Morgunblaðið - 21.03.1989, Side 56
56
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. MARZ 1989
C
félR I'
fréttum
Þingkonuefhi
vísaðafþingi
Hsu Shao-Tan, 28 ára gömul
sýningarstúlka, sem hefur lýst
því yfír að hún ætli að bjóða sig
fram í næstu þingkosningum í
Tævan, er hér flutt úr þinghúsinu
í Taipei eftir að hafa reynt að ryðj-
ast inn í það á gegnsæjum brúðar-
kjól. Hsu hefur margsinnis veitt
•tjáningarþörf sinni útrás með því
að bera líkama sinn með listrænum
og tilþrifamiklum hætti.
Sjálfsbjargarviðleitni
wmummmmmm . - - ~
IITSALA
á kuldaúlpum og skíðaanórökum.
Helmings afsláttur.
Don Cano-búðin,
Glæsibæ, sími 82966.
XJöföar til
JLX fólks í öllum
starfsgreinum!
£
Morgunblaðið/ólafur Bemódusson.
Foreldrar Guöbjargar tóku viö verðlaunagrip úr höndum Sigurlaug-
ar Hermannsdóttur, formanns IJSAH.
SKAGASTRÖND
Guðbjörg Gylfadóttir
íþróttamaður ársins
ÞING Ungmennasam-
■ bands Austur-Húnvetn-
inga var haldið á Skagaströnd 12.
mars síðastliðinn. Þá voru tilkynnt
úrslit í kjöri íþróttamanns ársins
innan USAH. Guðbjörg Gylfadóttir,
fijálsíþróttakona úr Fram á Skaga-
strönd, var kjörin íþróttamaður árs-
ins 1988. Guðbjörg er kúluvarpari
og hefur átt fast sæti í landsliði
íslands í fijálsum íþróttum að und-
anfömu. Nýlega setti hún nýtt hér-
aðsmet er hún kastaði kúlunni
15,02 metra innanhúss á móti í
Bandaríkjunum þar sem hún dvelur
nú við nám. Foreldrar Guðbjargar
tóku við verðlaunagrip úr höndum
Sigurlaugar Hermannsdóttir, for-
manns USAH, fyrir hennar hönd
þar sem Guðbjörg gat ekki verið
viðstödd afhendinguna.
- Ó.B.
KARL BRETAPRINS
Hætti hann við póló-leik
vegna morðhótunar?
Karl Bretaprins ætlaði að taka
þátt í póló-leik í Sameinuðu
arabísku furstadæmunum á föstu-
dag en af því varð ekki af öryggisá-
stæðum. Fyrirhugað var að hann
yrði fyrirliði breska póló-liðsins
Windsor Park í leik gegn úrvalsliði
póló-félagsins í Dúbai og höfðu fjöl-
margir póló-áhugamenn keypt miða
á leikinn, sem kostaði um 13.500
ísl. kr. Talið er að hætt hafi verið
við þátttöku prinsins vegna deilu
írana og Breta, sem hófst eftir útg-
áfu bókarinnar „Söngvar Satans"
eftir Salman Rushdie. íranar höfðu
lýst því yfir að með ferð sinni til
Sameinuðu arabísku furstadæ-
manna og nokkurra annarra ara-
baríkja væri prinsinn að lítilsvirða
múhameðstrúna. Blaðamenn, sem
hafa þann starfa að fylgjast með
bresku konungsfjölskyldunni, sögð-
ust aldrei hafa séð jafn miklar ör-
yggisráðstafanir í tengslum við fjöl-
skylduna og töldu margir þeirra að
prinsinum hefði borist morðhótun.
Óryggisverðir leituðu á öllum sem
nálguðust prinsinn og fylgdarlið
hans, auk þess sem þyrlur voru
hvarvetna á sveimi.
COSPER
COSPER
©PIB
\0Go&
Ég skal muna eftir að sakna þín. Sjáðu, ég hef hnýtt hnút
á vasaklútinn minn.