Morgunblaðið - 17.05.1989, Síða 70
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. MAI 1989
Hugrún Linda Guðmundsdóttir kjörin fegnrðardrottning íslands 1989:
Linda Pétursdóttir krýnir arftaka sinn og nöfhu, Hugrúnu Lindu
Guðmundsdóttur, fegurðardrottningu íslands 1989.
Theódóra Sæmundsdóttir, sem varð í fjórða sæti, með foreldrum
sínum, Sæmundi Pálssyni og Ásgerði Ásgeirsdóttur.
Morgunblaðið/Bjami
Elfa Hrund Guttormsdóttir sem varð í fimmta sæti, með systrum
sínum Soffiu, Hörpu og Ölmu.
krýndi nöfnu sína. Erla Haralds-
dóttir kom með nafn Hildar Dungal
sem varð í 2. sæti, og Linda Péturs-
dóttir krýndi hana.
Loks gekk Ólafur Laufdal, for-
maður dómnefndarinnar upp á svið-
ið með bókina sem innihélt nafn
sigurvegarans, Hugrúnar Lindu
Guðmundsdóttur. Margir höfðu
raunar veðjað á hana sem líklegan
sigurvegara, en hún hafði áður ver-
ið kosin Ungfrú Reykjavík. Linda
Pétursdóttir krýndi Hugrúnu Lindu,
sem síðan hélt á vit sjónvarpsvið-
tala og ljósmyndara.
Þegar Morgunblaðið spurði Chris
Naidoo hveija hann teldi möguleika
Hugrúnar Lindu vera f alþjóðlegum
keppnum, sagði hann að að Hugrún
gæti náð langt í Miss Universe
keppninni. Sú keppni er haldin ár-
lega í Bandaríkjunum, en hingað
til hefur íslenskum stúlkum gengið
best í Miss World keppninni sem
haldin er í Bretlandi, og þá keppni
hafa bæði Hólmfríður Karlsdóttir (
og Linda Pétursdóttir unnið.
Það hefur ekki verið hefð fyrir
því að sú stúlka, sem vinnur fegurð- ^
arsamkeppni íslands, keppi í Miss
World keppninni. Þannig varð
Hólmfríður Karldsdóttir í 2. sæti í
íslensku keppninni, árið sem hún
vann Miss World. Ekki hefur enn
verið ákveðið hvaða stúlkur taka
þátt í þessum keppnum. _
Gæti náð langt í Miss
U niverse-keppninni
- segir Chris Naidoo, framkvæmdastjóri fegurðarsamkeppi Irlands
Hugrún Linda Guðmundsdóttir með foreldrum sinum, Kolbrúnu
Baldursdóttur og Guðmundi Friðrik Ottóssyni, og systkinum sinum
Guðrúnu Árnýju og Vilmundi Geir.
Hildur Dungal, sem varð í öðru sæti, með foreldrum sínurn, Áslaugu
K. Pálsdóttur og Haraldi Dungal.
Guðrún Eyjólfsdóttir, sem varð í þriðja sæti, með foreldrum sínum,
Ásu Valdimarsdóttur og Eyjólfi Harðarsyni.
„ÞAÐ er fyrir ofan minn skilning
hvar þið finnið allar þessar fal-
legu stúlkur. Ég veit ekki hvaða
galdur þið notið,“ sagði Chris
Naidoo, framkvæmdastjóri feg-
urðarsamkeppni írlands og
gestadómari á Fegurðarsam-
keppni Islands 1989, sem haldin
var á Hótel íslandi að kvöldi
annars í hvítasunnu. Fegurðar-
drottning írlands 1989 var raun-
ar heiðursgestur á Fegurðarsam-
keppninni, og voru margir á því,
að hún hefði Iítið haft að segja i
íslensku keppendurna. Fegurð-
ardrottning Islands var kjörin
Hugrún Linda Guðmundsdóttir,
19 ára stúlka úr Reykjavík. I
öðru sæti varð Hildur Dungal 18
ára gömul, einnig úr Reykjavík,
og hún var einnig kjörin besta
ljósmyndafyrirsætan. í þriðja
sæti varð Guðrún Eyjólfsdóttir,
tvítugur Akurnesingur. Kepp-
endumir völdu síðan Theódóru
Sæmundsdóttur vinsælustu
stúlkuna. Chris Naidoo sagðist
telja að Hugrún Linda ætti góða
möguleika á að ná langt í Miss
Universe fegurðarsamkeppninni,
sem haldin er árlega í Banda-
ríkjunum.
Heimsfegurðardrottningin Linda
Pétursdóttir krýndi nöfnú sína
skömmu eftir miðnættið, en gest-
imir fóru að safnast saman á Hótel
’ íslandi upp úr klukkan hálf sjö.
Stúlkunar 10, sem kepptu um titil-
inn Fegurðardrottning íslands
1989, gengu pelsklæddar í salinn
klukkan átta og var vel fagnað.
Dagskrá Fegurðarsamkeppni ís-
lands er orðin í nokkuð föstum
skorðum og hún hefst ávallt með
því að dansarar dansa dans eftir
Ástrósu Gunnarsdóttur við tón-
verkið Tilbrigði við fegurð, sem
Gunnar Þórðarson samdi fýrir
keppnina 1983. Að þessu sinni voru
dansaramir frá Dansstúdíói Sóleyj-
ar.
Baldvin Jónsson auglýsingastjóri
Morgunblaðsins flutti ávarp, og
lýsti m.a. ánægju sinni með að
kvenfólk væri að yfirtaka fram-
kvæmd keppninnar. Seinna um
kvöldið vom kallaðar upp á svið og
heiðraðar sérstaklega þær Gróa
Ásmundsdóttir framkvæmdastjóri
keppninnar, Katrín Hafsteins sem
sijórnaði líkamsþjálfun, Bima
Magnúsdóttir sem þjálfaði sviðs-
framkomu og Maríanna Friðjóns-
dóttir sem stjómaði útsendingu
Stöðvar 2 frá keppninni.
Stúlkunar 10 komu næst fram í
sundbolum við mikinn fögnuð
áhorfenda, og sýndu árangur næst-
um tveggja mánaða stanslausrar
þjálfunar og æfinga. Valdimar Fly-
gering leikari, sem var kynnir
ásamt Sigrúnu Waage leikara,
sagði að á þessum mánuðum hefðu
stúlkumar sennilega gengið meira
á háum hælum en meðalkona gerði
á ári.
Eftir að gestimir höfðu glatt
augu sín fengu bragðlaukamir
næsta skammt því þá var borinn
fram aðalréttur kvöldsins. Ólafur
Reynisson yfirmatreiðslumaður á
Hótel íslandi hefur séð um mat-
reiðsluna á krýningarkvöldum Feg-
urðarsamkeppni íslands undanfarin
ár, og hefur maturinn verið rómað-
ur. I þetta skipti var boðið upp á
heilsteiktar nautalundir í sumar-
skrúða, og þótt það sé varla heiglum
hent að matreiða nautalundir fyrir
600 manns í einu, brást Ólafí ekki
bogalistin. Um það vitnuðu upp-
hrópanir eins og: „Hvemig fer hann
að þessu!“ frá borðunum.
Meðan beðið var eftir eftirréttin-
um stillti Karlakór Reykjavíkur sér
upp á sviðinu og söng ættjarðarlög,
m.a. Fósturlandsins freyja sem allir
karlmenn í salnum vom skikkaðir
til að syngja með. Eftirrétturinn var
svo borinn fram með sérstökum
hætti. Upp úr gólfi salarins kom
líkan af Vatnajökli á stómm kassa
í fánalitunum. Vatnajökull opnaðist
og reyndist innihalda ís, sem mat-
reiðslumenn skömmtuðu á diska.
Fegurðardísrinar komu næst
fram á síðkjólum, og var hver þeirra
spurð einnar spumingar af kynnun-
um Á meðan sátu á sviðinu tíu litl-
ar stúlkur, fegurðardrottningar
framtíðarinnar.
Dómnefnd keppninnar dró sig í
hlé, til að ákveða sig endanlega,
en á sviðinu sýndu stúlkur hár-
greiðslu sem Sólveig Leifsdóttur
átti heiðurinn af. Þá söng Karlakór
Reykjavíkur aftur, og loks sýndu
íslandsmeistaramir í samkvæmis-
dönsum listir sínar, en þeir komu
frá Dansskóla Sigurðar Hákonar-
sonar.
Á miðnætti rann stóra stundin
loks upp. Keppendumir stilltu sér
upp, og heiðursgestir kvöldsins,
Linda Pétursdóttir fegurðardrottn-
ing íslands 1988 og Barbara Curran
fegurðardrottning írlands, vom
kallaðar á sviðið.
Dómnefndarmenn komu síðan
hver af öðmm með bækur sem inni-
héldu nöfn verðlaunahafanna. Ingi
Bjöm Albertsson afhenti bókina
með nafni vinsælustu stúlkunnar,
Theódóm Sæmundsdóttur, Sóley
Jóhannsdóttir kom með nafn bestu
ljósmyndafyrirsætunnar, Hildar
Dungal, Anna Margrét Jónsdóttir
kom með nafn stúlkunnar Elfu
Hmndar Guttormsdóttur sem varð
í 5. sæti, Friðþjófur Helgason af-
henti bókina með nafni Theódóm
Sæmundsdóttur sem varð í 4. sæti.
Sigtryggur Sigtryggsson afhenti
bókina með nafni Guðrúnar Eyjólfs-
dóttur sem varð í 3. sæti. Guðrún
Margrét Hannesdóttir, sem varð í
3. sæti í keppninni á síðasta ári,