Morgunblaðið - 19.11.1988, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 1988'
11
Sjávarútvegs-
menn álykta
gegn sjálfiun sér
eftir EyjólfKonráð
Jónsson
Fólkið stendur að vonum agndofa
frammi fyrir þeirri staðreynd að
meginatvinnuvegur okkar hafi verið
mergsoginn svo að hann er á gjald-
þrotsbarmi. „Persónuleg skoðun
mín“ er sú að hitt sé hálfu meira
undrunarefni að talsmenn sjávarút-
vegsins grátbiðja enn þann dag í
dag um meira af svo góðu. Megin-
krafa þeirra er „hallalaus rikisfjár-
mál“, þ.e.a.s. meira rán ríkisófreskj-
unnar, eignaupptaka fjármuna
fólksins og atvinnuveganna. Vita
mennimir ekki að ríkið er dag hvem
að sölsa í sinn hlut ógrynni fjár-
muna frá þeim, eða hver á orðið
það fé sem þeir hafa tapað, hver á
frystihúsin og skipin? Eru það ekki
ríkisbankar og sjóðir ríkisins og
stofnanir?
Hvemig væri að menn hlustuðu
nú á Vilhjálm Egilsson og skoðanir
hans á því hvemig arðinum af sjáv-
arútvegi sé háttað og hvert hann
hafi horfið, því að mín aðvörunar-
orð í tíu ár hafa menn ekki viljað
heyra. Og hvemig væri að umræður
hæfust nú um nýtt rit sem Fjár-
laga- og hagsýslustofnun hefur
gefið út og nefnist „Ríkishalli, ríkis-
skuldir og viðskiptajöfnuður við
útlönd". Um efni það sem þar birt-
ist og arðrán íslenska ríkisvaldsins
almennt var nokkuð íjallað í maí
og nóvember-desember á síðasta
ári, en erfitt hefur verið þar til nú
að fá upplýsingar um þetta efni og
allan blekkingavefinn við fjárlaga-
gerð, þar sem t.d. öll framlög til
sjóða sem aftur lána féð með fullri
verðtryggingu og vöxtum eru talin
til gjalda.
Með margháttuðum reiknings-
kúnstum er þannig „sannað" að
ríkissjóður búi við sífelldan halla
og hann þurfi að rétta af hvað sem
líður halla atvinnuvega og heimila.
Þá muni verðbólgan gufa upp og
almenn velferð leika við fólkið. Við
þekkjum árangurinn síðasta hálfan
annan áratuginn. A hvetju hausti
er það reiknað út að „gat“ sé í ríkis-
fjármálunum og það verði að fylla
í. Upphæðin er eitt árið 3 milljarð-
ar, næsta ár 4 o.s.frv. Skattar eru
hækkaðir um rúmlega þá upphæð
og allt er klappað og klárt. En þeg-
ar líður á fjárlagárið uppgötva
menn að gatið er stærra en í fyrra
og hitteðfyrra og standa sjálfir á
gati vegna þess að þeim hafði ekki
verið sagt frá því að dálkarnir í fjár-
lögum voru tveir, ekki bara tekju-
dálkur heldur líka útgjaldahlið. Og
nú einu sinni enn hafði gjaldahliðin
hækkað fyrr og meir en tekjuhliðin.
Þá er spurt: Hverslags ósvífni er
þetta eiginlega? Hvað gerðist, jafn
rækilega og reiknað var með tekju-
afgangi. Af hveiju hækka gjöldin
svona. Eru þau kannske bara bein-
ar og óbeinar launagreiðslur og
gjaldeyrisnotkun þegar upp er stað-
ið? Hurfu kannske peningamir þeg-
ar launin hækkuðu og gengið féll?
Engin rök hefur undirritaður
TÚLVUSKEYTING
IVIEÐ
CROSFIELD
heyrt fært fyrir því að atvinnuvegir
séu betur settir þegar ríkisvaldið
rembist við að ná hallalausum fjár-
lögum með stöðugum skattahækk-
unum þ.e. gripdeild opinbera valds-
ins. Enda væri sá ekki billegur sem
gæti fært þau fram. Samt apar einn
eftir öðrum kröfuna um „hallalaus"
fjárlög sem hvergi þekkist í þjóð-
löndunum sem hraðast sækja fram,
m.ö.o. löndum þar sem atvinnuveg-
imir em fjárhagslega sjálfstæðir,
öflugir og fijálsir. Nægir þar að
nefna Bandaríkin, Japan og Vest-
ur-Evrópu.
í mínum huga er engin leið að
kveða verðbólgu f kútinn önnur en
sú að lækka skatta verulega og
reyna ekki að ná hallalausum fjár-
lögum í nokkur ár a.m.k. eins og
heitið var í stefnuskrá fyrri ríkis-
stjómar, þótt hún sviki hana í upp-
hafí þings í fyrra, réði sér þar með
bana og setti meginatvinnuveginn
á vonarvöl. Sjávarútvegi bjargar
ekkert nema enn ein gengisfelling
þar sem verðlagshækkunum af
hennar völdum yrði eytt að fullu
og rúmlega það með verulegri lækk-
un neysluskatta.
Þrívegis hef ég í þingflokki Sjálf-
stæðismanna flutt formlega sömu
tillöguna um að gengi yrði fellt um
12—15% og söluskattur lækkaður
í 20%. Fyrst var tillagan flutt 29.
febrúar, síðan í maí og loks á sam-
eiginlegum fundi þingflokks og
miðstjómar í september — alltaf
sama tillagan því að „úrræðin“ í
mars og maí vom verri en engin.
Enginn held ég að vefengi það
að 5% lækkun söluskatts mundi að
fullu vega upp verðlagsáhrif af 13%
gengisfellingu. Nú er hins vegar svo
komið að skatta yrði að lækka
meira til að fólk gæti lifað og at-
vinnuvegir blómstrað. Beinast Iægi
því við að lækka matarskattinn eins
og Þorsteinn Pálsson lagði til í
haust og yrði hann því á bilinu
4—9% eins og leyfilegt á að vera í
Evrópubandalaginu að því er biýn-
ustu nauðsynjar varðar eins og
mat, húshitun, almenningssam-
FOR.LAGSFRÉTT1 R
Eyjólfur Konráð Jónsson
„í mínum huga er engin
leið að kveða verðbólgu
í kútinn önnur en sú að
lækka skatta verulega
og reyna ekki að ná
hallalausum Qárlögum
í nokkur ár a.m.k. eins
og heitið var í stefiiu-
skrá fyrri ríkisstjórnar,
þótt hún sviki hana í
upphafi þings í fyrra,
réð sér þar með bana
og setti meginatvinnu-
veginn á vonarvöl. Sjáv-
arútvegi bjargar ekk-
ert nema enn ein geng-
isfelling þar sem verð-
lagshækkunum af
hennar völdum yrði
eytt að fullu og rúm-
lega það með verulegri
lækkun neysluskatta.“
göngur o.fl., þó að almennur virðis-
aukaskattur megi vera 14—20%.
En það er nú eitthvað allt annað
uppi á teningnum hjá nýju stjóm-
inni sem þegar er að verða versta
stjóm lýðveldisins. Og Kvennalista-
konur sem famar em að tala um
pólitík segjast ætla að styðja stjóm-
ina til „allra góðra verka". Hver
eru góðverkin konur góðar — eru
það kannske skattahækkanir?
Höfundur er einn afalþingis-
mönnum Sjálfstæðisflokks.
ÚRVALS NOTAÐIR
VÖRUBÍLAR
MYNDAMÓT HF
Við höfum 80 vörubíia á lager.
Það borgar sig að hafa samband.
Við höfum flestar gerðir af notuðum vörubílum -
kranabílum - dráttarbílum - sendibíium: 6 og 10
hjóla.
Hafið samband og leitið upplýsinga. Við borgum
ferðina til Gautaborgar, ef af viðskiptum verður.
Upplýsingar gefa: Sverker Zetterberg
sími 9046 31 520860
Steindór Sighvatsson
sími 9046 31 433388
SCANIA-BILAR
í GAUTABORG AB
EXPORTGATAN 37, HISINGS BACKA, Tel: 9046 31 520860
1)
Grænt og
gómsætt
Ný bók um jurtafæði
og matreiðslu þess á
sælkeravísu
Á síðustu árum hafa miklar
breytingar orðið á mataræði
fólks og þeim fjölgar stöðugt
sem fá áhuga á jurtafæði.
Margir snúa sér að því ein-
göngu, aðrir kjósa að borða
minna kjöt en áður og bera
í stað þess á borð nýstárlega
grænmetis- og jurtarétti.
í fyrsta skipti kemur nú út
á íslensku stór og glæsileg
matreiðslubók um jurtafæði
sem á íslensku hefur hlotið
heitið Grænt og gómsætt og
er samin af breska mat-
reiðslumanninum Colin
Spencer. Hann hefur um
árabil ritað fasta greinaþætti
um mat í breska stórblaðið
The Guardian og á síðustu
árum unnið ótrauður að því
að kynna lesendum sínum
þá hollustu, sem er að Finna
í vel samsettu jurtafæði og
kennt þeim að búa til úr því
gómsæta rétti. Markmið
hans er að líkja ekki eftir
réttum sem venjulega eru
matreiddir úr kjöti eða fiski,
en láta heldur hráefnið
njóta sín í nýjum réttum.
Þá hefur höfundurinn feng-
ið sex heimsfræga mat-
reiðslumeistara til liðs við
sig og hver þeirra setur sam-
an sína veislumáltíð fyrir
ólík tilefni.
Fjölbreytt efni
Grænt og gómsætt hefur að
geyma notadrjúgar leið-
beiningar um heilsusamlegt
fæði og hvernig setja skal
saman hollar máltíðir. Sér-
staklega er hugað að þörfum
bama, þungaðra kvenna,
íþróttamanna og roskins
fólks, svo og þeirra, sem
neyta jurtafæðis án mjólkur
og eggja. Hér er fjallað um
þann háska sem fylgir
ótæpilegri neyslu á salti,
sykri, fitu og aukefnum og
bent á, hvemig draga megi
úr henni. í bókinni eru einn-
ig greinargóðar leiðbeining-
ar um hvað best er að eiga
til í kæli eða búri, hvaða
áhöld koma að mestu gagni
og síðast en ekki síst er í
bókinni myndskreytt orða-
skrá, þar sem margt má læra
um hinar ýmsu fæðutegund-
ir sem matreiða skal. Þótt
allt sem notað er í uppskrift-
unum fáist hér á landi, þá
vita margir ennþá lítil deili
á sumu af því hráefni sem
uppskriftimar gera ráð fyrir,
og því er sérstakur fengur
Grænt og gómsætt
Colin Spencer
Vm jtirtafœdi <><} rnatœiÖshi þéss
*% ö sœikeravisu 0^
af þessum myndskreyttu
lýsingum á grænmeti, korn-
vörum, ávöxtum og kryddi.
Bók sælkeranna
Segja má með sanni að
Grænt og gómsætt sé bók
sælkeranna. Þar er fjallað
ítarlega um matreiðslu
jurtafæðis og boðið upp á
alls konar rétti. Sumir eru
einfaldir og ódýrir - aðrir
íburðamiklir og glæsilegir.
Alls em um 200 uppskriftir
í bókinni. Hér er að finna
mat við allra hæfi, bæði
þeirra, sem neytt hafa jurta-
fæðis lengur eða skemur, og
hinna, sem hyggjast kannski
breyta um mataræði. í bók-
inni er einnig mikill fjöldi
góðra ráðlegginga, sem að
gagni mega koma í eldhús-
inu.
„Alltaf eru að verða breyt-
ingar á því, hvaða matvæli
fást og hvemig þau em not-
uð,“ segir Colin Spencer í
formála bókar sinnar. „Nú
viljum við helst ferskan,
einfaldan og glæsilegan mat
með hreinu bragði og góðan
undir tönn. Við viljum mat,
sem er laus við rotvarnar-
efni og önnur aukefni, mat
sem gælir við bragðlaukana
og skerpir hugann. Þessari
bók er ætlað að færa ykkur
þannig mat og hér hef ég
leitast við að setja saman
bestu máltíðir sem ég gat
upphugsað. Þeir dagar eru
liðnir þegar jurtafæði var
þungt og bragðdauft. Þessi
matur getur hins vegar feng-
ið mestu sælkera, sem eru
vanir að háma í sig kjöt, til
að fagna fæði þar sem fer
saman gott og eðlilegt bragð
af matnum og hollusta.“
FORLAG1Ð1
ÆGISGÓTU 10. SIMI 9I-25I88