Morgunblaðið - 29.11.1988, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. NÓVEMBER 1988
21
Fljótfærni eða blinda
Um niðurskurð borgarstj órnarmeiri-
hlutans á styrkjum til dagheimila
eftir Kristínu A.
Ólafsdóttur
Hefur Sjálfstæðisflokkurinn glatað
trúnni á framtak einstaklingsins?
Eru fulltrúar flokksins í Reykjavík
blindir á umhverfí sitt? Þannig spyr
fólk eftir að meirihluti borgarstjóm-
ar skerti grimmilega rekstrarstyrki
til dagheimila, sem rekin eru af öðr-
um en opinberum aðilum.
Þegar formaður stjómar Dagvist-
ar bama, Anna K. Jónsdóttir, lagði
fram tillögu um breytingar á styrkja-
reglum einkadagvistarheimila í jún-
ímánuði hljóðuðu rökin upp á rétt-
læti. Að mati meirihluta stjómarinn-
ar var það áfangi á leið til réttlætis
í Reykjavík að koma í veg fyrir að
böm í heils dags vistun dagheimila
fengju fleiri krónur úr borgarsjóði
en böm í 4-5 tíma vist á leikskólum.
Mótrök minnihlutans um skort á
dagheimilsrými og ábendingar um
að slíkur rekstur væri hátt í fjórum
sinnum dýrari en leikskólarekstur
máttu sín einskis. Formaður var
lagður af stað í krossferð gegn rang-
lætinu og keyrði málið í gegnum
stjómina með ógnarhraða, þrátt fyr-
ir beiðni um frestun á meðan rætt
væri við aðstandendur Óss, eina for-
eldrarekna dagheimilisins í borginni,
sem harðast verður úti við breyting-
una. Tillaga minnihlutafuiltrúanna
um viðræður var felld og sjálfstæðis-
fulltrúamir þrír samþykktu breyt-
ingar formannsins. Sá hængur var
hins vegar á samþykkt stjórnar-
meirihlutans, að ákveðið atriði
stönguðust á við landslög. Vörðuðu
þau aldurstakmarkanir sem áttu að
útiloka frá styrkjum böm jmgri en
2ja ára og þau sem byijuð eru í
skóia. Því dróst að afgreiða málið í
borgarstjóm þar til í október, og
höfðu þá sjálfstæðismenn neyðst til
að laga sig að lögunum.
Við umræður í borgarstjórn veif-
uðu sjálfstæðismenn viðbótarrökum -
til þess að útskýra þörfina á niður-
skurði til dagheimila. Niðurskurður-
inn átti nú ekki einungis að auka
réttlætið meðal Reykvíkinga, heldur
einnig að gera þá að betri uppalend-
um. Bæði Anna K. og Katrín Fjeld-
sted virtust sannfærðar um, að með
því að hamla gegn möguleikum á
heils dags vistun dagheimila væri
stuðlað að lengri samveru foreldra
og bama! Þannig rugluðu þessir
ágætu fulltrúar Reykvíkiriga saman
orsök og afleiðingu, svo að út frá
rökfærslu þeirra mætti fá þá niður-
stöðu, að foreldrar og börn yndu
saman á heimili sínu allan sólar-
hringinn, ef ekki væm þessi ótætis
barnaheimili.
Að afiieita veruleika
Ekki er það þó svo að fulltrúar
Sjálfstæðisflokksins lýsi sig
andvíga öllu sem heitir dagvistar-
heimili fyrir böm. Leikskólar njóta
velvildar og eru æskilegur uppeldis-
og menntunarkostur fyrir forskóla-
böm. En þegar dvölin er orðin
lengri en fimm tímar og kosturinn
heitir dagheimili kveður við annan
tón hjá meirihlutanum. Óæskilegt
neyðarúrræði, sem verður þó að
vera til fyrir forgangshópana, böm
einstæðra foreldra, námsmanna og
starfsmanna heimilanna. Börn
giftra eða sambúðarforeldra eiga
bara að vera á leikskólum! Sá vem-
leiki, að stór hluti beggja foreldra
vinnur utan heimilis fullan vinnu-
dag, virðist lítið trufla staðfastar
skoðanir sjálfstæðisfulltrúanna.
Jafnvel þótt þeir sjálfir stundi 100%
útivinnu til hliðar við umfangsmikil
borgarfulltrúastörf og eigi jafn-
framt böm á forskólaaldri.
Auðvitað vita allir, sem ekki hafa
læst að sér inni í fílabeinstumi, að
fjöldi íslenskra forskólabama þarf
umönnun og uppeldi utan eigin
heimilis 8-9 tíma á dag. Foreldrar
vinna fulla útivinnu ýmist vegna
þess að afkoman leyfír ekki annað,
hlutastörf standa ekki til boða eða
fólk einfaldlega kýs að vinna þann-
ig-
Dagvistarþjónusta Reykjavikur-
borgar tekur hins vegar ekki mið
af þessum vemleika. Börn fullvinn-
andi foreldra eiga ekki kost á dag-
heimilisvist ef þau em svo „óhepp-
in“ að foreldramir em skráðir í
sambúð og stunda hvorki langskóla-
nám né starfa á dagvistarheimilum
borgarinnar. Kostir þessara bama
em dagmamma allan daginn eða
leikskóli helming dagsins á móti
dagmömmunni. Dagmæðraþjónust-
an er ótrygg og misjöfn að gæðum.
Því miður em ekki öll böm jafn
heppin og dóttir mín var með sitt
dagmóðurheimili fyrir nokkram
ámm. Daglegur tætingur milli dag-
mömmu, leikskóla og eigin heimilis
er hvorki hollur fyrir bömin eða
foreldrana. Dvöl á vel búnu bama-
heimili, þar sem markvisst uppeldi
og menntun fer fram undir leiðsögn
fóstra er það sem langflestir for-
eldrar kjósa bömum sínum þann
tíma sem unnið er utan heimilis,
hvort sem það em 4,6 eða 8 tímar.
Foreldrar grípa til ráða
Vegna döngumaleysis borgar-
yfírvalda býðst nú aðeins 14 af
hverjum 100 forskólabömum pláss
á dagheimilum borgarinnar. Böm
utan forgangshópanna eiga enga
von um aðgang og forgangsbömin
bíða mánuðum saman eftir plássi.
Foreldrar hafa því ríka ástæðu til
þess að grípa til eigin ráða og stofna
dagheimili. En það er meira en að
segja það, kostar mikla vinnu og
tíma, sem ekki allir em aflögufærir
um. Þetta hefur þó tekist. Þannig
var bamaheimilið Ós stofnað fyrir
15 árum og fleiri svipuð urðu til
um líkt leyti. Að undanskildum Ósi
hafa þessi foreldrareknu heimili
lagst af vegna húsnæðisvanda. Síð-
ustu misseri hafa ýmsir foreldra-
og starfsmannahópar kannað
möguleika á svona rekstri og þá
gjarnan leitað í smiðju Óss að sækja
reynslu.
Og þá kemur samþykkt meiri-
hlutans eins og þmma úr heiðskím
lofti. Rekstrarstyrkur, sem þetta
ár er tæpar 12.000 krónur mánað-
arlega með dagheimilisplássi skal
næsta ár verða rúmar 4.000 krón-
ur. Foreldrar þurfa þá að greiða
a.m.k. 24.000 kr. fyrir bamið,
þ.e.a.s. ef verðbólgan verður 0, en
hvert pláss á Ósi kostar í dag u.þ.b.
28.000 krónur.
Stjómarformaður Dagvistar
bama, Anna K. Jónsdóttir, hefur
reynt að gera rekstrarkostnað Óss
tortryggilegan. í útvarpsþætti 7.
nóvember sl. sagði hún:...það
er rétt að það komi fram hér, að
Ós er a.m.k. 6-7 þúsund krónum
dýrari heldur en dagheimili svipuð
hér í Reykjavík, bæði sem rekin eru
á vegum borgarinnar og einnig af
öðmm einkaaðilum". Og síðar: „Það
er mjög algengt að heimlin séu rek-
in fyrir u.þ.b. 21 þúsund á mánuði"
— og átti þar við kostnað fyrir hvert
bam á dagheimilum borgarinnar.
Þar sem formaðurinn tók takmark-
að mark á leiðréttingum undirrit-
aðrar, sem var einnig þátttakandi
í umræddum útvarpsþætti, lagði ég
fram fyrirspum um rekstrarkostnað
borgarheimilanna á síðasta borgar-
stjórnarfundi. í svari borgarstjóra
kom fram að meðaltalskostnaður
á þessu ári væri 1.271 kr. á dag
fyrir hvert pláss. Þ.e.a.s. mánaðar-
kostnaðurinn er 27.454 kr. að jafn-
aði yfir árið, en að sjálfsögðu hærri
nú, þar sem bæði laun og aðrir
útgjaldaliðir hafa hækkað talsvert
frá því í ársbyijun. Það er því útlit
fyrir að rekstur Óss verði hag-
kvæmari en hjá borginni þetta árið
eins og reyndar síðasta ár.
Ómaklega vegið að Ósi
Opinberar rangfærslur stjórnar-
formannsins eru einkum alvarlegar
í ljósi þess að þær áttu að koma
höggi á barnaheimilið Ós. Ég spurði
Önnu K. hvaða ráð hún ætti handa
bömunum á Ósi, ef breyta þyrfti
heimilinu í leikskóla, en þau þyrftu
áfram á heils dags vistun að halda.
Svarið van „Ég ráðlegg forráða-
mönnum Óss að breyta sínum
rekstri þannig að þeir geti áfram
verið með heils dags vistun og rek-
ið það heimili á sömu forsendum
eins og önnur heils dags vistunar
heimili era rekin hér í borg.“ Það
er ljóst að rekstrarforsendur kalla
á a.m.k. 24 þúsund króna greiðslur
foreldra á móti 4 þúsund króna
styrk borgarinnar. Hvorki núver-
andi foreldrar á Ósi né aðrir sem
hyggja á sambærilegan rekstur
munu almennt standa undir þeim
kostnaði. Bömum þessara foreldra
er því vísað af meirihlutanum á
tætinginn milli leikskóla og dag-
mæðra eða til 'dagmóður allan dag-
inn. Fæstir hafa efni á því að ráða
heim til sín menntaða fóstru fyrir
hærri laun en borgin borgar, þótt
þes_s séu dæmi.
Akvörðun meirihlutans um niður-
skurð á framlagi til dagheimila er
óskiljanleg tímaskekkja, tekin af
fólki sem ekki virðist þekkja vem-
leikann sem það lifír í. I stað þess
að fagna þeim foreldrum, sem reyna
að bæta vanburða dagvistamppeldi
í borginni, er þeim refsað og látið
sem þeir hafi engan rétt til sameig-
inlegra útsvarssjóða. Rök meirihlut-
ans um að réttlætinu sé þjónað með
því að veita engu bami, sem ekki
hefur fengið inni á heimilum borg-
arinnar, meira en rúmar 4.000
krónur em út i hött. Það mætti
nota jafn fáránleg „rök“ fyrir því
að leggja ætti niður þjónustu borg-
arinnar við aldraða, vegna þess að
hundmð manna em á biðlista eftir
þeirri þjónustu, og munu sumir
Kristín Á. Ólafsdóttir
„Besta tryggingin fyrir
framtíðina eru uppeld-
isaðstæður þar sem
hlúð er að þroska og
styrk hvers einstakl-
ings. Að setja ríflega
Qármuni til að skapa
slíkar aðstæður er sú
Qárfesting sem gagn-
aðist okkur öilum betur
en flestar aðrar.“
ekki lifa það að njóta hennar. Að
nota skortinn á dagheimilisplássum
sem rök fyrir þvf að böm sambúðar-
foreldra eigi ekkert tilkali til heils
dags vistunar, niðurgreiddar af al-»
mannafé, er ekkert annað en blygð-
unarleysi. „Jafnaðarmennska"
Sjálfstæðisflokksins verður hvað
hlálegust þegar skoðað er hvemig
böm námsmanna standa gagnvart
hinum nýju styTkjareglum.
Nú em á 3ja hundrað böm giftra
námsmanna á dagheimilum borgar-
innar. Niðurgreiðsla borgarsjóðs er
ríflega 20.000 kr. mánaðarlega með
hveiju bami, en foreldrar greiða
5.460 kr. Utan dagheimilanna em
fjölmörg námsmannaböm sem
einnig þurfa vistun umfram leik-
skólatíma. Stofni foreldrar þeirra
dagheimili, eins og hugmjmdir hafa
verið uppi um, munu þeir fá tæpar
4.200 kr. úr borgarsjóði. Sjálfir
þyrftu þeir þá að greiða a.m.k.
24.000 kr. mánaðarlega Þetta er
réttlæti meirihlutans í borgarstjóm.
Mistök má leiðrétta
Það alvarlegasta við ákvörðun
sjálfstæðismanna í borgarstjóm er
andvaraleysið sem út úr henni skín.
Fulltrúamir virðast ekki skilja
hættuna sem felst í óviðunandi upp-
eldisskilyrðum fjölda reykvískra
bama. Samfélag sem ekki hlúir að
undirstöðu sinni en gleymir sér í
jrtra pijáli og glæstri yfírbyggingu
er að veikja sjálft sig. Besta trygg-
ingin fyrir framtíðina em uppeldis-
aðstæður þar sem hlúð er að þroska
og styrk hvers einstaklings. Að
setja ríflega fjármuni til að skapa
slíkar aðstæður er sú flárfesting
sem gagnaðist okkur öllum betur
en flestar aðrar. Skref í þessa átt
væri viðurkenning meirihlutans á
því að hafa í fljótfæmi tekið ranga
ákvörðun með niðurskurði dag-
heimilastjrkjanna. Þau mistök má
enn leiðrétta. Af leiðréttingúnni
yrðu menn að meiri. Mistök í upp-
eldi barna getur reynst erfiðara að
bæta úr.
Höfimdw er borgarfulltrúi fyrir
Alþýðubandalagid.
GOÐIR ISLENDINGAR
Otgáfudagur plötu, kassettu og geisladisks
1. desember
VALGEIR GUÐJONSSON
Tónleikar í íslensku Óperunni
sunnudagskvöld 4. desember kl. 21:00
Forsala aðgöngumiða í íslensku Óperunni
og hljómplötuverslunum Steina hf.