Morgunblaðið - 08.12.1988, Page 36
36
Reuter
Bandariska geimfeijan Atlantis lendir á Edwards-herflugvellinum {
Kaliforniu á þriðjudagskvöld.
Atlantis lendir í Kaliforníu:
Önnur vel heppnaða geim-
ferðin eftir ChaJlenger-slysið
Edwards-herflugvellinum í Kaliforníu. Reuter.
BANDARÍSKA geimferjan Atlantis lenti á Edwards-herflugvellinum
i Kaliforníu á þriðjudagskvöld eftir vel heppnaðan leiðangur fyrir
vamarmálaráðuneytið, en mikil Ieynd hefiir hvílt yfir honum. Fimm
geimfarar voru í ferjunni og var þetta i annað sinn sem Bandaríkja-
menn senda menn út i geiminn siðan sjö geimfarar fórust er geim-
feijan Challenger sprakk í loft upp árið 1986.
James Fletcher, framkvæmda-
stjóri Geimrannsóknastofnunar
Bandaríkjanna (NASA), sagði að
geimferðin hefði tekist frábærlega.
„Hún sýnir að við getum þjónað
vamarmálaráðuneytinu eins og áð-
ur,“ sagði hann. Heimildarmenn
sögðu að geimfaramir hefðu á laug-
ardag komið fyrsta njósnahnettin-
um, sem getur fylgst með Sovétríkj-
unum í myrkri og dimmviðri, fyrir
í geimnum.
Geimfeijunni var skotið á loft á
föstudag og meðan á ferðinni stóð
fengu ijölmiðlar engar upplýsingar
um verkefni áhafnarinnar eða um
leið feijunnar. Geimfaramir virtust
vel á sig komnir þegar þeir stigu
út úr feijunni. Almenningur fékk
ekki að fylgjast með lendingunni,
en um 500.000 manns fylgdust með
því er geimfeijan Discovery lenti í
október eftir fyrstu geimferðina
síðan Challenger fórst.
Þessi fyrsta skáldsaga Ólafs Jóhanns Óiafssonar, Markaðstorg
guðanna, er í senn forvilnileg og áhrifarík. Hér kveður við nýjan tón í
íslenskum skáldsögum. Markaðstorg guðanna spannar vítt svið og
gerist jöfnum höndum á ísiandi, í Bandaríkjunum og Japan. Efnið er
margjiætt: Fjölskyldulíf, alþjóðaviðskipti, mannleg samskipti og
freistingar í firrtum, síminnkandi heimi. Hvað skiptir máli í Iífinu?
Hvers virði eru siðalögmál? Eru guðir nútímamannsins orðnir of
margir?
Söguhetjan, Friðrik Jónsson, reynir að fóta sig í fallvöltum heimi
markaðshyggjunnar og skammt er á mijli trúmennsku og svika, lygi
og sannieika, sektar og sakleysis, Guðs og Mammons. Þessum
andstæðum Iléttar Ólafur Jóhann Ólafsson af einstöku listfengi inn í
efni bókarinnar og ferst meistaralega úr hendi að skapa
HELGAFELL
Fyrirhugað er að næsta geimferð
Bandaríkjamanna verði í febrúar.
Skýrsla mannrétt-
réttindasamtaka birt:
Alvarlegustu
brotin framin
á Filippseyjum
Washington. Reuter.
í SKYRSLU bandarísku mann-
réttyindasamtakanna, Human
Rights Watch, sem birt var á
þriðjudag í Washington segir
að í Sovétrikjunum, Suður-
Afríku, Chile, Tékkóslóvakiu og
Filippseyjum séu flest mann-
réttindabrot framin. í skýrsl-
unni segir að 30 baráttumenn
fyrir mannréttindum hafi verið
myrtir í ár og sömuleiðis 19 1-
aðrir vegna tengsla við þá.
35 kunnir baráttumenn á vett-
vangi mannréttinda voru viðstadd-
ir þegar skýrslan, sem er 217
síður, var gerð opinber. Útkoma
skýrslunnar tengist mannréttinda-
deginum 10. desember þegar þess
verður minnst að 40 ár eru liðin
frá samþykkt alþjóðlegrar mann-
réttindayfirlýsingar Sameinuðu
þjóðanna.
Flest voru mannréttindabrotin
á þessu ári í Sovétríkjunum, Suð-
ur-Afríku, Chile og Tékkóslóvakíu
en alvarlegustu mannréttindabrot-
in voru framin á Filippseyjum,
segir í skýrslunni. „Heimsbyggðin
stóð í þeirri trú og von að mann-
réttindum myndi fleygja fram á
Filippseyjum (þegar ríkisstjóm
Corazon Aquirio tók við af Ferdin-
and Marcos," sagði Aryeh Neier,
framkvæmdastjóri mannréttinda-
samtakanna. Hann kvaðst jafn-
framt óttast að ástandið á Filipps-
eyjum endurspeglaði borgaralega
ríkisstjóm sem væri völt í sessi
og skorti pólitískan vilja til að
koma á umbótum í mannréttinda-
málum.
Pólitískir fangar í Sovétríkjun-
um em nú 160, segir í skýrslunni
en fyrrir fyrir tveimur ámm vom
750 pólitískir fangar í haldi í
landinu. Talsmenn mannréttinda-
samtakanna bentu á að þrátt fyrrir
miklar umbætur í mannréttinda-
málum væm engu að síður framin
flest mannréttindabrot framin í
Sovétríkjunum.
í fyrrsta sinn i skýrslum samtak-
anna em mannréttindabrot skráð
í ísrael og á herteknu svæðunum.
Að sögn Neiers tengjast brotin
tilraunum ísraela til að kveða nið-
ur uppreisn Palestínumanna á her-
teknu svæðunum sem staðið hefur
í eitt ár.
I Tékkóslóvakíu vom fleiri
mannréttindabrot skráð en nokkm
sinni áður og skýrði Neier það á
þá leið að í landinu væri aftur-
haldssöm ríkisstjóm sem streittist
á móti umbótum sem ættu sér
stað annars staðar í Austur-Evr-
ópu.