Morgunblaðið - 18.07.1989, Qupperneq 12
h.2
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLÍ 1989
í fílabeinstumi fé-
lagshyggjunnar
eftir Halldór Blöndal
Steingrímur Hermannsson hefur
sagt, að hann hafi verið í fílabeins-
turni, þegar ríkisstjómin var mynd-
uð. Ég get vel ímyndað mér, að þar
uppi sýnist margt auðvelt, sem vefst
fyrir á jörðu niðri. Að minnsta kosti
hefur lítið orðið úr þeirri endursköp-
un atvinnulífsins, sem heitið var við
stjórnarskiptin. Þá átti að aga menn
í sjávarútvegi og knýja þá til sparn-
aðar, m.a. með því að skrá gengið
of hátt, þannig að óþörf fyrirtæki
og illa rekin yrðu tekin til gjald-
þrotaskipta. Það var opinbert mark-
mið ríkisstjórnarinnar að halda fyr-
irtælqum í þeirri spennitreyju, að
yfirvinna yrði helst ekki unnin og
yfirborganir heyrðu sögunni til. A
hinn bóginn þótti nauðsynlegt að
þyngja skatta. Þannig voru stuðn-
ingsmenn ríkisstjórnarinnar á Al-
þingi önnum kafnir við það á jóla-
föstu að taka til baka margvíslegar
umbætur í skatta- og atvinnumál-
um, sem okkur Sjálfstæðismönnum
hafði tekist að knýja fram undir
forystu Þorsteins Pálssonar.
En þessi draumsýn ofan úr fíla-
beinstuminum breyttist í martröð á
jörðu niðri. Nýja atvinnumálastefn-
an hrandi eins og spilaborg. Rekst-
ur fyrirtækja hélt áfram að þyngj-
ast og lífskjör versnuðu. Atvinnu-
leysi færðist í vöxt. Þótt skrýtið sé
hefur þessi þróun valdið því, að
ýmsir líta atvinnuleysi öðram aug-
um en áður og virðast ekki skynja
þann persónulega harmleik, sem því
fylgir oft á tíðum. Það er eitt að
reikna atvinnuleysistölur á blaði og
annað að verða fyrir barðinu á því.
Ríkisstjórnin hefur reynt að
skjóta sér undan vandanum með
því að færa tii ijármuni í þjóðfélag-
inu. Þannig er Atvinnutryggingar-
sjóði útflutningsgreina ætlað að
hjálpa fyrirtækjum, sem ekki hafa
staðist þá áraun, sem stjómarstefn-
unni fylgir. Og þegar það hefur
ekki dugað kemur Hlutabréfasjóður
til skjalanna. Og svo er aftur farið
í Atvinnutryggingarsjóð útflutn-
ingsgreina. Auðvitað getur þetta
ekki gengið nema skamma hríð.
Auðvitað getur íslenska velferðar-
þjóðfélagið ekki staðist nema vel
rekin fyrirtæki í sjávarútvegi skili
góðum hagnaði.
Hvað þýðir viðunandi?
Þegar kjarasamningarnir vora
gerðir í vor lofaði ríkisstjórnin því
með meira, að sjávarútvegurinn
fengi „viðunandi" stöðu á samn-
ingstímanum. Ég leyfi mér að skilja
orðið „viðunandi" svo í þessu sam-
hengi, að það merki, að vel rekið
fyrirtæki í sjávarútvegi skili góðum
hagnaði. Til þess hljótum við að
ætlast, þar sem engin önnur at-
vinnugrein hefur skilað jafnmikilli
arðsemi frá ári til árs eins og ein-
mitt sjávarútvegurinn. Þó linnir
ekki fullyrðingum um að offjárfest-
ing í sjávarútvegi sé meiri en í öðr-
um atvinnugreinum. Þessar fullyrð-
ingar eiga upþrana sinn í fílabeins-
turnum skriffinnskunnar sunnan
fjalla.
Þar sem ég treysti ekki bréflega
loforði ríkisstjómarinnar um, að
hún myndi gera ráðstafanir til að
staða sjávarútvegsins yrði viðun-
andi á samningstímanum spurði ég
forsætisráðherra hvemig hann
hygðist efna loforðið: Ætlaði hann
að reyna að sjá til þess, að sam-
keppnisstaða sjávarútvegs yrði við-
unandi allan samningstímann? Eða
hugsaði hann sér, að hún yrði viðun-
andi einhvem tíma í haust eða dag-
stund aðeins einhvern tíma á samn-
ingstímabilinu, — t.d. þegar flest
skip væra búin að veiða upp í kvót-
ann?
Ég hafði satt að segja vonast
til, að forsætisráðherra eða þá í
hinu fallinu sjávarútvegsráðherra
gæfu einhver svör um það, hvernig
þeir hygðust standa við fyrirheit sín
við sjávarútveginn. En við spurn-
ingum mínum fékkst ekkert svar.
Aðeins svartamyrkur eða Aust-
íjarðaþoka. Þó kom fram, að ráð-
herrarnir töldu BSRB-samningana,
sem þeir sjálfir gerðu, verðbólgu-
samninga, sem atvinnuvegimir
gætu ekki risið undir. Og forsætis-
ráðherra tæpti á því, að gengið
héldi áfram að falla til áramóta.
Vinstri menn eru við völd
Ríkisstjórnin er „vinstri stjóm“,
þótt ráðherrarnir og Stefán Val-
geirsson kalli hana „félagshyggju-
syórn“. Þeir vissu, að íslendingum
Halldór Blöndal
„En þessi draumsýn of-
an úr fílabeinsturninum
breyttist í martröð á
jörðu niðri. Nýja at-
vinnumálastefhan
hrundi eins og spila-
borg. Rekstur fyrir-
tækja hélt áfram að
þyngjast og lífskjör
versnuðu.“
hefur aldrei fallið við vinstri stjórn-
ir, en nú bendir flest til að þeim
falli enn verr við félagshyggju-
stjórnir. Jónarnir í ríkisstjórninni
segja, að það sé gott, af því að ís-
lendingar þurfi á óvinsælum ríkis-
stjórnum að halda. íslendinga skorti
sjálfsgagnrýni Jónanna.
Óvinsældir ríkisstjórnarinnar era
sérdeilis eftirtektarverðar í ljósi
þess, að allir fjölmiðlar standa gal-
opnir fyrir henni. Ráðherrarnir era
að verða heimilisplága þar sem
mikið er horft á sjónvarp. Og ef
maður spyr fjölmiðlamann: „Af
hveiju svona mikið og svona oft?“
er viðkvæðið jafnan hið sama: „Það
sem ráðherra segir er frétt, en það
sem aðrir segja er ekki eins mikil
frétt.“ í sumum trúarbrögðum er
því beinlínis slegið föstu að áhang-
endur þeirra skuli styðja yfirvöldin
á hveijum tíma og halda frið við
ríkisstjórnina. Þetta er að verða
mikil trúarsetning í fjölmiðlafræði
nútímans hér á Islandi.
Dr. Hannes Hólmsteinn Giss-
urarson skrifaði athyglisverða grein
í DV sl. mánudag sem bar heitið
„Sjálfstæðisflokkurinn og fjöl-
miðlarnir". Þar segir m.a.: „Fásinna
væri að ætlast til þess af DV og
Morgunblaðinu að þau yrðu dygg
fiokksblöð. Skyldur þeirra era við
kaupendur, ekki Sjálfstæðisflokk-
inn. Það er fagnaðarefni að þau eru
ekki á neinum flokksklafa. í stað
þess að nöldra ættu sjálfstæðis-
menn að notfæra sér að þessi blöð
eru þeim opin eins og öðram.“
Ég tel nauðsynlegt að draga þessi
ummæli lektorsins fram. Eg tek
undir, að það er siðlaust, að ríkis-
stjórn, sem klifar á því daginn út
og daginn inn, að nauðsynlegt sé
að sýna sparnað og aðhald í ríkis-
rekstrinum, skuli halda úti fjórum
dagblöðum, — fjórum flokksmál-
gögnum, — að verulegu leyti á ríkis-
ins kostnað. Það er hvorki hollt
fýrir viðkomandi blaðamenn né
stjórnmálamenn. Ég rakst á gott
dæmi um þetta nú í Pressunni. Þar
er þráfaldlega gefið í skyn, að
Hannes Jónsson sendiherra hafi
lekið trúnaðarapplýsingum, sem
hafi átt að koma honum vel en ut-
anríkisráðherra illa. Það þarf ekki
að taka fram, að Pressan er flokks-
málgagn Alþýðuflokksins og ut-
anríkisráðherra formaður Alþýðu-
flokksins, en Hannes Jónsson sendi-
herra er-ekki fyrrverandi formaður
Alþýðuflokksins.
Höfundur er þingmaður
Sjálfstæðisflokksins á Norðurlandi
eystra.
Grunnskólinn í Stykkishólmi.
Stykkishólmur:
Tvær framhaldsdeildir
við grunnskólann
Stykkishólmi.
Menntamálaráðuneytið hefir samþykkt að næsta vetur verði tvær
framhaldsdeildir við Grunnskólann í Stykkishólmi. Er almennur
fógnuður bæjarbúa yfir þessum merka áfanga. Nú þegar liggja
fyrir um 40 umsóknir um skólavist þannig að hver deild hefir 20
nemendur og fleiri umsóknir eru í augsýn og því ekki annað sýnt
en Jiessar deildir verði með glæ
A vorönn vora 20 nemendur í
framhaldsdeild hér og þegar önnur
bætist nú við skapar það foreldrum
mikil útgjöld að geta haft ungling-
ana heima í námi. Því það er ekki
íjarri lagi að nám í Reykjavík kosti
250 þúsund kr. á nemanda.
Frá haustinu 1976 hefir verið
framhaldsdeild hér við skólann og
gefist vel. Það era ekki allir sem
gera sér næga grein fyrir mikil-
vægi þessa fyrir ungt fólk hér,
ekki aðeins í félagslegu og faglegu
tilliti, heldur einnig fjárhagslegu.
Frá 1976 hafa um 200 nemendur
verið hér í skólanum í fullu fram-
haldsnámi.
Nú er aðstaða til skólahalds í
Stykkishólmi óvenjulega góð. Skól-
inn er í nýju og rúmgóðu húsnæði
og það er ekki langt í að hin glæsi-
lega íþróttamiðstöð komist í gagn-
ið.
Nægur kennslukraftur er einnig
fyrir hendi og í könnun, sem ný-
lega var gerð meðal nemenda á
fyrsta ári, kom fram að 16 nem-
endur, sem nú era í framhalds-
deild, munu stunda námið hér
heima á næsta vetri verði þess
kostur.
Lúðvíg Halldórsson skólastjóri,
sem hefir ásamt bæjarstjóra beitt
sér mjög fyrir þessum áfanga í
skólamálum Stykkishólms, var
mjög ánægður þegar fréttaritari
hitti hann að máli. Þetta er stórt
skref, sagði hann, og mesta gleðin
hversu foreldrar era'ánægðir með
þetta og styðja af heilum hug. Það
er ekki lítils virði að bæði nemend-
ur og foreldrar standa með okkur
í þessu. Og vel kemur til mála að
bjóða nágrönnum okkar til sam-
starfs um þessa framhaldsdeild,
sagði skólastjóri, sem býr sig nú
undir ásamt kennaraliði að í haust
megi þessi áfangi byija með glæsi-
brag.
- Árni
Helgi Hálfdanarson:
Þorsteinn og
Jóhann Sebastían
Vini mínum Þorsteini Gylfasyni
hefur einatt verið upp sigað við
sakleysingjann mig. Éinkum ber
hann mér á brýn grimmilegt hatur
á mönnum og málefnum. Hér um
árið hélt hann því fram í Morgun-
blaðinu að ég hataði Jóhann heit-
inn Sebastían Bach meira en aðra
menn lífs og liðna. Og núna á
dögunum kallar hann svo í sama
blaði, að ég hati og fyrirlíti stærð-
fræði af miklum móði, og kveðst
vitna þar í einkabréf.
Nú er mér reyndar ekki ljóst,
hvers vegna ég ætti að hata þessi
tvö fyrirbæri. Hví skyldi mér vera
í nöp við Jóhann þennan, þó að
ég hafi kallað hann leiðinlegan
formalista, en dýrki hins vegar
Loðvík blessaðan Beethoven af
alefli? Það er satt, að mér þykir
meira koma til listdansara en
akróbata, hversu fimlega sem
þeir síðar nefndu ólmast upp um
alla veggi. Eins hefur bjarminn
af sálarkviku Beethovehs heillað
mig meir en formtiktúrur Bachs,
sem opinbera mér fátt annað en
krumsprang þeirra sjálfra kring-
um sjálfar sig. Þó vantar ekki að
tilgerðin standi þar á blístri af
yfirlæti, svo að oftar en ekki eru
verkin vandflutt, enda sérstakt
eftirlæti tónlistarflytjenda.
Þegar ég heyri verk eftir Bach,
finnst mér ég vera að hlusta á
hugvitsamlega ortan sonnettu-
sveig, þar sem Dante-rímaðar
tersínur spinna sig upp úr átt-
hendum af Petrarca-gerð og
slöngva sér inn í hveija brag-
þrautina af annarri með listilegum
tilburðum. En efnið í þessu meist-
ara-víravirki jafngildir skilagrein
fyrir því, hvernig Bergsætt og
Skútustaðaætt flækjast saman í
Bólstaðahlíðarættinni. Og satt að
segja finnst mér sem skáldlegra
viðfang hæfði betur þvílíkum til-
þrifum í formi.
Spænska skáldið Lope de Vega
orti á sínum tíma mjög haglega
gerða sonnettu, sem að efni til
er lýsing á því, hvernig sonnetta
skuli ort, svo að öllum kröfum
formsins sé fullnægt. Þetta ljóð
hefði Jóhann okkar Sebastían
getað ort.
En góðskáld um víða veröld
hafa fyrr og síðar ort vandlega
formuð Ijóð, svo hrífandi að efni,
að við lestur þeirra getur formið
gleymzt, svo ísmeygilega sem það
þó fylgir efninu fram. Slík skáld
minna mig stundum á Beethoven,
en aldrei á Jóhann sáluga.
Þorsteinn segir að Bach sé að
minnsta kosti stundum svo fjörug-
ur, að sig langi til að dansa eftir
hans nótum. Ekki er mér, Ijóst
hvaða húlahopp Þorsteinn vilí iðka
með Sebastían sem undirleikara,
en þeir væru vísir til að koma sér
saman um að kalla það listdans.
Hafi ég nokkurn tíma hatað
lifandi vera, þá var það brokk-
gengur klárskratti, sem ég var
samtíða í barnæsku. Ég þurfti
iðulega að ríða þessari skepnu,
sem var svo níðhöst á brokkinu,
að mig verkjar í gjörvallan
skrokkinn þegar ég hugsa til þess.
Og það er segin saga, að Jóhann
Sebastían minnir mig á þetta
brokkdýr, þegar hann tekur til við
dansmúsíkina handa Þorsteini.
Rétt mun það vera, að ég hafi
einhvern tíma stungið upp á því
við Jóhann Sebastían, að hann
sneri sér heldur að stærðfræði og
legði dansmúsík þeirra Þorsteins
á hilluna. En þarflaust var að
álykta af því, að -ég hataði og
fyrirliti stærðfræði. Það er nú
öðra nær; ég ber hyldjúpa virð-
ingu fyrir stærðfræði, enda þekki
ég allt of lítið til hennar til þess
að geta fyrirlitið hana. Hins vegar
hef ég andmælt við Þorstein þeirri
firra, að stærðfræði sé kölluð list-
grein, þó að hún sé stórmerkileg
á sína vísu. Mig minnir ég hafi
einhvern tíma á góðri stund hald-
ið að Þorsteini þeirri kenningu,
að stærðfræði og list væra pólar
mannlegrar snilli, því stærðfræði
væri aðferð til að hugsa út fyrir
skilning sinn, en list væri aðferð
til að skilja út fyrir hugsun sína.
í þessu líkri tóntegund höfum
við Þorsteinn stundum skrifazt
á, og má hver sem er taka það
svo hátíðlega sem hæfa þykir,
þegar Þorsteinn finnur upp á að
flíka því í blöðunum.
Leiðrétting firá
Morgunblaðinu
Með greininni Hversu langt?,
sem birtist í síðasta sunnudags-
blaði Morgunblaðsins, féll niður
nafn höfundar, sem er Helgi Hálf-
danarson. Því miður lenti í grein-
inni prentvilla af versta tagi, auð-
fúsugestir fyrir aufusugestir.