Morgunblaðið - 24.09.1988, Qupperneq 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. SEPTEMBER 1988
Hvolpur skilinn eftir á almenningssalerni:
„Feginn að enginn gaf sig
fram þegar ég auglýsti“
SEX vikna gamall hvolpur fannst einn og yfirgefinn á almennings-
salerni í biðskýli SVR við Lækjartorg fyrir um þrem vikum og
þrátt fyrir ítrekaðar auglýsingar i útvarpi hefur ekkert heyrst fiá
eigandanum.
Kona nokkur kom auga á hvutta
á kvensaleminu um hábjartan dag
og bar hann sig aumlega. Konan
lét húsvörðinn, Einar Knútsson,
þegar vita og tók hann hvolpinn
upp á sína arma. Enginn gaf sig
fram þegar auglýst var eftir eig-
anda í útvarpi og engar fyrirspum-
ir um týndan hvolp hafa borist lög-
reglu. Það ætti þó ekki að væsa
um hvutta þvf Einar hefur nú tek-
ið ástfóstri við hann og ákveðið að
taka hann að sér.
„Tíkin var skelfingu lostin og
glorsoltin þegar ég fann hana á
saleminu," sagði Einar í samtali
við Morgunblaðið. „Hún var vel
alin og greinilegt að ekki hefur
verið farið illa með hana þó að hún
væri orðin svöng þegar hún komst
í mínar hendur. Mér finnst líklegt
að hún hafi verið um sex vikna
gömul en ekki em menn á eitt
sáttir um tegundina. Líkast til er
tíkin blanda af scháfer- og collee-
hundi. Annars er erfitt að segja til
um það núna, það verður bara að
koma í ljós þegar hún stækkar
greyið."
Einar sagði það ekki hafa verið
ætlun sna í fyrstu að taka hundinn
að sér. „Ég var hálf ráðþrota með
nokkurra vikna gamlan hvolp í
höndunum, vesæian og einmana.
Ég hafði samband við lögreglu og
auglýsti eftir eigandanum í útvarpi
en enginn gaf sig fram. Þá hafði
ég samband við hundaeftirlitsmann
sem bauðst til að taka við tíkinni.
Ég hafði ekki hugmynd um hvað
biði hennar þar og þvertók fyrir
að láta hana. Auk þess var mér
farið að þykja ógurlega vænt um
hana og gat ekki hugsað mér að
láta hana frá mér. Því ákvað ég
að halda henni Steinu litlu, sem
ég nefndi í höfuðið á kunningja-
konu minni.
Einar kvaðst ekki hafa fengið
neina vísbendingu um það hver
hefði skilið hvolpinn eftir á salem-
inu. „Mér dettur einna helst í hug
að einhver krakki hafi fengið hvolp-
inn að gjöf en foreldramir ekki
leyft honum að halda honum.
Krakkinn hafi ekki þorað að skila
hvolpinum aftur og gripið til þess
ráðs að skilja hann eftir á almenn-
ingssalemi í von um að einhver
kæmi honum til bjargar. Annars
er ómögulegt að segja.
Einar sagði að í fyrstu hefði
hann vonað að hvuttinn hefði að-
eins orðið viðskila við eiganda sinn
og kæmist í réttar hendur. „Þó að
það sé tímafrekt og mikið ábyrðar-
hlutverk að ala upp hund þá er ég
nú í aðra röndina feginn að engjnn
gaf sig fram þegar ég auglýsti eft-
ir eiganda. Hún Steina hefur unnið
hug minn og hjarta og fari svo að
einhver gefi sig fram þegar þetta
birtist á síðum Morgunblaðsins þá
skal hann fá að sannaþað rækilega
að hvolpurinn sé hans,“ sagði Einar
Knútsson.
Gæludýr á víðavangi
Hjá Dýraspítalanum í Víðidal
fengust þær upplýsingar að nokkuð
væri um það að komið væri með
gæludýr á spítalann sem fundist
hefðu á víðavangi, ein og yfírgefin
af eigendum sínum. Væri oftast
um kettlinga að ræða en minna
um hunda. Yfirleitt væru dýrin
skilin eftir þar sem lítið væri um
mannaferðir og stundum kæmi það
fyrir að kettlingar fyndust í rusalk-
örfum. Astæðan væri oftast sú að
fólk hefði ekki tök á því að hafa
dýrin en kæmi þeim hvergi fyrir.
Og í stað þess að láta lóga þeim
sleppti það dýrunum lausum í von
um að þau björguðu sér.
Starfsfólk Dýraspítalans reynir
af fremsta megni að fínna dýnim
sem yfirgefin hafa verið nýtt heim-
ili. Takist það ekki innan viku til
tíu daga eftir að komið er með þau
er starfsfólkið tilneytt að láta lóga
þeim. Það hefðu því auðveldlega
getað orðið örlög Steinu litlu ef
góðviljaður húsvörður hefði ekki
séð aumur á henni og tekið hana
að sér.
Kartöflugafflar
Stungugafflar
Plastkörfur
Ruslapokagrindur
á hjólum
Hjólbörur
Jarðvegsdúkur
Garðhanskar
Fúavamarefni
Penslar
Málningarrúllur
Kuldafatnaður
Stígvél
Hosur
Vinnuvettíingar
Hessíanstrígi
Bambusstangjr
Opið á laugardögum
frá lOtil 14.
SENDUM UM ALLT LAND
Grandagarðl 2, sfrnl 28855, 101 Rvfk.
FRANKFURT
2xíviku
Trilla sökk út af Stokksnesi:
Kom of seint auga
á leka aftantil
Nú bjóða Flugleiðir helgarpakkaferðir
til Frankfurt á hagstæðu verði,
frá kr. 19.019.*
— segir Páll Guðmundsson eigandi trillunnar
LÍTIL trilla, Þytur, sökk um 11 sjómfiur út af Stokksnesi síðdegis í
fyrradag. Eigandi trillunnar, Páfi Guðmundsson, var einn um borð
og segir hann að leki hafi komið að trillunni inn um lensi- göt aftantil
á henni en hann ekki tekið eftir lekanum fyrr en um seinan.
Frankfurt hefur ótal margt að bjóða og nú í haust er hún vett-
vangur fjölda glæsilegra vörusýninga:
Automechanika (bílaiðnaður)
Frankfurter Gartenbaumesse (garðyrkja)
BÁKO (fagsýning bakara)
Frankfurter Buchmesse (bækur)
IKA/HOGA (matargerðarlist, hótelrekstur)
Interstoff (fataiðnaður)
13.09.- 18.09.
24.09. - 25.09.
02.10.-04.10.
05.10.-10.10.
16.10.-20.10.
25.10.-27.10.
Að sögn Páls var eitthvað á þriðja
tonn af fiski um borð er atburðinn
átti sér stað. Trillan var nokkuð hlað-
in að aftan og þar voru balar og
annað dót og segir Páll að hann
hafi ekki orðið lekans var í fyrstu
vegna þessa. Er hann varð iekans
var og setti dælu í gang var lekinn
orðinn of mikill til þess að dælan
réði við hann. Hann kallaði þá á
aðstoð og hélt báturinn Snærún í
átt til hans. Er Snærún kom að var
Páll búinn að setja gúmmíbát frá
borði og var kominn í hann. Aðeins
stefni Þyts stóð þá upp úr sjó.
Er atburðinn átti sér stað var
austanátt 4-5 vindstig og sjór farinn
að ókyrrast.
Fáið allar nánari upplýsingar á söluskrifstofum Flugleiða,
Lækjargötu, Hótel Esju og Kringlunni, og hjá ferðaskrifstof-
unum. Upplýsingasími 25100.
* 3 nætur í 2ja manna herbergi á Hotei Europa, miðað við
gengi 1.9.1988.
FLUGLEIDIR
-fyrírþig-
i
§
Farseðillinn gildir í
eitt ár. Lágmarksdvöl er
ekki skilyrði, ólíkt afsláttar-
fargjöldum. FLUGLEIÐIR
-fyrirþig-
Daufheyrist land-
inn við landsliðinu?
PLATAN „Gerum okkar besta“
með hvatningarlagi landsliðsins í
handknattleik hefúr aðeins selst
í 2.000 eintökum, en Steinar Berg
ísleifsson, forstjóri Steina hf.,
segir að vonast hefði verið eftir
að 5.000 eintök seldust. Steinar
segir að Ijósvakamiðlar sýni þessu
opinbera hvatningarlagi fiirðu-
Sjómannafélag
Reykjavíkur:
Fagnaráhugaá
eflmgn Granda
FUNDUR í stjórn og trúnaðar-
mannaráði Sjómannafélags
Reykjavíkur haldinn 21. septem-
ber 1988 tekur ekki afstöðu til
þeirra deilna sem upp hafa risið
vegna söiuandvirðis hlutabréfa
Reykjavikurborgar i Granda hf.,
segir í frétt sem blaðinu hefúr
borist.
Fundurinn fagnar áframhaldandi
útgerð og rekstri Granda hf. Einnig
þeim áhuga sem fram hefur komið
hjá forsvarsmanni nýrra hluthafa í
viðræðum við fulltrúa Sjómannafé-
Iags Reykjavíkur um frekari eflingu
fyrirtækisins hér í Reykjavík.
legt tómlæti og láti það heyrast
sjaldnar en „Re-sepp-ten“ frænda
okkar Dana, sem þeir sömdu fyr-
ir síðustu heimsmeistarakeppni i
knattspyrnu. Spurning væri hvort
íslendingar sperrtu frekar eyrun
við danska fótboltalandsliðinu en
islenska handboltalandsiiðinu.
Steinar segir að í hinum tveimur
beinu útsendingum ríkisútvarpsins
frá leikjum handboltalandsliðsins í
Seoui hafi hvatningarlagið verið
leikið í hvorugt skiptið, en gamalt
hvatningarlag verið leikið eftir leik-
inn við Bandaríkjamenn. Hjá ríkisút-
varpinu fengust þær upplýsingar að
sjálfsagt væri að leika landsliðslagið
við beinar útsendingar frá Seoul.
Menn hefðu haft um margt annað
að hugsa en lagaval í kringum út-
sendingamar og lagið hefði ekki
verið sniðgengið af ráðnum hug.
Áhugaleysi ljósvakamanna, sem
væri alls ekki bundið við ríkisútvarp-
ið, hefur hugsanlega átt sinn þátt í
dræmri sölu á plötunni, að áliti
Steinars. Salan nú rétt dygði fyrir
kostnaði og hefðu þð fjölmargir gef-
ið vinnu sína við plötuna. Agóðinn
af sölunni rynni til HSÍ. „Ég leyfi
mér ekki að búast við að öll lög sem
ég gef út séu mikið spiluð, en í þessu
tilfelli finnst mér ég hafa leyfi til
þess að biðja um að lagið heyrist
oftar.“