Morgunblaðið - 17.05.1989, Side 28
28
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. MAÍ 1989
Sr. Þórir kveður Dómkirkjusöfimðinn
Sr. Þórir Stephensen kvaddi Dómkirkjusöfnuð-
inn í hátíðarmessu á hvítasunnudag fyrir troð-
fullri kirkju. Hann snýr nú til starfa staðar-
haldara í Viðey eftir 35 ára prestsskap, þar af
hartnær 18 ára starf við Dómkirkjuna. Hér kveð-
ur sr. Þórir sóknarbömin við kirkjudyr að messu
lokinni ásamt konu sinni, frú Dagbjörtu Gunn-
laugsdóttur Stephensen, sem stendur við hlið
hans. Sóknarnefhd Dómkirkjunnar hélt þeim
hjónum kveðjusamsæti í Þingholti og söng Dóm-
kórinn fyrir utan veitingahúsið áður en máls-
verður hófst.
*
Forsetinn til Ital-
íu og Bandaríkjanna
Vöruskiptajöfiiuður hag-
stæður um 623 m.kr. í janúar
VÖRUSKIPTAJÖFNUÐUR í janúar síðastliðnum var hagstæður um
623 milljónir en á sama tima í fyrra var hann óhagstæður um 575
miHjónir. Samkvæmt yfirliti Hagstofú Islands vom fluttar út vörar
fyrir 4.372 milljónir en inn fyrir 3.748 milljónir á fob-verði reiknað
á fiistu gengi. Nokkrar tafir hafa orðið á gerð verslunarskýrslna
frá áramótum en stefiit er að því að vinna þær upp innan skamms.
til annars. Séu þeir frátaldir reynd-
ist annar innflutningur, sem er um
87% af heildinni, hafa orðið um 5%
meiri en í janúar í fyrra, reiknað á
föstu gengi.
FORSETI íslands, Vigdís Finn-
bogadóttir, heldur áleiðis til ít-
alíu í dag 17. maí. Þar mun for-
seti halda erindi á alþjóðaþingi
um framtíðarsýn við háskólann
í Bologna, en þing þetta er loka-
þáttur í hátíðahöldunum í tilefhi
af 900 ára afinæli háskólans.
Frá Ítalíu heldur forseti til
Bandaríkjanna. Þar veitir forseti
viðtöku heiðursdoktorsnafnbót og
flytur aðalræðu við skólaslit og
útskrift kandidata við hinn virta
háskóla Luther College í Decorah
í Iowa, en þar hafa margir íslend-
ingar stundað nám og eru tengsl
skólans við ísland rakin allt aftur
til ársins 1874. íslenskir kennarar
hafa undanfarin 25 ár sótt endur-
menntunarnámskeið Luther Col-
lege ásamt starfsbræðrum sínum
frá hinum Norðurlöndunum.
Að lokinni heimsókninni í Lut-
her College fer forseti til Harris-
burg í Pennsylvaníu og heimsækir
þar Iceland Seafood Corporation,
sem er dótturfyrirtæki Sambands
íslenskra samvinnufélaga. Þar
verður verksmiðja fyrirtækisins
skoðuð og framleiðsluvörur kynnt-
ar. Harrisburg er höfuðborg fylk-
isins og mun forseti fara í kurteisi-
heimsókn til fylkisstjórans þar.
A þriðjudagsmorgni 23. maí
mun forseti heimsækja George
Bush, Bandaríkjaforseta, í Hvíta
húsinu í Washington D.C.
Þá verður farið til Lexington í
Kentucky, en þar hefur Long John
Silver veitingahúsakeðjan aðal-
stöðvar sínar. Fyrirtækið er einn
af stærstu kaupendum á íslensk-
um sjávarafurðum í Bandaríkjun-
um og hefur lengi selt íslenskan
fisk á veitingahúsum sínum, sem
nú eru 1.490 talsins. Forseti heim-
sækir eitt af veitingahúsunum í
Lexington og hittir forsvarsmenn
fyrirtækisins að máli.
Síðasti viðkomustaður í ferðinni
er Louisville í Kentucky. í stuttri
heimsókn til borgarstjóra Louis-
ville tilkynnir forseti opinberlega
um stofnun vísindasjóðs með
bandarísku gjafafé og samstarf
Háskóla Islands og University of
Louisville.
Krýsuvíkur-
samtökin fá
200 þúsund
kr. að gjöf
KONUR í Lionessuklúbbi
Keflavíkur færðu Krýsuvíkur-
samtökunum nýlega að gjöf 200
þúsund krónur til styrktar upp-
byggingu vist- og meðferðar-
heimilis i Krýsuvík.
í frétt frá Krýsuvíkursamtökun-
um segir að mikil áhersla sé nú
lögð á að opna fyrsta áfanga
skólahúss í Krýsuvík fyrir þá sem
þurfa á langtímadvöl og endurupp-
eldi að halda vegna langvarandi
fíkniefnaneyslu. „Mikil vandkvæði
eru nú að fá vistrými fyrir langt-
gengna fíkniefnaneytendur á þeim
stofnunum sem nú eru fyrir hendi,
en þar hafa myndast biðlistar,"
segir í.fréttinni.
I tilkynningu frá Hagstofunni
kemur fram að verðmæti vöruút-
flutnings var 65% meira í janúar í
ár samanborið við sama tíma í fyrra
á föstu gengi. Verðmæti sjávaraf-
urða var 2.879 m.kr. eða 66% af
verðmæti heildarútflutningsins og
75% meiri að verðmæti en í janúar
1988. Útflutningur á ali var nær
22% meiri að verðmæti en í janúar
1988 og útflutningur kísiljáms var
nær flórfalt meiri en á sama tíma
í fyrra. Útflutningsverðmæti ann-
arrar vöru var 60% meiri í janúar
á þessu ári en á sama tíma í fyrra,
reiknað á föstu gengi. Ekki er þó
hægt að draga miklar ályktanir af
þessum samanburði þar sem vera-
legu máli getur skipt hvora megin
við mánaðamót einstakar afskipan-
ir lenda í skýrslum Hagstofunnar.
Verðmæti vörainnflutningsins í
janúarmánuði var 15% meira en á
sama tíma árið áður, en þá var
innflutningur óvenjulítill vegna
tafa í tollafgreiðslu. Innflutningur
til stóriðju varð um tvöfalt meiri
en í fyrra og jafnframt var olíuinn-
flutningur óvenjumikill. í tilkynn-
ingunni segir að þessir liðir svo og
innflutningur skipa og flugvéla séu
jafnan breytilegir frá einu tímabili
Sumarbúðir kirkjunnar
Heiðarskóla
Við viljum minna á sumarbúðir Æskulýðssambands
kirkjunnar í Reykjavíkurprófastsdæmi (ÆSKR), í
Heiðarskóla, Borgarfirði. Sérstök athygli er vakin á
1. flokki fyrir börn 6-8 ára.
1. fl. 5. júní - 16. júní (6-8 ára)
2. fl. 19. júní - 30. júní (9-12 ára)
3. fl. 3. júlí — 14. júlí (9-12 ára)
4. fl. 17. júlí - 28. júlí (9-12 ára)
Hver flokkur er 12 dagar. í hverjum hópi eru 40 böm af
báðum kynjum. Verð með ferðum er kr. 16.200.
Innritun fer fram í Bústaðakirkju mán.-fim. kl. 15-17.
Sími 37810.
Aldarafmæli Gunnars Gunnarssonar ríthöfiindar:
Hátíðardagskrá í Reykjavík
og á níu stöðum á Austurlandi
Lista- og fræðimannaíbúð opnuð að Skriðuklaustri
HUNDRAÐ ár em liðin frá
fæðingu Gunnars Gunnarsson-
ar, skálds, næstkomandi
fimmtudag, 18. maí. Af því til-
efiii efhir menntamálaráðuney-
tið til hátíðardagskrár í Þjóð-
leikhúsinu. Einnig mun
menntamálaráðuneytið í sam-
vinnu við sveitarsfjómir í Aust-
urlandskjördæmi gangast fyrir
menningarhátíð á Austurlandi
í sumar.
Hátíðardagskráin hefst í Þjóð-
leikhúsinu kl. 17.30 og stendur í
tæpa tvo tíma. Ávörp flytja Svav-
ar Gestsson, menntamálaráð-
herra, og Steinunn Sigurðardóttir,
varafonnaður Rithöfundasam-
bands íslands. Sveinn Skorri Hö-
skuldsson, prófessor, flytur erindi
um skáldskap Gunnars. Þorsteinn
Gunnarsson, Jakob Þór Einars-
son, Sigurður Karlsson og Gísli
Rúnar Jónsson flytja leiklestur úr
verki skáldsins „Svartfugli" í leik-
stjórn Bríetar Héðinsdóttur. Am-
ar Jónsson les kafla úr „Fjallkirkj-
unni“ og flytur ljóð eftir Guðmund
Böðvarsson um skáldið. Gísli Hall-
dórsson flytur ljóð eftir Hannes
Pétursson, sem ort var um skáld-
ið og Gunnar Kvaran leikur ein-
leik á selló. Kynnir hátíðardag-
skrárinnar verður Kristbjörg
Kjeld. Dagskráin er öllum opin
og aðgangur er ókeypis.
Fjölmörg dagskráratriði helguð
minningu skáldsins verða á M-
hátíð, sem stendur samfleytt í
þijá mánuði á níu stöðum á Aust-
urlandi. Menningarhátíðin hefst
nk. föstudag, 19. maí og stendur
til 20. ágúst, en þá verður sérstök
dagskrá að Skriðuklaustri þar
sem meðal annars verður opnuð
lista- og fræðimannaíbúð. Þá
verður jafnframt tilkynnt hvaða
listamaður fær afnot af íbúðinni
fyrstur. Afmælisnefnd, sem
menntamálaráðuneytið skipaði,
mun sjá um þessa hátíðardagskrá
og sú nefnd hefur ennfremur séð
um endurbætur á húsinu. í hluta
þess hefur verið rekið tilraunabú
á vegum Rannsóknastofnunar
landbúnaðarins.
Gefinn verður út bæklingur um
Skriðuklaustur, umhverfi þess og
skáldið sjálft. Almenna bókafélag-
ið gefur bæklinginn út, en í hann
skrifa Helgi Hallgrímsson og
Sveinn Skorri Höskuldsson. Þá
mun Almenna bókafélagið, sem
er útgefandi verka Gunnars
Gunnarssonar, ljúka nýrri útgáfu
heildarritverka skáldsins á þess-
um tímamótum með bókunum
„Strönd lífsins", „Fóstbræður",
„Jörð“, „Hvítikristur" og „Grá-
mann“. AB stendur einnig fyrir
stuttri athöfn í Viðey á afmælis-
deginum. Vaka-Helgafell mun
gefa út bókina „Sonnettusveig"
með myndskreytingum eftir
Gunnar Gunnarsson, son skálds-
ins, af tilefninu. Tekist hefur að
safna saman fyrstu útgáfum af
verkum Gunnars og eiga hjónin
Þórður Helgason bókmennta-
fræðingur og Jóhanna Hauks-
dóttir flugfreyja heiðurinn af því.
Þau dvöldu um skeið í Kaup-
mannahöfn og leituðu verkin uppi
á fornbóksölum þar í borg. Ein-
tökunum verður komið fyrir á
Skriðuklaustri.
Rithöfundurinn, Gunnar Gunn-
arsson, fæddist á Valþjófsstað í
Fljótsdal. Átján ára gamall sigldi
hann til Danmerkur og fluttist
ekki aftur heim fyrr en árið 1939
eftir liðlega þriggja áratuga bú-
setu ytra. Eftir heimkomuna
byggði Gunnar hús að Skriðuk-
laustri sem hann og kona hans,
Franziska Gunnarsson, afhentu
Ríkisstjórn íslands að gjöf árið
1948. Á ferli sínum samdi Gunnar
yfir tuttugu skáldsögur, þijár
ljóðabækur, þijú leikrit, urmul
smásagna, heimspekirit og fjölda
ritgerða og pistla um hin ýmsu
málefni. Skáldið lést árið 1974.