Morgunblaðið - 21.11.1989, Side 21

Morgunblaðið - 21.11.1989, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. NÓVEMBER 1989 21 Strætó er valkostur eftirHörð Gíslason Strætisvagnar Reykjavíkur hafa þjónað Reykvíkingum og þeim öðrum er heimsækja borgina í tæp 60 ár. Á vetri komanda verða fast að 60 vagnar í ferðum á götum borgarinnar á annatíma að morgni og hafa þeir aldrei verið fleiri. Meðalaldur þessara vagna er tæp 6 ár. Stuðningur borgarsjóðs Fjárframlag borgarsjóðs til fyr- irtækisins er rúmlega 290 milljón- ir króna á þessu ári og hefur ekki verið jafn hátt fyrr, hvort heldur upphæðin er skoðuð í krónum eða miðað er við fargjaldatekjur. Borgarsjóður leggur fram rúman helming rekstrarkostnaðar á þessu ári og allt fé til stofnkostn- aðar sem fyrr. Ný skiptistöð í Mjódd er að taka til starfa um þessar mundir. Stöð- in þjónar austurhverfum borgar- innar, en þar hafa Breiðholtsvagn- ar viðkomu, auk vagna sem aka milli Mjóddar, Grafarvogs og Ár- bæjarhverfa. Skiptistöðvarnar á Hlemmi, Lækjartorgi og við Grensásveg gegna óbreyttu hlut- verki. Alls eru viðkomustaðir vagnanna um 400 og eru biðskýli á tæplega 300 stöðum. Við Borgartún hefur fyrirtækið um þriggja ha athafnasvæði en þar era m.a. verkstæði og þvotta- stöð til húsa. Á síðastliðnum 20 árum hafa verið keyptir 116 vagnar til fyrir- tækisins eða tæplega 6 á ári að jafnaði. Þetta er tíundað hér til að undirstrika að um langt skeið hafa borgaiyfirvöld lagt kapp á að gera vagnakostinn og starfsemina þannig úr garði að öflug þjónusta sé boðin. Ekki fækkun leng’ur Sú staðreynd blasir við að þrátt fyrir þessa viðleitni hefur þeim fækkað jafnt og þétt sem notfæra sér þessa þjónustu. Þannig var farþegafjöldi um 11,5 milljónir 1979, en sambærileg tala um 7,4 milljónir 1988 og á þessu ári stefnir í sömu tölu. Á þessum tíma hefur samanlögð vegalengd, sem vagnarnir aka árlega, aukist úr 3,9 milljónum km í 4,5 milljónir á þessu ári. Það er athyglisvert, að farþegafjöldinn skuli nú loks hald- ast óbreyttur tvö ár í röð, þegar litið er til þess að tvö árin þar áður fækkaði farþegum um eina milljón hvort áranna. Fyrir þessari fækkun eru ýmsar ástæður, svo sem fjölgun einkabíla í kjölfar tollabreytinga 1986 og aukin notk- un þeirra eins og umferð um götur borgarinnar vottar. Fækkun far- þega með strætisvögnum er langt í frá einskorðuð við Reykjavík. Hið sama er að gerast í flestum borgum á Norðurlöndum og reynd- ar víðar, en þess ber að geta að þar er notkunin meiri en hér, þó þjónustan í Reykjavík sé fyllilega sambærileg því sem er í borgum þar af svipaðri stærð. Vonandi sér nú fyrir endann á fækkun farþega með vögnunum enda tímabært að borgarþúar notfæri sér þjónustu eigin fyrir- tækis meira en veríð hefur og spari sér með því fé og fyrirhöfn. Hvernig þjónusta? Ferðatími, áreiðanleiki, gæði vagnanna og verðlagning vega trúlega þungt þegar þjónustan er metin. Sérstakar hraðferðir tengja miðborg og austurhverfin og er þeim ætlað að jafna sem mest mun á ferðatíma sem getur verið milli strætó og einkabíls. í júní sl. var undirritaður samn- ingur um kaup á 20 nýjum vögnum og verða þeir teknir í notkun á næstu árum, en fyrsti vagninn er þegar kominn til starfa. Þeir vagnar sem keyptir hafa verið á síðari árum eru valdir með tilliti til sem mestra þæginda. Þar má nefna hita og loftræstingu i vögnum, hljóðeinangrun á vél- búnaði og tvöfalt gler sem jafn- framt hamlar rakamyndun á rúð- um. Sæti eru tauklædd og þægi- legri en áður. Á hverri nóttu er hver vagn þveginn utan og innan og á annan hátt ferðbúinn fyrir komandi dag. Sérstakur búnaður miðar að því að halda mengun í útblæstri í lágmarki, en besta mengunarvörn- Hörður Gíslason „Með því að aka með strætó til vinnu fjóra daga af fimm má áætla að heimilið spari 40 til 50 þús. kr. árlega.“ in í dag er að draga úr akstri bíla. Bílaumferð veldur mestri mengun í lofti hér á landi. Kjarabót Nú á tímum hækkandi verðlags og umræðu um verri afkomu heim- ila er vert að hugleiða að margur getur sparað umtalsverða upphæð með því að nota vagnana í bland með einkabílnum. Því til áréttingar má færa fram ýmis dæmi, til dæmis um hjón sem búa í austur- hluta borgarinnar, svo sem í Graf- arvogi eða Seljahverfi. Tveir einkabílar eru á heimilinu, annar af ódýrri gerð. Þau sækja vinnu í Kringlu og miðborg. Með því að aka með strætó til vinnu fjóra daga af fimm má áætla að heimil- ið spari 40 til 50 þús. kr. árlega. Fargjald með afslætti er nú 38,50 kr. og miðað er við tölur FÍB um rekstur einkabíls. Reiknað er með að hjónin eigi báða bílana áfram og þeir verði notaðir í ferðir til og frá vinnu fimmta hvern dag. Með notkun vagnanna í fleiri tilvikum en hér greinir yrði sparnaður augljóslega meiri. Ljóst er að með aukinni notkun á þjónustu strætó geta heimilin náð fram bættri afkomu og þar með verður einnig skotið styrkari stoðum undir það að efla þjónustu- hlutverk vagnanna. Höfundur er skrifstofustjóri Strætisvagna Reykjavíkur. ■HÁSKÓLATÓNLEIKAR verða haldnir í fjórða sinn á þessum vetri í Norræna húsinu á morgun kl. 12.30. Þar flytur strengjakvartett skipaður félögum í Sinfóníuhljóm- sveit íslands, þeim Z. Dubik, A. Kleina, G. McBretney og R. Corn, sónötur eftir Rossini. ■ „HEILSUSTÖÐIN aðeins fyrir þig“ heldur námskeið fyrir byijend- ur í svæðameðferð helgina 25. og 26. nóvember. Námskeiðið verður haldið að Hamrahlíð 17, Reykjavík. Heimílístækí sem bíða ekki! þurrkari eldavél frystikista Nú er ekki eftir neinu aö bíða, þú verslar í Rafbúö Sambandsins fyrir 100 þúsund og getur þá keypt öll heimilistækin í einu, valiö sjálfur hvert tæki af ótal gerðum í pakkann, bætt sjónvarpi, videotæki eöa hrærivél viö og skipt greiðslum jafnt niður á 24 mánuöi. Engin útborgun og fyrsta greiðsla eftir einn mánuð. Enginn íslenskur raftækjasali hefur boöiö slík kjör - hvorki fyrr né síðar. Haföu sam- band viö Rafbúö Sambandsins strax - það er ekki eftir neinu aö þíöa. &SAMBANDSINS HOLTAGÖRÐUM. SÍMI 685550 VIÐ HLIÐINA Á MIKLAGARÐI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.