Morgunblaðið - 08.09.1988, Side 43

Morgunblaðið - 08.09.1988, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. SEPTEMBER 1988 43 Minning: María Helgadóttir frá Klettstíu Fædd 25. júní 1908 Dáin 6. ágúst 1988 Þann 6. ágúst sl. andaðist María Helgadóttir á Dvalarheimili aldr- aðra í Borgamesi. Hún var fædd að Hreimsstöðum í Norðurárdal þann 25. júní 1908 og varð því átt- ræð fyrir röskum mánuði er hún lést. Foreldrar Maríu voru hjónin Helga Bjamadóttir og Helgi Ama- son, bæði komin af kunnum borg- firskum ættum. Þau bjuggu lengi á Hreimsstöðum og þar munu böm þeirra flest hafa fæðst, en þau vom alls 17. Nú em þau öll látin, nema tveir af bræðmnum, Emil og Sig- urður. Jörðin Hreimsstaðir var fremur lítil og kostarýr. Það gefur því augaleið, að það hefur verið erfítt að framfleyta jafnstórri fjölskyldu og það í hörðu árferði, eins og var bæði fyrir og eftir síðustu aldamót. Nokkur af bömunum fóm því í fóst- ur til vandamanna og kunningja í nágrenninu. Þannig var því háttað með Maríu. Hún fór í fóstur og var alin upp í Klettstíu, sem er næsti bær við Hreimsstaði. Þar bjuggu þá hjónin Sigurborg Sigurðardóttir og Jóhannes Jónsson, en þau ágætu hjón vom afi og amma greinar- höfundar. María mun hafa komið til afa og ömmu þegar hún var fjög- urra ára, eða nánar til tekið áríð 1912. í Klettstíu átti hún heima næstu 30 árin ’og vel það. Þegar foreldrar mínir tóku við búsforráðum í Klettstíu vorið 1916, kom María inn á heimili þeirra, því amma og afi vom þá orðin aldur- shnigin og öll böm þeirra löngu uppkomin og farin að heiman, nema faðir minn. Það féll því í hlut Sæ- unnar móður minnar að sjá um bamafræðslu Maríu og fermingar- undirbúning, því enginn bamaskóli var í Norðurárdal á þessum ámm. Ég held að María hafi alltaf metið móður mína mikils og milli þeirra myndaðist innilegur og tryggur vin- skapur, sem entist meðan báðar lifðu. Ég minnist þess nú að þegar ég heimsótti mömmu síðustu árin sem hún lifði var hún alltaf að spyrja um hana Mæju sína, en svo var María jafnan kölluð af kunningjum sínum. „Láttu nú til með henni Mæju minni," sagði mamma við mig. Það var eins og María væri eitt af bömunum hennar. Nú er það svo, að ævibraut okk- ar flestra er jafnan vörðuð góðum og göfugum fyrirheitum. En oft verður lítið úr þeim fögru loforðum. Fúslega skal játað að ég hef bragð- ist móður minni í þessum efnum, eins og með svo margt annað. En það þurfti ekkert að „líta til með henni Mæju“, hún bjargaði sér allt- af sjálf. Én ég held að móðir mín hafi verið Maríu þakklát ævilangt fyrir að hafa hjálpað henni að ala upp fjóra erfiða og fyrirferðarmikla stráka. Skömmu eftir 1940 fluttist María til Reykjavíkur og vann hér á heim- ilum ýmiskonar hússtörf. Einnig vann hún lengi við þrif á opinberum skrifstofum og það fram á síðustu ár eða meðan heilsa hennar og kraftar leyfðu. Kunnugir hafa sagt mér að allsstaðar hafi hún sýnt mikla trúmennsku og vandvirkni í störfum sínum. Árið 1956 giftist María Magnúsi Þorlákssyni, sem í fjöldamörg ár starfaði hjá Landssíma íslands. Þau komu sér upp vistlegu og myndar- legu heimili í Meðalholti 2 hér í bæ. Það var ánægjulegt að koma til þeirra í heimsókn. Sambúð Magnús- ar og Maríu varð farsæl, en skamm- vinn, því Magnús dó árið 1965, eft- t Þökkum innilega samúð og vinarhug við fráfall og útför móður okkar og tengdamóður, WERU SIEMSEN, Laugateigl 3. Gústav Magnús Siemsen, Dagbjört Á. Slemsen, Hilda Lfs Slemsen, Sigurbergur Árnason. ir níu ára sambúð. Eftir lát Magnús- ar bjó María áfram í íbúð sinni í Meðalholti 2, eða nánar tiltekið þangað til aldurinn færðist yfir hana og hún ákvað að hverfa aftur tii átthaganna. Hún fluttist þá á Dvalarheimili aldraðra í Borgar- nesi. Þar var hún síðustu árin. María var lengstan hluta ævinnar mjög heilsuhraust, en hin síðustu ár kenndi hún þreytu og lasleika eftir langan og oft strangan vinnu- dag. Á liðnu vori dvaldist hún í nokkum tíma á sjúkrahúsinu á Akranesi, en var aftur komin á Dvalarheimilið í Borgamesi skömmu áður en hún lést. Hún fékk hægt og hljóðlátt and- lát, eins og allt líf hennar hafði verið, og var jarðsungin frá Foss- vogskapellu þann 15. ágúst sl. og hvílir við hlið Magnúsar eiginmanns síns í Fossvogskirkjugarði. Ég þakka Mæju minni samfylgd- ina öll þessi mörgu ár. Megi moldin verða henni mjúk og líknsöm. Blessuð sé minning hennar Mæju frá Kiettstíu. Klemenz Jónsson Birting afmælis- og minningargreina Morgunblaðið tekur af- mælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á rit- stjóm blaðsins á 2. hæð í Aðal- stræti 6, Reykjavík og á skrif- stofu blaðsins i Hafnarstræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku- dagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga. I minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki era tekin til birtingar framort ljóð um hinn látna. Leyfilegt er að birta ljóð eftir þekkt skáld, 1—3 erindi og skal þá höfundar get- ið. Sama gildir ef sálmur er birt- ur. Meginregla er sú, að minn- ingargreinar birtist undir fullu nafiii höfundar. t Þökkum innilega auðsýnda samúð, vináttu og hlýhug við andlát og útför elskulegrar móður okkar, HÓLMFRÍÐAR BJÖRNSDÓTTUR frá Nesi f Loðmundarfirði. Auður Halldórsdóttlr ísfeld, Leifur Halldórsson, Björn Halldórsson. t Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð og hlýhug viö andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, THEODÓRS HEIÐARS PÉTURSSONAR, Austurbraut 14, Hornaflröl. Hugrún Kristjánsdóttir. L böm, tengdabörn og barnabörn. r JAZZ SKAPANDI LISTGREIN MARKVISS ÞJÁLFUN Nu geta allir stundað jazz- ballett af fullum krafti. Greiða má einn mánuð i einu. Kredit- kortaþjónusta. 6-8 ára, 40 min. Tími 1x í viku kr. 900,- per. mánuð. 9-11 ára, 60 mín. Tími 2x í viku kr. 2.000,- per. mánuð. 12 ára og eldri. Byrjendur - framhald kr. 2.400,- per. mánuð. STEPP SKEMMTILEG Hraunberg ath: VIÐBÓT VIÐ Breyttir tímar i vetur - DANSINN HJÁ nú einnig tímar í miðri BESTA viku. STEPPARA LANDSINS, ^ DRAUMEY INNRITUN HAFIN SKÓLAÁRIÐ ’88-’89 SEPT-MAÍ KENNSLA HEFST 19. SEPT. BALLETT KLASSISK TÆKNI NAUÐSYN- LEG GÓÐUM DANSARA ifi Mæðurath. samræmingu tima. Barnaskólinn í Suð- urveri uppi 10% fjöl- skylduafsláttur. Kennarar: Karl Barbee frá New York verður í allan vetur ásamt Báru, Önnu, Möggu, Irmu, Nadíu og Ágústu. SKÍRTEINA AFHENDING LAUGARDAGINN17. SEPT. frá kl. 13-17. Myndband í gangi allan daginn, nemendasýning ’88 og fl. NEMENDASYNING í VOR. INNRITUN Í SÍMA 83730 HRAUNBERG Í SÍMA 79988 ^ MILLI KL. 10-18 ALLA DAGA. Jóffi&MtUJíétl Sá'U* F.Í.D. Félag ísl. danskennara.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.