Morgunblaðið - 09.12.1988, Síða 2
2
ftSPr tf.'íTffMfiTR'íífí P 8TJQAfflTTP.ÍT'í ffif-TA.THVTITOHOM
MORGUNBLAÐIÐ, FOSTUDAGUR 9. DESEMBER 1988
Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra og George Shultz, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, ræð-
ast við í Briissel að lokinni fyrstu lotu fundar Atlantshafsráðsins í gær.
Jón Baldvin Hannibalsson og George Shultz í Brussel:
Samkomulag um hvala-
rannsóknir enn staðfest
Brllssel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, firéttaritara Morgnunblaðsins.
JÓN Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra átti í gær viðræður
við George Shultz, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í Briissel
en ráðherramir sifja fund Atlantshafsráðsins í borginni. Shultz
ítrekaði vonbrigði sín vegna afskipta bandaríska viðskiptamála-
ráðuneytisins af sölu íslendinga á hvalaafurðum til Japans og
voru ráðherramir sammála um að tryggja yrði að slíkt endur-
tæki sig ekki.
Jón Baldvin sagði að þeir hefðu
gert með sér samkomulag um að
gengið yrði tryggilega frá því
hveijir færu með þessi mál, annars
vegar af hálfu Bandaríkjamanna
og hins vegar íslendinga. Shultz
lagði áherslu á að Bandaríkjamenn
mjmdu ekkert aðhafast í þessu
máli án samráðs við íslendinga.
Jón Baldvin kvaðst hafa gert
Shultz grein fyrir stöðu rannsókn-
anna og jafnframt vakið athygli
hans á hugsanlegri aðild banda-
rískra aðila að þeim. Shultz hyggst
taka þetta mál til athugunar og
er viðbragða bandarískra stjóm-
valda að vænta á morgun.
Utanríkisráðherra sagði að þeirri
ákvörðun Míkahíls Gorbatsjovs
Sovétforseta að fækka í sovéska
hemum hefði verið vel tekið á fundi
ráðsins. „Misvægi í vopnabúnaði
er þó enn gríðarlega mikið og því
fer ijarri að það verði úr sögunni
með þessum aðgerðum. Enn er því
nauðsynlegt að hefja viðræður sem
miða að því að ná jafnvægi í hefð-
bundnum herafla og vopnabúnaði.
Það ,er Ijóst að ákvörðun Gor-
batsjovs er að hluta herkænsku-
bragð, hann nær með þessu „dipló-
matísku" frumkvæði. Skoðana-
kannanir staðfesta yfirgnæfandi
stuðning almennings í aðildarríkj-
um NATO við áframhaldandi aðild
að bandalaginu. Hins vegar hefur
nokkuð skort á að stefnumálum
bandalagsins hafí verið komið
nægilega vel til skila og þau út-
skýrð fyrir almenningi. Pjölmiðla-
fhimkvæði Gorbatsjovs verður ekki
svarað á annan hátt en að opna
alla umræðu um NATO betur og
hafa frumkvæði að því að ná ár-
angri," sagði Jón Baldvin Hanni-
balsson, utanríkisráðherra.
„HÆKKUN tekjuskatts á þeim
fáu fyriríækjum sem skila hagn-
aði dregur úr getu þeirra til
þess að halda uppi eðlilegri
starfsemi. Því mun atvinna
minnka enn frekar ef skatta-
hækkunin verður samþykkt,"
segir í ályktuninni. Þar er sagt
að flest fyrirtæki séu rekin með
tapi og að tekjur ríkissjóðs af
fyrirhuguðum skatti verði af
þeim sökum hvergi nærri í sam-
ræmi við þær áætlanir sem mið-
að er við.
Gagnrýnd er sú stefnubreyting
sem felst í að lækka frádráttar-
heimildir vegna fjárfestingarsjóða
úr 30% í 15%. Þeir sjóðir séu nauð-
synlegir til að jafna sveiflur í
rekstrinum og mæta áföllum.
Þá segir svo í ályktuninni: „Það
er óumdeilanleg staðreynd að lítið
eigið fé fyrirtækja er einn megin-
veikleiki atvinnu- og efnahagslífs
þjóðarinnar. Frumskilyrði eigin-
fjármyndunar í atvinnulífinu er að
fyrirtæki hafí möguleika til að
hagnast. Aðeins með hagnaði er
unnt að viðhalda eigin fé fyrir-
tækja og laða að nýtt fjármagn inn
í reksturinn. Aðgerðir á sviði
skattamála fyrirtækja ættu því að
miða að aukningu eigin fjár en
ekki skerðingu þess eins og nú er
áformað."
Samtökin segja að hvetja þurfi
almenning með skattalegum að-
gerðum til að leggja fé í atvinnu-
rekstur og stuðla þannig að auknu
atvinnuöryggi, meðal annars með
því að kaup á nýju hlutafé í fyrir-
tækjum verði alltaf frádráttarbær
frá skatti, einnig arður af hluta-
bréfum.
Ályktunin endar á þessum orð-
um: „Aðgerðir til þess að efla at-
vinnulífíð með auknu eigin fé eru
mun heilbrigðari og árangursríkari
ráðstöfun í stað þess að þyngja
skattaklyfjar á erfíðleikatímum og
halda útvöldum fyrirtækjum gang-
andi með erlendu lánsfé."
Samtökin sem standa að álykt-
uninni eru: Verslunarráð íslands,
Félag íslenskra stórkaupmanna,
Samband fískvinnslustöðvanna,
Landssamband íslenskra útvegs-
manna, Verktakasamband íslands,
Félag íslenskra iðnrekenda, Kaup-
mannasamtök íslands, Landssam-
band iðnaðarmanna og Vinnuveit-
endasamband íslands.
Ummæli Arafats
í Stokkhólmi:
Otvíræð við-
urkenning
á Israel
- aðsögnJóns
Baldvins Hanriib-
alssonar
Brilssel. Frá Kristófer M. Krístinssyni,
fréttaritara Morgunblaðsins.
JÓN Baldvin Hannibalsson ut-
anríkisráðherra sagði í samtali
við Morgunblaðið í gær að yfir-
lýsing Yassers Arafats, leiðtoga
Frelsissamtaka Palestínumanna
(PLO), í Stokkhólmi taki af öll
tvímæli um að Þjóðarráð Pal-
estínumanna viðurkenni ísra-
elsríki. Þar með hlytu Palestínu-
menn að hafa uppfyllt þau skil-
yrði, sem sett hafa verið fyrir
alþjóðlegri ráðstefhu um lausn á
deilunum fyrir botni Miðjarðar-
hafs.
„Á þeirri ráðstefnu verður síðan
að ná samkomulagi um deiluatrið-
in,“ sagði Jón Baldvin, „meðal ann-
ars hvort Palestínumenn eigi sér
sjálfstætt ríki með einum eða öðrum
hætti.“ Hann sagði Evrópuríkin
yfírleitt ekki hafa viðurkennt ríki
Palestínumanna af þeirri einföldu
ástæðu að ekki sé um að ræða ríkis-
stjórn sem ráði yfir landi og þegn-
um. Jón Baldvin kvaðst telja að
forystumenn hægriflokka í ísrael
hefðu farið fram með nokkru of-
forsi í þessu máli; tillögur Verka-
mannaflokksins, t.d. um lýðræðis-
legt kjör fulltrúa Palestínumanna á
friðarráðstefnu, væru mun vænlegri
til sátta.
INNLENT
Framhaldsaðal-
fundur Verndar:
Stjóm kjör-
in einróma
Framhaldsaðalfúndur félaga-
samtakanna Verndar var haldinn
í gærkveldi. Þar voru kjörnir 13
menn í 40 manna aðalstjóm fé-
lagsins, og hlutu þeir allir ein-
róma kosningu. Að fúndinum
loknum var haldinn aðalstjómar-
fúndur þar sem Jóna Gróa Sig-
urðardóttir var endurkjörin
formaður samtakanna einróma.
í framkvæmdastjóm með Jónu
Gróu voru kjörin þau Hrafn Páls-
son, Siguijón Kristjánsson, Stella
Magnúsdóttir og Ottó Öm Péturs-
son. Til vara vom kosin Sigríður
Heiðberg, Hróbjartur Lúthersson,
Jón Dalbú Hróbjartsson, Þórhallur
Runólfsson og Áslaug Cassata.
Svört skýrsla um löggæslu í Reykjavík:
Nær ekkert eftirlit í íbúð-
arhverfum og í umferðinm
„EFTIRLIT og frumlöggæsla hefúr minnkað svo að að okkur
setur ótta um öryggi borgaranna og okkar sjálfra,“ sagði Jón
Pétursson formaður Lögreglufélags Reykjavíkur meðal annars
er hann fylgdi úr hlaði skýrslu sem félagið hefúr látið gera um
löggæslu í höfúðborginni. í skýrslunni kemur fram að aðhalds-
og sparaaðaraðgerðir undanfarinna missera hafi leikið löggæsl-
una svo grátt að dæmi séu þess að hluta úr degi hafi einungis
ein lögreglubifreið verið til að sinna útköllum á svæðinu frá
Gróttu að HvalQarðarbotni
Reykvískir lögreglumenn segja
að venjulegt nætureftirlit í íbúðar-
hverfum borgarinnar heyri sög-
unni til, einkum um helgar þegar
útköll séu flest. Jónas Magnússon,
stjómarmaður í Lögreglufélaginu,
sagði að afleiðingar þessa hefðu
ekki látið á sér standa. Nú gengi
til dæmis alda skemmdarverka og
skrílsláta yfír í sumum úthverfum.
Þar væru rúðubrot, innbrot og
hvers konar skemmdarverk dag-
legt brauð. Þörf væri á öflugu
eftirliti en vegna manneklunnar
væri slíkt ómögulegt; menn hefðu
vart undan útköllunum.
Jón Pétursson nefíidi sem dæmi
um það hve nú kreppi að emb-
ætti lögreglustjórans að fjöldi
manna í götulögreglu væri nú
svipaður og 1944 en þar af væri
þriðjungurinn reynslulítið fólk
sem enga kennslu hefði hlotið til
starfans. Þá kom fram á blaða-
mannafundi lögreglumanna að í
viðleitni til úrbóta hefðu yfirmenn
embættisins meðal annars séð sig
knúna til að skylda 65 ára gamlan
lögreglumann, sem vegna heilsu-
brests var settur til innistarfa fyr-
ir 12 árum, til að ganga vaktir í
einkennisbúningi.
Þá segir að dæmi séu þess að
lögreglumenn í fíkniefnadeild hafí
staðið frammi fyrir tveimur kost-
um þegar aukavinnukvótar hafí
verið búnir: annaðhvort að sjá
mál, sem þeir höfðu til rannsókn-
ar, ónýtast, eða þá að gefa hluta
vinnu sinnar. Þeir hafí óumbeðnir
tekið seinni kostinn.
í skýrslunni kemur fram að
ökutækjakostur embættisins sé
lélegur og úr sér genginn. Mann-
afli umferðardeildar sé rýrari en
nokkru sinni. Þannig hafí verið
einn lögreglumaður í deildinni á
hver 1.000 skráð ökutæki í borg-
inni árið 1984 en nú sé í deildinni
einn maður á hver 2.000 öku-
tæki. I skýrslunni segir að þetta
birtist almenningi meðal annars í
því að þeim sem kærðir eru fyrir
ölvunarakstur fækki en ölvuðum
ökumönnum sem lendi í umferð-
aróhöppum fjölgi.
Þá segja lögreglumenn að úr-
eltur íjarskiptabúnaður standi
starfseminni fyrir þrifum og að
ráðstafanir sem gerðar hafi verið
til úrbóta séu ónógar en óþarflega
dýrar enda hafí tilboða ekki verið
leitað.
í skýrslunni er að fínna nokkr-
ar ábendingar um hvemig ná
megi bættri nýtingu stöðugilda
embættisins. Nefnt er að í sumum
öðmm umdæmum bjóði dómarar
dómsættir á gmndvelli frum-
skýrslna en kreijist ekki tíma-
frekrar skýrslutöku í málum þar
sem enginn ágreiningur er meðal
kæranda og kærða. Einnig hafi
illa tekist til með að fá ökumenn
til að útfylla tjónatilkynningar í
Morgunblaðið/JúllUB
Baldvin Ottósson aðalvarðstjóri
og Grétar NorðQörð varðstjóri
að störfúm í fjarskiptamiðstöð
lögreglunnar. í skýrslu Lög-
reglufélags Reykjavíkur segir
að Qarskiptabúnaðurinn hafi
verið keyptur um miðjan átt-
unda áratuginn fyrír of naum-
ar gárveitingar og hafi öryggi
lögreglumanna og borgara beð-
ið hnekki af. Miklum Qármun-
um hafi þurft að veija í við-
hald og endurbætur.
smáárekstrum og hafi það í
með sér tímafreka vinnu sem
reglumenn telja að ætti að i
í verkahring tryggingarfélagí
Hækkun tekjuskatts
eykur atvinnuleysi
- segir í ályktun níu sarntaka atvinnulífsins