Morgunblaðið - 15.06.1989, Page 45
Lagafrumvarp
um listaháskóla
Félag aðstandenda alzheimersjúklinga:
Mótmælir harðlega
lokun sjúkradeilda
MENNTAMÁLARÁÐHERRA, Svavar Gestsson, hefur kynnt frum-
varp til laga um listaháskóla, sem ætlunin er að leggja fyrir Alþingi
í haust. Gert er ráð fyrir að listaskólarnir starfi áfram sjálfstætt,
en undir sameiginlegri stjórnarnefhd.
Að sögn Ragnars Arnalds, for-
manns undirbúningsnefndar frum-
varpsins, er listaháskólinn hugsað-
ur sem eins konar regnhlíf yfir
myndlistar-, tónlistar- og leiklistar-
háskóla. Svavar Gestsson segir að
frumvarpið geri ekki ráð fyrir um-
byltingu á starfi listaskólanna,
miklu frekar hagræðingu þeirrar
starfsemi sem fyrir er.
Segir hann að kostnaður ríkis-
sjóðs ætti því ekki að þurfa að auk-
ast mikið vegna listaháskólans. í
fylgiskjali frumvarpsins segir, að
ljóst sé þó að kostnaður aukist
nokkuð vegna myndlistar- og tón-
listarháskóla þar sem ríkissjóður
muni greiða starfsemi þeirra að
fullu. Nú taki Reykjavíkurborg
verulegan þátt i rekstrinum.
Verði frumvarpið að lögum munu
þau taka gildi í áföngum; tónlistar-
háskóli yrði stofnaður á næsta ári,
myndlistaháskóli 1991 og leiklistar-
haskóli ári síðar.
Inntökuskilyrði í listaháskólann
verða samkvæmt frumvarpinu á
valdi skólaráðs hvers skóla.
í frumvarpi til laga um listahá-
skóla segir að menntamálaráðu-
neyti verði heimilt að stofna til
kennslu í byggingarlist í tengslum
við myndlistarháskólann, þegar fé
verði veitt til þess á fjárlögum.
í undirbúningsnefnd frumvarps-
ins sátu þrír fyrrverandi mennta-
málaráðherrar; Gylfi Þ. Gíslason og
Ingvar Gíslason auk Ragnars Am-
alds. Með nefndinni störfuðu af
hálfu menntamálaráðuneytisins
Ámi Gunnarsson, skrifstofustjóri,
og Stefán Stefánsson, deildarsér-
fræðingur.
Morgunblaöiö/íSvemr
Alls voru 208 nemendur brautskráðir frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti við athöfii í Fella- og Hóla-
kirkju laugardaginn 10. júní.
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti:
208 nemendur brautskráðir
FJÖLBRAUTASKÓLANUM í
Breiðholti var slitið þann 10.
júní í Fella- og Hólakirkju. Við
athöfhina voru 208 nemendur
brautskráðir, 148 úr dagskóla
og 60 úr kvöldskóla. Á vorönn
stunduðu alls 2230 nám við
skólann 1390 í dagskóla og 840
í kvöldskóla. Kennarar við Fjöl-
brautaskólann voru alls 138 og
skólameistari er Kristín Arn-
alds.
Tólf nemendur brautskráðust í
vor af eins árs námsbrautum við
Fjölbrautaskólann, 39 af tveggja
ára námsbrautum og 78 af þriggja
ára brautum; snyrtifræðinámi,
sjúkraliðanámi, sérhæfðu verslun-
arprófi, matartæknaprófi og
sveinsprófi í bóklegum og verkleg-
um greinum. Stúdentsprófi í vor
luku 83, en 22 þeirra voru ekki
viðstaddir skólaslitin, þar sem þeir
em á ferðalagi erlendis. Þar að
auki hyggjast 5 taka stúdentspróf
í haust. Bestum árangri á stúd-
entsprófi náði Svala Sigurðardótt-
ir, sem stundaði nám á viðskipta-
sviði.
42 stúdentar voru brautskráðir frá Flensborgarskólanum í Hafiiarfirði laugardaginn 10. júní.
Flensborgarskólinn Hafnarfírði;
42 stúdentar brautskráðir
Laugardaginn 10. júní sl. voru
42 stúdentar brautskráðir frá
Flensborgarskólanum. Flestir
brautskráðust af viðskiptabraut
eða 13, 9 af málabraut, 9 af fé-
lagsfræði- eða uppeldisbraut, 8
af náttúrufræðibraut og 3 af eðl-
isfræðibraut.
Bestum námsárangri náði Marta
Einarsdóttir, viðskiptabraut, nem-
andi í öldungadeild skólans, en hún
hlaut 36 A og 8 B í einkunn.
Við brautskáningarathöfnina
tóku til máls auk skólameistara,
Kristjáns Bersa Ólafssonar, Lúðvík
Kristjánsson sagnfræðingur, sem
flutti kveðjur og gjöf frá þeim sem
luku gagnfræðaprófi frá skólanum
fyrir 60 áram, séra Bjami Sigurðs-
son sem flutti kveðju og gjöf frá
50 ára gagnfræðingum, og einn úr
hópi hinna nýju stúdenta, Páll
Jakbo Malmberg.
Kór Flensborgarskólans, undir
stjóm Margrétar J. Pálmadóttur,
söng við athöfnina.
(Fréttatilkynning)
í ályktun sem samþykkt var á
aðalfundi FAAS, félags aðstand-
enda alzheimersjúklinga, er
harðlega mótmælt lokunum
hjúkrunar- og öldrunardeilda á
sjúkrahúsum í sumar.
í fréttatilkynningu frá FAAS
segir að í sumar séu fyrirhugaðar
umfangsmeiri lokanir deilda en ver-
ið hafi undanfarin sumur. Þetta
þýði að sjúklingar verði útskrifaðir
eftir því sem fært þyki eða færðir
á milli deilda. Óneitanlega hafi það
mikla röskun í för með sér fyrir
sjúklingana, en bitni þó ekki síður
á sjúklingum í heimahúsum og að-
standendum þeirra. Á undanfömum
áram hafí verið reynt að aðstoða
þá mörgu sem annast sjúklinga í
heimahúsum með því að taka sjúkl-
inga til skammtímavistunar til að
létta undir með aðstandendum
þeirra. í sumar sé hins vegar útlit
fyrir að ekki verði um neinar slíkar
innlagnir að ræða.
Steindór Sendibfiar
18 101 Reykjavík
' Simi: 91-25855
Feröaskrifstofa íslands skipuleggur vikuferð í
Atomic skíðaskólann í Hintertux 9. júlí. Flogið ertil
Salzburg og þaðan er ekið til Hintertux. Þátt-
takendur dvelja á Hótel Klausnerhof sem er fyrsta
flokks skíðahótel.
Kennari í Atomic skíðaskólanum er hinn heims-
frægi skíðakappi Hugo Nindl sem varfélagi í austur-
ríska skíðalandsliðinu í átta ár, fimmfaldur austur-
rískur meistari og heimsmeistari 1974.
Hver og einn fær kennslu og þjálfun við sitt
hæfi. Einnig er lögð áhersla á þrekþjálfun, hlaup,
líkams- og heilsurækt.
Dvölinni lýkur með skíðamóti, verðlauna-
afhendingu og grillveislu. Þátttakendur eru á öll-
um aldri og mislangt á veg komnir í skíðaíþrótt-
inni.
Innifalið;
Flug til Salzburg
Akstur til Hintertux
Gisting og fulltfæði á Hótel Klausnerhof
Skíðakennsla og lyftur
Aðgangur að sundlaug, gufubaði
og tennisvöllum '
KR. 49.500,-
Sportvaj
/ SKÓLA MEISTARANNA