Morgunblaðið - 18.07.1989, Side 2

Morgunblaðið - 18.07.1989, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLÍ 1989 Islensk stúlka fána- beri á hersýningu ÍSLENSK stúlka tekur um þessar mundir þátt í stórri hersýn- ingu í Lundúnum fyrir íslands hönd. Sýningin er haldin i tilefhi 40 ára afmælis Atlantshafsbandalagsins. Stúlkan, Auðna Hödd Jónatansdóttir, er 15 ára gömul. Sýnt er í Earl’s Court sýningar- höllinni í Lundúnum og taka þúsundir hermanna frá aðildarlönd- um Atlantshafsbandalagsins þátt í sýningunni. Auðna Hödd var spurð hvemig stæði á því að hún tæki þátt í hersýningu sem þessari. „Her- sýningin er haldin í tilefni 40 ára afmælis Atlantshafsbandalags- ins,“ sagði Auðna Hödd. „Þar sem enginn her er á Islandi var ákveðið að fulltrúi okkar skyldi bera íslenska fánann og skarta þjóðbúningi. Þess var óskað að ég tæki þetta að mér og ég varð við því.“ Auðna Hödd hefur búið í sendiráðsb'ústaðnum í Londen frá áramótum en þar er hún ásamt fjölskyldu sinni. Að sögn Auðnu Haddar er bæði skemmtilegt og erfitt að taka þátt í sýningunni. „í raun er þetta margbrotin skrautsýn- ing. Hún hófst í síðustu viku og stendur í 3 vikur. Við sýnum einu sinni til tvisvar á dag, 6 daga vikunnar. Hver sýning stendur í 3 tíma og ég þarf auðvitað að halda rétt á fánanum allan tímann,“ sagði Auðna Hödd. „Það er helst hitinn sem hefur angrað mig vegna þess að ég er klædd upphlut." Aðsókn að sýningunni er mjög góð og segír Auðna Hödd um 25 þúsund manns koma dag hvem. „Játvarður prins var meðal sýn- ingargesta fyrir stuttu," sagði Auðna Hödd. „Ég var kynnt fyr- ir honum þar sem ég er eini ís- lendingurinn héma. Strákamir sem ég sýni með eru mjög vin- gjarnlegir og hjálplegir en ég er ein af fáum stúlkum sem taka þátt í þessari sýningu. Reyndar era hinar stelpurnar allar her- menn,“ sagði Auðna Hödd að lokum. Auðna Hödd Jónatansdóttir ber íslenska fánann á stórri hersýn- ingu í Earl’s Court í Lundúnum. Sýningin er haldin í tilefhi 40 ára afmælis Atlantshafsbandalagsins á þessu ári. Reykjavíkur- borg kaupir Broadway UNDIRRITAÐUR hefur verið samningur með fyrirvara um sam- þykki borgarráðs um að Reykjavíkurborg kaupi skemmti- staðinn Broadway í Breiðholti. Að sögn Davíðs Oddssonar borgar- stjóra, hyggst borgin reka staðinn sem áfengislausan skemmtistað fyrir unglinga í Reykjavík. „Það hefur lengi verið talað um að koma þyrfti upp skemmtistað fyrir unglinga í miðbænum en ég held að flestir telji það hagstæðara að hann sé þarna í námunda við stærstu hverfí borgar- innar, þar sem unglingarnir eru fjöl- mennastir. Þá hefur vantað aðstöðu fyrir unglinga, til dæmis í Selja- hverfí, og mun staðurinn létta nokk- uð þar á, þar til félagsmiðstöð verður reist í hverfinu eftir nokkur ár,“ sagði Davíð. Eftir að Tónabæ var breytt í félagsmiðstöð, þar sem ekki þótti hagstætt að reka skemmtistað í miðju íbúðarhverfí, hefur enginn áfengislaus skemmtistaður verið til fyrir unglinga í Reykjavík. Jafnframt er hugmyndin að nýta Broadway í þágu eldri borgara og til ráðstefnuhalds á vegum borgar- innar og annarra. í ágúst verður opnuð ný skiptistöð strætisvagna í Mjóddinni með bættum samgöngum við önnur hverfí borgarinnar. Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-SYN, fór í ískönnunarflug í gær og sýnir kortið hvar ísjaðarinn liggur. Mikill ís undan Vestfiörðum: Togslóðir lokað- ar vegna hafíss HAFÍS liggur um 25 sjómílur norður af Straumnesi, Kðgri og Horni. Þyrla Landhelgisgæslunn- ar, TF-SYN, fór í ískönnunarflug í gær. Á Deildargrunni lá ístunga út frá meginísnum í átt að ísafjarð- ardjúpi og var næst landi um 15 sjómílur norðvestur frá Deild. Eitthvað var um staka jaka og gisnar ísdreifar á Hornbanka, Reykjaflarðarál, Húnaflóaál og nyrst á Sporðagrunni. „Hér er mikill ís. Við komum að honum um 25 sjómílur norður af Straumnesi. Segja má að aðaltog- slóðin hafi verið lokuð um skeið vegna hafíss, alla leið frá Víkurál og austur í Þverál," sagði Guðbjartur Asgeirsson, skipstjóri á Guðbjörginni ÍS, í samtali við Morgunblaðið í gær, en þá var skipið á veiðum á Halamiðum. Guðbjartur segist hafa verið á grálúðuveiðum að undan- fömu, en hafí nú skipt yfír á físki- troll til reynslu. Fleiri skip voru ekki á sömu slóðum og Guðbjörgin f gær. Guðbjartur segist hvergi banginn við að hætta sér inn í ísinn á meðan veðrið héldist stillt. Hann færi sér vissulega rólega, keyrði á innan við Qöguwa'míhra' ferú.------------- Að sögn Þórs Jakobssonar, deild- arstjóra hafísrannsóknadeildar er ísröndin 24-25 sjómílur næst landi, einstaka ístungur þó nær. Siglinga- leiðir væru víðast opnar, en Þór vildi vara sjófarendur við stökum jökum. Miðað við árstíma, er þetta óvenju- legt ástand. Hinsvegar fer fsinn held- ur bráðnandi. Samúel Jóhannsson prentari - Eyjafjörður: Eínstaka bændur ljúka fyrri slætti Gras sprettur úr sér og hey hrekjast vestanlands HEYSKAPUR heftir gengið vel á norðan- og austanverðu landinu í sumar og hafa einstaka bændur í Eyjafirði lokið fyrri slætti. Um helgina tókst bændum á Suðurlandi að hirða eitthvað, en á vestan- verðu landinu eru hey að hrekjast. Heyskapur hefur gengið prýðis- vel í innanverðum Eyjafirði að sögn Ólafs Vagnssonar ráðunautar hjá Búnaðarsambandi Eyjafjarðar. Margir eru langt komnir og ein- staka bændur hafa lokið fyrri slætti. Ekki taldi Ólafur að hey væra mikil, grasspretta hefði verið léleg vegna þurrka. Heyskapur er skemmra á veg kominn út með fírði, þar er sláttur þó víða að byrja. Jón Vilmundarson ráðunautur hjá Búnaðarsambandi Suðurlands sagði að flestir bændur væra byij- aðir, en skammt á veg komnir. Gróður hefði verið seinn að taka við sér og það væri fyrst núna sem sláttur gæti almennt hafíst. Taldi hann að heyskapur væri nú um það bil hálfum mánuði á eftir miðað við meðalár. Óþurrkar hafa hrjáð Sunn- lendinga en margir náðu einhverju þurrheyi í hlöðu um helgina. Þeir sem verka vothey era lengra komn- ir. í Borgarfírði er víða farið að slá, en lítið hefur tekist að þurrka, að sögn Þorsteins Þorvarðarsonar ráðunautar hjá Búnaðarsambandi Borgarfjarðar. Sagði hann að hey væra að hrekjast og mætti búast við að eitthvað eyðilegðist vegna ótfðar. Taldi Þorsteinn að gras væri sums staðar úr sér sprottið. Þeir sem eiga rúlluvélar hafa getað stundað heyskapinn nokkurn veg- inn óháð veðri. Heyskapur gengur vel á Austur- landi enda hefur veðrið verið til þess, að sögn Þorsteins Bergssonar ráðunautar hjá Búnaðarsambandi Austurlands. Lengst era bændur syðst á búnaðarsambandssvæðinu komnir en bændur nyrst á svæðinu era rétt að hefja slátt. Á Austur- landi, eins og víðar, er rúllubagga- verkunin mikið í tísku og sagði Þorsteinn að margir bændur hefðu hug á að kaupa sér tæki til hennar. Morgnnblaðið selt í 50.382 eintökum Á TÍMABILINU mars, apríl og maí á þessu ári seldust að meðaltali 50.382 eintök af Morgunblaðinu á dag. Á þriggja mánaða tímabili, desember 1988 til febrúar 1989, seldist Morgunblaðið í 50.130 eintök- um að meðaltali á dag en 50.382 eintökum á tímabilinu mars til mai eða 252 fleiri eintökum. Trúnaðarmaður upplagseftirlits Verslunar- ráðs íslands staðfestir þessar sölutölur eftir að hafa sannreynt þær í samræmi við reglur eftirlitsins. Í fréttatilkynningu frá Verslun- arráði íslands kemur fram eftirfar- Samúel Jóhanns- son prentari látínn SAMÚEL Jóhannsson prentari lést í Landspítalanum síðastlið- inn laugardag, 83 ára að aldri. Samúel fæddist í Reykj’avík 19. september árið 1905, sonur hjón- anna Jóhanns Á. Jóhannssonar og Jónínu B. Jónsdóttur. Hann hóf nám í prentiðn f prentsmiðjunni Acta 20. október árið 1920 og vann þar að námi loknu fram til ársins 1928. Það ár réðst hann til ísafold- arprentsmiðju og vann-þar að-setn- ingu Morgunblaðsins og síðar í prentsmiðju blaðsins frá því hún var stofnuð og þar til hann lét af störf- um árið 1976. Hann vann því við prentun Morgunblaðsins í 48 ár. Samúel átti sæti í stjórn Hins íslenzka prentarafélags í fjögur ár, frá árinu 1934 til 1938. Samúel kvæntist árið T930, Alettu Soffíu Knútsdóttur Mjátveit frá Noregi er lést árið 1982. Þau eignuðust þrjú börn. andi: „Morgunblaðið er nú eina dagblaðið sem notar sér þessa þjón- ustu, en hún stendur öllum dag- blöðunum til boða. Tilgangur eftir- litsins er að marka heilbrigðan grundvöll fyrir viðskiptasamkeppni dagblaðanna og notkun auglýsenda á þessum fjömiðlum. Upplýsingar frá upplagseftirliti dagblaða era sendar út á þriggja mánaða fresti til fjölmargra aðila, sem fréttir og þjónustutilkynningar. Jafnframt er svarað daglega inn- lendum og erlendum fyrirspurnum um upplag dagblaða annars vegar og annarra blaða og tímarita hins vegar. En fjögur tímarit og tvö vikublöð nota sér þessa þjónustu um þessar mundir, í aðskildu eftir- liti með upplagi tímarita og viku- blaða, þar með byggða- og lands- .málablaða semKoma.reglulegá út.“.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.