Morgunblaðið - 17.05.1989, Side 52
52
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. MAÍ 1989
Stjörnu-
GARPUR
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
Líkamsrcekt
Það er merkileg staðreynd
að þau stjömumerki sem eru
sögð léttust og hressust í
skapi, Hrútur, Tvíburi, (Vog)
og Bogmaður, eru jafnframt
hvað hreyfanlegust merkj-
anna. Það virðist því vera svo
að hreyfing hafi áhrif á geðs-
höfn okkar. Ég hef sjálfur
tekið eftir því og rætt um það
við marga að líkamsrækt og
önnur hreyfing hefur hress-
andi og geðbætandi áhrif.
Hceg og ör brennsla
Einn af aukakvillum megr-
unar er geðvonska sem
kannski má rekja til þess að
megrun hægir á allri líkams-
starfsemi og brennslu, sem
er í raun andstaða þess sem
gerist þegar menn hreyfa sig.
Geðbcetandi hreyfing
Þegar þyngsli sækja á huga
okkar og almenn lægð ríkir
í sálarlífinu virka hlaup, rösk
ganga úti við eða góð líkams-
æfíng eins og vorhreingem-
ing. Geðvonskuvessamir
hverfa og hugsunin verður
skýrari og bjartari. Ég hef
td. tekið eftir því að ef ég á
í deilum við ákveðna mann-
eskju og ber til hennar þung-
an huga, að eftir æfingu verð
ég léttari í skapi og jafnframt
því fyrirgef ég viðkomandi
og verð um leið undrandi á
sjálfum mér fyrir að hafa
hugsað svo ljótar hugsanir.
Hcegir á öldrun
Góð æfing kemur líkams-
starfseminni í gang. Blóðrás-
.. in verður örari, hjartsláttur
eykst og óhreinindi og úr-
gangur hreinsast úr líkaman-
um í gegnum svita. Hjarta
og æðakerfi styrkist. Fyrir
utan þá vellíðan sem slíku
fylgir hægir regluleg og dag-
leg hreyfing á öldrun líkam-
ans. Það þýðir að við getum
seinkað líkamlegri og and-
legri hrömun með því að
stunda reglulega líkamsrækt.
Líkami ogsál
Fyrir mig er líkamsrækt þó
aðallega spuming um það að
auka mér kraft þann tíma
sem ég lifí. Að mínu mati er
líkamsrækt ein af þrem for-
sendum heilbrigðs og já-
- kvæðs lífs. Önnur atriði eru
annars vegar gott mataræði
og hins vegar vinna með sái-
arlífið. Meðal athyglisverðra
leiða í matarmálum er Makró-
bíotik, sem m.a. gengur út á
það að finna jafnvægi milli
fæðutegunda og borða mat
sem er rétt samansettur.
Stjömuspeki er ágæt leið sem
stuðlar að sálrænum þroska.
Hún hefur kannski fyrst og
fremst með það að gera að
skilgreina orku okkar og
benda út frá því á jákvæðar
og hentugar leiðir fyrir orku
hvers og eins. Mennimir eru
misjafnir og það sem hentar
einum hentar ekki öðrum.
Musteri sálarinnar
Fyrir nokkrum árum eða ára-
tugum var mikill aðskilnaður
á milli íþrótta og andlegra
mála. fþróttamenn lögðu
rækt við líkamlega uppbygg-
ingu og litu niður á „háfleyga
liðið í andlega ruglinu" sem
aftur gaf lítið út á „vöðva-
búntin". Sem betur fer hafa
þessar stefnur nálgast hvor
aðra á undanfömum árum.
íþróttamenn hafa séð að and-
legur sfyrkur og einbeiting
skila ekki síður árangri en
vel þjálfaðir vöðvar og hinir
andlegu eru famir að viður-
kenna í ríkari mæli en áður
að máltækið um hrausta sál
I heiibrigðum lfkama á við rök
að styðjast, eða að líkaminn
sé musteri sálarinnar og beri
því að rækta í virðingarskyni
við þann guðdómlega neista
^ sem býr innra í hveijum
manni.
,!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
::::::::::::::::::::::::::::
GRETTIR
B3 LIGGI RUýHIKJU
LVKT AF
FLESKl FRA
'PÖNNUNJNI .
AIA/H/MA •SKRUOANPI A£> BUA TIL
/HyNSTUR i' KARTÖFLUPÖNNUKÖK,-
uRnar. Meíp LITLU BARNASKÖN -
UM MÍNU/M'
D?M I7AV?5 7-22.
BRENDA STARR
cjÚMh.ÁJJXÚtiwfr-lvL
tbjL JOcAotrt JbuAs.
I GUE5STHIS ,
U)A5 A LEARNIN6]
EXPERIENCE, HUHj
616 BROTHER?
Uc
iVe learnep
fso MUCH LATELY
I CAN’T
5TANP IT..
BETTER THAN
6ETTIN6
WHACKEP UilTH
A ROLLEP UP
NEUI5PAPER..
Ég skal ekki sofna bíðandi eftir skólabílnum.
Ég skal ekki sitja og horfa á systur mína sofha
bíðandi eftir skólabílnum.
Þetta var reynsla sem maður lærði af, ekki satt, stóri
bróðir?
Ég hefí lært svo mikið að undanförnu, að ég þoli
það ekki...
Betra en að vera laminn með samanvöfðu dagblaði...
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Góður spilari gætir þess að
jafnaði vel að senda makker
nákvæm skilaboð í vöminni. En
stundum em aðstæður þannig
að það er skynsamlegra að
blekkja félaga:
Suður gefur; allir á hættu.
Norður
♦ 63
♦ DG874
♦ 1087
♦ KG3
Vestur
♦ 1°? „
¥A
♦ KDG9643
♦ 875
Austur
♦ Á4
♦ 109652
♦ 52
♦ Á1092
Suður
♦ KDG9852
♦ K3
♦ Á
♦ D64
Vestur Norður Austur Suður
— — — 1 spaði
2 tíglar Pass Pass 3 spaðar
Pass 4 spaðar Pass Pass
Pass
Útspil: hjartaás.
Vömin á þrjá ása og ætti að
geta nælt sér í fjórða slaginn
með stungu í hjarta. En suður
var enginn viðvaningur og lét
hjartakónginn falla undir ásinn
í fyrsta slag. Austur gat því
ekki vitað fyrir víst hvort útspil
makkers væri frá ásnum blönk-
um eða öðmm.
Vestur sá fyrir þennan vanda
félaga síns og til að gefa honum
ekkert undir fótinn í tíglinum,
skipti hann yfir í tígúldrottn-
ingu! Samkvæmt reglunni, neit-
ar hann tígulkóng, svo að austur
sá enga framtíð í áframhaldandi
tígulsókn og spilaði hjarta þegar
hann komst inn á trompásinn.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á stóra opna mótinu í Búda-
pest í vor kom þessi staða upp I
skák a-þýzka stórmeistarans Lot-
hars Vogts og óþekkts V-Þjóð-
veija, Cladouras, sem hafði svart
og átti leik.
25. —Bf2+I, 26. Kxf2 (Eftir 26.
Khl — Rg3+! er hvítur óveijandi
mát) 26. —Hf8+, 27. Kgl - Del
og hvítur gafst upp. Svartur tefldi
reyndar alla skákina mjög vel,
byijunin var mjög athyglisvert
afbrigði spánska leiksins: 1. e4 —
e5, 2. Rf3 - Rc6, 3. Bb5 - a6,
4. Ba4 - Rf6, 5. 0-0 - Be7, 6.
Hel - b5, 7. Bb3 - d6, 8. c3 -
0-0, 9. h3 - Ra5, 10. Bc2 - c5,
11. d4 - Dc7, 12. Rbd2 - cxd4,
13. cxd4 - Bd7, 14. Rfl - Hac8,
15. Re3 — Rc6, 16. a3?! — exd4,
17. Rxd4 — Rxd4, 18. Dxd4 —
d5, 19. e5 - Bc6, 20. Df4 -
Hfe8, 21. Rfl?! - Rh5, 22. Bxh7+
- Kxh7, 23. Dxf7 - Hxe5!, 24.
Hxe5 — Dxe5, 25. Dxd7 og upp
er komin staðan á stöðumyndinni.