Morgunblaðið - 24.09.1988, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. SEPTEMBER 1988
27
Bush með forskot, en sjónvarps-
kappræður kunna að ráða úrslitum
GEORGE Bush, varaforseti Bandarikjanna og forsetaframbjóðandi
Repúblikanaflokksins, hefúr að undanförnu aukið forskot sitt á
Michael Dukakis, rikisstjóra i Massachusetts og forsetaefni demó-
krata. Hafa menn rakið það til þeirrar breytingar sem orðið hefúr
á framkomu Bush í sjónvarpi og ræðustól, en sifellt færist i vöxt
að menn kenni því um að Dukakis hafí einfaldlega látið slá sig út
af laginu. Benda menn á að repúblikanar hafa ráðið ferðinni i
kosningabaráttunni upp á síðkastið, valið sér þau málefni sem þeim
kémur best að viðra, en ja&iframt virt „hin óþægilegri" mái að
vettugi og komist upp með það. Demókratar vona að Dukakis ta-
kist að snúa taflinu við nú um helgina, en þá fer fram fyrsta sjón-
varpseinvígi forsetaframbjóðendanna. Flestir telja þó ástæðulaust
fyrir demókrata að reiða sig um of á það og segja einvígið geta
fanð á hvom veginn sem er.
Síðasta áfall Dukakis eru skoð-
anakannanir, sem gerðar hafa ver-
ið í Texas, en samkvæmt þeim
hefur Bush brunað fram úr honum
í vinsældum. Stjómmálaskýrendur
segja að ekki sé öll von úti hjá
Dukakis í Texas, en telja að hann
megi taka sig allverulega á ef hann
ætlar sér að sigra í Texas í kosning-
unum hinn 8. nóvember nk. Texas
skiptir Dukakis vemlegu máli, því
fram að þessu hefur enginn demó-
krati unnið forsetakosningar án
þess að bera sigur úr býtum þar.
Samkvæmt skoðanakönnunum
vantreysta Texas-búar Dukakis og
telja hann allt of frjálslyndan. Þá
hefur honum tekist að fá olíuiðnað-
inn í þessu næststærsta ríki Banda-
ríkjanna á móti sér, en stuðningur
olíufurstanna getur skipt sköpum
fyrir forsetaframbjóðendur.
Bush virðist auka forskot sitt í
Texas og á það við um fleiri ríki
Bandaríkjanna. Það léttir leikinn
vafalítið fyrir Bush að hann hefur
búið í Texas frá því hann fór úr
skóla og þar kom hann undir sig
fótum í olíuiðnaðinum, enda þótt
hann hafi svosem ekki verið á
flæðiskeri staddur fyrir. Hins vegar
er varaforsetaefni Dukakis, Lloyd
Bentsen, einnig þaðan og heftir
m.a. á afrekaskrá sinni að hafa
lagt Bush að velli í þingkosningum.
Það virðist þó ekki hafa hrokkið til.
Til þess að Dukakis geti sigrað
í Texas þarf hann að fá fleiri svert-
ingja og fólk af rómönsku bergi
brotið til þess að kjósa, en þeir
hópar hafa yfírleitt stutt demó-
krata frekar en repúblikana. Þessir
hópar hafa hins vegar ekki verið
jaftiduglegir við að fara á kjörstað
og aðrir, og til þess að gera illt
verra hafa þeir Dukakis og blökku-
maðurinn Jesse Jackson fjarlægst
að undanfömu, en hann gæti hugs-
anlega fengið kynbræður sína til
þess að íjölmenna á kjörstað.
Repúblikanar notfæra sér að
Qöldi flokksbundinna demókrata
gekk Reagan á hönd í síðustu for-
setakosningum og hvetja þá til
þess að veita Bush brautargengi
nú. A hinn bóginn ganga þeir einn-
ig erinda Bentsens, varaforsetaefn-
is Dukakis, og hvetja menn til þess
að endurkjósa hann til Öldunga-
deildarinnar þannig að Texas eigi
öfluga málsvara bæði í Hvíta hús-
inu og í Öldungadeildinni.
Sjónvarpseinvígið
Fyrsta sjónvarpseinvígi forseta-
frambjóðendanna fer fram á morg-
usis
Það var kátt á hjalla hjá þeim Michael Dukakis og Lloyd Bentsen
á landsfúndi demókrata, en nú virðist vera farið að halla veru-
lega undan fæti hjá þeim félögum. Spurningin er nú hvað gerist
í sjónvarpseinvíginu á morgun.
un. Það á sér stað í Winston-Salem
í Norður-Kalifomíu, en talið er að
um 130 milljónir Bandaríkjamanna
muni fylgjast með kappræðum
þeirra Bush og Dukakis. Þær fara
þannig fram að frambjóðendumir
svara spumingum þriggja blaða-
manna. Hvert svar má ekki taka
lengri tíma en tvær mínútur, en
síðan fær hinn frambjóðandinn eina
mínútu til þess að hrekja svar and-
stæðingsins.
Þótt undarlegt megi virðast
keppast stuðningsmenn forseta-
frambjóðendanna nú við að minna
á hversu góður og gegn andstæð-
ingurinn sé og draga úr mannkost-
um eigin frambjóðanda — a.m.k.
hvað varðar framkomu í ræðustóli.
Stuðningsmenn Bush minna á að
Dukakis sé þaulvanur rökræðu-
maður úr háskóla og hafí á sínum
tíma stjómað sjónvarpsþætti, en
kosningastjórar Dukakis láta ekk-
ert tækifæri sér úr greipum ganga
til þess að minna á að þrátt fyrir
að Robert Dole sé mjög snjall ræðu-
maður hafí BÚsh þrisvar „rúllað
honum upp“ í kappræðum.
Herbragðið, sem býr að baki
þessari gagnkvæmu mæringu, er
að nú reyna menn í báðum herbúð-
um að draga úr eftirvæntingu með
sinn mann, þannig að ef sæmilega
tekst til í kappræðunni verði hægt
að lýsa yfir stórsigri, henda tæki-
færið á lofti og stjóma ferðinni það
sem eftir er.
Undanfama áratugi hafa sjón-
varpskappræður forsetaframbjóð-
enda einatt skipt sköpum í forseta-
kosningabaráttu vestra. Fyrsta
kappræðan, sem talin er hafa í
raun ráðið úrslitum, er kappræða
þeirra Johns F. Kennedys og Ric-
hards M. Nixons árið 1960, en þá
tókst Kennedy að mjaka sér upp
fyrir Nixon í vinsældum og þegar
til kosninganna kom bar hann sig-
ur naumlega úr býtum.
Það að koma á óvart virðist ótví-
rætt vera það sem máli skiptir.
Óvæntur sigur er miklu stærri en
sjálfsagður sigur.
Hvað ættu fram-
bjóðendurnir að leggja
áherslu á?
Tímaritið Newsweek tók í
síðasta tölublaði sínu saman á hvað
frambjóðendumir ættu að leggja
áherslu og hvað þeir ættu að forð-
ast.
Bush á fyrst og fremst að halda
sig við þau svör, sem hann hefur
undirbúið ásamt ráðgjöfum sfnum,
en Bush hefur löngum verið hætt
við hverskonar mismæli. News-
week ráðleggur honum að hækka
ekki róminn og vera yfirvegaður í
framkomu — sem líkastur forseta
í fasi. Þau máleftii, sem Bush ætti
að leggja mesta áherslu á, em frið-
ur, velsæld og lækkandi vöm-
skiptahalli. Á hinn bóginn ætti
hann að forðast að ræða vopnasölu-
málið, samskipti sín og Noriegas
hershöfðingja, Nixon, Marcos og
umhverfísmálastefnu Reagan-
stjómarinnar.
Dukakis á að vera léttari í
skapi, segja a.m.k. eina skrýtlu og
nota andsvaratíma sinn til þess að
spyija Bush beinskeyttra spum-
inga, sem hugsanlega gætu slegið
hann út af laginu. Dukakis er ráð-
lagt að reyna að vera ákveðnari í
fasi, upplitsdjarfari og umfram allt
að brosa til þess að reyna að koma
fólki í skilning um að hann sé ekki
einhver sveimhuga vinstrimaður.
Það sem honum kæmi best að
ræða em eiturlyfjaplágan, staða
miðstéttanna og hvemig Dan Qua-
yle, varaforsetaeftii Bush, myndi
valda því ef hann þyrfti skyndilega
að taka við forsetaembætti.
AM
í 29 ár hefur Sjálfsbjörg unnið markvisst að því að bæta aðstöðu fatlaðra.
Mikið hefur áunnist í baráttunni, en þó er enn langt í land að fatlaðir búi við
félagslegt jafnrétti. Forsenda áframhaldandi uppbyggingar í þágu fatlaðra
er stuðningur þinn.
KRAKKAR!
Komið og seljið merki Sjálfsbjargar. Góð sölulaun!
8
- TÖKUM Á MEÐ SJÁLFSBJÖRG -
SJÁLFSBJARGARFÉLÖGIN