Morgunblaðið - 16.03.1989, Síða 56
I
i
56
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. MARZ 1989
ENGLAND
Höfðingjar í heimsókn
■X arl Bretaprins og eiginkona hans, Díana
prinsessa, eru þessa dagana á ferðalagi um Sam-
einuðu arabísku furstadæmin og Kuwait. Við-
tökumar hafa að sögn kunnugra verið framúr-
skarandi, mataræði innfæddra mun ekki hafa
valdið umtalsverðum erfíðleikum og vistarverur
allar þykja hafa verið í samræmi við kröfur kon-
ungborinna. í Kuwait ræddi Karl Bretaprins við
emírinn brosmilda Sheikh Jaber al-Ahmed al-
Sabah en á hinni myndinni stinga þau Díana
prinsessa og Sheikh Saad al-Abdulla al-Sabak
krónprins saman nefnjum.
Reuter
4,5 MILUONIR I GETRAUNUM
Galdurinn er að vera
með í hverri viku
Selfossi.
Við settum dálítið meira í þetta
núna síðast því við fengum 11
rétta í vikunni áður sem gáfu 80
þúsund," sagði einn félaginn í tipp-
arafélaginu DAGSKOKK á Selfossi
en félagið átti eina seðilinn með 12
rétta hjá Getraununum laugardag-
inn 25. febrúar. „Galdurinn er að
vera með í hverri viku.“ Venjulega
leggja þeir 600 krónur á mann í
tipppottinn en þær urðu 2000 í
síðustu viku og gáfu samtals
4.583.106 krónur, rúmlega 573
þúsund á mann.
Þeir félagar koma saman á hveij-
um föstudegi klukkan 20.15 og
tippa. Þeir hafa gert þetta í 3 ár
og spiluðu frítt fyrsta árið, fengu
150 þúsund í vinninga. Næsta ár
var rekið með tapi þó þeir fengju
tvisvar 11 rétta en líkur eru á að
þetta ár verði gott.
Sigurður Grétarsson, sem sér um
að sækja vinningana, sagðist hafa
sagt við framkvæmdastjóra Get-
rauna þegar hann sótti vinninginn
síðast að hann kæmi næst og tæki
stærri vinning og það varð úr. Þeir
félagar voru með 4 raðir með 11
réttum og eina með 12 rétta. Þess
má geta að þessa helgi var Selfoss
þriðja söluhæsta félagið yfir landið,
á undan voru Fram og Fylkir í
Reykjavík.
-Sig. Jóns.
Reuter
Vinningnum skipt bróðurlega
milli félaganna í DAGSKOKK.
Sigurður Grétarsson afhendir
Kjartani Björnssyni ávísun. Aðr-
ir á myndinni eru David Vokes,
Ásbjörn Hartmannsson, Óskar
Marelsson, Tómas Gunnarsson,
Olgeir Jónsson og Snorri Snorra-
son.
AlúÖar þakkir fceri ég öllum þeim, sem heim-
sóttu mig og glöddu á annan hátt með kveÖjum
og gjöfum á 90 ára afmœli mínu.
Jörgen Hólm,
SiglufirÖi.
Gefið krökkunum ómetanlega gjöf sem þeir búa að alla
ævi: Enskunámskeið í Englandi í sumar í CONCORDE
INTERNATIONAL málaskólanum. Hringið í s. 91-74076
og fáið upplýsingar sendar heim.
Innrömmun Sigurjóns
Ármúla 22 sími 31788
Málverka- og
myndainnrömmun.
Málverkalampar -
málverkasala - speglasala
Sendum í póstkröfu
fclk i
fréttum
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson