Morgunblaðið - 24.09.1988, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. SEPTEMBER 1988
39
Öli J. Blöndal, Siglu-
firði - Afinæliskveðja
Óli J. Blöndal, forstöðumaður
Bókasafns Siglufjarðar, er sjötugur
í dag, laugardag 24. september.
Foreldrar hans vóru hjónin frú
Guðrún Guðmundsdóttir frá Hóli í
Lundareykjadal í Borgarfirði og
Jósep Lárusson Blöndal, fæddur að
Innri-Fagradal í Dalasýslu.
Jósep L. Blöndal flyzt til Siglu-
flarðar árið 1908. Hann kvænist
það sama ár. Hjónavígsluna fram-
kvæmdi sóknarprestur Siglfirðinga,
séra Bjami Þorsteinsson, tónskáld,
þjóðlagasafnari og oddviti bæjarbúa
í veraldlegum sem andlegum efn-
um, en kona hans, Sigríður Lárus-
dóttir Biöndal, var systir Jóseps.
Systkinin, Sigríður og Jósep, settu
svip á Siglufjörð um áratugi. Séra
Bjami var fyrsti heiðursborgari
Siglufjarðarkaupstaðar.
Jósep var símstjóri í Siglufirði
framan af starfsævi sinni en sneri
sér síðan að verzlunarrekstri. Böm
þeirra Guðrúnar og Jóseps urðu tíu
talsins. Eitt þeirra, Sigríður, ólst
upp hjá nöftiu sinni og föðursystur,
og manni hennar séra Bjama Þor-
steinssyni. Sex þeirra Blöndals-
systkina eru látin. Eftir lifa: Láms,
Halldór, Bryndís og Óli, sem fyllir
sjöunda áratuginn í dag.
Óli J. Blöndal vann ungur að
ámm öll venjuleg störf, sem til féllu
í vaxandi útgerðarplássi og miðstöð
síldveiða og sfldariðnaðar í landinu.
Síðan lá leiðin til Reykjavíkur, þar
sem hann vann við verzlunarstörf.
Ekki undi hann hag sínum þar og
hélt fljótlega heim til Siglufjarðar.
Þar hefur starfsvettvangur hans
verið síðan. Lengi framan af við
verzlunarstörf hjá Aðalbúðinni og
Bókaverzlun Lárasar Þ.J. Blöndals,
en þar sáu þau fjögur systkini,
Láms, Óli, Anna og Bryndís, um
flölbreyttan verzlunarrekstur í
marga áratugi. Óli rak og um ára-
bil saumastofu í Siglufirði.
í Aðalbúðinni við Aðalgötuna var
líf og fyör á þessum ámm. Þangað
lá leið flestra bæjarbúa — og þar
var gott og skemmtilegt að koma.
Létt lund og ljúft geð Blöndals-
systkina gerði góða daga enn betri.
Þama var skeggrætt um daginn
og veginn, landsins gagn og nauð-
synjar. Ekki skemmdi það stemmn-
inguna að þama var afgreiðsla
Morgunblaðsins, blaðs allra lands-
manna, sem þá eins og reyndar
enn, er spegill innlendra sem er-
Jendra atburða.
Árið 1975 er Óli J. Blöndal ráð-
inn forstöðumaður Bókasafns
Siglufjarðar. Það var vel ráðið.
Safnið hefur vaxið og dafnað í
höndum hans. Það er reyndar orðið
að eins konar menningarmiðstöð,
og er stolt Siglfírðinga.
Á miðsvetrarfundi (árlegir fundir
hreppsnefndar með bæjarbúum þar
sem allir höfðu málfrelsi og tillögu-
rétt) árið 1911 hreyfír séra Bjami
þeirri hugmynd að efna til lestrarfé-
lags og bókasafns í Siglufírði. Það
var upphaf Bókasafns Siglufjarðar,
sem varð 75 ára árið 1986. Árið
1938 kaupa Siglfírðingar mikið og
stórt einkabókasafn Guðmundar
Davíðssonar á Hraunum. Síðan hef-
ur safnið vaxið jafnt og þétt. Það
er nú í nýjum og glæsilegum húsa-
kynnum á neðstu hæð ráðhúss
Sigluflarðar. í tíð Óla sem forstöðu-
manns hafa veigamiklir starfs-
þættir bætzt safninu. í fyrsta lagi
hýsir það nú Héraðsskjalasafn
Sigluíjarðar. í annan stað hefur
verið komið upp sérstakri minning-
arstofu séra Bjama Þorsteinssonar,
„föður Siglufjarðar", sem geymir
ýmsa muni úr eigu hans, sem og
hluta verka hans. I þriðja.lagi hefur
verið komið upp sérstakri tónlistar-
deild í tengslum við minningarstofu
séra Bjama. Loks er í ráðhúsi þeirra
Siglfírðinga myndarlegt málverka-
safn, sem að stofni til er gjöf frá
velunnuram bæjarins, Amgrími
Ingimundarsyni og konu hans
Bergþóra Jóelsdóttur. Ekki er of-
sagt að hlutur Óla er stór í þessum
breytingum, ekki sízt varðandi
minningarstofu séra Bjama og tón-
listardeildina.
Óli hefur komið víða við í félags-
málum Siglfírðinga. Góðkunningi
hans sagði við mig að Óli hafí ver-
ið formaður í öllum félögum sjálf-
stæðisfólks í byggðarlaginu (FUS,
Félagi sjálfstæðisfólks, fulltrúaráði
sjálfstæðisfélaganna) nema sjálf-
stæðiskvennafélaginu! Hann er
reyndar formaður fulltrúaráðs sjálf-
stæðisfélaganna enn f dag, þegar
hann stendur á sjötugu.
Hann var um árabil formaður
stjómar Síldarverksmiðju Siglu-
fjarðarkaupstaðar, Rauðku. Hann
var um tíma stjómarformaður Lag-
metisiðjunnar Siglósfldar. Hann
hefur lengi átt sæti í stjóm Spari-
sjóðs Siglufjarðar. Hann situr og í
stjóm Grannskóla Siglufjarðar —
og sat í stjóm Fjölbrautaskólans á
Sauðárkróki. Hann hefur og setið
í flölmörgum nefndum bæjarstjóm-
ar.
Óli var framkvöðull og fyrsti
formaður Lionsklúbbs Siglufjarðar.
Klúbburinn var stofnaður árið
1954. Hann var reyndar annar
klúbburinn sem stofnaður var hér
á landi og sá fyrsti utan Reykjavík-
ur. Síðar var Óli svæðisstjóri Lions-
umdæmisins. Hann var og formað-
ur Kaupmannafélags Siglufjarðar
um árabil. Hann kemur víðar við
félagsstarf norður þar: í frímúrara-
stúku, í íþróttafélögum, í karlakór,
í skátafylagi — og þannig mætti
lengur telja.
I einkalífí er Óli mikill gæfumað-
ur. Þar á kona hans, Margrét
Bjömsdóttir, stóran hlut að máli.
Foreldrar' hennar vóra Ólöf Jóns-
dóttir frá Stóra-Brekku í Fljótum
og Bjöm Jóhannesson frá Þverá í
Fellshreppi.
Böm þeirra Grétu og Óla era:
1. Ólöf Bima, MA í ensku og
frönsku, maki: Sveinn Þórarinsson,
verkfræðingur, 2. Jósep Öm, lækn-
ir, Patreksfirði, maki: Erla Harðar-
dóttir, 3. Ásbjöm, rafmagnsverk-
fræðingur, maki: Jóhanna Guð-
mundsdóttir, kerfísfræðingur, 4.
Sigurður, læknir, 5. Guðrún, við-
skiptafræðinemi, maki: Friðrik Jón
Amgrímsson, lögfræðingur, sem
einnig er skipstjómarlærður.
Ég átti því láni að fagna að eiga
Grétu og Óla að vinum og sam-
herjum um langan aldur. Mannkost-
ir þeirra, elskulegheit og velvilji
gerði öll samskipti við þau að góðum
stundum. Jafnvel þegar tilvera-
skugginn þykknaði, sem sturidum
bar við, sáu þau sóiina að skýja-
baki — og bára geisla hennar inn
í hugarheim annarra. Og þegar sól
skein á heiðum himni, ofar Hóls-
hymu, inn í iíf okkar norður þar,
vóra þau glöðust meðal glaðra. Á
góðum stundum var Óli hrókur alls
fagnaðar og söng eins og Blöndalir
einir geta. Sigluíjarðararmur Blön-
dalsættarinnar lét ekki sitt eftir
liggja í hlýju, gleði og góðhug.
A sjötugsafmæli Óla sendum við,
Siglfírðingar að heiman, afmælis-
baminu, konu hans og fjölskyldu
allri hlýjar kveðjur, innilegar þakkir
fyrir liðna tíð og góðar óskir um
framtíðarfarsæld. I huga okkar
dveljum við heima, hjá Grétu og
Óla, og hyllum þau á góðri stund.
Hinn hæsti höfuðsmiður leiði þau á
framtíðardögum.
Stefan Friðbjarnarson
Meðfærileg
og öflug
rafsuðutæki
Power Inverter 250 og 315 eru afar öflug, jafn-
straums-rafsuöutæki til pinna- og tig-suðu.
Power Inverter rafsuðutækin eru 3ja fasa, 380
volt og vega aðeins um 28 kg. Þau eru miklu
meðfærilegri en eldri tæki af sama styrkleika.
Hafðu samband við söljjmenn okkar sem veita
allar nánari upplýsingar.
pinnasuða
= HÉÐINN =
SEUAVEGI 2.SÍMI 624260
ESAB
FLUGLEIÐIR
-fyrfr þig-
Rýmri farangursheimild
er á Saga Class,
30 kg í stað
20 kg.