Morgunblaðið - 18.07.1989, Side 34
34
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLÍ 1989
Margir
með kvef í
júmmánuði
Þrálát magakveisa
þjakar bæjarbúa
HÁTT í hundrað manns máttu
búa við kvef og hálsbólgu í
sólríkasta júnímánuði til fjölda
ára, að því er fram kemur í
skýrslu um smitsjúkdóma.
Þeir voru alls 193 sem skráðir
voru með kvef eða hálsbólgu í
. síðasta mánuði og 53 voru skráðir
með inflúensu. Þá voru 17 með
streptokokkahálsbólgu í júnímán-
uði síðastliðnum.
Langvinn magakveisa hefur
þjakað Akureyringa allt frá því í
fyrrahaust og í síðasta mánuði
skráðu læknar á Heilsugæslustöð-
inni 74 magaveika einstaklinga.
Sóldýrkendur í Sundlaug Akureyrar.
Ferðamenn þyrpast á Norðurlandið:
Morgunblaðið/KGA
Met slegin á tjaldstæðum
Fleiri ferðamenn en flugur í Mývatnssveit
FERÐAMENN þyrptust til Norðurlands um helgina og á þeim fjald-
stæðum þar sem Morgunblaðið kannaði málið voru sett met hvað
varðar fjiilda tjalda. Ferðamannastraumurinn fór rólega af stað í
sumarbyrjun, en er nú kominn á fúllt skrið og voru tjaldstæðaverð-
ir sammála um að hámarkinu hefði verið náð um síðustu helgi.
í Ásbyrgi voru yfir 300 manns á stæðisins um helgina. Þá voru einn-
laugardagskvöldið og að sögn land-
varðar þar hafa ekki svo margir
verið þar saman komnir í fjölmörg
ár. Meðal annars voru á ferðinni
starfsmenn Hitaveitu Akureyrar og
þá komu einnig þrír erlendir ferða-
mannahópar í Ásbyrgi.
Á tjaldstæðinu á Akureyri var
einnig slegið met um helgina, en
þar var skráður 391 gestur á laug-
ardagskvöld. Um helgina voru
ríflega eitt þúsund gestir á tjald-
stæðinu. Tjaldstæðavörður sagði að
mikið hefði verið um fólk af Suður-
og Austurlandi, en íslendingar voru
í miklum meirihluta gesta tjald-
ig nokkuð margir Þjóðverjar á ferð-
inni sem stöldruðu við á tjaldstæð-
inu.
Á tjaldstæðinu við Reylq'ahlíð í
Mývatnssveit voru um 270 tjöld,
að sögn Friðriks Dags Arnarsonar
landvarðar. Friðrik sagðist giska á
að því til viðbótar hefðu um 60 tjöld
verið á tjaldstæði hjá Eldey og
nærri 100 á tjaldstæðinu hjá Skútu-
stöðum. Friðrik sagði að þarna
væri um met að ræða, en á laugar-
dagskvöldið og sunnudagsmorgun
var einnig sett met hvað varðar tjöld
sem reist eru ólöglega víðs vegar
um sveitina. Mývatnssveit er nátt-
úruverndarsvæði og þar er ekki
heimilt að tjalda nema á merktum
tjaldstæðum, en engu að síður voru
um 20 tjöld víðs vegar um sveitina
á laugardagskvöld og á sunnudags-
morgun. Þá rákust eftirlitsmenn á
8 tjöld á ferð sinni um sveitina á
sunnudagskvöld, meirihluti þeirra
var í eigu útlendinga eða 7, en á
laugardagskvöld var nokkuð jöfn
skipting á milli íslendinga og út-
lendinga.
Friðrik sagði að hvarvetna þar
sem komið er inn í sveitina væru
skilti þar sem skýrum stöfum stæði
að hvergi mætti tjalda annars stað-
ar en á merktum tjaldsvæðum, en
þó væru ætíð einhverjir sem bæru
því við að hafa ekki vitað af því.
Þá sagði hann einnig erfitt að koma
í veg fyrir að fólk færi út af merkt-
um gönguslóðum við Skútu-
staðagíga og Dimmuborgir. Landið
væri þar mjög viðkvæmt og væru
komnar djúpar slóðir víða við
Skútustaðagíga eftir fólk sem farið
hefði út fyrir merkta göngustíga.
„Um daginn sáum við þýska ellilíf-
eyrisþega vinda sér undir kaðlagirð-
ingarnar við stígana, það var alveg
ótrúlegt,“ sagði Friðrik.
Hann sagði að ferðamenn væru
fjölmargir í Mývatnssveit og á vin-
sælum stöðum sæist vart í landið
fyrir fólki. „Ferðamennimir em
talsvert miklu fleiri en flugurnar."
Sjávarútvegsdeild:
Fimmtán
umsóknir
komnar
FIMMTÁN umsóknir hafaborist
um nám við sjávarútvegsdeild
við Háskólann á Akureyri, en
umsóknarfrestur rann út á
fostudag í síðustu viku.
Jón Þórðarson forstöðumaður
deildarinnar sagði undirtektir góð-
ar, en einungis hefði verið auglýst
eftir stúdentum í tveimur litlum
auglýsingum. Hann sagðist vita
til þess að fleiri umsóknir væru á
leiðinni og einnig hefðu nokkrir
sett sig í samband við skrifstofu
skólans og lýst yfir áhuga sínum
á að stunda námið, en gætu ekki
sent inn umsóknir þar sem þeir
væru á sjó.
Jón sagði að umsækjendur væru
úr öllum landshlutum og dreifingin
væri nokkuð jöfn yfir landið. „Ég
á von á að langflestir þeirra sem
sóttu um fái inngöngu,“ sagði Jón.
Garðyrkjufélag Akureyrar:
Viðurkenningar fyrir garða
GARÐYRKJUFÉLAG Akureyrar veitti á laugardag árlegar viður-
kenningar til einstaklinga og fyrirtækja fyrir snyrtilegar lóðir í
bænum. Viðurkenningarnar voru veittar í Eyrarlandsstofú í Lysti-
garði, en á sunnudag var þeim sem áhuga höfðu boðið að skoða
garðana.
Að þessu sinni hlutu viðurkenn-
ingu þau Jakobína Á. Magnúsdóttir
og Garðar B. Ólafsson fyrir garð
sinn á Eyralandsvegi 27. Um garð-
inn segir í áliti dómnefndar, að
garðurinn sé gamall, sígildur og vel
við haldið. Áberandi snyrtilegur og
vel hirtur og sérstaka athygli veki
bjarmasóley sem klifrar um veggi
' hússins.
. Þprgerður Guðlaugsdóttir og
Halldór Jórisson fengu viðurkenn-
ingu fyrir garð sinn á Flötusíðu 3,
nýlegán en fullfrágenginn garð þar
sem einfaldleiki og smekkvísi ráða
ríkjum, eins og segir í áliti dóm-
nefndar. Þar segir einnig að garður-
inn sé einstaklega vel hirtur enda
þannig gerður að hann er auðveldur
í umhirðu og við nánari skoðun
veki plöntuval athygli.
Þrír garðar hlutu endurviður-
kenningu, Lyngholt 17, garður
Hermanns Jónssonar og Helgu
Hilmarsdóttur, Langahlíð 16, garð-
ur Stellu Sigurgeirsdóttur og
Tryggva Gunnarssonar, og Kringlu-
mýri 35, garður Kolfínnu Sig-
tryggsdóttur. og Símonar Inga
Gunnarssonar.
Þá fékk Akureyrarbær_ viður-
kenningu fyrir umhverfi íþrótta-
hallarinnar við Þórunnarstræti, en
um það segir, að sérstakt samspil
gróðurs og húss veki athygli þannig
að það hefji hvort annað upp. Að-
koma að húsinu er einkar aðlaðandi
og greinilegt að starfsmenn hússins
leggi metnað sinn í að halda um-
hverfi hússins snyrtilegu, segir um
Iþróttahöllina.
Plasteinangrun hf. á Óseyri 3
fékk viðurkenningu fyrirtækis að
þessu sinni og um það segir: Iðnað-
arfyrirtæki þar sem gengið hefur
verið frá athafnasvæði á einfaldan
hátt. Umgengni umhverfis fyrir-
tækið er til fyrirmyndar.
Kaupangur, verslunar og þjón-
ustumiðstöð við Mýrarveg fékk
einnig viðurkenningu og segir í
umsögn dómnefndar að umhirða
lóðarinnar sé til fyrirmyndar og
stuðli að góðri umgengni almenn-
ings um svæðið. Sérstaklega hafi
verið hugsað um umferð gangandi
fólks.
Morgunblaðið/KGA
Sr. Pétur settur í embætti
Séra Pétur Þórarinsson var settur í embætti sóknarprests í Glerár-
prestakalli og fór athöfnin fram í Glerárkirlq'u á sunnudag. Það
var sr. Birgir Snæbjörnsson prófastur í Eyjagarðarprófastsdæmi
sem setti sr. Pétur í embætti. Við athöfnina söng kirkju kór Glerár-
kirkju meðal annars sálminn í bljúgri bæn, eftir sr. Pétur. Að
athöfninni Iokinni var boðið til kaffisamsætis í kirlg'unni.