Morgunblaðið - 18.07.1989, Blaðsíða 54
54
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLÍ 1989'
Það var þröng á þingi VÍð Gullfoss. Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Þýskir ferðalangar á Suðurlandi:
Strokkur hélt uppi fjöri o g
Gullfoss skartaði regnboga
Selfossi.
STÓR hópur þýsks ferðafólks,
um 900 manns úr tveimur
skemmtiferðaskipum, kom að
Gullfossi og Geysi siðastliðinn
fimmtudag 13. júlí. Fólkið gekk
um Geysissvæðið og virti fyrir
sér það sem fyrir augu bar af
miklum áhuga, bæði stórt og
smátt. Umhverfí Gullfoss hafði
ekki síðri áhrif á fólkið enda
veður hið fegursta.
Gamli Geysir lét ekki mikið
yfir sér, sparaði kraftana fyrir
afmælisgos Ferðamálaráðs. Hins
vegar hélt Strokkur uppi fjöri á
Geysissvæðinu og laðaði að sér
fólkið með fallegum gosum. Fjöldi
myndavéla var á lofti fyrir hvert
gos oþr allir reyndu að ná mynd
af tignarlegum gosum. Sumir
hættu sér of nærri, en fengu þá
yfir sig þéttan úða frá gosunum
og þóttust eiga fótum fjör að
launa.
Á hverasvæðinu vöktu smá-
hverir athygli margra og fólk
kannaði gjarnan hitastigið í
smásprænum. Eftir gönguferð um
svæðið snæddi fólkið hádegisverð
á Hótel Geysi en hélt síðan að
Gullfossi.
Gullfoss skartaði fallegum
regnboga enda skein sól í heiði
þennan fyrsta dag hundadaga.
Fólkið dreifðist um kletta og syll-
ur í nágrenni fossins og þeir
sprækustu fóru alveg niður að
fossinum. Athyglisvert var að
fólkið notaði frekar moldarstíga i
brekkunum þar sem komið er að
fossinum, en ekki tilbúinn
göngustíg sem þar er enda er sá
erfiður yfirferðar.
Ekki var annað að sjá en fólkið
kynni vel að meta þessar náttúru-
perlur Suðurlands sem skörtuðu
sínu fegursta þennan dag.
— Sig. Jóns.
Allir reyndu að ná mynd af gosi í Strokki.
Stykkishólmur;
Ferðamálaráð kynn-
ir starfsemi sína í til-
efiii 25 ára afinælis
Stykkishólmi.
Ferðamálaráð íslands á um
þessar mundir 25 ára afmæli. I
tileftii af því var starfsemin
kynnt í Stykkishólmi þar sem
fi*éttamenn voru boðaðir til
fimdar á Hótel Stykkishólmi.
Sigurður Skúli Bárðarson hótel-
stjóri, sem hefir tekið þátt í starf-
semi ráðsins undanfarin ár, sagði
að mikið hefði verið að gera á
hótelinu í vor en áhyggjuefni væri
hversu kostnaður við reksturinn
hefði aukist. En vaxandi sókn á
hótelið sýndi, svo ekki yrði um
villst, árangur af starfsemi Ferða-
málaráðs.
Á fundinum var staddur Dieter
Wendel Johannsson, umboðsmað-
ur Ferðamálaráðs í Evrópu með
búsetu í Frankfurt, en hann hefir
gert gífurlegt átak til landkynn-
ingar. Upplýsingaskrifstofan hef-
ur verið rekin í Frankfurt frá árinu
1984 og hefur hún margsannað
gildi sitt, enda þjónar hún öllu
meginlandi Evrópu. Samstarf við
Norðurlandaþjóðirnar hefur aldrei
verið meira. Þá má nefna að sam-
Z'
eiginlegt markaðsátak í V-Þýska-
landi hefir skilað miklum árangri.
Ferðamálaráð hefur stofnað
ferðamálasamtök víða um land sl.
5 ár og hefir starfsemi þeirra látið
margt gott af sér leiða. Samtök
þessi eiga 6 fulltrúa í Ferðamála-
ráði.
Upplýsingamiðstöð ferðamála
var stofnuð 1986 að tilstuðlan
Ferðamálaráðs í samvinnu við
ferðamálasamtökin og ferðamála-
nefnd Reykjavíkur. Þá hafa farið
fram viðræður milli Ferðamála-
ráðs og Útflutningsráðs íslands
með framtíðarsamstarf og ha-
græðingarsjónarmið í huga. Sam-
starf Ferðamálaráðs við flugfélög-
in, ferðaskrifstofurnar, hótelsam-
tökin og sveitarstjórnir um kynn-
ingarmál eru í stöðugri aukningu.
Ferðamálaráð hefur haldið
ferðamálaráðstefnur um margra
ára skeið m.a. í Vestmannaeyjum,
Reykjavík og á Akureyri. Vegna
fjárskorts hefur útgáfustarfsemi
Ferðamálaráðs verið í algjöru lág-
marki.
- Árni
Dieter Wendel Johannsson með Ijölmiðlafólki á tröppum Hótels
Stykkishólms.
Úlfljótsskáli í Grafii-
ingi tekinn í notkun
Verður menningar- og þjónustumið-
stöð fyrir stoftianir borgarinnar og
starfsmannafélag hennar
Selfossi.
ÚLFLJÓTSSKÁLI í Grafningi var
formlega tekinn í notkun 13. júlí
síðastliðinn. Skálinn er byggður
^em þjónustumiðstöð fyrir íbúa í
orlofshúsum Starfsmannafélags
Reykjavíkurborgar á Úlfljótsvatni
en auk þess er þar aðstaða til
gestamóttöku og námskeiðahalds.
Skálinn er sameign borgarsjóðs,
Starfsmannafélags Reykjavíkur-
borgar og Rafinagnsveitu
Reylyavíkur.
Húsinu er jafnframt þjónustumið-
stöðvarhlutverkinu ætlað að þjóna
Reykjavíkurborg, stofnunum hennar
og starfsmannafélaginu með aðstöðu
fyrir margs konar fundahöld, ráð-
stefnur, námskeið, eftirmenntun og
mannfagnaði.
Úlfljótsskáli er einnar hæðar timb-
urhús á steyptum kjallara. Á aðalhæð
er rúmgóður salur sem skipta má í
þrennt og setustofa er á svalalofti. Á
aðalhæðinni er húsvarðaríbúð, eldhús
með afgreiðslu og rúmgott anddyri
ásamt snyrtiherbergjum. í kjallara
eru gufuböð, hvíldarherbergi, leik-
herbergi, sjónvarpsherbergi, verk-
stæði, geymslur og tæknirými. Húsið
er alls 678 fermetrar.
Skálinn er staðsettur miðsvæðis
miðað við framtíðarskipulag landsins
utan í hól þar sem útsýni er gott.
Ákvörðun um byggingu Úlfljótsskála
var tekin af borgarráði 23. september
1986. Fyrsta skóflustungan að hús-
inu var tekin 25. mars 1988. Heildar-
kostnaður við bygginguna nemur
rúmlega 61 milljón króna.
Við athöfn í skálanum er hann var
tekinn í notkun flutti Davíð Oddsson
borgarstjóri ávarp þar sem hann gat
þess meðal annars að það færi vel á
því að taka húsið í notkun á afmælis-
degi Haraldar Hannessonar formanns
starfsmannafélagsins sem verið hefði
eldhugi í uppbyggingunni á staðnum.
Haraldur Hannesson rakti sögu
uppbyggingarinnar í ávarpi og gat
þéss meðal annars að starfsmannafé-
laginu hefði verið afhent svæðið til
endurgjaldslausra afnota árið 1967.
I máli hans kom fram að mikil sjálf-
boðavinna hefur verið innt af hendi
við úppbygginguna, vatns- og skólp-
lagnir lagðar og alls 6.500 tijám
plantað. „Við eigum hér perlu sem
fólk mun kunna að meta. Ef þið eruð
ekki viss skuluð þið leggjast í lyngi
vaxna laut og finna angan móður
Menningar- og þjónustumiðstöðin Úlfljótsskáli í Grafningi.
jarðar sem hefur alið ykkur,“ sagði
Haraidur og sagði skálann vera höll
sumarlands starfsmannafélagsins.
Hann flutti Davíð Oddssyni borgar-
stjóra sérstakar þakkir fyrir stórhug
hans gagnvart byggingunni. „Davíð
er engum líkur í þessu efni,“ sagði
Haraldur.
Starfsmannafélaginu voru afhent-
ar gjafir og heillaóskir í tilefni dags-
ins. Ögmundur Jónasson afhenti
bókagjöf frá BSRB, Gunnar Eydal
skrifstofustjóri borgarstjóra færði
félaginu kort af gönguleiðum í ná-
grenninu, Einar Olafsson formaður
Starfsmannafélags ríkisstofnana af-
henti klukku í húsið og Sjöfn Ingólfs-
dóttir varaformaður Starfsmannafé-
lags Reykjavíkur flutti Haraldi Hann-
essyni þakkir frá félagsmönnum fyrir
atorku hans við uppbygginguna og
afhenti honum gjafir í tilefni afmælis
hans. .Sig. Jóns.
Haraldur Hannesson
formaður og Davíð
Oddsson borgarstjóri
fyrir framan Úlfljóts-
skála.
Morgúnblaðið/Sigurður Jónsson