Morgunblaðið - 16.12.1988, Qupperneq 70
70
MORG UNBLAÐIÐ IÞROI I iR F0STOÐAGUR-16. DESEMBER 1988
KARFA
KNATTSPYRNA / 1. DEILD
Gvétar áfram
hjá ÍBK?
Freyr Sverrisson afturtil ÍBK
Tap gegn
írumá
Möltu
Isienska landsliðið í körfuknatt-
leik tapaði með þriggja stiga
mun, 71:68, gegn því írska í ann-
arri umferð smáþjóðamótsins á
Möltu. Hittni íslensku strákanna
var afleit, einkum í fyrri hálfleik,
én í hléi var staðan 35:27. Þeir
voru skárri í seinni hálfleik og er
rúm mínúta var til leiksloka náðu
þeir forystu í fyrsta sinn, 66:64.
En reynsluleysið kom þeim í koll
og tap var óumflýjanlegt.
Guðmundur Bragason var stiga-
hæstur í íslenska liðinu með 17 stig.
Magnús Guðfinnsson skoraði 15
stig, Tómas Holton 13, Valur Ingi-
mundarson, sem var í strangri
gæslu allan tímann, 12 stig og aðr-
ir færri.
í dag verður leikið gegn Gíbralt-
ar og sigur tryggir íslenska liðinu
sæti í undanúrslitum.
Grótar Elnarsson
GRÉTAR Einarsson, sem hef
ur verið orðaður við sitt
gamla félag Víði, verður
líklega áfram hjá ÍBK. Einng
er talið líklegt að Freyr Sverr-
isson gangi aftur í raðir
Keflvíkinga, en hann lék í
sumar með Grindvíkingum.
Grétar Einarsson mun ákveða
sig um helgina hvort hann
verði áfram með Keflavík næsta
sumar. „Ég hef ekki endanlega
gert upp hug minn, en ég hef
mikið álit á Hólmberti sem þjálf-
ara. Það er líklegt að ég verði
áfram hjá ÍBK,“ sagði Grétar.
Að sögn Rúnars Lúðvíkssonar,
formanns knattspymudeildar
ÍBK, hefur Freyr Sverrisson látið
að því liggja að hann vilji leika
með ÍBK næsta sumar. Freyr lék
með ÍBK í 1. deild 1987, en í
sumar lék hann með Grindvíking-
um í 3. deild. Siguijón Sveinsson
og ívar Guðmundsson, sem léku
með Reyni Sangerði í sumar, hafa
nýlega ákveðið að ganga aftur til
liðs við Keflvíkinga
Þessir þrír leikmenn léku undir
stjón Hólmberts hjá ÍBK 1985.
Keflvíkingar hafa misst Ragnar
Margeirsson sem hefur ákveðið
að leika með Fram næsta sumar.
Ragnar lék einnig með Fram 1987
er liðið varð bikarmeistari.
Sparisjödur
Hafnarfjarðar
Rúmena í kvöld
Er aö þú mætir í íþróttahús Hafnarfjaröar og hjálpir okkur
aö leggja rúmenska liðið Minaur Baia Mare aö velli.
Leikurinn hefst kl. 20:00 og miðasalan opnar kl. 18:00.
Komdu á völlinn í kvöld og leggjum Rúmena aö velli.
Maria Wallisar.
Walliser
sigradi
Svissneska stúlkan Maria Wall-
iser sigraði í bruni kvenna í
heimsbikamum í Altenmarkt í
Austurríki í gær. Hún fékk tímann
1:35.23 mín. og var 10/100 hlutum
úr sekúndu á undan Veroniku Wall-
inger frá Austurnki. Heimsbikar-
hafinn frá í fyrra, Michela Figini
frá Sviss, varð í þriðja sæti á
1:35.55 mínútum.
Figini hefur forystu í stigakeppn-
inni það sem af er með 49 stig.
Carole Merle frá Frakklandi er í
öðru sæti með 37 stig. Fjórar stúlk-
ur eru jafnar í þriðja sæti með 35
stig. Það eru austurrísku stúlkumar
Anita Wachter og Ulrike Maier og
vestur-þýsku stúlkumar Regine
Mösenlechner og Michaela Gerg.
NBA
Fyrsti sig-
ur Miami
Leikmenn Miami stigu
stríðsdans í Los Angeles, eftir
að þeir vom búnir að vinna sinn
fyrsta sigur - eftir sextán tapleiki
í röð. Miami vann Clippers, 89:88,
á miðvikudagskvöldið.
Boston var 20 stigum undir gegn
Utah Jazz, en þá tóku þeir Danny
Ainge (32 stig) og Robert Parish
(21) til sinna ráða og Boston vann,
112:104.
Leikmenn Nets jöfnuðu með
þriggja stiga körfu gegn Larkers,
þegar þijár sek. vom til leiksloka.
Þeir unnu svo í framlengingu,
118:113. Buck Williams setti 32
stig, en Earvin Johnson var stiga-
hæstur hjá Lakers, með 31 stig.
Chicago Bulls keypti Craig
Hodges frá Phoenix. Hodges er einn
af bestu þriggja stiga skyttum
NBA-deildarinnar.
NBA-úrslit:
Atlanta Hawks - Philadelphia.... 103:96
Boston Celtic - Utah J azz..112:104
Charlotte Hornets - Indiana.115:106
Milwaukee - Detroit Pistons.119:110
N.J. Nets - L.A. Lakers ....118:113
Miami Heat - L.A. Clipþer......89:88
í kvöld
Einn leikur verður leikinn í
1. deildarkeppninni í hand-
knattleik í kvöld. Breiðablik
leikur gegn Vestmannaeyjum
kl. 19 í íþróttahúsinu Digra-
nesi. Þá verður einn leikur í
1. deild kvenna, einnig í Di-
granesi. Stjarnan mætir
Víking kl. 20.