Morgunblaðið - 15.06.1989, Qupperneq 61
MORGUNBLAÐŒ) IÞROTTIR FTMMTUDAGUR 15. JÚNÍ 1989
61
JVildu að
Ásgeir léki
með legg-
hlífar
Þjálfari Austurríkismanna hljóp
að hliðarlínunni strax í byijun
leiksins, og Óli Olsen, milliríkjadóm-
ari, aðstoðarmaður dómaratríósins
að þessu sinni, hljóp á eftir honum
og tókst að koma honum aftur á
bekkinn eftir langa mæðu.
„Hann var vitlaus yfir því að
Ásgeir var ekki með legghlífar. En
það kom honum ekkert við — dóm-
arinn sá það og beið þar til Ásgeir
fékk hlífar og setti þær á sig,“ sagði
Óli eftir leikinn.
Einn Austurríkismaðurinn var
einnig látinn setja upp legghlífar —
en tveir aðrir léku reyndar legg-
hlífalausir allan tímann án þess að
eftir því tækist. „KSÍ og austurríska
sambandið verða önigglega bæði
sektuð fynr þetta; sennilega um
2-400 svissneska franka hvort.
Samböndin eiga að sjá um að leik-
menn séu með legghlífar,“ sagði
Óli.
Það var setti í reglur FIFA í fyrra
að leika yrði með legghlífar í heims-
meistarakeppninni — vegna hættu
á alnæmissmiti.
STAÐAN
Fj. leikja U J T Mörk Stig
SOVÉTRÍKIN 5 3 2 0 8: 2' 8
TYRKLAND 5 2 1 2 8:6 5
AUSTURRÍKI 4 1 2 1 4: 5 4
ÍSLAND 5 0 4 1 3: 5 4
A-PÝSKAL. 5 1 1 3 4: 9 3
■ FYRSTA skot Austurríkis-
manna að marki í gærkvöldi kom
þegar tæpar 23 mínútur voru búnar
af leiknum! Þá skaut einn þeirra
langt fyrir utan teig, og Bjarni
varði auðveldlega.
■ A USTURRÍKISMENN fengu
ekki hornspymu fyrr en tæpar
fímmtán mínútur voru liðnar af
síðari hálfleik — eftir klukkustund-
ar leik.
É HERBERT Prohaska lék
sinn síðasta landsleik fyrir Aust-
urríki í gærkvöldi, og var fyrirliði
í tilefni dagsins.
■ BJARNJ Sigvrðsson, mark-
vörður íslands, kom ekki við knött-
inn fyrr en 17 mín. og 10 sekúndur
voru liðnar af leiknum. Löng send-
ing eins Austurríkismannsins rúll-
aði þá aftur til hans!
■ EFTIR að Ásgeiri Sigurvms-
syni var skipað að setja upp legg-
hlífar snemma leiks, fór hann til
dómarans og heimtaði að Rodax
(númer 7) væri einnig látinn gera
það. Rodax fékk hlífar eftir tvær
mínútur og stakk þeim inn undir
sokkana.
Heppnin var með okkur“
sagði Klaus Lindenberger, markvörður Austurríkis
Við vorum mjög heppnir og
áttum ekki skilið að fá stig.
En við vorum mjög óheppnir í
Austur-Þýskalandi og þvi má
segja að þetta hafi jafnast út,
hvað okkur varðar.
Markið var ólöglegt, enda fór
hann með olnbogann á undan sér.
En íslendingar fengu góð færi.
Þegar númer 9 (Sigurður Grétars-
son) fékk boltann á markteig hefði
hann átt að skora. En hann var
með vamarmenn allt í kringum
sig og völlurinn ósléttur. Á eðlileg-
um velli hefði hann örugglega
skorað.
Við munum sækja meira í Sals-
burg. Þar höfum við 20.000 áhorf-
endur og erum á heimavelli. Það
verður þó erfitt því íslenska liðið
er mjög sterkt.“
Anton Polster:
„Að sjálfsögðu er ég ánægður.
Við vorum mjög heppnir og getum
þakkað fyrir þetta stig. Við hefð-
um getað sótt meira en það hefði
verið heimskulegt að taka slíka
áhættu því sóknir íslendinga voru
hættulegar. Það sem mér fannst
mest áberandi við íslenska liðið
var hve sterk liðsheild þeirra var.
Við vissum af góðum leikmönnum
í liðinu, en í þessum leik sáum
við ellefu sterka leikmenn."
, Morgunblaðið/Einar Falur
Barattujaxlarnir Pétur Arnþórsson og Olafur Þórðarson áttu góðan leik eins og reyndar allt íslenska liðið.
„Við eigum enn
möguleika“
- sagði Siegfried Held, landsliðsþjálfari íslands
„ÉG ER ánægður með leik
minna minna, en ekki úrslitin.
Við fengum góð færi og áttum
að vinna. Ég veit, eftir þennan
leik, að við erum nógu sterkir
tll að veita þeim skráveif u í
leiknum í Salzburg," sagði
Siegfried Held, landsliðsþjálf-
ari, í gærkvöldi.
Held sagði: „Eftir þennan leik
veit ég að við eigum möguleika
á að ná öðru sæti í riðlinum. Við
fengum tækifærin til að sigra, en
nýttum þau ekki. Ég get ekki
skammað neinn af strákunum, þeir
börðust allir vel — ég get ekki
skammað þá þó tækifærin hafi ekki
nýtst.
Kom það aldrei til greina að
skipta Rúnari eða Halldóri inn á —
þeir hleyptu lífi í sóknina í Mosvku?
„Jú, ég hugsaði um það — þeir
voru báðir góðir í Moskvu, en Guð-
mundur Torfason er sterkur í loft-
inu og gerði það gott í vítateig
andstæðinganna. Við lékum vel og
fengum fær — þess vegna vildi ég
ekki breyta," sagði Held.
„Getum þakkað sóknarieik-
mönnum íslands fyrir stigið“
- sagði Josef Hickersberger, þjálfari Austurríkis, sem var kampakátur eftir leikinn
Við vorum mjög heppnir í þess-
um leik og getum í raun
þakkað sóknarmönnum íslend-
inga fyrir stigið. Ég held að við
höfum leikið af skynsemi og notað
rétta leikaðferð," sagði Josef Hic-
kersberger, þjálfari austurríska
landsliðsins. Hann var kampakát-
ur í leikslok, gekk um búnings-
klefann og faðmaði að sér leik-
menn liðsins.
Við verðum að vinna leikinn í
Salsburg en munum leika svipað
og við gerðum hér. Við leggjum
að vísu meiri áherslu á sóknina
en munum samt ekki taka áhættu.
Þetta stig hér í Reykjavík er mikil-
vægur áfangi á leið okkar til ít-
alíu.“
Herbert Prohaska, fyririlðí
Austurríkis:
Prohaska lék í gær sinn síðasta
landsleik fyrir Austurríki, en hann
hefur ákveðið að gefa ekki framar
kost á sér í landsliðið. „Vissulega
er ég ánægður með jafntefli og
ágætt að enda á þessum leik.
Þetta er dýrmætt stig og við eig-
um rpjög góða möguleika. Við
getum unnið íslendinga í Salsburg
og þar munum við ekki sætta
okkur við jafntefli."
KNATTSPYRNA / HEIMSMEISTARAKEPPNIN
Þeir léku
I BJARNI Sigurðsson hefur
sennilega aldrei átt náðugri dag í
markinu. Það reyndi aldrei á hann,
nema hvað hann þurfti að veija tvö
langskot.
■ ATLI Eðvaldsson barðist vel
að vanda, var ógnandi þegar hann
kom upp í vítateig Áusturríkis-
manna, en í vörninni skilaði hann
knettinum ekki nógu vel frá sér.
H GUÐNI Bergsson hafði ekki
mikið að gera, en var yfirvegaður
og gerði það vel sem þurfti.
■ SÆVAR Jónsson kom inn í
liðið aftur eftir hvíld frá Moskvu-
leiknum og virtist eiga nokkuð er-
fitt með að finna taktinn. Var sterk-
ur við að stöðva Austurríkismenn
en gekk ekki nógu vel að senda
knöttinn til samheijanna, frekar en
Atla.
H GUNNAR Gíslason vann vel
og var sterkur í stöðu vængtengi-
liðs sem endranær.
H ÓLAFUR Þórðarson var
hægri vængtengiliður og var geysi-
lega ógnandi. Yfirverð hans var
mikil og réðu Austurríkismenn lítið
við hann. Skapaði oft usla með
hraða sínum og krafti.
H SIGURÐUR Jónsson var frá-
bær — besti maður vallarins. Leikni
hans og útsjónarsemi kom vel í ljós,
og hann var óhræddur við að taka
af skarið. Austurríkismenn áttu í
mjög miklum erfiðleikum með að
halda honum í skefjum.
H PÉTUR Arnþórsson skilaði
sínu hlutverki sínu mjög vel. Það
ber ef til vill ekki mikið á því sem
Pétur er að gera en verk hans er
ómissandi þáttur í liðsheildinni.
H ÁSGÉIR Sigurvinsson lék
mjög vel. Var mikið á ferðinni, yfir-
vegaður sem fyrr. Skapaði oft
hættu þrátt fyrir að Austurríkis-
menn reyndu greinilega að gæta
hans mjög vel.
H SIGURÐUR Grétarsson
gerði allt í gær nema eitt — að
skora. Hann var duglegur við að
„þefa“ uppi marktækifærin, en náði
ekki að reka smiðshöggið á sóknirn-
ar. Var óheppinn að nýta ekki fær-
in.
H GUÐMUNDUR Torfason var
duglegur og lék kröftuglega. Aust-
urríkismenn reyndu allt sem þeir
gátu til að slá hann út af laginu —
og mikið má vera ef peysa hans
hefur ekki stækkað um nokkur
númer; svo oft toguðu þeir í hana
til að stöðva Guðmund.
H VIÐAR Þorkelsson kom inn
á sem varamaður seint í leiknum
fyrir Gunnar Gíslason og skilaði
hlutverki sínu ágætlega.