Morgunblaðið - 09.12.1988, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 09.12.1988, Qupperneq 2
2 ftSPr tf.'íTffMfiTR'íífí P 8TJQAfflTTP.ÍT'í ffif-TA.THVTITOHOM MORGUNBLAÐIÐ, FOSTUDAGUR 9. DESEMBER 1988 Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra og George Shultz, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, ræð- ast við í Briissel að lokinni fyrstu lotu fundar Atlantshafsráðsins í gær. Jón Baldvin Hannibalsson og George Shultz í Brussel: Samkomulag um hvala- rannsóknir enn staðfest Brllssel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, firéttaritara Morgnunblaðsins. JÓN Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra átti í gær viðræður við George Shultz, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í Briissel en ráðherramir sifja fund Atlantshafsráðsins í borginni. Shultz ítrekaði vonbrigði sín vegna afskipta bandaríska viðskiptamála- ráðuneytisins af sölu íslendinga á hvalaafurðum til Japans og voru ráðherramir sammála um að tryggja yrði að slíkt endur- tæki sig ekki. Jón Baldvin sagði að þeir hefðu gert með sér samkomulag um að gengið yrði tryggilega frá því hveijir færu með þessi mál, annars vegar af hálfu Bandaríkjamanna og hins vegar íslendinga. Shultz lagði áherslu á að Bandaríkjamenn mjmdu ekkert aðhafast í þessu máli án samráðs við íslendinga. Jón Baldvin kvaðst hafa gert Shultz grein fyrir stöðu rannsókn- anna og jafnframt vakið athygli hans á hugsanlegri aðild banda- rískra aðila að þeim. Shultz hyggst taka þetta mál til athugunar og er viðbragða bandarískra stjóm- valda að vænta á morgun. Utanríkisráðherra sagði að þeirri ákvörðun Míkahíls Gorbatsjovs Sovétforseta að fækka í sovéska hemum hefði verið vel tekið á fundi ráðsins. „Misvægi í vopnabúnaði er þó enn gríðarlega mikið og því fer ijarri að það verði úr sögunni með þessum aðgerðum. Enn er því nauðsynlegt að hefja viðræður sem miða að því að ná jafnvægi í hefð- bundnum herafla og vopnabúnaði. Það ,er Ijóst að ákvörðun Gor- batsjovs er að hluta herkænsku- bragð, hann nær með þessu „dipló- matísku" frumkvæði. Skoðana- kannanir staðfesta yfirgnæfandi stuðning almennings í aðildarríkj- um NATO við áframhaldandi aðild að bandalaginu. Hins vegar hefur nokkuð skort á að stefnumálum bandalagsins hafí verið komið nægilega vel til skila og þau út- skýrð fyrir almenningi. Pjölmiðla- fhimkvæði Gorbatsjovs verður ekki svarað á annan hátt en að opna alla umræðu um NATO betur og hafa frumkvæði að því að ná ár- angri," sagði Jón Baldvin Hanni- balsson, utanríkisráðherra. „HÆKKUN tekjuskatts á þeim fáu fyriríækjum sem skila hagn- aði dregur úr getu þeirra til þess að halda uppi eðlilegri starfsemi. Því mun atvinna minnka enn frekar ef skatta- hækkunin verður samþykkt," segir í ályktuninni. Þar er sagt að flest fyrirtæki séu rekin með tapi og að tekjur ríkissjóðs af fyrirhuguðum skatti verði af þeim sökum hvergi nærri í sam- ræmi við þær áætlanir sem mið- að er við. Gagnrýnd er sú stefnubreyting sem felst í að lækka frádráttar- heimildir vegna fjárfestingarsjóða úr 30% í 15%. Þeir sjóðir séu nauð- synlegir til að jafna sveiflur í rekstrinum og mæta áföllum. Þá segir svo í ályktuninni: „Það er óumdeilanleg staðreynd að lítið eigið fé fyrirtækja er einn megin- veikleiki atvinnu- og efnahagslífs þjóðarinnar. Frumskilyrði eigin- fjármyndunar í atvinnulífinu er að fyrirtæki hafí möguleika til að hagnast. Aðeins með hagnaði er unnt að viðhalda eigin fé fyrir- tækja og laða að nýtt fjármagn inn í reksturinn. Aðgerðir á sviði skattamála fyrirtækja ættu því að miða að aukningu eigin fjár en ekki skerðingu þess eins og nú er áformað." Samtökin segja að hvetja þurfi almenning með skattalegum að- gerðum til að leggja fé í atvinnu- rekstur og stuðla þannig að auknu atvinnuöryggi, meðal annars með því að kaup á nýju hlutafé í fyrir- tækjum verði alltaf frádráttarbær frá skatti, einnig arður af hluta- bréfum. Ályktunin endar á þessum orð- um: „Aðgerðir til þess að efla at- vinnulífíð með auknu eigin fé eru mun heilbrigðari og árangursríkari ráðstöfun í stað þess að þyngja skattaklyfjar á erfíðleikatímum og halda útvöldum fyrirtækjum gang- andi með erlendu lánsfé." Samtökin sem standa að álykt- uninni eru: Verslunarráð íslands, Félag íslenskra stórkaupmanna, Samband fískvinnslustöðvanna, Landssamband íslenskra útvegs- manna, Verktakasamband íslands, Félag íslenskra iðnrekenda, Kaup- mannasamtök íslands, Landssam- band iðnaðarmanna og Vinnuveit- endasamband íslands. Ummæli Arafats í Stokkhólmi: Otvíræð við- urkenning á Israel - aðsögnJóns Baldvins Hanriib- alssonar Brilssel. Frá Kristófer M. Krístinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. JÓN Baldvin Hannibalsson ut- anríkisráðherra sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að yfir- lýsing Yassers Arafats, leiðtoga Frelsissamtaka Palestínumanna (PLO), í Stokkhólmi taki af öll tvímæli um að Þjóðarráð Pal- estínumanna viðurkenni ísra- elsríki. Þar með hlytu Palestínu- menn að hafa uppfyllt þau skil- yrði, sem sett hafa verið fyrir alþjóðlegri ráðstefhu um lausn á deilunum fyrir botni Miðjarðar- hafs. „Á þeirri ráðstefnu verður síðan að ná samkomulagi um deiluatrið- in,“ sagði Jón Baldvin, „meðal ann- ars hvort Palestínumenn eigi sér sjálfstætt ríki með einum eða öðrum hætti.“ Hann sagði Evrópuríkin yfírleitt ekki hafa viðurkennt ríki Palestínumanna af þeirri einföldu ástæðu að ekki sé um að ræða ríkis- stjórn sem ráði yfir landi og þegn- um. Jón Baldvin kvaðst telja að forystumenn hægriflokka í ísrael hefðu farið fram með nokkru of- forsi í þessu máli; tillögur Verka- mannaflokksins, t.d. um lýðræðis- legt kjör fulltrúa Palestínumanna á friðarráðstefnu, væru mun vænlegri til sátta. INNLENT Framhaldsaðal- fundur Verndar: Stjóm kjör- in einróma Framhaldsaðalfúndur félaga- samtakanna Verndar var haldinn í gærkveldi. Þar voru kjörnir 13 menn í 40 manna aðalstjóm fé- lagsins, og hlutu þeir allir ein- róma kosningu. Að fúndinum loknum var haldinn aðalstjómar- fúndur þar sem Jóna Gróa Sig- urðardóttir var endurkjörin formaður samtakanna einróma. í framkvæmdastjóm með Jónu Gróu voru kjörin þau Hrafn Páls- son, Siguijón Kristjánsson, Stella Magnúsdóttir og Ottó Öm Péturs- son. Til vara vom kosin Sigríður Heiðberg, Hróbjartur Lúthersson, Jón Dalbú Hróbjartsson, Þórhallur Runólfsson og Áslaug Cassata. Svört skýrsla um löggæslu í Reykjavík: Nær ekkert eftirlit í íbúð- arhverfum og í umferðinm „EFTIRLIT og frumlöggæsla hefúr minnkað svo að að okkur setur ótta um öryggi borgaranna og okkar sjálfra,“ sagði Jón Pétursson formaður Lögreglufélags Reykjavíkur meðal annars er hann fylgdi úr hlaði skýrslu sem félagið hefúr látið gera um löggæslu í höfúðborginni. í skýrslunni kemur fram að aðhalds- og sparaaðaraðgerðir undanfarinna missera hafi leikið löggæsl- una svo grátt að dæmi séu þess að hluta úr degi hafi einungis ein lögreglubifreið verið til að sinna útköllum á svæðinu frá Gróttu að HvalQarðarbotni Reykvískir lögreglumenn segja að venjulegt nætureftirlit í íbúðar- hverfum borgarinnar heyri sög- unni til, einkum um helgar þegar útköll séu flest. Jónas Magnússon, stjómarmaður í Lögreglufélaginu, sagði að afleiðingar þessa hefðu ekki látið á sér standa. Nú gengi til dæmis alda skemmdarverka og skrílsláta yfír í sumum úthverfum. Þar væru rúðubrot, innbrot og hvers konar skemmdarverk dag- legt brauð. Þörf væri á öflugu eftirliti en vegna manneklunnar væri slíkt ómögulegt; menn hefðu vart undan útköllunum. Jón Pétursson nefíidi sem dæmi um það hve nú kreppi að emb- ætti lögreglustjórans að fjöldi manna í götulögreglu væri nú svipaður og 1944 en þar af væri þriðjungurinn reynslulítið fólk sem enga kennslu hefði hlotið til starfans. Þá kom fram á blaða- mannafundi lögreglumanna að í viðleitni til úrbóta hefðu yfirmenn embættisins meðal annars séð sig knúna til að skylda 65 ára gamlan lögreglumann, sem vegna heilsu- brests var settur til innistarfa fyr- ir 12 árum, til að ganga vaktir í einkennisbúningi. Þá segir að dæmi séu þess að lögreglumenn í fíkniefnadeild hafí staðið frammi fyrir tveimur kost- um þegar aukavinnukvótar hafí verið búnir: annaðhvort að sjá mál, sem þeir höfðu til rannsókn- ar, ónýtast, eða þá að gefa hluta vinnu sinnar. Þeir hafí óumbeðnir tekið seinni kostinn. í skýrslunni kemur fram að ökutækjakostur embættisins sé lélegur og úr sér genginn. Mann- afli umferðardeildar sé rýrari en nokkru sinni. Þannig hafí verið einn lögreglumaður í deildinni á hver 1.000 skráð ökutæki í borg- inni árið 1984 en nú sé í deildinni einn maður á hver 2.000 öku- tæki. I skýrslunni segir að þetta birtist almenningi meðal annars í því að þeim sem kærðir eru fyrir ölvunarakstur fækki en ölvuðum ökumönnum sem lendi í umferð- aróhöppum fjölgi. Þá segja lögreglumenn að úr- eltur íjarskiptabúnaður standi starfseminni fyrir þrifum og að ráðstafanir sem gerðar hafi verið til úrbóta séu ónógar en óþarflega dýrar enda hafí tilboða ekki verið leitað. í skýrslunni er að fínna nokkr- ar ábendingar um hvemig ná megi bættri nýtingu stöðugilda embættisins. Nefnt er að í sumum öðmm umdæmum bjóði dómarar dómsættir á gmndvelli frum- skýrslna en kreijist ekki tíma- frekrar skýrslutöku í málum þar sem enginn ágreiningur er meðal kæranda og kærða. Einnig hafi illa tekist til með að fá ökumenn til að útfylla tjónatilkynningar í Morgunblaðið/JúllUB Baldvin Ottósson aðalvarðstjóri og Grétar NorðQörð varðstjóri að störfúm í fjarskiptamiðstöð lögreglunnar. í skýrslu Lög- reglufélags Reykjavíkur segir að Qarskiptabúnaðurinn hafi verið keyptur um miðjan átt- unda áratuginn fyrír of naum- ar gárveitingar og hafi öryggi lögreglumanna og borgara beð- ið hnekki af. Miklum Qármun- um hafi þurft að veija í við- hald og endurbætur. smáárekstrum og hafi það í með sér tímafreka vinnu sem reglumenn telja að ætti að i í verkahring tryggingarfélagí Hækkun tekjuskatts eykur atvinnuleysi - segir í ályktun níu sarntaka atvinnulífsins
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.