Morgunblaðið - 08.09.1988, Page 62
62
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 8. SEPTEMBER 1988
■ JÓN Bjarai Guðmundsson,
sem skoraði jöfnunarmark Fylkis
gegn FH og tryggði Fylki þar með
1. deildarsæti, fór morguninn eftir
leikinn utan til náms í leikhúss-
fræðum í Bandaríkjunum og mun
ekki leika meira með liðinu í sumar.
■ HVORKI fleiri né færri en sex
leikmanna 1. deildarliðs KA í knatt-
spymu eru nú fluttir, eða að flytja,
-^ suður fyrir heiðar vegna náms, og
hitta félaga sína í liðinu einungis í
leikjum. Þetta eru þeir Jón Kristj-
ánsson, Gauti Laxdal, Arnar
Bjarnason, Friðfinnur Her-
mannsson, Stefán Ólafsson, og
SteingTÍmur Birgisson.
■ GUÐMUNDUR Garðarson
leikmaður Leifturs meiddist í
minningarleiknum gegn Þór í
fyrrakvöld og leikur væntanlega
Segn KA í deildinni um helgina.
I UMSK-MÓTIÐ í tennis fer
-jg^fram við Kópavogsskóla 8.-11.
september. Verður þetta væntam
lega síðasta útimót sumarsins. Þátt-
tökutilkynningar þurfa að berast til
Itiartans Óskarssonar, mótstjóra.
■ RINAT Dassajev, landsliðs-
markvörður Sovétmanna, segir til-
boð það, sem spænska liðið Sevilla
gerði honum, allt of lágt og segir,
að félagið verði að punga út að
minnsta kosti fjórum milljónum
dollara.
I SOVÉZKIR íþróttamenn á
ÓL fá greiddan vænan bónus, ef
þeir vinna til gullverðlauna. Forseti
sovézku ólympíunefndarinnar hef-
ur staðfest þetta og segir að bónus-
inn jafngildi 19 þús dollurum. Jafn-
. ^ framt segist hann hafa áhyggjur
af öryggismálum á leikunum.
■ ÍSRAELSKI landsliðsmaður-
ii.n Eli Ohana vill fara frá Evrópu-
bikarmeisturum Mechelen eftir
að hann missti sæti sitt í liðinu til
Hollendingsins Johnny Bosmann.
M NORMAN Whiteside, n-irski
landsliðsmaðurinn, er meiddur og
missir af leik N-írlands og írlands
í undankeppni HM en hann fer fram
14. september.
UMFÍ
styrkir
Ólympíu-
fara
STJÓRN Ungmennafélags
íslands samþykkti á fundi
um síðustu helgi að veita
styrk úr verkefnasjóði UMFÍ
til þátttöku íslendinga á
Ólympíuleikunum í Seoul.
Samþykkt var að veita
Ólympiunefnd lslands
styrk að upphæð kr. 390.000
og Ólympíuneftid fatlaðra kr.
150.000.
Þess má geta að 18 íslensku
ólympíufaranna eru félagar í
Ungmennafélagi.
KNATTSPYRNA / EVRÓPUKEPPNI FÉLAGSLIÐA
Skagamenn endurskipu-
leggja vömina fyrir kvöldið
Újpesti Dozsa hefur átján sinnum orðið ungverskur meistari
„LEIKURINN leggst bara vel í
mig. Ég hef fremur litlar upp-
lýsingar um ungverska liðið en
hef séð leik með þeim á mynd-
bandsspólu. Af henni að dœma
spila þeir skemmtilegan bolta
og virðast sterkir", sagði Sig-
urður Lárusson, þjálfari Skaga-
manna í samtali við Morgun-
blaðið. ÍA keppir f kvöld fyrri
leik sinn gegn ungverka liðinu
Újpesti Dozsa í fyrstu umferð
Evrópukeppni félgsliða. Leikur-
inn fer fram á Akranessvelli og
hefstkl. 18:00.
Skagamenn munu breyta leik-
skipulagi sínu frá því sem ver-
ið hefur í sumar. Þeir munu nú leika
með „sweeper" sem aftasta mann
en það hafa þeir ekki gert áður í
sumar. Þeir munu einnig leika með
aðeins einn framlínumann.
Guðbjöm Tiyggvason, sem leikið
hefur 13 leiki fyrir Skagamenn í
Evrópukeppni, er í leikbanni vegna
brottrekstrar í leik við Kalmar í
fyrra. Er það skarð fyrir skildi þar
sem Skagaliðið er mjög ungt og
skortir rejmslu í stórleikjum. Karl
Þórðarson er langreyndasti ieik-
maður liðsins sem leikur í dag.
Hann hefur leikið 14 Evrópuleiki.
Byijunarlið Skagamanna verður
þannig: Ólafur Gottskálksson verð-
ur í markinu, Alexander Högnason
verður „sweeper", Sigurður B.
Jónsson og Mark Duffíeld verða
vamarmenn fyrir framan hann. Á
vængjunum verða Heimir Guð-
mundsson og Öm Gunnarsson. Á
miðjunni verða Ólafur Þórðarson,
Karl Þórðarson, Sigursteinn Gísla-
on og Haraldur Ingólfsson. Aðal-
steinn Víglundsson verður í framlín-
unni.
Komst í úrsllt 1969
Újpesti Dozsa hefur átján sinnum
orðið ungverskur meistari í knatt-
spymu. Gullöld liðsins var á áranum
1969-75 en liðið varð þá meistari
öll sjö árin. Félagið hefur orðið
ungverskur bikarmeistari sex sinn-
um.
Újpesti Dozsa hefur oft tekið
þátt í Evrópumótunum í knatt-
spymu. Bezta árangri sínum á þeim
vettvangi náði liðið árið 1969. Þá
komst það í úrslit UEFA-keppninn-
ar en tapaði fyrir enska liðinu New-
castle.
Þrír leikmanna liðsins era í ung-
verska landsliðinu, Kovács, Herédi
og Kozma. Þeir era allir vamar-
menn og er því greinilegt að Skaga-
menn verða að hafa sig alla við í
sókninni í leiknum í dag.
SlgurAur Lárusson
KNATTSPYRNA / 1. DEILD
„Það var
aðsjóða
upp úr“
- segirJón Krist-
jánsson KA-maður
„ÞAÐ var ýmislegt búið að
ganga á áður en við vorum
reknir út af. Ég var til dæmis
búinn að fá marga pústra.
Áður en við vorum reknir út
af var alveg að sjóða upp úr
inni á veliinum — það var
aðeins spurning um hvað
gerðist og hjá hverjum,"
sagði Jón KA-maður Kristj-
ánsson, í samtali við Morgun-
blaðið, en hann var rekinn af
velli í leiknum gegn Fram um
helgina, eins og Guðjón Þórð-
arson þjálfari KA.
Framarar höfðu margir orð á
því að KA-liðið hefði leikið
mjög gróft í leiknum, en KA-menn
vilja meina að það hafí Framarar
einnig gert. „Leikurinn byijaði
ósköp rólega, en í seinni hálfleikn-
um var mikill hiti í leiknum. Ég
tel að dómarinn eigi sinn þátt í
því, því hann missti alveg stjórn
Jón Krlstjánsson.
á leiknum. Það var mikið um
pústra; ég hafði til dæmis fengið
skurð fyrir neðan annað augað
eftir högg er ég stökk upp í skalla-
bolta. Framarar töluðu um það
eftir leikinn að við hefðum spark-
að í menn, jafnvel vísvitandi, en
það gerðu þeir líka. Ormarr [Örl-
ygsson] kom til dæmis einu sinni
og sparkaði í mig þegar boltinn
var víðs fjarri, þannig að það var
ýmislegt búið að ganga á.“
Jón hélt áfram: „áður en ég sló
Guðmund [Steinsson] hafði hann
hangið á mér. Ég reyndi að hrista
hann af mér en það tókst ekki.
En það réttlætir alls ekki það sem
ég gerði. Það er ófyrirgefanlegt.
Eg vil að það komi skýrt fram,“
sagði Jón.
KNATTSPYRNA
Þrír KA-menn
í leikbann
Jón Kristjánsson í þriggja leikja bann
JÓN Kristjánsson, varnarmað-
urinn sterki hjá KA, fékk
þriggja leikja bann á fundi aga-
nefndar KSI á þriðjudag vegna
brots í leiknum gegn Fram um
síðustu helgi. Jón leikur því
ekki meira með KA í 1. deild á
þessu keppnistímabili þar sem
aðeins þrjár umferðir eru eftir.
Bróðir Jóns, Erlingur sem einnig
leikur með KA, fékk eins leiks
bann fyrir að hafa fengið fjögur
gul spjöld. Eins fékk Guðjón Þórð-
arson, þjálfari KA, eins leiks bann
Leiðrétting
m
Ifrétt á íþróttsíðu Morgunblaðs-
ins 7. sept. um val á landsliði
eldri kylfinga vegna sveitakeppni
Evrópusambands senjóra á Spáni,
var einn liðsmanna, Ari Guðmunds-
son, talinn úr Nesklúbbnum. Það
er ekki rétt. Ari er að vísu félagi
þar, en hann hefur keppt og keppir
áfram fyrir Golfklúbb Reykjavíkur.
Leiðréttist þetta hér með.
fyrir brottvísun í leik Fram og KA.
Tveir leikmenn Leifturs verða f
leikbanni gegn KA á laugardaginn.
Það era framlínumennimir Steinar
Ingimundarson og Hörður Benón-
ýsson sem báðir fengu eins leiks
bann.
Sverrir Pétursson, Þrótti
Reykjavík, fékk leikbann fyrir útaf-
rekstur. Smári Hilmarsson,
Víkveija, fékk einn leik fyrir fjögur
gul spjöld og eins fékk Þórður Ól-
afsson, Hugin, einn leik fyrir útaf-
rekstur.
HNEFALEIKAR
Ætlaði
Tyson að
fyrírfara
sér?
KORFUKNATTLEIKUR / LANDSLIÐ
Njarðvíkingar mæta ekki
- á landsliðsæfingar. „Erekki hættur," segirTeiturÖrlygsson
NJARÐVÍKINGAR hafa ekki
mætt á landsliðsæfingar og
svo virðist sem leikmenn liðs-
ins ætli ekki að gefa kost á sér
í íslenska landsliðið í körfu-
knattleik. Fjórir leikmenn voru
valdir í 18 manna hóp, en að-
eins einn hefur haft samband
við KKÍ og látið vita að hann
gef i ekki kost á sér.
Laszlo Nemeth, landsliðsþjálfari,
boðaði 18 manna hóp á lands-
liðsæfíngar á Laugarvatni. Margir
leikmenn létu ekki sjá sig, þar á
meðal Njarðvíkingamir. Á næstu
æfíngu mættu Njarðvíkingar ekki
heldur, þrátt fyrir að ákvörðun hafí
verið tekin ujn að landsliðsæfingar
yrðu ávallt á föstudögum.
Fjórir leikmenn frá Njarðvík vora
valdir í landsliðshópinn. Teitur Örl-
ygsson, Helgi Rafnsson, ísak Tóm-
asson og Hreiðar Hreiðarsson. Eng-
inn þeirra hefur mætt en aðeins
Hreiðar hefur látið KKÍ vita að
hann gefi ekki kost á sér í liðið,
vegna vinnu.
„Þessi æfíng var að vísu boðuð
með stuttum fyrirvara, en það var
búið að ákveða að föstudagar yrðu
æfíngadagar fyrir landsliðið. For-
ráðamenn liðanna höfðu samþykkt
það og því átti öllum að vera kunn-
ugt um þetta fyrirkomulag,“ sagði
Pétur Hrafn Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri KKÍ í samtali við
Morgvnblaðið. „Aðeins Hreiðar hef-
ur látið vita en við bíðum eftir svör-
um frá hinum leikmönnum liðsins,"
sagði Pétur.
„Ég er ekki hættur með landslið-
inu. Eg hef einfaldlega ekki komist
á tvær síðustu æfingar en reikna
með að æfa með liðinu," sagði Teit-
ur Örlygsson. „Það hafa verið mjög
stífar æfíngar hjá okkur í Njarðvík
en auðvitað langar mig til að æfa
með landsliðinu," sagði Teitur.
Laszlo Nemeth lýsti því yfír í
viðtali við Morgunblaðið að þeir
leikmenn sem ekki mættu á fyrstu
æfíngarnar, yrðu ekki í liðinu.
Mörg verkefni era framundan,
þ.á.m. mót á Möltu í desember, fjög-
urra þjóða mót og Norðurlandamót
hér á landi í janúar.
Flytja þurfti Mike Tyson,
heimsmeistara í hnefaleik-
um, á sjúkrahús eftir að hann
ók bfl konu sinnar á tré skammt
fyrir norðan New York á sunnu-
daginn. New York Daily News,
stærsta dagblað New York,
heldur því fram, að atburðurinn
hafi ekki verið neitt óhapp held-
ur hafí Tyson ætlað að fyrirfara
sér. Framkvæmdastjóri Tysons
segir fréttina fáránlega.
Framkvæmdastjóri Tysons,
Bill Ciayton, vísaði fréttinni á
bug sem fáránlegri.,, Getið þið
ímyndað ykkur, að maður fari
að reyna að fyrirfara sér með
því að aka á tré á sinni eigin
landareign", sagði hann.
Tyson missti meðvitund í
20-30 mínútur eftir áreksturinn
og man nú Ktið um hann og
undanfara hans að sögn lækna.
Hann getur ekki æft næstu
30-40 daga. Fresta verður því
einvígi hans við Frank Brano
en það átti að fara fram í Bret-
landi 22. okóber.