og Hraunskeiö og yfir nýju brúna við Óseyrartanga. Ekiö verður um Eyrarbakka og komiö viö í verksmiðjunni Alpan, síöan Stokkseyrl, Selfoss og Hvera- geröi og til Reykjavikur um Hell- isheiöi. Kynnist nýrri ökuleið meö Feröafélaginu. Verð kr. 1.000,- Brottför frá Umferöamiöstööinni, austan megin. Farmiðar við bfl. Frrtt fyrir böm i fylgd fulloröinna Ferðafélag Islands. VEGURINN Kristið samfélag Þarabakka 3 Muniö samverustundina i kvöld kl. 20.30. Helga Zitermanis kennir. Allir velkomnir. Skipholti 50b, 2. h. til h. Samkoma í kvöld kl. 20.30. Bengt Sundberg predikar. Allir velkomnir. Farfuglar áft Valabólsferð eldri farfugla veröur laugardag- inn 10. september. Lagt af staö frá Kaldárseli kl. 13.00. Mætum öll yngri sem eldri. Kakó á staönum. Farfuglar. raðauglýsingar raðauglýsingar raðauglýsingar [ fundir — mannfagnaðir Fríkirkjusöfnuðurinn í Reykjavík Almennur safnaðarfundur verður haldinn í Gamla bíói mánudaginn 12. september nk. kl. 20.00. Fundarefni: 1. Kosning sjö manna í kjörstjórn vegna væntanlegra prestkosninga skv. 22. gr. laga Fríkirkjusafnaðarins í Reykjavík. Ósk 70 meðlima safnaðarins um safnað- arfund vegna „uppsagnar safnaðar- prests“. Önnur mál. Athugið: Þeir einir eiga rétt til fundarsetu, sem skráðir voru í söfnuðinn þann 1. des. 1987, og náð höfðu þá 16 ára aldri. Vinsamlegast hafið persónuskilríki tiltæk við inngang, og mætið tímanlega. 2. 3. Stjórn Fríkirkjusafnaðarins í Reykjavík. FÉLAG SPORTBÁTAEIGENDA Fundur til kynningar á tillögu að skipulagi á athafnasvæði félagsins verður haldinn í fé- lagsheimilinu Elliðanaustum, fimmtudaginn 8. sept. kl. 20.30. Stjórn Snarfara. Málfundafélagið Óðinn Nesjavellir - Óseyrarbrú Haustferö Málfundafélagsins Óöins veröur farin laugardaginn 10. september nk. Lagt verður af stað frá Valhöll, Háaleitisbraut 1, kl. 9.00 fyrir hádegi og áætlað aö koma til baka kl. 18.00. Farið verður um Nesjavelli - Þingvelli - Óseyrarbrú - Krísuvlk - Strandakirkja skoöuö. Allt sjálfstæðisfólk velkomiö og takiö meö ykkur nesti fyrir daginn. Vinsamlega tilkynnið þátttöku f síma 82900 fyrir kl. 16.00 föstudag- inn 9. september. Fararstjóri veröur Pétur Hannesson. Miöaveröi mjög stillt í hóf. Ferðanefndin. Huginn, F.U.S í Garðabæ, heldur þriðja Hrafnaþing Þingiö veröur aö þessu sinni haldiö I veitingahúsinu Gauki á Stöng, 2. hæð, laugardaginn 10. september kl. 19.00. Dagskrá þingsins að þessu sinni er stjórnmálaviðhorfið og mun Júlíus Guöni Antons- son, leiðtogi ungra sjálfstæöismanna i Húnaþingi, ávarpa þingiö af miklum eldmóöi og snilld eins og honum einum er lagið. Er Július hefur lokiö máli sínu veröur slegiö á létta strengi og geði blandaö fram eftir nóttu eins og ungum sjálfstæöismönnum einum er lagiö. Allir sjálfstæðismenn og hresst fólk er hjartanlega velkomið og vin- samlegast takiö meö ykkur gesti. Stjórnin. Viðeyjarskemmtun Sunnudaginn 11. september nk. munu sjálfstæðisfélögin i Reykjavík efna til útiskemmtunar i Viöey. Ferðir út ( Viðey hefjast kl. 10.30 um morguninn og veröa meö stuttu millibili fram eftir degi. Séra Þórir Stephensen, staöarhaldari i Viöey, mun sjá um kynningu á sögu Viöeyjar. Grillveisla verður haldin um hádegisbil. Veitingasala er einnig úti í eyju. Hljómsveit Birgis Gunnarssonar leikur létt lög. Fjöldasöngur og leikir. Sjálfstœðisfólögin í Reykjavik. UMIIMMf !t!lli*M4!Í I! I! I! MtlllltSiM ttltlUlttUitltttl tSÍJiS % íi S% £ i. 81 uí-t ft t »»*»»**• líá • • ^ii.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.