Morgunblaðið - 17.05.1989, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. MAÍ 1989
39
Framkvæmdir íslenzkra aðalverktaka í Helguvík hafa verið geysilega miklar undanfarin ár.
sama hátt og við gerum, þótt það
geti auðvitað lærzt eins og hvað
annað. En enginn verður óbarinn
biskup. Það er einfaldlega vegna
þess að aðrir verktakar hérlendis
eru vanir því að vinna eftir allt
öðrum vinnureglum en Bandaríkja-
menn nota. Það er hins vegar ekki
rétt að ég vilji endilega viðhalda
því sem þú nefnir einokun okkar á
framkvæmdum fyrir varnarliðið.
Ef hægt væri að tryggja hér skipu-
lag sem tryggði Bandarílq'amönn-
um það sem þeir viija, því það verð-
um við að gera, þá kæmi vissulega
til greina að athuga slíkan valkost.
En hann sé ég ekki í hendi mér nú.
Það er alveg ljóst, að annaðhvort
verðum við að tryggja þeim þá þjón-
ustu sem þeir fara fram á, eða að
heimila það að þeir komi með sinn
eiginn verktaka hingað, eins og
þeir gerðu í upphafi, og þá yrði
ekki um mikla gjaldeyrisöflun að
ræða fyrir íslenzkt efnahagslíf,
vegna framkvæmda fyrir varnarlið-
ið. Hér mætti gjaman upplýsa, að
á síðastliðnu ári skiluðum við bönk-
unum 54 milljónum dollara nettó,
og gætu spakir menn íhugað hve
marga skuttogara þyrfti til að ná
sama árangri nettó.
Raunar finnst mér hægt að líkja
starfsemi okkar, sem þú nefnir ein-
okun, við það að flytja út afurðir
íslands undir einu merki, í stað
þess að vera að bjóða hver annan
niður og tapa fjármunum á þann
hátt, en það er einmitt það sem var
gert, áður en samtök fiskseljenda
vom stofnuð. Fyrirtæki okkar aflar
gjaldeyris og flytur út íslenzka
verkmenningu og þekkingu. Okkar
fyrirtæki er því alveg jafn virðulegt
og hvert annað, þótt ýmsir reyni
iðulega að setja neikvæðan her-
mangsstimpil á okkur. Starfsfólk
Aðalverktaka og fjölskyldur þeirra
eru orðin leið á þessum eilífu niðr-
andi orðum, sem sumir nota þegar
rætt er um fyrirtækið og starfsemi
þess. Það má líka gjarnan koma
fram að Bandaríkjamenn eru mjög
ánægðir með þá þjónustu sem við
veitum þeim og hafa greint frá því
í ræðu og riti að hvergi í heiminum
fái þeir betur unnin verk, né fljót-
virkari þjónustu. Þeir hafa jafn-
framt sagt að þeim þætti þjónusta
okkar í sjálfu sér ekki óhóflega
dýr, heldur að það væri dýrt að
framkvæma á Islandi, sem liggur
jú í augum uppi að er rétt.“
Þrír milljarðar
í bankakerfínu
— Þið eigið um þrjá milljarða í
bankakerfínu í formi innlána og
verðbréfa. Er það að þínu mati rétt-
nefni að nefna ykkur „Spilverk sjóð-
anna“?
Nú hlær Thor dátt, en segir svo:
„Ég er ekki einn af þeim sem eru
sífellt að telja í buddunni — mér
leiðast heldur peningar, þó að þeir
séu nauðsynlegir til síns brúks.
Þegar við höfum valið okkur það
að halda Qármununum innan fé-
lagsins, í stað þess að greiða þá
út til eigendanna, þá liggur náttúr-
lega í augum uppi að félaginu safn-
ast fé. Ef við hefðum valið hinn
kostinn, að greiða miklu meiri fjár-
muni til eigendanna, þá yxi engum
í augum hvað við værum vel stæð-
ir. Það hafa ýmsir áhrifamenn inn-
an íslenzkra aðalverktaka sagt við
mig að ef mín eigin sérvizka hefði
ekki ráðið, þá væri þetta vandamál
ekki fyrir hendi. Ég segi aftur á
móti, að ef mín sérvizka hefði ekki
ráðið, þá værum við mjög sennilega
ekki til í dag. Bruðl með útgreiðslur
til eigenda hefði ekki verið þolað.
Aðalmálið er að þessa fjármuni
höfum við ekki greitt út og því
ekki brúkað þá sjálfír til eigin nota,
heldur látið þá liggja í bönkunum,
til þess að aðrir gætu nýtt þá, hvort
sem það hefur svo orðið til þess að
þeir högnuðust eða fóru á hausinn.
Þessi nafngift, „Spilverk sjóðanna",
á því vart við um okkur, því hana
tengi ég fremur spjátrungunum
sem vilja með sýndarmennsku ber-
ast mikið á. Við erum ekki þannig
að við séum að dansa í kringum
gullkáifinn. Aðalatriðið hjá okkur
er að taka við verkefnum, vinna
þau vel og samvizkusamlega og
afhenda þau viðsemjendum okkar
nákvæmlega á umsömdum degi eða
fyrr. Auðvitað viljum við að meira
komi í kassann, en við þurfum að
láta úr honum, en að öðru leyti
hugsum við ekki um hann.“
Aðalverktakar 2,7
milljarða virði
— Segjum sem svo að íslenzkir
aðalverktakar væru til sölu eins og
þeir leggja sig. Hvert væri mats-
verð á fyrirtækinu með öllum eign-
um, fasteignum, sem vinnuvélum,
tækjum og bankainnstæðum?
„Innra virði fyrirtækisins var um
síðastliðin áramót 2.716 milljónir
króna. Ef félagið væri leyst upp,
allar skuldir greiddar, þá væri þetta
það sem eftir stæði.“
— Þessi húseign ykkar hér að
Höfðabakka, betur þekkt sem
„Watergate", þykir enn eitt táknið
í augum almennings um vald ykkar
og auð. Hvað gerði það að verkum
að þið reistuð ykkur þetta minnis-
merki?
„Menn eru nú alveg hættir að
kalla þetta „Watergate", enda
samlíkingin óljós. Við höfum tvisvar
sinnum lent í kröppum dansi og það
gerðist í annað skiptið þegar mikil
lægð var í varnarliðsframkvæmd-
um. Við gerðum þá tilboð í að
byggja Reykjanesbrautina á kostn-
aðarverði til þess að fá verkefni í
öllu verkefnaleysinu og við fengum
verkið. Raunar öðluðumst við svo
mikla sérfræðiþekkingu í gegnum
þetta verkefni okkar að við vorum
jafnvel að hugleiða að snúa okkur
alfarið að vegaframkvæmdum á
íslandi og hætta vamarliðsfram-
kvæmdum. Til þess að svo gæti
orðið, þurftum við auðvitað að hafa
einhveija aðstöðu, þar sem félagið
átti enga slíka, heldur var með alla
starfsemi sína í húsakynnum
Bandarílq'amanna á Keflavíkurflug-
velli. Þetta varð nú kveikjan að
byggingarframkvæmdum okkar
hér á Höfðabakka. Ifyrst reistum
við hér vélageymslur og verkstæðis-
hús, en áform okkar um vegafram-
kvæmdir runnu á hinn bóginn út í
sandinn eftir að aðrir verktakar
mótmæltu áformum okkar á þeim
forsendum að þetta væri í rauninni
i þeirra verkahring. Við urðum við
þessum tilmælum þeirra og sömd-
um upp á það að við létum þá af-
skiptalausa og þeir okkur. Nú eru
þessir sömu aðilar, sem sömdu á
þennan hátt við okkur á sínum tíma,
að reyna að komast í stólinn okk-
ar. Hver veit nema við gætum þá
aðstoðað þá á innanlandsmarkaðn-
um.
Þetta var nú upphafíð að þessari
fögru byggingu okkar, því það sem
þú nefnir „Watergate" byggðum við
svo eftir að við höfðum reist véla-
og verkstæðishúsnæðið, því við
sáum fram á það að við urðum að
eignast okkar eigin aðstöðu, því við
vorum orðnir stórt fyrirtæki með
mikil umsvif og geysilega þekkingu
innanborðs, sem nauðsynlegt væri
að halda saman ef verkefni á vegum
vamarliðsins þryti, einhverra hluta
vegna."
Pólitískur kommissar?
— Nú hefur það óneitanlega vak-
ið athygli og hneykslan margra _að
fráfarandi stjómarformaður ís-
lenzkra aðalverktaka, Vilhjálmur
Árnason, hefur á liðnu ári fengið
samtals 8,7 milljónir í greiðslur,
bæði launagreiðslur, eftirlauna-
greiðslur og fyrir veitta lögfræði-
þjónustu. Hvað með kjör annarra
toppa fyrirtækisins og hvað með
kjör almennra starfsmanna?
„Hvað varðar launakjör almennt
í félaginu, þá höfum við ávallt kapp-
kostað að fylgja því sem almennt
gerðist á markaðnum. Við höfum
ekki viljað, þó að við hefðum ráð á
því, borga starfsmönnum okkar
meira en gerist á hinum almenna
markaði í sambærilegum störfum,
því það yrði fljótt illa séð og við
sakaðir um að sprengja upp mark-
aðinn fyrir framleiðslufyrirtækjum
þjóðarinnar. Hins vegar held ég að
við séum góðir við okkar starfsfólk
og það er vegna þess að það er
gott við okkur. Megnið af starfslið-
inu lítur á starf sitt hjá félaginu
sem lífsstarf og nú starfa hjá okkur
yfír 100 manns sem hafa verið hér
lengur en 20 ár. Sumir eru komnir
yfír áttrætt.
Hvað varðar fyrri hluta spuming-
ar þinnar, þá hefur stjórnarformað-
ur gert ítarlega grein fyrir sínum
málum, og hef ég.engu við það að
bæta, enda er það ekki í mínum
verkahring að fjalla um þau. Lau,n
til annarra stjómarmanna vom 'á
árinu 450 þúsund krónur."
— Nú standa fyrir dymm breyt-
ingar á stjórnun fyrirtækisins.
Hvernig leggst það í þig að ríkið
eignist tvo fulltrúa í stjóminni, í
stað eins hingað til? Og er það nauð-
sjmlegt að þínu mati að auka við
yfírbyggingu félagsins og fá hér inn
þriðja forstjórann, yfírforstjóra eða
pólitískan kommissar tilnefndan af
utanríkisráðherra?
„Það er eðlilegt að ríkið fái tvo
fulltrúa í stjórn félagsins, ef eignar-
aðild þess breytist úr 25% í 40%.
Hvað varðar þriðja forstjórann, sem
rætt hefur verið um af utanríkisráð-
herra, þá held ég að það sé ekki
tímabært fyrir mig að tjá mig að
svo stöddu um þann möguleika,
enda þótt ég líti almennt svo á, að
þótt vel geti á stundum tekist til
um mannval, þá séu pólitískar skip-
anir í ábyrgðarstöður, hvort sem er
í bankakerfinu, í viðamiklum sjóð-
um, eða í stórframkvæmdafyrir-
tækjum hvorki heppilegar né líkleg-
ar til að auka mönnum yfirsýn við
ákvarðanatöku í áríðandi málum,
nema síður sé.
Ég minnist sérstaklega orða Pét-
urs heitins Benediktssonar þegar
hann hafði nýverið tekið við stöðu
bankastjóra Landsbankans. Hann
sagði að það væru tvær stöður í
þjóðfélaginu, sem ekki krefðust
neinna „kvalifikasjóna“; banka-
stjórastaða og ráðherraembætti.
Það mætti kannski bæta við einu
stöðuheiti, eða svo!“
Viðtal: Agnes Bragadóttir
Fiskverö á uppboðsmörkuðum 16. maí.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 57,00 39,00 51,57 46,613 2.403.759
Þorskur(ósL) 30,00 30,00 30,00 0,788 23.625
Þorskur(smár) 26,00 26,00 26,00 0,355 9.230
Ýsa 80,00 35,00 58,01 6,552 325.076
Ýsa(ósl.) 56,00 25,00 32,58 2,024 65.917
Karfi 26,00 17,00 25,69 1,083 27.808
Ufsi 28,00 28,00 28,00 1,255 35.132
Steinbítur 20,00 19,00 19,95 0,536 10.694
Langa 25,00 24,00 24,11 1,728 41.660
Lúða 315,00 105,00 191,22 1,019 194.801
Grálúða 40,00 37,00 37,90 180,792 6.852.1 10
Koli 49,00 22,00 23,25 2,585 60.100
Keila(ósL) 12,00 12,00 12,00 1,616 19.395
Samtals 40,75 247,467 10.081.331
Selt var úr Víði HF, Stakkavík ÁR og bátum. í dag verður selt
óákveðið magn úr bátum.
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur 52,00 30,00 43,70 8,773 383.375
Þorskur(smár) 35,00 25,00 34,36 37,189 1.277.844
Ýsa 54,00 31,00 45,19 6,840 309.109
Ýsa(ósL) 60,00 32,00 58,94 0,834 49.153
Karfi 15,00 15,00 15,00 0,277 4.155
Ufsi 23,00 8,00 21,92 37,796 828.588
Steinbítur 24,00 6,00 17,60 0,402 7.074
Langa 15,00 15,00 15,00 0,088 1.320
Blálanga 15,00 15,00 15,00 0,282 4.230
Lúða 230,00 210,00 215,31 0,049 10.550
Grálúða 38,50 37,00 38,03 27,108 1.031.008
Keila 7,00 7,00 7,00 0,067 469
Rauðmagi 69,00 69,00 69,00 0,063 4.347
Samtals 32,67 119,827 3.914.760
Selt var m.a. úr Jóni Vídalín ÁR og Freyju RE. I dag verða m.a.
seld 6 tonn af ýsu úr Freyju RE og 3 tonn af löngu úr Krossvík AK.
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 52,50 20,00 41,51 25,967 1.078.019
Ýsa 66,00 25,00 53,12 63,734 3.385.614
Karfi 39,50 24,50 27,63 18,738 517.770
Ufsi 22,50 10,00 19,69 2,946 57.993
Steinbítur 10,00 5,00 6,80 0,828 5.630
Langa 27,00 18,00 19,14 0,645 12.344
Blálanga 20,00 20,00 20,00 1,887 37.740
Lúða 325,00 145,00 237,19 0,462 109.696
Grálúða 38,00 35,50 36,27 30,195 1.095.162
Skarkoli 25,00 11,00 22,08 1,572 34.707
Keila 12,00 10,00 11,99 3,315 39.750
Skata 80,00 76,00 78,64 0,736 57.880
Skötuselur 295,00 82,00 101,50 0,100 10.150
Samtals 42,62 151,214 6.445.427
Selt var aðallega úr Happasæli KE og Kára GK. í dag verður
meöal annars seldur þorskur, ýsa og keila úr Eldeyjar-Boða GK.
t Morgunblaðið/Úlfar Ágústsson
Nokkuð víst má teUast að IsaUarðarkirkju verði breytt eða hún fíar
lægð til að byggja megi stærra hús á lóðinni sem tengjast mun bygg
ingunum við Sólgötu til vinstri á myndinni.
Isafjörður:
Undirbúningi að bygg-
ingn nýrrar kirkju hafiiað
_ Ísafírði.
ÖLLUM undirbúningi að bygg-
ingu nýrrar kirkju var hafiiað á
aðalsafnaðarfundi sem haldinn var
í kapellu ísafjarðarsafnaðar í
Menntaskólanum á ísafirði.
Nokkuð á annað hundrað manns
var á aðalsafnaðarfundinum þar sem
meðal annars var samþykkt að láta
gera nýja byggingarforsögn fyrir
kirkju í stað þeirrar sem gerð var í
fyrra. Áhugi fólks virðist nú helst
beinast að því að stækka gömlu kirkj-
una eða reisa nýja á sama stað og þá
í tengslum við húsalóðir við Sólgötu
en þar er nú safnaðarheimili sóknar-
innar. Mörg sjónarmið þarf þó að
samræma því komið hefur fram að
félag hefur verið stofnað á ísafirði
til að varðveita gömlu kirkjuna í
upphaflegri mynd, brottfluttir ísfirð-
ingar hafa lofað fjárframlögum og
kirkjugripum til gömlu kirkjunnar.
Þá kallar stækkun á aðgerðir við
grafir umhverfis kirlquna.
Mikil bjartsýni ríkti á fundinum
meðal þess fólks sém hafnaði aðgerð-
um fyrrverandi sóknarnefndar um'
að niðurstaða fáist f málefni safnað-
arins á næstu mánuðum.
Á fundinum var jafnframt sam-
þykkt að krefja bæjarsjóð um útlagð-
an kostnað við undirbúningsfram-
kvæmdir við kirkjubyggingu framan
við nýja sjúkrahúsið þar sem bæjar-
sjóður stóð ekki við áður gefín loforð
um úthlutun lóðarinnar. Sá kostnað-
ur er um 4 milljónir.
- Úlfar