Morgunblaðið - 01.12.1988, Page 67

Morgunblaðið - 01.12.1988, Page 67
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 1988 Morgunblaðið/Þorkell FJÓRBURAR Barnavörur til einsárs O. Johnson & Kaaber, sem hafa verið umboðsaðilar Natusan- bamavara síðastliðin 20 ár, afhentu fyrir skömmu foreldrum fjórbu- ranna, þeim Margréti Þ. Baldurs- dóttur og Guðjóni Sv. Valgeirssyni, Natusan-barnavörur sem svara til rúmlega eins árs þörf ijögurra bama. Gjöfín inniheldur m.a. ýmis- konar salva, sápur, barnapúður, barnaolíu, sjampó og húðkrem. Á myndinni má sjá Ólaf Karlsson afhenda Margréti blómvönd en Guðjón eiginmaður hennar er með fangið fullt af gjafavörunum. Lengst til vinstri er Olafur Ó. John- son yngri. „Járnkarlinn“ Mike Tyson er hér með tveimur góðum vinkonum, þeim Elaine Jones og Carmen Elly, og liggur hann undir grun um að gera sér dælt við báðar. Suzette Charles, fyrrum ungfrú Ameríka, sést hér einnig, en hún er víst ein Qölmargra kvenna sem eru í hópi útvalinna. ^ HNEFALEIKAPPI Tyson, trúin og hið ljúfa líf Heimsmeistarinn í hnefaleikum Bandaríkjamaðurinn Mike Ty- son var endurskírður til kristinnar trúar á sunnudaginn og segir að sér líði nú eins og endurfæddum; trúin eigi eftir að breyta lífí sínu. Athöfnin tók þijár klukkustundir og meðal þeirra sem tóku þátt í henni var séra Jesse Jackson, sem hefur keppt að því að verða forseta- efni Demókrataflokksins í Banda- ríkjunum. Stóð Jackson við skímar- laugina sem Tyson var dýft ofan í og blessaði kappann sem var hvítklæddur frá hvirfli til ilja. Nú eru nokkrar vikur frá því að þau skildu á borð og sæng Tyson og Robin Givens leikkona. Síðan hefur hnefaleikakappinn lifað hinu ljúfa lífi eins og það best gerist og segja heimildarmenn að hann hagi sér eins og bam sem kemur í fyrsta sinn í sælgætisverslun! Hefur Mike sést víða, oft með fleiri en eina frauku upp á arminn. Eftir langt og stormasamt erfíð- leikatímabil með Robin hefur hún viðurkennt opinberlega að hafa þröngvað sér inn á manninn með ómerkilegum lygum (þóttist vera bamshafandi eftir Mike) og hefur hún jafnframt úthúðað Mike í fjöl- miðlum vestra. Þar að auki hefur Robin krafist mun hærri Jpjárhæðar við lögskilnað en Mike vill sam- þykkja. Ein besta vinkona Mikes, La Toya Jackson, systir Michaels Jacksons, hefur alloft sést með hon- um upp á síðkastið og er sagt að þau séu meira en bara góðir vinir, eins og það er kallað á ágætu máli. Þar fyrir utan skemmtir hann sér með öðmm konum en La Toya án þess að hún kippi sér upp við það, að sögn kunnugra. „Hann veit að ég bíð eftir honum,“ segir þessi fagra mær við fjölmiðla. Aðrar vin- konur hans hafa spjallað við blaða- menn og samkvæmt þeim viðtölum virðast þær allar eiga bróðurpartinn í kappanum. Hann hefur skipt sér réttlátlega niður á Qöldann og býð- ur aðdáendum sínum til skiptis út að borða eða sendir þeim blóm. Hann hefur ferðast um Banda- ríkin, heimsótt gamlar vinkonur og eignast nýjar. Síðustu vikumar hef- ur hann verið á ferð og flugi. Nú segist hann ætla að flytja frá New York til Cleveland í Ohioríki í Bandaríkjunum. Kemur í ljós hvort hann hægir á sér við að njóta hins ljúfa lffs eftir skímina á sunnudag. B 1. LJ ítlavinafélagiö er vinsælasta hljómsveit landsins eins og mæting á tónleika þeirra og plötusala sannar. E 2. J___Iyjólfur Kristjánsson flytur aukreitis lög af nýútkominni hljóm- plötu sinni Dagar. 3. rír landsfrægir gestir mæta og taka lagið með Bítlavinum. 4. T? ónleikarnir verða hljóðritaðir. Þetta er því hugsanlegt tæki- færi til að komast á plötu. Þ. 5. etta eru síðustu tónleikar Bítlavinafélagsins á yfirstandandi ári 6. 1? að verður svo mikið þrumustuð að þú átt eftir segja barna- börnum þínum sögur af þessu kvöldi. Bítlavinafélagió Steinar hf. BITLAVINAFÉL AGD -HÓTELBORC ástæduraf hverju þú átt að mæta I

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.