Morgunblaðið - 21.11.1989, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 21.11.1989, Qupperneq 12
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIDJUDAGUR 2i. NÓVEMBER 1989 Galdrastafir Siguijóns ________Myndlist_______________ Bragi Ásgeirsson Það er alltaf eitthvað að gerast í safni Siguijóns Ólafssonar á Laugarnesinu, en þar fer fram margháttuð listastarfsemi, auk þess sem verk hans eru þar til sýnis. Nú hefur verið skipt um verk og áhersla lögð á tímabil málmsk- úlptúra og þar á meðal hina svo- nefndu galdrastafi, auk þess sem til sýnis eru ýmis ný aðföng í formi gjafa, sem að meginhluta koma frá Danmörku. Málmskúlptúrar Siguijóns er afar mikilvægur kafli í lífsverki Siguijóns, og þótt áhrifin kæmu frá svipaðri iðju að utan, þá náði listamaðurinn að setja geð sitt og hugarþel á mjög eftirminnilegan hátt á mörg þessara verka. Gæða þau í sumum tilvikum rammís- lenzku svipmóti, þannig að það var með sanni göldrum líkast. Siguijón Ólafsson var sá TÓLF bækur koma út hjá Bó- kaútgáfú Menningarsjóðs og Þjóðvinafélagsins á þessu ári, m.a. Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags og Sonnettur Wiliiams Shakespeares. Leikritið Haustbrúður eftir Þó- runni Sigurðardóttur er þriðja bók- in í ritröðinni íslensk leikrit. Raftækniorðasafn II. Ritsími og talsími. Almanak Hins íslenska þjóð- vinafélags 1990. Með árbók ís- lands 1987 eftir Heimi Þorleifsson, Andvari 1989. Tímarit Bókaútgáfu Menningarsjóðs og Þjóðvinafélags- ins. Ritstjóri er Gunnar Stefáns- son. Umbúðaþjóðfélagið, Uppgjör og afhjúpun. Nýr framfaraskilningur, eftir Hörð Bergmann. Sonnettur, eftir William Sha- kespeare í þýðingu Daníels Á. íslenzkur myndhöggvari, er að upplagi hneigist einna fyrst að ýmsum tilraunum í framúrstefnu. Áður hafði hann náð frábærum árangri i hinu sígilda handverki og kunni m.a. þá list að stækka verk og fékkst ýmislegt við þá iðju í Danmörku eins og kunnugt er. Fékk því miður of fá slík verkefni hér heima, meðan hann var við góða heilsu — til þess var hann of langt á undan samtíðinni í myndverkum sínum og þá raunar einnig úti í Danmörku á árum sínum þar. Mörg verka hans og þá hvort heldur í málmskúlptúr eða öðrum tímabilum listar hans eru mjög vel fallin til stækkunar og myndu sóma sér víða, svo sem fram kem- ur í þeim mörgu myndum, sem þegar hafa verið settar upp og mikil prýði er að. Það var helst eftir að heilsunni hrakaði og svo er árin færðust yfir, að hann fékk viðamikil verkefni, sem strax urðu landskunn, svo sem vegginn við Daníelssonar, sem einnig ritar formála og eftirmála. Siðaskiptin I. bindi. Saga evróp- skrar menningar frá Wyclif til Calvins 1300 - 1564, eftir Will Durant í þýðingu Bjöms Jónssonar skólastjóra. Stefán frá Hvítadal og Noregur, eftir Ivar Orgland í þýðingu Steindórs Steindórssonar. Kímni og skop í Nýja testament- inu, eftir dr. Jakob Jónsson. Studia Islandica 47: Um upphaf norsk-íslenskrar sagnaritunar, eft- ir Guðrúnu Lange í samvinnu við Bókmenntastofnun Háskóla Is- lands. Ritið er á þýsku. Studia Historica: Frá goðorðum til ríkja. Þróun goðavaldsins á Is- landi á þjóðveldistímanum, eftir Jón Viðar Sigurðsson í samvinnu við Sagnfræðistofnun Háskóla ís- lands. Ljóðarabb, eftir Svein Skorra Höskuldsson. Píslarvættur/ Martyr 1961, járn og tré 105x55x30. Hallgríms- kirkja í Reykjavík. Búrfellsvirkjunina og skúlptúrana miklu á Hagatorgi og fyrir framan Höfða. Hugarflug Siguijóns, sem var mikið, nýtur sín einkar vel í hinu harða og ósveigjanlega járni. Hann notfærir sé'r efniskennda eiginleika járnsins, um leið og hann mýkir það, svo sem ímyndunaraflið býð- ur, holar það og formar með að- stoð logsuðutækninnar. Það er mikill fengur að þessari sýningu og verkin fara mjög vel í húsnæðinu og þá einkum í salnum gullfallega uppi á lofti. Þessi sýning ásamt aðföngum gera safnið mjög forvitnilegt til heimsóknar og við fleira gott á staðnum bætist mjög eiguleg sýn- ingarskrá, þar sem Aðalsteinn Ing- ólfsson fjallar á fræðilegan hátt um þennan þátt listar hans og nefnir ritsmíð sína „Virkjun rýmis og tilviljun efnis“, og hefur Ánna Yates snarað henni yfir á enska tungu. Er skráin prýdd mörgum mynd- um af verkum og aðföngum, að- faraorð skrifar Birgitta Spur, sem einnig er ritstjóri, svo eru upplýs- ingar um sýningar á verkum lista- mannsins frá upphafi. Skráin er látlaus og falleg og er á allan hátt hið ágætasta upplýs- ingarit um Siguijón Ólafsson og hér hefur prentsmiðjan Oddi gert gott verk. Rétt er að geta þess, að safnið er einungis opið um helg- ar á milli 2 og 6 og á þriðjudags- kvöldum. Bókaútgáfa Menningarsjóðs og Þjóðvinafélagsins: Almanak þjóðvinafélagsins og Sonnettur Shakespeares Eftiileg söngkona __________Tóniist_______________ Jón Ásgeirsson Elsa^Waage hélt sína fyrstu tón- leika í íslensku óperunni sl. laugar- dag og flutti söngverk eftir Bach, Brahms, Strauss,' Bizet, Bowles, Sibelíus, Grieg og fimm íslensk. Undirleikari var John Walter og M.K. Slawek, sellóleikari, aðstoðaði í „Tveir söngvar", op. 91, eftir Brahms. Elsa Waage hefur mikla rödd og hefur þegar aflað sér töluverðrar tækni en skortir enn nokkra reynslu. Rödd hennar er það stór að vel ætti henni að ganga að hasla sér völl sem óperusöngvari. Það er ef til vill nokkuð tæpt og sagan ekki nemá hálfsögð, með því að nema evrópska söngmennt í Ameríku, þó þar sé auðvitað hægt að afla sér góðrar tækni, því óperu- hefð, sem mótast hefur t.d. Vín og á Ítalíu, verður ekki lærð til hlítar nema í samstarfi við þarlenda lista- menn. Elsa Waage á sannarlega erindi í óperuna, svo sem heyra mátti í aukalaginu „Stride la vampa“ úr II trovatore, eftir Verdi. í stuttu máli, þá er rödd Elsu Wa- age óvenju glæsileg og hún þarf aðeins að fá tækifæri, vinna úr þeim í samstarfi við góða listamenn og þá gæti henni orðið mikið úr verki. Fyrsta viðfangsefnið var Nun wird (úr Jólaóratoríunni) eftir J.S. Bach, sem hún flutti ágætlega en í Brahms (Zwei Gesange), Strauss (All mein Gedanken, Nichts og Zueignung) vantaði nokkuð á hina músíköjsku túlkun og raddlegt jafn- vægi. í iögunum eftir Sibelíus og Grieg var söngur hennar góður en Elsa Waage þó sérstaklega í Flickan kom ifrán sin álsklingsmöte og Jeg elsker deg, Fjögur lög, eftir P. Bowles (bandarískt tónskáld, f. 1910), við texta eftir Tennesse Williams, voru einnig vel flutt en í heild voru tón- leikarnir nokkuð jafnir og góðir. Píanóleikarinn John Walter er, eins og margir bandarískir píanó- leikarar, nákvæmur og leikur blátt áfram og hrynfast, en án þeirrar mýktar og sveigjanleika, sem heyra má hjá evrópskum píanóleikurum. Sellóleikarinn Slawek lék af þokka en hefur frekar veikan tón og hafði því ekki alveg í fullu tré við píanó og söngvara. Frumraun Elsu Waage lofar góðu og tvímælalaust er hér á ferðinni efnilegur iistamaður, með óvenju góða rödd, listamaður sem aðeins þarf tíma til að vefa saman I eitt hæfileika, kunnáttu og reynslu, til að ná því markmiði að verða mikil söngkona. Sex matreiðslubækur frá Kryddi í tilveruna Bókaútgáfan Krydd í tilveruna gefúr út sex matreiðslubækur á þessu ári í bókaflokknum Matar- gerð er list. Fimm bókanna, Fiskur-Pasta- Kjöt-Fuglakjöt-Brauðbakstur, eru eftir Annette Wolter og bókin Ör- bylgjuofn er eftir Marianne Kalten- bach. Charlotta M. Hjaltadóttir hefur þýtt ailar bækurnar, en ritstjóri er Gísli Örn Kærnested matreiðslu- meistari, sem starfar nú á Hótel Le Roi Dagobert í Lúxemborg. Hver bók er 140 bls., skreytt 150 litmyndum. Öllum uppskriftum fylgja örstuttar athugasemdir t.d. Fljótlegt, Ekki fljótlegt, Ekki dýrt, Ekki ódýrt, Auðvelt, Ekki auðvelt, Sérréttir, Hollustufæða. Næringargildi allra réttanna er tilgreint í kílójoul og hitaeiningum svo og eggjahvítu-, fitu- og kol- vetnisinnihaldi. Einnig er gefinn upp áætlaður undirbúningstími og eldunartími. I heimi Litlu manneskjunnar ________Leikiist____________ Jóhanna Kristjónsdóttir Leikfélag Selfoss sýnir „Sálm- inn um blómið“ eftir Þórberg Þórðarson Leikgerð og leiksljórn: Jón Hjartarson Tónlist:Jóhann Morávek Leikmyndahönnuður: Hafþór Guðmundsson Búningameistarar: Sigríður Guðmundsdóttir og Sigurlína Guðmundsdóttir Aðstoðarmaður leiksljóra og sýningarstjóri: Lísa Guð- mundsdóttir Saga Þórbergs Þórðarsonar „Sálmurinn um blómið“ birti á sínum tíma lesendum hans nýja hlið á höfundinum. Þar segir hann frá samskiptum við og kynnum af litlu manneskjunni og þeim heimi sem hann og Mam- magagga ganga inn í af einlægni og ákefð. Þegar litla manneskjan fer að skynja umhverfi sitt, fólk- ið sem er í öllum þessum stóra heimi sem hún er komin í, eru Sobbeggi afi og Mammagagga leiðsögumenn hennar og læri- meistarar hvort á sinn hátt. En litla stúlkan opnar þeim ekki síður nýja sýn en þau henni. Sálmurinn um blómið er ef til vill sú bók Þórbergs sem ungt fólk les fyrst af verkum hans, og þau kynni eru lærdómsrík og ljúf. Jón Hjartarson hefur nú gert leikgerð úr bókinni sem Leikfélag Selfoss sýnir um þessar mundir við mikla aðsókn. Það er ýmislegt gott um leik- gerðina, einkum fyrri hlutann, atriðin eru yfirleitt stutt og ganga greiðlega fyrir sig. Sob- beggi afi leikgerðarinnar er ekki eins standandi hlessa og einlæg- ur í einfeldni sinni og í bókinni, en hann er hlýr fræðari og sýnir litlu manneskjunni umhyggju- semi og áhuga. Höfundur hefur sögumann — hvorki meira né minna en sjálfan guð og mér fannst sem hlutverk hans væri nokkuð óljóst og ekki tekst að láta hann fá almennilegt vægi í sýningunni. Höfundur hefur ko- sið að hafa mikinn fjölda persóna sem koma margar lítið málinu við og mér þótti það heldur þyngja sýninguna. Sigurgeir Hilmar Friðþjófsson er Sobbeggi afi og er gervi hans ágætt. Hann hefur lagt sig eftir að ná fasi og hreyfingum Þór- bergs, sjálfsagt með dyggri að- stoð Jeikstjórans, og tekst það vel. Á hinn bóginn er framsögn hans oft og einatt of óskýr og og var það ljóður á ráði hans. Ester Halldórsdóttir fer sköru- lega með hlutverk Mömmu- göggu. íris Magnúsdóttir og Guðríður Þorgeirsdóttir eru Egga La og Lilla Hegga, þ.e. litla manneskjan. Þær eru kotrosknar og réðu furðuvel við textann. Axel Magnússon var skýrmæltur guð. Nítján leikarar aðrir fara með ýmis hlutverk, en ekkert þeirra fannst mér sitja eftir. Mér hefði fundist að Jón Hjartarson hefði átt að leggja meiri áherslu á per- sónusköpun fárra og draga þá upp skýrari og skærari. Kostir við sýninguna eru tvímælalaust að hún er lipur þrátt fyrir allan persónuskarann. Hún heldur áhuga áhorfenda sem voru á öll- um- aldri. Texta höfundar er sýnd full virðing. Húsfyllir var á sunnudag þegar ég sá leiksýning- una og undirtektar voru mjög góðar. Iris Magnúsdóttir og Sigurgeir Hilmar Friðþjófsson í hlutverkum Lillu Heggu og Sobbeggi afa.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.