Morgunblaðið - 15.06.1989, Qupperneq 17
MOKGL'NKLAÐin FIMMTUDAGUR 15.;JÚNÍ 1989
Menntamálaráðherra
og foreldrafélög
Páll Magnússon
keppni tegundanna um æti og bú-
svæði hlyti slíkt að leiða af sér rösk-
un urriðastofnsins.
í 14 gr. reglugerðar um vemdun
Myvatns og Laxár kemur fram að:
„Náttúrvemdarráð getur, ef sérstök
ástæða þykir, friðlýst einstakar
náttúruminjar eða staði, svo og
dýra- og plöntutegundir á svæðinu
öllu eða hluta þess. Skal þá farið
eftir ákvæðum laga nr. 47/1971.“
Þarna er vísað til laga um náttum-
vernd. Þar segir í 23 gr.: „Náttúm-
vemdarráð getur friðlýst jurtir eða
dýr, sem miklu skiptir frá náttúm-
fræðilegu eða öðm menningarlegu
sjónarmiði að ekki sé raskað, fækk-
að eða útrýmt. Friðun getur ýmist
verið staðbundin eða tekið til lands-
ins alls. Ef ætla má, að fyrirhugað-
ar framkvæmdir raski svo náttúm-
legu umhverfi, að hætta sé á, að
ákveðnar jurtir eða dýr eyðist eða
verði fyrir vemlegum skaða, getur
Náttúrvemdarráð látið friðlýsingu
sína taka til banns við slíkum fram-
kvæmdum, enda sé áður fengin
umsögn stofnana á viðkomandi sér-
sviði.“
Urriðastofninn í efri hluta Laxár
í S-Þing. er einstakur og hér hafa
verið leidd rök að því að fyrirhuguð
laxarækt fyrir ofan Brúa muni óhjá-
kvæmilega leiða af sér röskun hans.
Á sínum tíma (1975) gaf Náttúm-
vemdarráð leyfí til byggingar físk-
vegs upp fyrir gljúfur og þ.a.l.
mætti álykta, að þar með hafi verið
gefið leyfí fyrir laxarækt fyrir ofan
stíflu. Tilvísun til þessa leyfis nú,
þegar rætt er um hækkun stíflunn-
ar, er léttvæg í ljósi breyttra við-
horfa til náttúruvemdar, aukinnar
þekkingar á sambýli laxfíska og
sérkenna Mývatns og Laxár. Nátt-
úruvemdarráð hlýtur því að þurfa
að fjalla um þennan þátt að nýju.
Að okkar mati er það draumsýn
að hægt sé að hleypa nýrri dýrateg-
und inn á svæðið án þess að raska
því náttúmlega lífríki sem fyrir er.
Það er því brýnt að menn rasi ekki
um ráð fram í þessu efni.
Heimildir:
1. Ársskýrsla 1986—87, Veiðimálastofnun
1988.
2. Borgarström og Hansen (ristj.) (1987).
Fisk t ferskvann. Ökologi og resursförvaltn-
ing.
3. Gísli Jónsson (1987). Saga Laxárvirkjun-
ar.
4. Heggberget (1984). Habitat Selection
and Segregation of Parr of Arctic Charr,
Brown Trout and Atlantic Salmon in Two
Streams in North Norway.
5. Karlström (1977). Biotopval och besattn-
ingstattct hos lax och öringungar í svenska
vattendrag.
6. Pétur M. Jónasson (1979). The River
Laxá ecosystem, Iceland. Pétur M. Jónsson
(ritstj.). Lake Mývatn.
7. Rafn Hafnfjörð (1988). Veiðimaðurinn
nr. 127, bls. 5-8
Ilöfundar eru áhugamenií um
þjóðlega náttúruvemd og stang-
veiði með flugu.
eftirdr. Gunnlaug
Þórðarson
Það segir sig sjálft, að í skólum
em skólastjórar misvel metnir bæði
af kennumm og foreldmm.
Foreldrar vilja að bömum sínum
vegni vel í skóla. Flestir vilja allt til
vinna, að böm séu í náð hjá kennara
sínum. Þar af leiðandi vilja þeir ekk-
ert gera það, sem spillt geti sam-
skiptum þeirra og kennara barns.
Það mun aftur á móti vera fremur
sjaldgæft, að kennari leiti til foreldr-
is í sambandi við starf sitt.
Að því er best er vitað, mun það
hafa fyrst átt sér stað fyrir nokkmm
ámm, að kennarar við nokkra gmnn-
skóla leituðu almennt til foreldra í
sambandi við kjaradeilu sína með því
að virkja böm, sem þeir kenndu, í
þeim tilgangi að foreldrarnir gætu
stutt þá í baráttunni. Þá datt samt
engum kennara í hug „stíðsskaða-
bætur“ vegna þess að þeir hefðu
farið í verkfall, þ.e. að þeir fengju
laun þrátt fyrir að hafa verið í verk-
falli. Svo ótrúlega tókst til að
„stríðsskaðabótakrafan" var tekin til
greina af hálfu stjómvalda.
Nú er það svo, að fæstar undir-
skriftasafnanir em marktækar, því
það hefur sýnt sig, að það er tiltölu-
lega auðvelt að fá fjölda fólks til að
skrifa undir nánast hvað sem er, ef
rétt er að farið. Að mínu mati er
skjal, sem fleiri en fímm skrifa und-
ir marklítið og því síður sem fleiri
skrifa.
Hitt er ámælisvert af hálfu hvaða
kennara sem er eða manns í sam-
bærilegu starfi, að ætla sér að nota
aðstöðu sína til þess að koma fram
málum sínum. Undirskriftasöfnun á
að vera óheimil, a.m.k. í gmnnskól-
um, ekki síst með tilliti til nemend-
Því kemur mér þetta í hug, að það
spurðist út hér fyrr á þessu ári, að
18 kennarar í einum gmnnskóla höf-
uðborgarinnar hefðu efnt til sam-
blásturs gegn skólastjóra sínum og
skrifað menntamálaráðherra í þeim
tilgangi, að skólastjórinn yrði um-
svifalaust rekinn úr starfí. Munu
þeir og hafa notið einhvers konar
„stuðnings“ stjómar foreldrafélags
skólans. Slík aðför mun vera eins-
dæmi, en öllu verra einsdæmi mun
vera, að þetta fólk njóti nafnleyndar
hjá menntamálaráðuneytinu. Við-
brögð ráðherrans gagnvart þessari
aðför að skólastjóranum vora fá-
heyrð og þá ekki síst að því leyti
hvemig hann sjálfur stóð að verki
við brottrekstur skólastjórans, svo
sem alkunnugt er.
Nú hefur menntamálaráðherra
sett þann mann, sem þessi átján
manna kennaraklíka bar fyrir bijósti,
í stöðu skólastjórans. Engum getur
dulist að um póltíska gerð var að
ræða. Umsækjandi, sem bæði hafði
meiri menntun og lengri starfsferil
var gróflega sniðgenginn.
Menntamálaráðherra hefur afsak-
að skipun þessa m.a. með því, að í
því efni hafí verið tekið tillit til óska
foreldrafélags skólans. Bersýnilegt
er, að þessi átján manna kennar-
aklíka hefur aftur lagst á stjóm for-
eldrafélagsins í pólitísku skyni.
Fullyrða má að það sé allt annar
tilgangur með stofnun foreldrafélags
en að það hafi afskipti af stöðuveit-
ingum. Slíkt foreldrafélag er á villi-
götum og betra að ekki sé neitt for-
eldrafélag en að það sé misnotað líkt
og átt hefur sér stað.
Sá gagnmerki skólamaður, Guðni
Guðmundsson rektor MR, er sagður
hafa látið þau orð falla, að hann vildi
ekki foreldrafélag í sínum skóla.
Vissulega hafa umrædd atvik vakið
efasemdir að ekki sé meira sagt.
SUMARN AMSKEIÐIN
í FULLUM GANGI!
MEÐ!
Hringdu strax
Allir finna flokk við sitt hæfi hjá
J.S.B.
uámskeiá
15/6
Suðurveri, sími 83730 Hraunbergi, sími 79988
veididlaqur
lunnar
Það er áhyggjuefni hve margir
þeirra, sem best þekkja til, telja að
menntun þjóðarinnar hafi farið hrak-
andi á síðustu tímum. Vafalaust er
skólakerfinu mest um að kenna.
Annakerfið svokallaða, sem komið
hefur í stað bekkjakerfis, á tvímæla-
laust sinn mikla þátt í þessari hnign-
un. Þá ekki síður að „námsgreinar",
sem engum hefði komið til hugar að
meta til stúdentsprófs, em teknar til
greina sem fullgild fög á stúdents-
prófi. Um þetta efni vitnar mjög at-
hyglisverð grein eftir Sigríði Theód-
órsdóttur, hér í blaðinu, 1. þ.m..
Þá er það ekki síður áhyggjuefni,
ef kennarar ætla að nota foreldrafé-
lög til áhrifa á stöðuveitingar líkt
og foreldrafélagið, sem menntamála-
ráðherra notaði til afsökunar fyrir
embættisverki sínu. Slíkt má ekki
henda. Það er ekki samboðið neinni
stétt að ætla að beita þeim áhrifum
sem hún getur haft, vegna aðstöðu
sinnar, á börn og unglinga til að
seilast til aukinna valda í þjóðfélag-
inu m.a. á kostnað skólanefnda, sem
em hinn löglegi umsagnaraðili.
Höfímdur er hæstaréttarlögmað-
ur.
Dr. Gunnlaugur Þórðarson
„Nú hefiir menntamála-
ráðherra sett þann
mann, sem þessi átján
manna kennaraklíka
bar fyrir brjósti, í stöðu
skólastjórans. Engum
getur dulist að um
póltíska gerð var að
ræða. Umsækjandi, sem
bæði hafði meiri mennt-
un og lengri.starfsferil
var gróflega sniðgeng-
inn.“
LANDSSAMBAND STANGAVEIÐIFÉLAGA
Ert Dú í
húsgagnaleit?
Sófasett Rió 3+1+1.
Verð með áklæði kr. 86.500 stgr.
Fæst einnig í Leðurlúx eða leðri.
Ath.: Við sérhæfum okkur í sófasettum.
Hornsófi með áklæði, 2ja sæta horn + 3 sæti.
Tilboðsverð kr. 80.000 stgr.
Einnig mikið úrval af hornsófum
úr leðri eða Leðurlúx.
Ath.: Afgreiðum hornsófa eftir máli.
Hagstættverð. Góð kjör.
Raðgreiðslur
El
Ármúla 8, síinar: 8-22-75 og 68-53-75