Morgunblaðið - 29.11.1988, Síða 64
64
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. NÓVEMBER 1988
Systir okkar, t ÞÓRANNA LOFTSDÓTTIR,
lést 26 nóvember á Hrafnistu, Hafnarfirði.
Anna Loftsdóttir, Jórunn S. Loftsdóttir.
t
Konan mín,
DAGBJÖRT PÁLSDÓTTIR,
lést i St. Jósefsspítala, Hafnarfirði, þann 25. nóvember.
Fyrir hönd aðstandenda,
Stefán Hallgrímsson.
Eiginmaður minn, t
NÍELS GfSLASON,
Kleppsvegi 56,
lést laugardaginn 26. nóvember í Vífilsstaðaspítala.
Guðlaug Guðlaugsdóttir.
t
Bróðir okkar,
HJALTI JÓNSSON,
Hátúni 10A,
andaðist 27. nóvember sl.
Vilborg Hjaltested, Ögmundur Jónsson,
Þuríður Billich, Gunnar Jónsson.
t
Frænka mín,
MARGRÉT EINARSDÓTTIR,
Birkimel 6b,
lést á Sólvangi, Hafnarfirði, 24. nóvember.
Fyrir hönd ættingja og vina,
Margrót Þorvaldsdóttir.
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
GUNNHILDUR GUÐRÚN SIGURÐARDÓTTIR
frá Þingeyri við Dýrafjörð,
sem lést þann 21. nóvember sl., verður jarðsungin frá Þingeyrar-
kirkju miðvikudaginn 30. nóvember kl. 14.00.
Synir, tengdadætur,
barnabörn og barnabarnabarn.
t
Móðir okkar,
UNA KRISTJÁNSDÓTTIR THORODDSEN,
andaöist þann 25. nóvember á Minni Grund í Reykjavík.
Ólína Kristinsdóttir,
Guðlaugur Kristinsson,
Unnur Kristinsdóttir,
Skúli Thoroddsen.
t
Faðir okkar,
ERLENDURÁRNASON,
Skíðbakka,
Austur-Landeyjum,
lést að morgni 27. nóvember í Sjúkrahúsi Suðurlands, Selfossi.
Árni Erlendsson,
Ragna Erlendsdóttir,
Sigríður Oddný Erlendsdóttir.
t
Elskuiegur eiginmaður minn, faðir og stjúpfaðir,
LÁRUS FRIÐRIKSSON,
Eyjahrauni 26, Þorlákshöfn,
andaðist að morgni 22. þ.m. á heimili sínu. Verður jarðsunginn
frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 30. nóvember kl. 13.30.
Guðmunda Guðmundsdóttir,
Víöir Lárusson,
Guðni Pótursson,
Helga Stefánsdóttir.
Halldor Bjamason,
Króki — Minning
Fæddur 7. nóvember 1888
Dáinn 1. nóvember 1988
Þeir kveðja nú óðum, sem teljast
til aldamótakynslóðarinnar, þeirrar
kynslóðar, sem braust til sjálfstæð-
is og bjargálna frá örbirgð og áþján,
og gekk vonglöð á móti nýrri öld.
Eins 'þeirra vil ég minnast hér í
fáum orðum, þ.e. Halldórs Bjarna-
son, fyrrum bónda í Króki í Gaul-
vetjabæjarhreppi.
Halldór fæddist í Túni í Hraun-
gerðishreppi þann 7. nóvember árið
1888. Foreldrar hans voru Bjami
Eiríksson (f. 1842, d. 1897) bóndi
í Túni og Guðfinna Guðmundsdóttir
(f. 1853, d. 1943) frá Hróarsholti
í Villingaholtshreppi. Systkini Hall-
dórs vom 10 og komust þau öll til
fullorðinsára, en þau vom: Guð-
mundur (eldri) bóndi í Túni, Elín-
borg húsfreyja á Arnarstöðum,
Kristín húsfreyja í Hróarsholti,
Eiríkur bóndi í Miklaholtshelli, Ein-
ar jámsmiður í Reykjavík, Guðrún
húsfreyja á Laugum í Hraungerðis-
hreppi, Stefán (dmkknaði ungur við
sjóróðra), Ingibjörg húsfreyja að
Brú í Stokkseyrarhreppi, Hólmfríð-
ur húsfreyja á Svertingsstöðum í
Miðfírði og Guðmundur (yngri)
jámsmiður í Reykjavík, en hann er
einn systkinanna sem enn lifír.
Eins og sjá má á þessari upptaln-
ingu hefur heimilið í Túni verið
mannmargt og allir þurft að vinna
hörðum höndum til að sjá öllum
farborða. Var þá oftast leitað til
sjávarins eftir lífsbjörginni. En þótt
sjórinn gæfi líf og saðningu, varð
hann líka oft gröfin, og það fékk
heimilið í Túni að reyna er Bjarni
faðir Halldórs dmkknaði við sjó-
róðra á Stokkseyri frá öllum barna-
hópnum þegar Halldór var átta ára.
Eins og allir geta séð hefur ekki
verið mulið undir systkinin í Túni
í uppvextinum. Ekki naut Halldór
neinnar skólagöngu utan hvað hann
fór á námskeið, þar sem hann lærði
að fítumæla mjólk, og var hann við
fitumælingar fyrir Nautgriparækt-
arfélag Hraungerðishrepps meðan
hann átti heima í Túni. Eg sagði
áður að Halldór hafi ekki notið
skólagöngu, en nýlega las ég minn-
ingar, sem hann skrifaði um æsku-
heimilið í Túni, og það verð ég að
segja að margur langskólagenginn
mætti öfunda hann af máli og stíl,
og þetta skrifaði hann þegar hann
var orðinn 89 ára.
A ungdómsámm sínum vann
Halldór öll hin venjulegu til sjós og
lands, m.a. reri hann tvær vertíðir
á Suðumesjum, og síðustu árin í
Túni var hann í flutningum með
hestvagna milli Reykjavíkur og Fló-
ans, m.a. með fjórhjólavagn sem
tveim hestum var beitt fyrir. Þetta
var einskonar tengiliður í sam-
göngum á Suðurlandi milli klyfja-
hesta og bíla.
Árið 1916 kvæntist Halldór Lilju
Ólafsdóttur. Hún var dóttir Ólafs
Bjamasonar frá Efri-Steinsmýri í
Meðallandi og Helgu Maríu Þor-
varðardóttur frá Holti á Síðu. Þau
hófu þegar búskap í Króki í Gaul-
verjabæjarhreppi. Börn þeirra em:
Stefán Helgi, fyrmm gjaldkeri í
Hafnarfirði, nú búsettur á Húsavík;
Bjarni eldri fyrmm skólastjóri og
t
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
HELGI HANNESSON
frá Kollsá,
til heimilis á Hraunbraut 2,
Kópavogi,
andaðist í Borgarspítalanum 15. nóvember sl.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Þökkum auðsýnda samúð.
Tómas V. Helgason, Ingunn Ingvarsdóttir,
Þorvaldur S. Helgason, Helga Ingvarsdóttlr,
Hannes G. Helgason, Margrét Pótursdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Eiginkona mín, móðir okkar, systir og dóttir,
ÞÓRDÍS RANNVEIG GUÐMUNDSDÓTTIR
hjúkrunarfræðingur,
Klapparbergi 4,
Reykjavfk,
sem lést í Landspítalanum föstudaginn 25. nóvember, verður
jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 1. desember kl
15.00.
Pétur Ágústsson,
Rannveig L. Pétursdóttir,
Magnús Pétursson,
Guðfinna G. Guðmundsdóttir,
Guðmundur Magnússon.
Legsteinar
MARGAR GERÐIR
Mmorex/Gmít
Steinefnaverksmiðjan
Helluhrauni 14, sími 54034,
222 Hafnarfjörður
Erfidrykkjur í hlýju
og vinalegu ^ 1 ;
umhverfi.
Salir fyrir 20-250 manna hópa f
Veitingahöllinniog Domus Medica.
Veitingahöllin Húsf Verslunarinrtar
S: 685018-33272.
bóndi á Skúmsstöðum í Landeyjum;
dr. Ólafur handritafræðingur í
Árnastofnun; Ingibjörg húsfreyja á
Selfossi; Guðfinna fyrrum húsfreyja
á Efri-Brúnavöllum á Skeiðum (lát-
in); Bjarni yngri (látinn); Páll Axel
bóndi í Syðri-Gróf í Villingaholts-
hreppi; Gísli bóndi í Króki; Guð-
mundur jámsmiður á Selfossi og
Helga María húsfreyja í Hvera-
gerði. Allt er þetta vel gefið fólk
bæði til munns og handa.
Það var alltaf gott að koma að
Króki. Það var eitthvað svo afslapp-
andi yfir þessu stóra heimili, svo
mikið jafnaðargeð og festa, og þar
áttu bæði hjónin, Halldór og Lilja,
hlut að máli. Það fór ekki mikið
fyrir Halldóri, hann hafði sig ekki
mikið í frammi í opinberum málum,
en þar sem hann fór, var eftir hon-
um tekið. Hann var meðalmaður á
hæð, þrekvaxinn og mikill um herð-
ar. Andlitið var stórskorið en þó
frítt, hárið mikið og féll { lokkum.
Það var orðið grátt þegar ég man
fyrst eftir því, Halldór hærðist
snemma. Hann hafði þennan sterka
og karlmannlega svip sem einkenn-
ir marga af Túnsættinni.
Halldór var hæglátur maður og
dulur, og bar ekki sínar tilfinningar
á torg, en hann var skemmtilegur
í viðræðu og hafði gott skopskyn,
hann var handlaginn vel á hveiju
sem hann snerti, og hann hafði
læknishendur. Hann var mjög lag-
inn við að hjálpa skepnum við erfið-
an burð og leituðu nágrannarnir oft
aðstoðar hans þegar svo bar undir.
Eitt sinn gerðist það, að nágranna-
kona Halldórs fékk skyndilega joð-
sótt, og var Halldór þá sóttur því
að lengra var til ljósmóður. Skipti
það engum togum, að Halldór tók
á móti baminu, skildi á milli og
allt var í besta standi þegar ljósmóð-
irin kom.
Halldór vantaði aðeins eina viku
til að lifa eina öld. Hann var jarð-
sunginn frá Villingaholtskirkju við
mikið fjölmenni í því blíðasta nóv-
emberveðri, sem ég hef komið í,
skýin spegluðust í Villingaholts-
vatni og hin djúpa haustkyrrð um-
vafði allt og alla. Allt passaði þetta
vel við Halldór, ævi hans og fas.
Blessuð sé hans minning.
Gestur Sturluson
Blomastofa
Friðfinns
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
Opið öll kvöld
tll kl. 22,- einnig um helgar.