Morgunblaðið - 24.09.1988, Side 35
.r;í3msil4ii iur 'Ui ui ■ 1H/, jfr't'!)3fU
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. SEPTEMBER 1988
35
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
„Slender you“
Óskum að ráða starfsfólk á nýja líkams-
æfingastofu „Slender you“.
Upplýsingar í símum 21030, 21037 og 15580
fyrir helgi.
Meinatæknar
Sjúkrahús Keflavíkurlæknishéraðs óskar að
ráða meinatækni í 100% starf. í boði eru
góð laun, góð vinnuskilyrði og aðstoð við
útvegun húsnæðis. Vinsamlegast hafið sam-
band við deildarmeinatækni eða undirritaðan
sem fyrst í síma 92-14000.
Framkvæmdastjóri.
Hjúkrunarfræðingar
Sjúkrahús Vestmannaeyja vill ráða hjúkrunar-
fræðinga nú þegar eða eftir nánara sam-
komulagi.
Upplýsingar um launakjör og starfsaðstöðu
veitir hjúkrunarforstjóri í síma 98-11955 virka
daga frá kl. 8.00-16.00.
Sjúkrahús Vestmannaeyja
Umboðsmaður
óskast
til að sjá um sölu og dreifingu á náttúrulegum
lækningajurtum unnum úr sjaldgæfum lauf-
blöðum. Dreifing hafin í Noregi, Svíþjóð,
Danmörku og Færeyjum. Þjálfun kemur til
greina. Kunnátta í ensku nauðsynleg.
Nánari upplýsingar hjá:
Pure Herbs Ltd.,
Dr. Eugene C. Watkins,
32101 Townley,
Madison Heights, Michigan 48071,
U.S.A.
Garðabær
Blaðbera vantar í Silfurtún og Bæjargil.
Upplýsingar í síma 656146.
Leikskóli
St. Franciskusystra í Stykkishólmi
auglýsir:
Fóstrur og annað starfsólk vantar nú þegar.
Skólinn er vel búinn og aðstaða góð, með
nýju útileiksvæði. Gefandi og lifandi starf.
Hringið strax í síma 81128 eða 81277.
Stjórnin.
Aukin sala
Reyndur sölumaður getur bætt við sig vörum
gegn % söluþóknun.
Tek einnig að mér söluferðir út á land, dreif-
ingu á vörum, bæklingum, auglýsingasöfnun
o.fl.
Farið er með upplýsingar sem trúnaðarmál.
Tilboð leggist inn á auglýsingadeild Mbl.
merkt: „R - 14561“.
Sjúkraþjálfari
Sjúkrahús Keflavíkurlæknishéraðs og
Þroskahjálp, Suðurnesjum óska eftir að ráða
sjúkraþjálfara til starfa, sem fyrst.
Vinsamlegast hafið samband við Gylfa hjá
þroskahjálp í síma 92-13330 eða fram-
kvæmdastjóra Sjúkrahúss Keflavíkurlæknis-
héraðs í síma 92-14000.
Sjúkrahús Keflavíkurlæknishéraðs og
Þroskahjálp á Suðurnesjum.
Innri-Njarðvík
Blaðbera vantar strax.
Upplýsingar í 92-13463
Frá Grunnskóla
Tálknafjarðar
Enn þá vantar okkur kennara í ýmsar
kennslugreinar næstkomandi vetur.
Húsnæðishlunnindi í boði.
Upplýsingar gefur skólastjóri í síma 94-2538
og formaður skólanefndar í síma 94-2541.
Verkamenn
Okkur vantar verkamenn í byggingavinnu á
Reykjavíkursvæðinu.
Upplýsingar í síma 622700.
ÍSTAK
Starfsfólk
- starfsfólk
Aðstoð vantar f eidhús
Óskum að ráða vant og duglegt starfsfólk.
Dagvinna. Góð laun í boði.
Upplýsingar á staðnum í dag og næstu daga.
MATSTOFA MIÐFELLS SF.
Funahöfða 7 — simi: 84939, 84631
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
□ Mímir 598826097 - FJHST.
j&l Útivist
Mánudagur 26. sept. kl. 20.
Tunglskinsferð f VIAey. Brottför
frá kornhlöðunni Sundahöfn.
Fyrst verður nýuppgerð Viðeyj-
arstofa skoðuð ásamt kirkjunni
undir leiðsögn staðarhaldara, en
síöan er létt ganga um eyjuna.
Fjörubál. Verð 400,- kr. frftt f.
böm yngri en 12 ára. Fjölmenniö.
Sjáumst! Otivist.
AGLOW
- kristileg samtök kvenna
Fundur veröur haldinn í dag kl.
16.00-18.00 ( Menningarmið-
stöðinni i Geröubergi.
Byrjað verður með kaffi og köku
kr. 200.00,-.
Gestur fundarins verður Kristin
Hálfdánardóttir.
AHar konur velkomnar.
Hvrtasunnukirkjan
Ffladelfía
Almenn bænasamkoma kl.
20.30.
Krossinn
Auöbrekku 2,200 Kópavogur
Samkoma í kvöld kl. 20.30 með
Paul Hanssen. Allir velkomnir.
KSS
Kristilog skólasamtök
Aðalfundur K.S.S.
Aðalfundur Kristilegra skóla-
samtaka veröur haldinn i dag
24. september kl. 14.00 á Amt-
mannsstíg 2B.
Venjuleg aðalfundarstörf. Um
kvöldið kl. 20.30 veröur kvöld-
vaka í umsjón fráfarandi stjórnar
i KFUM húsinu við Holtaveg.
Sjáumst. Stjórnin.
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU3
SÍMAR11798 og 19533.
Dagsferðir sunnudag 25.
sept.:
1) Kl. 10. Bjamarfell vlð
Haukadal.
Ekiö í Haukadal og gengið þaöan
á Bjamarfellið (727 m).
Verð kr. 1000.
2) Kl. 10. Haukadalur - haustlitlr.
Gengið um svaeði Skógraektar
rikisins i Haukadal. Létt göngu-
ferö. Verð kr. 1000.
3) Kl. 13. Kambabrún - Núpa-
fjall.
Farið úr bílnum við Kambabrún
og síðan veröur gengið eftir brún
Núpafjalls og komiö niður af fjall-
inu hjá Hjalla í Ölfusi.
Verð kr. 800.
Brottför frá Umferöarmiöstöö-
inni, austanmegin. Farmiðar við
bfl. Frítt fyrir börn í fylgd fullorö-
inna.
Ferðafélag islands.
Hl! Útivist
’ Sími/símsvari: 14606
Sunnudagsferðir25. sept.
Kl. 8.00 Þórsmörk - Goða-
land. Verð 1.200,- kr. Stansaö
við Nauthúsagil á heimleiö.
Kl. 10.30 Gamla þjóðlelðin yflr
Mosfellsheiði. 3. ferðin um
þjóðleiðina til Þingvalla, er frest-
að var frá júní. Gengiö frá Miö-
dal yfir heiðina að Vilborgar-
keldu. Verð 900,- kr.
Kl. 13.00 Nýi Nesjavallavegur-
inn - Þingvellir í haustlitum.
Fyrst er ekiö um nýja veginn á
Nesjavelli og þaðan um Grafning
á Þingvelli. Þjóðgarðurinn skoð-
aður i haustlitum. Lótt ganga um
gjár og fomar slóðir. Verð 900,-
kr. Ath. þetta er ekki söguskoð-
unarferö. Brottför frá BSf,
bensfnsölu. Simi/simsvari:
14606. Frftt f. böm m. fullorðnum.
Sjáumst!
Útivist, feröafélag.
[
bátar — skip
Ufsi - frysting
Kaupum ufsa til frystingar. Staðgreiðsla.
Upplýsingar í síma 91-656412.
Saltfisk- og skreiðar-
framleiðendur
Til sölu er fiskhausari frá Oddgeir og Ása,
Keflavík.
Upplýsingar í síma 91-687472.
Útgerðarmenn
- skipstjórar
Óskum eftir netabát í viðskipti, eigum veiðar-
færi.
Upplýsingar í símum 92-15141 og 92-37895.
Skipstjórar - útgerðar-
menn rækjuskipa
Óskum eftir bátum í viðskipti nú þegar, með
eða án kvóta. Öruggar greiðslur. Leiga á
skipi eða skipum gæti komið til greina.
Upplýsingar í síma 96-61989 og hs.
96-21264.
Útgerðarmenn
-fiskverkendur
Til sölu eru plastbretti (pallettur) frá Sæ-
plasti hf. Lítið sem ekkert notuð. Einnig til
sölu á sama stað tveir dráttarvagnar með
beisli. Selst ódýrt.
Upplýsingar í símum 985-28326 og
91-687472.
Síld til frystingar
Viljum komast í samband við útgerðarmenn
síldarbáta með kaup á síld til frystingar í
huga.
Upplýsingar í síma 91-656412.