Morgunblaðið - 15.06.1989, Síða 63
MORGUNBLÁÐID ÍÞRÓTTIR
SUS&
lGUR 1’5: JUNI 1989
63
KNATTSPYRNA / HEIMSMEISTARAKEPPNIN
Laugardalsvöllurinn. Heimsmeist-
arakeppnin í knattspymu. 14. júní
1989.
Gul spjöld: Sævar Jónsson (87.),
íslandi. Alfred Hörtnagl (19.) og
Robert Pecl (89.), Austurríki.
ísland: Bjami Sigurðsson, Gunnar
Gíslason (Viðar Þorkelsson 64. mín.),
Atli Eðvaldsson, Pétur Amþórsson,
Guðmundur Torfason, Sævar Jóns-
son, Guðni Bergsson, Ólafur Þórðar-
son, Sigurður Grétarsson, Ásgeir
Sigurvinsson, Sigurður Jónsson.
Austurríki: Klaus Lindenberger,
Kurt Russ, Robert Pecl, Anton Pfef-
fer, Herbert Weber, Manfred Zsak,
Gerhard Rodax (Andreas Ogris 45.),
Herbert Prohaska, Anton Polster,
Alfred Hörtnagl (Andreas Herzog
35.), Peter Artner.
Áhorfendun 10.535.
Dómari: H. W. King, Wales. Hann
var ekki nægilega ákveðinn og var
á bandi Austurríkismanna
Morgunublaöið/Júlíus
Sigurður Grétarsson sést hér þruma knettinum á neðanverða þverslána á marki Austurríkismanna. Eins og áður var heppnin ekki með íslendingum.
Otrúleg óheppni!
Austurríkismenn áttu ívök að verjast. Þeirfögnuðu geysilega þegardómarinn, King
frá Wales, sem lokaði augunum fyrir vítaspyrnu á þá, flautaði til leiksloka
HEILLARDISIRNAR voru ekki
með íslendingum á Laugar-
dalsvellinum, þar sem þeir yfir-
spiluðu Austurríkismenn í gær-
kvöldi fyrir framan 10.535
áhorfendur. íslensku leik-
mennirnirfengu mörg gullin
tækifæri til að gera út um leik-
>nn, en heppnin var ekki með
þeim. Sigurður Grétarsson var
næstur því að skora - fast skot
hans skall á þverslánni. Þá lok-
aði dómarinn, King f rá Wales,
augunum fyrir vítaspyrnu þeg-
ar brotið var á Ásgeiri Sigur-
vinssyni. Þegar flautað var til
leiksloka voru leikmenn ís-
lands óhressir, en aftur á móti
fögnuðu Austurríkismenn inni-
lega - það var eins og þeir
væru að fagna heimsmeist-
aratitli. Austurríkismenn voru
svo sannarlega heppnir að
sleppa við tveggja til þriggja
marka ósigur.
Það var strax í byijun leiksins
sem kom í Ijós hvað Austurrík-
ismenn ætluðu sér - ekkert annað
en eitt stig í pokahorninu heim.
SigmundurÓ.
Steinarsson
skrifar
Þeir léku „ítalskan"
varnarleik og léku
fast. Ætluðu sér
greinilega að bijóta
niður íslensku sókn-
arleikmennina. Eftir aðeins níu mín.
voru þeir búnir að brjóta fjórum
sinnum á þeim Sigurði Grétarsson
og Guðmundi Torfasyni. Það var
svo á átjándu mín. að Alfred Hört-
nagl fékk að sjá gula spjaldið, eftir
að hafa brotið á Gunnari Gíslasyni.
Eftir þetta fóru leikmenn íslenska
liðsins að taka hraustlega á móti
Austurríkismönnum og léku eins
fast og dómari leiksins, H. W. King,
leyfði.
Eftir aðeins 1.45 mín. skapaðist
hætta upp við mark Austurríkis-
manna - Sigurður Grétarsson fékk
knöttinn óvænt inn fyrir vörn Aust-
urríkismanna, en náði ekki valdi á
knettinum, þar sem hann snéri baki
í markið. Hann sendi knöttinn á
Asgeir Sigurvinsson, sem skaut í
hliðametið. Rangstaða var dæmd á
Ásgeir. Sigurður Grétarsson fékk
svo tækifæri til að skora á 34. mín.,
en Klaus Lindenberger, markvörð-
ur, varði skot hans í hom. Stuttu
seinna skoraði Atli Eðvaldsson með
skalla eftir aukaspyrnu Sigurðar
Jónssonar. Markið var dæmt af þar
sem Atli ýtti á bak varnarleiks-
manns Austurríkismanna.
Heppnin var svo ekki með Guð-
mundi Torfasyni á 45 mín., þegar
hann átti skalla að marki. Aust-
urríkismenn náðu að bægja hæt-
tunni frá.
Sóknarleikur íslenska liðsins var
ekki nægilega beittur í fyrri hálf-
leik, enda leikmenn allt í einu komn-
ir í stöðu sem þeir hafa ekki þekkt
sem best að undanförnu - að ná
yfirhöndinni algjörlega. Þeir náðu
ekki að leysa úr miðtaflinu og voru
miðjumennirnir oft með ótímabærar
krosssendingar.
Óheppnin eiti íslendinga
Breyting var á þessu í seinni
hálfleik, en þá sáust oft stór-
skemmtilegir samleikskaflar, en
óheppin elti leikmenn íslenska liðs-
ins - þeir uppskára ekkUaun erfið-
is síns. Fljótlega fengu íslendingar
þijár homspyrnur í röð. Úr þeirri
þriðju sendi Pétur Amþórsson fyrir
mark Austurríkismanna. Þar var
Sigurður Grétarsson, sem þramaði
knettinum í þverslána. Aðeins
þremur mín. seinna - á tólftu mín.,
var Sigurður Grétarsson einn fyrir
miðju marki þegar Ólafur Þórðars
son renndi knettinum til hans, en
honum brást bogalistin - skaut
framhjá.
Vítaspymu sleppt
Dómarinn, sem var oft mjög hlið-
hollur Austurríkismönnum, lokaði
augunum fyrir vítaspyrnu á 64
mín. Þá léku þeir Ásgeir Sigurvins-
son og Guðmundur Torfason
skemmtilega í gegnum austurrísku
vömina - með þríhyrningsspili.
Ásgeir komst á auðan sjó, en áður
en hapn náði til knattarins var brot-
ið á honum, þannig að hann féll.
Öllum til undranar dæmdi dómarinn
óbeina aukaspymu. Austurríkis-
menn stilltu upp tíu manna varn-
armúr á markteig. Sigurður Grét-
arsson renndi knettinum til Ás-
geirs, sem skaut fram hjá varnar-
múmum og marki Austurríkis-
manna.
Eftir þessar þungu sóknir fóra
Austurríkismenn að þétta vörnina
enn meira hjá sér og eins og áður
var aðeins einn_ leikmann í sókn,
Anton Polster. Islensku leikmenn-
irnir héldu áfram að sækja, en náðu
ekki að ijúfa vamarmúr Austurrík-
ismanna.
Það var sorglegt að leggja Aust-
urríkismenn ekki að velli. Yfirburð-
ir íslendinga vora svo miklir - að
Austurríkismenn fengu ekkeft
marktækifæri í leiknum. Þeir
reyndu nokkur máttlaus langskot,
sem vora hættulaus. íslenska liðið
lék á köflum mjög vel og þá sérstak-
lega í seinni hálfleik - þegar kant-
amir vora nýttir. Sigurður Jónsson
fór á kostum á vinstri vængnum.
Lék sinn besta landsleik. Annars
unnu leikmenn íslenska Iiðsins vel.
Varnarleikmenn áttu rólegan dag
og Bjami Sigurðsson, sem kom
fyrst við knöttinn eftir átján mín.
leik, hafði ekkert að gera.
Þrátt fyrir að ekki hafi náðst
bestu úrslitin - sigur, er ekki öll
nótt úti - Austurríkismenn eru
ekki ósigrandi á heimavelli sínum.