Morgunblaðið - 17.05.1989, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. MAÍ 1989
Vandi í fiskeldi
eftir Egil Jónsson
Það er mikið um að vera þegar
frumvarp til laga um tryggingar-
sjóð fiskeldislána var til umfjöllunar
á Alþingi rétt áður en jólaleyfi þing-
manna hófst. Ekki náðist sam-
komulag um að afgreiða málið þá,
enda er það meingallað eins og
ríkisstjórnin hafði kuðlað því frá
sér. Þegar þing kom svo saman í
fáa daga eftir áramótin var frum-
varpið svo lögfest.
Eins og þingtíðindi staðfesta var
sá, er þessar línur ritar, með efa-
semdir um gagnsemi þessara laga
enda nálega öruggt að tryggingar-
sjóðurinn mundi einungis gagnast
hluta fyrirtækja í þessari grein. En
þeir. voru miklu fleiri sem töldu að
rekstrarvandi fiskeldisfyrirtækja
væri nú leystur enda hnigu orð
ríkisstjórnarinnar mjög í þá átt.
Til þess að leiða fram staðreynd-
ir málsins lögðum við Halldór
Blöndal fram á Alþingi svofellda
fyrirspurn:
1. Hversu mörg fiskeldisfyrirtæki
eru starfandi í landinu?
2. Njóta þau öll viðskipta í bönkum
að því er varðar afurða- og
rekstrarlán?
3. Ef svo er ekki, hvernig hyggst
ríkisstjórnin leysa rekstrarvanda
þeirra fiskeldisfyrirtækja sem
ekki njóta slíkra viðskipta?“
Um tölu fiskeldisfyrirtækja svar-
aði landbúnaðarráðherra því til að
þau væru 117 en þar sem sum fyrir-
tækjanna ættu fleiri en eina stöð
væri tala þeirra 125.
Við annarri spumingunni fékkst
ákaflega mikilvægt svar, því að þar
upplýsti ráðherrann að fyrirtæki í
fiskeldi sem njóta afurða eða rekstr-
arlána séu að tölu til 32. Þarna er
þá komin fram árangur laganna
um tryggingarsjóð fiskeldislána og
stóru orðanna frá því í vetur því
að nú er staðfest að einungis fjórð-
ungur eða þriðjungur fyrirtækja í
fiskeldi nýtur eðlilegra lánavið-
skipta.
Við þriðju spurningunni fæst
einnig skýrt svar. Orðrétt sagði
ráðherrann:
„Ekki hefur komið til þess að
ríkisstjórnin hlutist til um það að
einstök fyrirtæki á þessu sviði fái
bankaviðskipti og ekki er kunnugt
um að eftir því hafi verið sérstak-
lega leitað. Það var von manna, og
er enn, að með tilkomu tryggingar-
sjóðs fiskeldislána mundu bankar
að athuguðu máli sjá sér fremur
fært að taka ný fyrirtæki í við-
skipti þar sem ljóst er að tilkoma
sjóðsins afmarkar betur en áður var
þann hluta af fjármögnun á þessu
sviði sem bönkum er ætlað að bera.“
Hér fer ekkert á milli mála. Ríkis-
stjórnin hefur ekki hlutast til um
að vandi þessara fyrirtækja að því
er varðar rekstrarlán verði leystur
og enn halda menn í vonina um
áhrifamátt tryggingarsjóðsins.
Oft hefur verið á það minnst hve
mikilvægt það væri fyrir afkomu
íslendinga að auka framleiðslu og
að til þess að svo mætti verða
þyrftu framleiðslugreinum að
fjölga. Fiskeldi hefur gjaman verið
IBM á íslandi og Sameind hf. kynna:
IBM 4684 verslunartölvuna
• IBM 4684 verslunarkerfið sem þjónar jafnt minnstu
verslunum sem þeim stærstu, stórmörkuðum sem
sérvöruverslunum.
• IBM 4684 er án efa fjölhæfasta verslunartölvan á
markaðnum.
• IBM 4684 les og skráir kredit/debetkort beint sem
sparar mikinn tíma og kostnað.
• Oruggar tengingar við stærri gerðir tölva.
• IBM strikamerkjalesarar lesa allar gerðir
strikamerkja.
Allt eftir óskuni notandans, á verði sem kemur á óvartl
Með IBM 4684 fæst heildarlausn í verslunarrekstri, á einfaldan, öruggan og ódýran hátt.
Sérstök kynning verður á IBM verslunartölvunum fyrir matvöruverslanir og sérverslanir
í húsakynnum Sameindar hf., að Brautarholti 8, dagana 22., 23. og 24. maí nk.
Vpplýmngur í síma 25833
ISM — eitt merfci fyrir heðdarianso
Qsameind
Egill Jónsson
„Ríkisstjórnin hefur
ekki hlutast til um að
vandi þessara fyrir-
tækja að því er varðar
rekstrarlán verði leyst-
ur og enn halda menn
í vonina um áhrifamátt
tryggingarsjóðsins.“
nefnt í þessu sambandi sem ákjós-
anlegur kostur. í umræðum um
tryggingarsjóðinn, sem áður er
vitnað til, var það talinn ábyrgðar-
hluti ef afgreiðsla málsins drægist
frá upphafi til loka janúarmánaðar.
Svona lá þá mikið á og skýringarn-
ar voru m.a. þær að nauðsynlegt
væri að eyða því vonleysi sem svo
mjög væri farið að grafa um sig
meðal fiskeldismanna. Hvað segja
menn nú þegar þrír mánuðir eru
liðnir til viðbótar án þess að nokkr-
ar einustu úrbætur hafi fengist í
lánaviðskiptum hinnar nýju fram-
leiðslugreinar okkar, fiskeldisins,
eins og landbúnaðarráðherra stað-
festir í svari sínu á Alþingi og áður
er vitnað til. En nú fela menn sig
ekki lengur að baki tryggingarsjóðs
fískeldislána, né heldur stjómar-
sáttmála og endurskoðun á afurða-
og rekstrarlánum, eins og yfírlýs-
ingar hafa gengið um. Á þess hátt-
ar fyrirslætti lifir laxinn ekki. Þess
vegna verður að fást fram með
skýrum hætti viðbrögð ríkisstjórn-
arinnar í þessu mikilvæga máli,
hvort hún ætlar að láta lífið fjara
út í þessari nýju búgrein eða hvort
hún hyggst veita henni þá liðveislu
sem nauðsynleg er og þá sérstak-
lega með því að útvega henni
rekstrar- og afurðalán.
Höfiindur er alþingismaður fyrir
Sjálfstæðisflokkinn á Austurlandi.
Almenn fjár-
söfnun fyrir
Listasafn
i
Kópavogs
ALMENN fjársöfnun fyrir Lista-
safii Kópavogs er hafin undir
stjórn Kristjáns Guðmundssonar
bæjarstjóra og í samráði við
Lista- og menningarráð. í söfn-
unarstjórn eru Árni Guðjónsson,
Birna Stefánsdóttir, Styrmir
Gunnarsson og Tómas Zoega.
Söfnuninni hafa þegar borist
áheit kr. 25.000 frá Ragnari Stef-
ánssyni og fylgir því teiknuð mynd
eftir hann. Næsta haust verður
boðinn út áfangi í byggingu Lista-
safns Kópavogs, þar sem þakið
verður gleijað og húsið fullfrágeng-
ið að utan.
Erfingjar Gerðar Helgadóttur
gáfu sem kunnugt er á sínum tíma
verk hennar til safnsinsj og einnig
hafa erfingjar Barböru Ámason og
Magnúsar Á. Árnasonar gefið verk
þeirra. Þá hefur Grímur M. Stein-
dórsson nýverið gefið safninu tvö
verk eftir sig.
(Ur fréttatilkynningu)