Morgunblaðið - 21.11.1989, Blaðsíða 48
MOHGUNBLAPU) ÞRIE)JUDAQUR 21. NÓVEMBER 1989
Vinningstölur laugardaginn
18. nóv. '89
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1 ■ 5 af 5 0 2.253.509
Z. 4af5^fiuK 5 78.350
3. 4af5 114 5.927
4. 3af5 3.498 450
Heildarvinningsupphæð þessa viku:
4.895.037 kr.
UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002
* *
★
*,**%'**•**&
ÁRSHATÍÐ
TÖLVUFRÆÐSLUNNAR,
VIÐSKIPTASKÓLANS OG MÁLASKÓLANS.
Hátíðin verður haldin laugardaginn 25.nóvember í
Víkingasal Hótels Loftleiða.
Við rásmarkið kI.18:00 bjóðum við öllum upp á
fordrykkinn 'TÖLVUVÍRUS".
VEISLUMATSEÐILL KVÖLDSINS: /
Rjómalöguö spergilsúpa. /
%SteikarhlaöborÖ
m/ nautakjöti, grísakjöti, lambakjöti og kjúklingi
ásamt sósum, grænmeti og öðru góðgæti.
DAGSKRÁ KVÖLDSINS :
Heimalöguð skemmtiatriði nemenda og starfsfólks.
(Verðlaun veitt fyrir besta skemmtiatriði kvöldsins)
► Sérstakur gestur kvöldsins:
Jóhannes Kristjánsson, eftirherma.
Númeraðir aðgöngumiðar gilda
sem happdrættismiðar. Glæsileg verðlaun.
Gamlir og nýir nemendur fjölmennið!
io
n
TÖLVUFRÆÐSLAN
BORGARTÚNI 28, S (M I 687590.
fclk í
fréttum
SKATAR
Vinasamband endurnýjað
Skátafélagið Ægisbúar úr
vesturbænum í Reykjavík
heimsótti félaga sína í skátahreyf-
ingunni á Keflavíkurflugvelli ný-
lega og endurnýjaði um leið sam-
band sem hafði verið, en síðan
rofnað. Um 75 Ægisbúar, drengir
og stúlkur á aldrinum 7 — 15 ára
voru í þessum leiðangri sem var
undir stjórn þeirra Eiríks Gunnars
Guðmundssonar sveitarforingja
og Braga Björnssonar deildarfor-
ingja og fengu íslensku skátarnir
höfðinglegar móttökur um 200
félaga sinna á Keflavíkurflugvelli.
Bragi Björnsson deildarforingi
þeirra Ægisbúa sagði að banda-
rísku skátarnir hefðu haft sam-
band við þá í sumar og óskað
eftir að endurnýja samband sem
hefði staðið í mörg ár en síðan
rofnað með mannabreytingum.
Þeir hefðu boðið bandarísku skát-
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Skátaforingjarnir ræða málin. Frá vinstri er Einar Gunnar Guð-
mundsson sveitarforingi, við hlið hans er Chuck Hess sveitarfor-
ingi og við hlið hans er Bragi Björnsson deildarforingi.
unum að koma til Reykjavíkur og
hefðu þeir farið í sjóferð á skóla-
skipinu Sæbjörgu og skoðað og
heimsótt hús Slysavamafélag ís-
lands. Bragi sagði að samskipti
skátahreyfinganna hefðu verið
ákaflega góð og nú væri í undir-
búningi þátttaka bandarísku skát-
anna á Landsmótinu við Úlfljóts-
vatn sem verður haldið í sumar.
Chuck Hess sveitarforingi ylf-
inga á Keflavíkurflugvelli var
upphafsmaðurinn að endurnýjuð-
um samskiptum skátanna, en
hann hefur starfað sem skáti í
mörg ár. Chuck Hess sagðist vona
að endurnýjuð tengsl myndu
koma báðum aðilum að gagni og
hann hlakkaði til frekara sam-
starfs.
BB
íslenskir og bandarískir skátar bera saman bækur sínar í heim-
sókn Ægisbúa úr Reykjavík til Keflavíkurflugvallar.
LÖGREGLAN
Inýjum
búningum
Franskir lögregluþjónar, karlar
og konur, munu skrýðast nýj-
um einkennisbúningum innan
tveggja ára. Þeir voru kynntir
nýverið og vöktu mikla athygli en
þekktur franskur tískuhönnuður,
Pierre Balmain, var ráðinn til að
gera búningana bæði nútímalegri
og smekklegri.
KRÖFUHARKA
Basinger viidi ólm
úr hverri spjör
Leikstjóra og' framleiðendum
kvikmyndarinnar Batman rak
ó rogastans er Kim Basinger
stakk upp á því að hún færi úr
hverri spjör í svefnherbergisatriði
með Michael Keaton, en þau fóru
með hlutverk leuðurblökumanns-
ins og lagskonu hans í myndinni.
Þótt Basinger þyki með kyn-
þokkafyllri leikkonum þessi miss-
erin, hefur hún ekki sést berrös-
suð á hvíta tjaldinu til þessa, ekki
einu sinni í hinni blálituðu „9 1/2
vika“ sem gengur þó út á öfga-
kennt kynlíf. Aðstandendur Bat-
mans setti hljóða um stund meðan
þeir veltu fyrir sér hvort þeir
myndu hala meira inn á berum
líkama Basinger eða með því að
halda myndinni á fjölskyldur-
amma. Hið síðamefnda varð ofan
á.
Þrátt fyrir þær málalyktir hafði
Basinger ekki sagt sitt síðasta
orð, hún hafði fallist á að gera
myndband með Prince sem samdi
tónlistina við Batman. Þegar þau
ráðfærðu sig hvort við annað um
það hvernig bandið skyldi vera,
er sagt að Prince hafi fölnað og
kallar hann þó ekki allt ömmu
sína. Myndbandið er komið út
fyrir nokkru og víðast hvar fengið
þær móttökur í Bandaríkjunum
sem búast mátti við miðað við
umtalið. Það fæst vart sýnt. í
Evrópu verða móttökumar vænt-
anlega aðrar enda siðavendnin
önnur.