Morgunblaðið - 17.05.1989, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. MAÍ 1989
25
OPIÐ BRÉF
- til Emmu og Matta Skjaldar
hluta, og yrði þá kostur II eitthvað
dýrari en kostur I. Yfirbygging á
alla Fossvogsbraut myndi kosta
rúmlega milljarð króna. Ef við
göngum út frá yfirbyggingu að
hluta, þá munar það litlu á kosti I
og II, að kostnaðarmunur ræður
varla úrslitum.
Við samanburð á öðrum þáttum
kemur í ljós að kostur I (án Foss-
vogsbrautar) er í raun óviðunandi,
einkum af eftirfarandi ástæðum:
a) U.þ.b. helmingur af austur-
vestur umferð vestan Elliðaáa
myndi safnast á Miklubraut.
Dreifing umferðarálags á stofn-
brautakerfið yrði ójöfn og um-
ferðarkerfið ósveigjanlegt. Erf-
iðleikar gætu skapast vegna
beygjustrauma á umferðar-
þyngstu gatnamótum stofn-
brautakerfisins. Umferðarmag-
nið á Miklubraut árið 2004 yrði
um 70-80 þúsund bílar á sólar-
hring, þ.e. tvöfaldast frá því sem
er í dag. Dæmi um svo mikla
umferð á einni götu finnast vart
nema í milljónaborgum.
b) Erfiðleikar yrðu við viðhald og
rekstur Miklubrautar. Sama
gildir ef alvarlegt umferðarslys
verður, því erfitt yrði að beina
allri þessari umferð á aðrar göt-
ur.
c) Frá almannavamasjónarmiði er
ekki gott að safna mikilli umferð
á eina stofnbraut.
d) Meiri gegnakstur yrði um Ný-
býlaveg og Bústaðaveg.
e) Væntanleg flugstöð á
Reykjavíkurflugvelli yrði ekki
eins vel tengd við stofnbrauta-
kerfið.
f) Umferðarhávaði við Miklubraut
myndi aukast um 5-10 desibel
og verða illbærilegur í Hlíða-
hverfi, þar sem íbúðarhús standa
nálægt götunni.
í stuttu máli má segja að hlut-
fallsleg þýðing Fossvogsbrautar sé
ekki minni en þýðing Reykjanes-
brautar fyrir Garðbæinga. í
Garðabæ eru aðeins um 20 þúsund
bílar á sólarhring á Hafnarfjarðar-
vegi. Þrátt fyrir það lögðu bæjar-
yfirvöld í Garðabæ mikla áherslu á
iagningu brautarinnar. Umferð á
Reykjanesbraut sunnan Vífilsstaða-
vegar er vel innan við 10 þúsund
bílar á sólarhring, en á Fossvogs-
braut er gert ráð fyrir 35-40 þús-
und bílum á sólarhring árið 2004.
Lokaorð
Af ofangreindu má vera ljóst að
Fossvogsbraut er ómissandi hlekk-
ur í stofnbrautakerfi höfuðborgar-
svæðisins. Ef áhrif brautarinnar á
umhverfi í Fossvogsdal eru
áhyggjuefni, þá liggur beinast við
að yfirbyggja hana, a.m.k. að hluta.
Það hlýtur að vera unnt að finna
málamiðlun milli kostnaðar- og
umhverfissjónarmiða, sem allir geta
sætt sig við. Hver sem niðurstaða
málsins verður, verður að leggja á
það höfuðáherslu, að möguleikinn
á byggingu Fossvogsbrautar verði
aldrei útilokaður. Það má leiða að
því sterkar líkur, að í framtíðinni
verði þýðing Fossvogsbrautar það
mikil, að það borgi sig jafnvel að
yfirbyggja hana að öllu leyti.
Höfiindur eryGrverkfræðingur
umferðardeildar borgarverkfræð■
ings.
eftirÁrna
Hallgrímsson
Endur fýrir löngu — á mennta-
skólaárunum! — kynntist ég stúlku
og plötuspilara sem léku vart aðra
tónlist en í flutningi þeldökkra
afrískra „innflytjenda" til Ameríku.
Mér, rokkaranum, varð um og ó
að ung kona komin af víkingum
gerði sálarheill sinni þann óskunda
að djöflast daginn út og daginn inn
í þessum vægðarlausa andskotans
takti, þungum sem niður aldanna.
Pungsveittur í sálarkreppunni
miklu reyndi greinarhöf., sveim-
huginn og skólaskáldið, að fá
meyna ofan af þessari brjálsemi —
en róðurinn reyndist þungur, þyngri
en taktur tónanna, sem og ætlaði
bersýnilega að æra óstöðugan.
„Tónlistarlega séð“ (með mikilli
virðingu fyrir „poppskríbentum"
séð) varð að brúa þessa gjá sem
myndast hafði milli rokkarans, er
hafði tilvitnanir úr textum Bowies
og Morrisons á hraðbergi, og þess-
arar [ég var kominn á fremsta
hlunn með að skrifa frauku] yndis-
legu stúlku með einhveijum ráðum.
Ég barðist um á hæl og hnakka —
braut eina eða tvær plötur eftir
skólaball í Sigtúni, eða var það í
Klúbbnum — og róðurinn þyngdist,
niðurinn varð þyngri, takturinn,
takturinn. Hvað var að verða um
mig? Það fór um pilt. Mig iangaði
ekki að fara einn saman.
En.. .
... fram úr rekkanum dró hún
albúm með svo hallærislegri mynd
að ég þurfti ekki frekar vitnanna
við — þetta herfilega albúm (hulst-
urslega séð) innihéldi vissulega enn
einn hroðann!
„The Harder They Come“ var og
er enginn hroði í mínum eyrum!
Síðan kom Hvalstöðin — og Matti
Skjaldar. Við niðurskurð á þessum
tignarlegu (þær voru slyttislegar á
planinu, ég verð að segja það) og
greindu skepnum (aldrei yrtu þær
á okkur, mig rekur a.m.k. ekki
minni til þess) kom Matti „Flækju-
fótur“, enginn indíáni, bara strákur
úr Breiðholtinu, og „weird“ var
hann og „fílaði“ „rytmann", tak
frekar en takt þeirra halanegra frá
Jamaíku hverja greinarhöf. hafði
barist við inní sér.
„The Harder They Come“ syngja
þeir í samnefndri mynd sem Sjón-
varpið mun sýna föstudaginn 19.
maí nk. kl. 22.30 og menntaskóla-
ástin mín og Matti munu áreiðan-
lega stunda áhorf tónrænum aug-
um. Ég? Júú, ætli þa’ki.
„„The Harder They
Come“ var og er enginn
hroði í mínum eyrum!“
P.s. Skyldi kvikmyndin vera jafn
hallærisleg kvikmyndalega séð og
myndip á albúminu myndlistarlega
séð?
Höfundur er einn aflestrarhestum
Morgunblaðsins.
V eraldar
til Benidorm
Raðgreiðslur Veraldar eru sannanlega ódýrasti greiðslumátinn á
sumarleyfisferðinni fyrir þig og getur sparað þér stórfé í ferðakostnað.
Þú greiðir ferðina þina einum til fjórum mánuðum fyrir brottför
og færð vaxtalausar greiðslur í allt að átta mánuði.
Sérstakir samningar okkar tryggja þér þvi ódýrari ferð.
Engir vextir og engin aukagjöld.
Dæmi um sparnað
Verð tveggja vikna ferðar til Benidorm 18. júlí. Gist á
Europa Center, fjögurra manna fjölskylda, miðað við 6 afborganir.
Verð ferðar: 169.991,-
Raðgreiðslur Veraldar:
Vextir: 0,- kr.
Lántökugjald: 0,- kr.
Stimpilgjald: 0,- kr.
Samtals: 0,- kr.
Heildarverð: 169.991,-
Venjulegar raðgreiðslur:
Vextir:
Lántökugjald:
Stimpilgjald:
Samtals:
13.685,-
2.040,-
2.550,-
18.275,-
Heildarverð: 188.266,-
mSÍ
3°- oia/
ujúní
2oJUni
fO.juní
xjúIí
?? asúst
áSúst
c°sta dte"*5''*
-au sr
i að
Sol
uPpselt
, uPpselt
ÍS^/aus
y'^ilaus
7ss*ilaus
uPpselt
laus sæti
Smtilaus
ra r k°r S Sa^ti
r br°ttfarIr
Sí
Íi'mai
3°- Itiaí
ujúní
20]Uní
f°juní
1 ■ júlí
1.
maí i989
Benid0rm
8
8.
15.
agúst
Úgúst
úgúst
uPPselt
uPPselt
uPPselt
, j Sætí lau$
r Sasti laus
y^ilaus
7sastikus
uPpselt
FERDAMIflSIÖfllN
»*ar f sœt"suS
------st “rottí,,,,
Austurstræti 17, sími 622200
FLUGLEIDIR
HJÁ VERÖLD FÆRÐU MEIRA FYRIR PEMIMGANA