Morgunblaðið - 24.09.1988, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. SEPTEMBER 1988
31
MorRunblaðið/Ámi Sæberg
Stefán Valgeirsson þingmaður Samtaka um jafnrétti og félagshyggju
í Norðurlandslgördæmi eystra og Halldór Asgrímsson varaformaður
Framsóknarflokksins.
Hef ekki séð neinar til-
lögur sem ég er hrifinn af
- segir Benedikt Davíðsson formaður
Sambands byggingarmanna
„ÉG VEIT ekki nógu mikið til
að geta lagt mat á hvað þessi
ríkisstjóm ætlar að gera en ég
hef ekki séð neinar tillögur sem
ég væri hrifinn af. Það virðist
eiga að framkalla i raun tillögur
Þorsteins Pálssonar undir nöfii-
um annarra manna,“ sagði Bene-
dikt Davíðsson formaður Sam-
bands byggingarmanna þegar
Morgunblaðið spurði hann álits
á væntanlegri ríkisstjóm
Steingríms Hermannssonar. Ás-
mundur Stefánsson forseti Al-
þýðusambands íslands vUdi ekki
tjá sig um stjómarmyndunina
þar til ijóst væri hveraig mál-
efnasamningurinn liti út.
Benedikt sagði að verkalýðs-
hreyfingin yrði mjög óánægð ef það
yrði ofan á að samningsrétturinn
yrði ekki gefinn ftjáls fyrr en 1.
febrúar eins og fyrir lá f gær. „Það
er auðvitað grundvallarkrafa að fá
samningana í gildi aftur, því það
er málið sem Alþýðusamband ís-
lands kærði til Alþjóða vinnumála-
stofnunarinnar," sagði Benedikt.
Samkvæmt samningunum átti að
koma 2,5% launahækkun 1. sept-
ember, 1,5% hækkun 1. desember
og 1,25% hækkun 1. febrúar.
Síðasttalda hækkunin kemur til
framkvæmda samkvæmt sam-
komulagi væntanlegra stjómar-
flokka.
„Við höfum bent á leiðir, ti! dæm-
is millifærslu, sem tryggja það að
verðbólguhraði aukist ekki meira
Mor^unblaðið/Ámi Sæbcrg
ni 6, Svavar Gestsson þingmaður
kksins.
en 1-2% meira en Þjóðhagsstofnun
metur tillögur Alþýðuflokks og
Framsóknarflokks, þrátt fyrir að
þessar launahækkanir fari út þann-
ig að við teljum það ekki vera neina
frágangssök, og enga ástæðu til
að fella gengið vegna þess. Við við-
urkennum að við þetta myndi físk-
verð valda vandamálum og þvf
þyrfti að mæta með einhvetjum
hætti,“ sagði Benedikt Davíðsson.
* ______
Ovíst um þátttöku Borgaraflokks í ríkisstjóm:
Viljum sjá málefna-
samninginn fyrst
- segir Albert Guðmundsson
,STEINGRÍMUR hefur áhuga á
að ræða við okkur um að við
komum inn í stjóraarmyndunar-
viðræðurnar og siðan inn í stjóra-
ina. A sama tíma er maður að
frétta af erfiðleikum Alþýðu-
bandalagsins með sina menn en
einnig að Aiþýðubandalaginu
finnist ég vera of harður i dóm-
um mínum um þá sem róttæka
vinstri sósíalista svo þeir eru
ekki hrifnir af því að fá okkur
til samstarfs. Eg veit því ekki
hvernig þetta fer, en við erum
nú að skoða þessa pappira sem
Steingrímur lét mig hafa,“ sagði
Albert Guðmundsson formaður
Borgaraflokksins um hugsan-
lega aðild flokksins að ríkisstjóra
Steingrims Hermannssonar.
Steingrímur ræddi við Albert
seinni partinn i gær.
Albert Guðmundsson sagði við
Moigunblaðið að þátttaka Borgara-
flokksins í ríkisstjóm byggðist fyrst
og fremst á því að það fengist fram
sem flokkurinn hefði sett á oddinn,
en það væri aðallega þrennt: afnám
matarskattsins, afnám lánskjara-
vísitölunnar og að ekki yrðu lagðir
skattar á almennt sparifé í bönkum
og sparisjóðum. Einnig yrði að vera
tryggt að ríkisstjómin daðraði ekki
við róttækan vinstri sósíalisma.
Steingrímur Hermannsson hefur
sagt að málefnasamningur nýrrar
ríkisstjómar muni liggja fyrir í dag.
Þegar Albert var spurður hvort til
greina kæmi að Borgaraflokkurinn
myndi samþykkja slfkan samning,
án þess að hafa átt aðild að samn-
ingu hans, sagði hann það alltaf
hafa legið fyrir að Borgaraflokkur-
inn kæmi ekki inn í umræður fyrr
en samkomulag væri komið á milli
hinna flokkanna þriggja.
„Þegar það samkomulag liggur
fyrir geta þeir sýnt okkur það en
ekki fyrr, og það er alveg háð því
að þessir þrír punktar sem við leggj-
um áherslu á séu teknir til greina.
Við erum ekkert að flýta okkur inn
í ríkisstjóm. Við viljum sjá hvers
konar nTcisstjóm þetta er og hvaða
aðgerðir hún fer af stað með,“ sagði
Albert Guðmundsson.
Látum máleftiin ráða
- segir Málmfríður Sigurðardóttir
þingmaður Kvennalistans
„Ef ætlunin er að mynda stjórn
félagshyggjumanna eins og talað
hefúr verið um hefði átt að gera
það að undangengnum kosning-
um. Kosningar nú myndu styrkja
stöðu félagshyggjuflokkanna,"
sagði Máhnfríður Sigurðardóttir
þingmaður Kvennalistans í Norð-
urlandskjördæmi eystra í gær
þegar Ieitað var álits hennar á
stjórnarmyndun Steingríms Her-
mannssonar.
„Það verður að vona að þessi
stjóm lagi þann vanda sem okkur
er sagt að sé brýnn, það er að koma
lagi á útflutningsatvinnuvegina. En
það er spuming hvort hún reynist
þess megnug. Reyndar höfum við
ekki getað fengið upplýsingar um
umfang vandans þrátt fyrir að eftir
því hafi verið leitað og vitum þvf
ekki hvað hann er mikill.
Þar sem enn er verið að vinna
að málefnasamningi stjómarinnar
liggja ekki fyrir upplýsingar um
stefnu hennar og get ég því ekki
tjáð mig frekar um hana. En við
munum leggja öllum góðum málum
lið, látum málefnin ráða hvað sem
öðru líður,“ sagði Málmfríður.
Sé ekkí ennþá fiöt
á stj órnarþátttöku
-segir Skúli Alexandersson þingmað-
ur Alþýðubandalags
Morgunblaöið/Árni Sæberg
Jóhanna Sigurðardóttir Alþýðuflokki og Hjörleifúr Guttormsson AI-
þýðubandalagi.
„Steingrímur hefúr ekki minn
stuðning ennþá. Til þess þarf
samningsrétturinn að skila sér
og ýmislegt fleira er enn óljóst.
Ég sé ekki ennþá flöt á þvi að
við föram inn i ríkisstjóm með
krötum og framsókn og held að
Fyrstu aðgerðir
ítarlega ræddar
- segir Steingrímur Hermannsson
STEINGRIMUR Hermannsson
formaður Framsóknarflokksins
gekk á fimd forseta íslands, frú
Vigdisar Finnbogadóttur, klukk-
an 11.45 í gærmorgun og til-
kynnti henni að hann væri reiðu-
búinn að mynda meirihlutastjórn
Alþýðuflokks, Alþýðubandalags
og Framsóknarflokks með stuðn-
ingi Stefáns Valgeirssonar, og
yrði ríkisstjórnin tilbúin á hádegi
á sunnudag.
Steingrímur Hermannsson sagði
við fréttamenn eftir fundinn með
forseta á hádegi í gær, að gerðar
yrðu nokkrar breytingar á þeim
viðræðugrundvelli sem Framsókn-
arflokkur og Alþýðuflokkur höfðu
lagt fram til stjómarmyndunarvið-
ræðna. Þannig myndu laun hækka
um 1,25% 1. febrúar 1989, eins og
kjarasamningar gera ráð fyrir, en
í tillögum flokkanna var gert ráð
fyrir launafrystingu til 10. aprfl.
Þá nefndi Steingrímur að verið
væri að skoða ýmsa þætti félags-
legs eðlis.
Steingrímur sagðist telja að
væntanleg ríkissljóm yrði sterk og
að hún hefði meirihluta í báðum
deildum. Hann sagði að ekkert lægi
fyrir um þátttöku Borgaraflokks í
ríkisstjóminni. Hann sagði aðspurð-
ur að ekkert væri farið að ræða
verkaskiptingu milli flokkanna í
ríkisstjóm.
Steingrímur sagðj að undanfama
daga hefðu fyrstu nauðsynlegu að-
gerðir ríkisstjómarinnar verið
ræddar ítarlega og ekki þyrfti mik-
inn tíma í viðbót til að ræða þær.
Skipuleg vinna við málefnasamning
ríkisstjómarinnar hófst strax eftir
hádegi í gær, en Steingrímur sagð-
ist alltaf hafa sagt að bestu mál-
efnasamningamir væm stuttir.
það hafi verið frumhlaup að hafa
ekki unnið þetta betur áður en
Steingrúnur fór á fúnd forseta,“
sagði Skúli Alexandersson þing-
maður Alþýðubandalagsins við
Morgunblaðið í gærkvöldi.
Þegar Skúli var spurður hvort
þingflokkur Alþýðubandalagsins
hefði ekki gefið grænt ljós á stjóm-
armyndunina, sagði hann að sín
afstaða hefði alltaf legið þar ljós
fyrir. Þegar hann var spurður hvort
flokksforystan hefði ekki samþykkt
ríkisstjómarþáttöku sagðist hann
frekar telja að Qölmiðlamir væm
að reyna að búa til ríkisstjóm eins
og þeir hefðu drepið þá síðustu og
Steingrímur tryði þeim. „Enda er
þetta ekki orðið klárt fyrr en mið-
stjómin hefur samþykkt stjómar-
myndunina og þingmennimir
treysta sér til að veija stjómina,“
sagði Skúli.
Skúli sagði að kjaramálin væri
þungamiðjan 1 þeim atriðum sem
nást yrðu fram í stjómarþátttöku.
Hann sagði að lögð hefði verið
áhersla á að samningsbundin launa-
hækkun yrði 1. desember en í stað-
inn væri boðið upp á einhveija óskil-
greinda hluti sem vega ætti það
upp. Skúli sagði einnig að ekki
væm skýrar myndir varðandi
byggðamál og hvort haldið yrði
áfram að skera niður framlög til
þeirra þátta sem ríki og sveitarfélög
sjá um sameiginlega. Óljóst væri
hvemig samgöngumálum og vega-
málum yrði háttað og einnig hvem-
ig afla ætti ríkissjóði tekna.