Morgunblaðið - 17.05.1989, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. MAÍ 1989
Verkfall í flár-
magnskreppu
eftir Brynjólf
Eyjólfsson
Enn eru háskólamenntaðir ríkis-
starfsmenn famir í verkfall, eða
hvað? Þetta er nú vart réttmæt
ásökun því að við í þessum hóp
erum nú flest að fara í verkfall í
fyrsta eða annað sinn á ævinni. Það
eru nefnilega ekki nema tæp 3 ár
síðan okkur varð það leyfilegt að
fara í verkfall. En hvers vegna eru
BHMR-félögin þá í verkfalli? Það
er hveijum manni, sem um það
hugsar, augljóst að þau laun sem
falin eru í launatöxtum samninga
launþegasamtakanna og atvinnu-
rekenda em með öllu óhugsandi
grunnur undir lífvænlegt líf laun-
þega. Þetta á við um alla þá sem
þurfa að lifa af dagvinnulaunum
einum saman án nokkurra yfirborg-
ana. Hvað gera menn svo sér til
bjargar? Jú, þeir vinna yfirvinnu eða
finna sér aukastarf. 0g þetta gildir
ekki síst hjá ríkinu.
Hveijar eru svo afleiðingar
þessa? Þær em margar en þær
verstu er ef til vill sá vítahringur
sem þetta setur heildarlaunaþróun
í landinu í. Afleiðingamar af auka-
vinnunni er að- framleiðnin fellur
sökum þess að vinnugeta flestra er
það takmörkuð að þeir em einfald-
lega ófærir um að sinna öllum
sínum störfum með besta hætti og
ekki síður að getan til að vera
manneskja er takmörkuð af streitu
og skorti á frítíma. Fleira hangir á
spýtunni því að með núverandi kerfi
í kjaramálum er launamunur að
vaxa mjög hratt.
Nú má svo spyija um hvort
ástand „þjóðarbúsins" beri launa-
hækkanir. Þessi spurning er í raun
marklaus því að spyija ætti hvort
ekki sé til leið til að nýta auð þjóðar-
innar betur með jafnari dreifingu
til allra. Það er nú svo að þessi
furðulega þjóð sem við tilheymm
er ein af ríkustu þjóðum heims og
auk þess með einhveijar hæstu
þjóðartekjur sem þekkjast.
Kreppa síðustu ára virðist ekki
fólgin í að verðmæti framleiðslu
okkar hafi minnkað heldur í fjár-
magnsmagakveisu sem byggir á því
að nú er fjármagnið óhreyfanlegt
og hefur full mannréttindi og ekki
má senda nokkurn út til að njósna
um það og því síður reyna að skatt-
leggja það eða bara tryggja að yfir-
völd viti hvar það er og hvað það
er að gera.
Einnig er það umhugsunarefni
okkur, sem emm verðtryggð upp í
topp í öllum okkar húsnæðiskaup-
um, hvemig það má vera að þeir
sem sluppu við það em nú að heimta
að sparifé þeirra, sem byggir á því
að þeir fengu sín hús á niður-
greiddu verði, ávaxtist áhættulaust
með hæstu mögulegu ávöxtun. Það
er nefnilega þversögn í því að ætla
að fá okur ávöxtun á sparifé sitt
og krefjast þess að þeir sem eiga
að borga, taki á sig byrðarnar af
vandamálum fyrirtækjanna í þessu
kerfi í leiðinni. Það er nokkuð lýs-
andi fyrir ástandið almennt að þeg-
ar bankarnir finna út að lausaíjár-
staða þeirra er að verða óþarflega
góð þá hækka þeir vexti. Þetta
hefði í öðmm löndum sennilega
valdið fjöldauppsögnum á banka-
stjómm og auk þess sem ríkisvaldið
hefði ekki farið neinar bónleiðir að
bönkunum í því að neyða þá tii
vaxtalækkunar heldur einfaldlega
notað sína möguleika til beinnar
íhlutunar. Nei, það em ekki þessir
bölvaðir BHMR-félagar sem em að
reyna að kollvarpa þessu þjóðfélagi
heldur er það tvískinnungur allra
stjórnmálaafla í þessu landi í launa
og fjármagnsmálum sem veldur.
Menn geta séð nokkur lagleg
dæmi nú um stundir. Það virðist
sem ráðhús Davíðs sé hin mesta
vertíð fyrir sjálfstætt starfandi
verkfræðinga sem hafa gott meir í
laun en jafnvel ýtmstu kröfur
BHMR gætu tryggt þeim best
menntuðu með lengsta starfsaldur-
inn. Einnig er ríkið nokkuð dijúgur
kúnni hjá þessum sömu aðilum og
ætti því að vera kunnugt um þeirra
launakjör.
Og nú em blessaðir alþingis-
mennimir okkar að fara að spara
Brynjólfur Eyjólfsson
„Nei, það eru ekki þess-
ir bölvaðir BHMR-
félagar sem eru að
reyna að kollvarpa
þessu þjóðfélagi heldur
er það tvískinnungur
allra stjórnmálaafla í
þessu landi í launa og
fjármagnsmáluni sem
veldur.“
upp á danskan máta. með því að
hætta við að byggja yfir sig í krepp-
unni og kaupa í staðinn Hótel Borg
og ætla á þennan máta að gera
þjóðina 2 milljörðum ríkari með því
að eyða nokkur hundmð milljónum.
Danskur máti sagði ég, Danir era
búnir að gera sig forríka á að
ákveða einum fjórum eða fimm
sinnum að byggja brú á Stórabelti
og eyða í undirbúning nokkmm
milljörðum í hvert skipti og spara
sér síðan framkvæmdirnar til að
geta sýnt aðhald í ríkisrekstri.
Það em sameiginlegir hagsmunir
allra launamanna að gerð verði til-
raun tii að skapa stöðugleika í
launa- og verðlagsmálum til lengri
tíma en nokkurra vikna eða mán-
aða.
Það var fyrir nokkmm árum sagt
að þar sem að milli hækkana væri
ekki verðbólga og hækkun væri
augnabliksaðgerð þá væri í raun
engin verðbólga. Þetta virðist
stundum vera sú kenning sem
stjórnmálamenn trúa á. En, án
gamans, þá er það nú svo að flest-
ir hinir yngri meðal þessarar þjóðar
hafa miklar verðtryggðar skuld-
bindingar á herðunum og þeir em
sérlega viðkvæmir fyrir kaupmátt-
arrýmun, því að ekki bara hækkar
varan sem kaupa þarf til lífsins
heldur eykst greiðslubyrðin af
skuldbindingunum. Það er ljóst að
ekki verður sparað við sig að greiða
af lánunum og því er svigrúmið til
að rétta sig af með tímabundnum
spamaði lítið.
Að lokum, formaður samninga-
nefndar ríkisins er svo smár í snið-
um að þegar hann hefur haft til
þess nokkur ár að gera almennilega
og leiðandi kjarasamninga þá þarf
hann endilega að láta sér detta í
hug að krefjast fundar á sama tíma
og löngu boðaður baráttufundur
BHMR er haldinn og segja síðan
að ekki sé einu sinni hægt að fá
BHMR á fund vegna þess að foryst-
an sé sífellt að skemmta sér. Slík
framkoma af aðalandliti ríkisvalds-
ins er með þeim ósköpum að undrun
sætir. Og hafði hann þá líka eitt-
hvað fram að færa sem svona lá á
að koma til skila? Nei, hann vildi
bara segja að hann hefði ekkert að
segja eða bjóða.
Höfundur er kennari við Mennta-
skólann á Akureyri.
HeimUistækí
sem bíða ekki!
íwn b rmrn
iiiunriiiM
þurrkari
elílavéF
lrvstikisia
\ \ \ wwwv \ \
Nú er ekki eftir neinu aö bíða, þú verslar í Rafbúö
Sambandsins fyrir 100 þúsund og getur þá keypt
öll heimilistækin í einu, valið sjálfur hvert tæki af
ótal gerðum í pakkann, bætt sjónvarpi, videotæki
eða hrærivél við og skipt greiðslum jafnt niður á
24 mánuði. Engin útborgun og fyrsta greiðsla eftir
einn mánuð. Enginn íslenskur raftækjasali hefur
boðið slík kjör - hvorki fyrr né síðar. Hafðu sam-
band við Rafbúð Sambandsins strax - það er ekki
eftir neinu að bíða.
^SAMBANDSINS
HOLTAGÖRÐUM. SÍMI 685550
VIÐ HLIÐINA Á MIKLAGARÐI