Morgunblaðið - 24.09.1988, Blaðsíða 50
50
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. SEPTEMBER 1988
Eflaust muna einhverjir eftir
dans- og leikkonunni Ann
Miller. Hún lék í gamanmyndum
í Hollywood árum saman, meðal
annars með stórstjömum eins og
James Stewart og Marx bræð-
rum. Nú er hún 64 ára og ennþá
hin sprækasta, þótt 46 ár séu lið-
in frá hennar síðustu mynd. Nú
hefúr hún komist á sjö ára samn-
ing á Broadway í söngleiknum
„Sugar Babies". „Sjáið fótleggi
mina, þeir em ekki til þess að
fela. Ég er jafn hress og ég var
18 ára“ segir Ann Miller og
sveiflar sér fyrir framan Ijós-
myndarann.
„Það er hægt að vera skipstjóri
þó maður stígi ekki á Qöl“ segir
Odd Roy Sjögren frá Drammen
í Noregi. Hann hefúr módelsmíði
að áhugamáli og byggir ein-
göngu seglskútur. Hann fær
uppmnalegar teikningar af
þekktum skipum frá sjóminja-
safninu, eða erlendis frá. Þetta
er mjög tímafrek vinna, það tek-
ur hann sjö til átta mánuði að
fúllgera eina skútu. Hins vegar
smíðar hann fleiri en eina í einu,
algengt ér að hann hafi sjö til
átta módel að grípa í á sama
tíma.
Menningarsjóður
Norðurlanda
Hlutverk Menningarsjóðs Norðurlanda er að stuðla að
norrænni samvinnu á sviði menningarmála. í þessum til-
gangi veitir sjóðurinn styrki til norrænna samstarfsverk-
Sfna á sviði vísinda, fræðslumála og almennrar menningar-
starfsemi, t.d. myndlistar, bókmennta, tónlistar og leiklist-
ar, og til sérstaks norræns samstarfs félagasamtaka.
Styrkir eru einkum veittir til verkefna sem unnin eru í eitt
skipti fyrir öll á ýmsum sviðum menningarlífs í víðtækum
skilningi og sérstaklega til starfsemi er horfir til nýjunga.
Sjóðurinn leggur áherslu á að um sé að ræða víðtæka
norræna þátttöku í verkefnum sem styrkt eru. Umsóknir
þurfa að öðru jöfnu að varða fleiri en tvær Norðurlanda-
þjóðir til að koma til greina.
Styrkir eru að öðru jöfnu ekki veittir til reglubundinnar
starfsemi né til að kosta formlegt samstarf sem þegar
er komið á laggirnar. Ekki eru styrkir heldur veittir til náms-
dvalar eða til kennara- og nemendaskipta.
Styrkir til rannsóknaverkefnis er því aðeins veittur, að um
sé að ræða samvinnu vísindamanna frá þremur Norður-
landaþjóðum hið fæsta.
Sé styrkur veittur til norræns fundahalds rennur hann til
aðila sem að skipulagningu fundar stendur en ekki beint
til þátttakenda frá einstökum löndum.
Umsóknir ber að rita á umsóknareyðublöð sjóðsins. Sjóðs-
stjórnin heldur fundi fjórum sinnum á ári, venjulega um
miðbik mánaðanna desember, mars, júní og september.
Skilafrestur umsókna er sem hér segir: Fyrir desember-
fund sjóðsstjórnar til 15. október, fyrir marsfund til 15.
janúar, fyrir júnífund til 15. apríl og fyrir septemberfund
til 15. ágúst.
Umsóknareyðublöð og frekari upplýsingar má fá frá skrif-
stofu sjóðsins:
Nordisk Kulturfond
Nordlsk ministerráds sekretariat,
St. Strandstræde 18
DK-1255 Kdbenhavn K, Danmark
(sími: (1) 11 47 11)
svo og í menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6,150 Reykjavík.
Royal
VANTA
BROADWAY
Hrunamannahreppur
RÉTTAÐ í HRUNAMANNAHREPP
Fjallferðir gengu allvel á afrétt-
um Ámesinga, en þeir fara allt
að Hofsjökli. í leitinni, sem tók allt
upp í átta daga hjá sumum bænd-
um, var Stefán Jónsson frá Hrepp-
hólum fjallkóngur. Þann 15. sept-
ember var féð dregið í dilka, og
komu þá allir sem vettlingi gátu
valdið, bæði stórir og smáir, úr sveit
og bæ. Mikið Qör var í mannskapn-
um, sungið og trallað eins og alltaf
í réttunum og auðvitað var ró-
mantíkin við völd, svona í restina...
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Stefán Jónsson frá Hrepphólum,
fjallkóngur þeirra Hrunamanna.
Raquel Welch er orðin 48
ára gömul, hver sem trúir
því. Hún þykir vera jafiifalleg
og fyrr, og væna menn hana
um að hafa Ieitað til lýtalækna.
Hún þverneitar slíkum ásökun-
um, en segir fólki að fara út
og skokka og borða hollan og
góðan mat, það sé að minnsta
kosti leyndarmálið á bak við
frískleika hennar i dag. Annars
er hún ólofúð á ný, eftir sam-
búðarslit með hinum unga
Andre Weinfeld, en þau hafa
búið saman um árabil. Hann
hefúr fúndið sér nýja konu,
Raquel til mikillar hrellingar,
er sagt.
Tom Jones, söngvarinn frægi,
hefúr nýverið gengist undir
skurðaðgerð vegna meinsemda í
raddböndum. Það er óvíst hvort
maðurinn geti nokkurn tíma
sungið aftur, en hann hefúr eign-
ast gifúrlegan Qölda aðdáenda á
þeim tuttugu árum sem hann
hefúr sungið fyrir þá. Nú fær
hann hvorki að tala né syngja
þar til i október, og þá fæst úr
því skorið hvort og þá hvenær
hann geti hafið söng á ný. Lækn-
ar telja það ekki öruggt að hann
haldi sérstæðri söngrödd sinni,
jafnvel þótt hann geti sungið á
ný-
COSPER
I077Z COSPER