Morgunblaðið - 08.09.1988, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. SEPTEMBER 1988 '
i
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
FÖSTUDAGS
Þessir hringdu . .
Góð þjónusta hjá
Laugavegsapóteki
Ein gömul úr vesturbænum
hringdi:
„Ég vil koma alveg sérstöku
þakklæti til starfsfólk Lauga-
vegsapóteks. Afgreiðslan þar og
viðmót starfsfólks er einstök. Ég
kemst ekki mikið út vegna sjúk-
dóms og þarf því að fá lyf send
heim. Læknirinn minn þarf bara
að hringja í apótekið og starfs-
fólkið þar sendir mér lyfið strax.
Köttur í óskilum
Grár köttur með hvítt á trýni
og niður á háls og á loppum, hvarf
frá heimili sínu á föstudagsmorg-
un. Kötturinn sem er 11 ára gam-
alt fress og heitir Tesi, var
ómerktur. Upplýsingar í síma
84681.
Sérstaklega vil ég þakka gamla
manninum sem kemur með lyfin
heim til mín.
Grænn páfagaukur
tapaðist
Unnur Jónsdóttir hringdi:
Grænn páfagaukur stakk af frá
Laugalæk 23. fteir sem hafa orðið
hans varir hringi í síma 686878.
Ódýr beijatínsla
í Grafningi
Ingibjörg Adolfsdóttir hringdi:
„Ég hringi vegna þess að talað
hefur verið um að dýrt sé að kaupa
leyfi til beijatínslu á sveitabæjum.
Ég er ekki sammála því. Ég fór
í beijatínslu ásamt annarri mann-
eskju við Grafning og við fylltum
tvær 4 kg. fötur af góðum beij-
um. Þetta borgar sig fljótt."
„Okkur vantar ekki venjulega presta“
Velvakandi.
„Ég hlustaði á úrdrátt úr frétta-
bréfí safnaðarstjómar Fríkirkjunn-
ar í hádegisútvarpinu í dag, 1. sept-
ember og get ekki orða bundist.
Eftir að hafa heyrt um stórfellt
misferli brottrekins Fríkirkjuprests,
séra Gunnars Björnssonar, og um
það snérist nýmótuð „siðvæðingar-
stefna" núverandi safnaðarstjórnar.
Snýst málið um smáaurabisness,
hver eigi að greiða fyrir hreinsun
á prestkraga, útlátum í sambandi
við bestu bamaguðþjónustur lands-
ins (um það vitnar sá fjöldi sem
sækir þær), og gjald fyrir söng og
tónlistarflutning við jarðarfarir.
Vilji til að mynda syrgjandi ætt-
ingjar fá góðan söng og hljómlistar-
flutning við útfarir sinna nánustu,
er lágmarkskrafa að farið sé rétt
með lag og texta og „fíðlungur"
slái ekki á falskan streng.
Ég trúi bæði Ágústu Ágústs-
dóttur söngkonu og sellóleikaranum
Gunnari Bjömssyni að fara með
rétt hvorutveggja.
Okkur vantar ekki venjulega
presta fremur en okkur vantar fleiri
venjulega stjómmálamenn eða rit-
höfunda. Oss vantar óvenjulegan
prest, jafnvel biskup. Séra Gunnar
Bjömsson er fyrsti presturinn sem
komið hefur mér til að hlægja und-
ir stólræðu. Og sagði ekki meistari
Þórbergur Þórðarson á sínum tíma:
„Sá sem gefur heiminum hlátur
(það er ekki hlátur heimskingjans)
er besti vinurinn“.
Með þökk fyrir birtingu,
Guðrún Jakobsen,
Bergstaðastræti 34.
Sparifjáreigendur alla
tíð verið hlunnfarnir
Til Velvakanda
„Það getur vel verið að fjármála-
ráðherra og framsókn standi í þeirri
meiningu að þeir sem em svo vit-
lausir að eiga sparifé séu eingöngu
fermingarböm og gamalmenni. Það
sé því hægur vandi að gera eignir
þeirra upptækar og leika þá grátt.
Enginn muni rísa upp til andmæla.
En það gæti gerst að þeir kæmust
að hinu gagnstæða. Þetta fólk á
sér aðstandendur og þó að sparifjár-
eigendur hafí ekki verið manna
háværastir í kröfum, enda alla tíð
verið hlunnfarnir af bankastjómm
og ríkisvaldi, þá gætu þeir á stuttri
stund myndað fjölmennan þrýstihóp
sem gæti stuggað óþægilega við
hinum skattgráðugu pólitíkusum.
Sá þrýstihópur yrði ólíkt fjölmenn-
ari en skuldakóngamir sem hæst
láta.
Sannleikurinn er sá að ef ráða-
menn steinhætta ekki að tala um
handafl og annan heimskulegan
yfirgang við heiðarlegt fólk sem degi. Þá stæðu glæsibyggingar
hefur sýnt þegnskyldu með spar- bankanna eftir peningalausar.
semi og ráðdeild, þá gæti svo farið Þetta skuluð þið alþingismenn og
að það þakkaði fyrir sig með þvi bankastjórar hugleiða.
að taka út allt sitt sparifé á einum Kona.
DÖMUR OG HERRAR
Nú drífið þið
ykkur í leikfimi!
Tímar við allra hæfi
Námskeiðin hefjast 12. septeml^^L
Leikfimi fyrir konur á öllum aldri.
Hressandi, mýkjandi, styrkjandi
ásamt megrandi æfmgum.
Karlmenn
Hinir vinsælu herratímar eru í hádt
inu.
Þarftu að missa 15 kíló?
Sértímar fyrir konur sem vilja léttast
um 15 kg eða meira. Sértímar fyrir
eldri dömur og þær, sem þjást af
vöðvabólgum.
Frábær aðstaða
Ljósalampar, gufuböð og sturtur.
Kaffi og sjónvarp í heimilislegri
setustofu.
Innritun
og frekari upplýsingar alla virka daga frá
kl. 13-22 ísíma 83295.
JúdódeildÁrmanns
Ármúla 32.
Vetrartískan frá Roland Klein - Kit -
Burberrys - Mary Quant - YSL o.fl.
Búsáhöld - leikföng - sælgæti
—jólavörur o.fl.
PÖNTUNARLISTINN
Yfir 1000 síður kr. 190,- (án bgj).