Morgunblaðið - 21.11.1989, Page 23

Morgunblaðið - 21.11.1989, Page 23
MOKGUNBLÁÖIÐ ÞRIÐ'JUÐAGUK 21. NÓVEMBER 1989' Morgunblaðið/Bjarni Svanfríður Jónasdóttir tekur pappíra sína af borðinu, þar sem Steingrímur J. Sigfusson er sestur í sæti varaformanns við hlið Ólafs Ragnars Grímssonar. segist telja að niðurstaða lands- fundarins haíí verið góð og styrki flokkinn. „Það varð niðurstaða um mörg málefni, og þótt það komi e.t.v. ekki úr réttri átt að ég segi það, þá treysti ég því og vona að það hafí tekist, sem að var stefnt, að búa til breiða forustu sem hafi á bak við sig sem allra flesta flokks- menn, og strauma og málefni sem þar eru á ferðinni," sagði Steingrímur. Framboð hans til varaformanns var mjög umdeilt á fundinum. Hann sagði um ástæður framboðsins, að þar hafi margt lagst á eitt. „Þar inn í spila að sjálfsögðu þau sjónarmið sem sett voru fram á fundinum, og settu m'ark sitt á hann. Þar spilar einnig inn í jafn- vægi milli mismunandi viðhorfa sem mönnum þótti nauðsynlegt að ná. Þetta bar allt að þeim brunni að mönnum fannst eðlilegt að gera ákveðnar breytingar á flokksfor- ustunni." —Ef slegið er fram ástæðum á framboðinu sem fundarmenn slógu fram, svo sem: að einangra Olaf Ragnar; að gera upp við Svanfríði vegna framboðsmála í Norðurlands- kjördæmi eystra. Hvað segir þú við þeim? „Ég hafna þessu hvorutveggju. í fyrsta lagi er ég að þessu til að efla flokkinn og ég treysti því að það komi öllum jafnt til góða, en ekki hvað síst formanninum sem á auðvitað mikið undir því að geta í flokksstjóminni sameinað með far- sælum hætti áherslur og sjónarmið. Það er svo fjær öllum sanni að þetta eigi sér einhveijar ástæður í kjördæminu. Þetta hefur engin áhrif á það hvernig félagar okkar á Norðurlandi eystra kjósa að haga sínum málum eftir eitt og hálft ár.“ —Er djúpstæður ágreiningur í Alþýðubandalaginu um málefni. Er það í raun tveir flokkar sem tala í sitt hvora áttina? „Ég get alveg fullyrt að Al- þýðubandalagið er ekki tveir flokk- ar. Frekar að þarna séu 15 flokkar með mismunandi skoðanir. Það er hins vegar vinsæl iðja að draga flokkinn í tvo arma. Ég hef alla tíð barist á móti því og tel það skað- legt að jafnvel forustufólk í flokkn- um taki undir það. Það má greina ýmsa hópa, verkalýðshópa, lands- byggðarhópa, kjördæmahópa, fé- lagar úr fylkingunni gömlu, Birt- ingarfélagar og fleiri. En það er bara rangt að tala um tvær þaul- skipulagðar fylkingar sem alltaf séu til staðar í öllum tilfellum." —Þannig að flokkurinn er ekki að klofna að þínu mati? „Þeir menn koma auðvitað alltaf upp við og við sem telja að það séu svo ólíkar skoðanir að þær eigi ekki samleið í flokki. Ég held að það sé síður en svo raunin í Al- þýðubandalaginu og tel að niður- staða fundarins og breiðari forusta styrki flokkinn frekar en hitt hvað þetta varðar. Þetta verður þó að koma í ljós en auðvitað fer það eft- ir því hvaða þroska flokksmenn hafa til að fylkja sér um þessa nið- urstöðu," sagði Steingrímur J. Sigf- ússon. Svanfríður Jónasdóttir: Úrslitin sýna hvern- ig verk kvenna eru metin SVANFRÍÐUR Jónasdóttir, sem féll í varaformannskjöri fyrir Steingrími Sigfússyni, sagði í ræðu á landsfundinum eftir að úrslitin lágu fyrir, að þau sýndi hvað meirihlutinn í salnum ætti við með valddreifingu og birti einnig ákveðna sýn til þess hvernig verk þeirra kvenna sem veldust í forustu flokksins, væru metin. Svanfríður sagði við Morgun- blaðið að hún hefði ætlað sér að vera annað kjörtímabil í varaform- annsstól og sér þætti það slæmt að vera ýtt til hliðar með þessum hætti, þegar hún teldi sig vera að ná valdi á þessu starfi. Þegar hún var spurð hvort hún teldi að með framboði'Steingríms væri verið að einangra Ólaf Ragnar Grímsson í formannssætinu, með því að setja mann úr hinum armi flokksins við hlið honum, svaraði hún; „Ég treysti mér ekki til þess að útskýra sálarlíf þessara hinna.“ —Það hefur einnig verið talað um að kjördæmamál spili þarna inn í. Þú ert varaþingmaður Steingríms og hefur gefið til kynna að þú vilj- ir taka sæti hans. „Það er rétt að taka fram í því sambandi, að ég gaf þá yfirlýsingu fyrir nokkrum vikum að ég yrði ekki oftar í 2. sæti á Norðurlandi eystra. Það átti að lesast þannig að ég kærði mig ekki um að verða stillt oftar upp sem varamanni Steingríms J. Sigfússonar. Hitt hvort ég hafi einhvern áhuga á þingmennsku eða hvort ég var að vísa til þess að 10. sætið væri pass- legt, vil ég ekkert segja um. Það má vel vera að Steingrímur hafí kosið að kanna styrkleika sinn hér á fundinum. Ef að svo er fímmst mér það afar vitlaust. En það vegur auðvitað þungt þegar einn af ráð- herrum flokksins fer fram með þessum hætti og ég geri ráð fyrir að býsna margir hafi metið það þannig að það væri ekki eins vont að ég yrði undir og ef ráðherra yrði undir,“ sagði Svanfríður Jónas- dóttir. ■ STÓRIÐJUSAMÞ YKKT landsíundar Alþýðubandalagsins hefur verið túlkuð á mismunandi hátt af forustumönnum flokksins. í samþykktinni segir að í undan- tekningartilfellum geti komið til greina að efna til samvinnu við út- lendinga um uppbyggingu íslenskra fyrirtækja, enda sé forræði íslend- inga meðal annars tryggt með veru- legum eignarhluta, meirihluta eða með öðrum sambærilegum hætti. Margir alþýðubandalagsmenn, þar á meðal formaðurinn, hafa túlkað þetta þannig að það sé ekki lengur skilyrði af flokksins hálfu að íslend- ingar eigi meirihluta í stjóriðjufyrir- tækjum. Aðrir, þar á meðal Hjörleif- ur Guttormsson, benda á að í stefnuskrá flokksins stendur orð- rétt: „Algjör forsenda er að íslenska ríkið eigi meirihluta í stóriðjufyrir- tækjum.“ Hjörleifur segir að engin breytingartillaga hafi verið flutt eða samþykkt við stefnuskrána og því megi ljóst vera að landsfundurinn hafi ekki tekið efnislega afstöðu varðandi_ eignaraðild stóriðjufyrir- tækja. Ólafur Ragnar Grímsson segir hins vegar að landsfundur sé æðsta vald flokksins og samþykktir hans séu stefnuskránni æðri. ■ VERKAL ÝÐSARMURINN svokallaði í Alþýðubandalaginu greiddi atkvæði gegn kjaramála- ályktun landsfundarins. I þeim hópi voru m.a. Ásmundur Stefánsson, Benedikt Davíðsson, Páll Halldórs- son, Ragnar Stefánsson og Páll Valdimarsson. Mótatkvæðin voru í mótmælaskyni við breytingartillög- ur sem áður höfðu verið samþykkt- ar frá Ólafi Ragnari Grímssyni og Steingrími Sigfússyni við ályktun- artillögu sem starfshópur um kjara- mál hafði lagt fram. Ónnur tillagan var, að í stað orðalagsins: Alþýðu- bandalagið telur mikilvægt að halda niðri verðlagi á brýnustu lífsnauð- synjum og berst því gegn hverskon- ar skattlagningu á matvæli og krefst þess að matarskatturinn verði afnuminn, kom: Alþýðubanda- lagið telur mikilvægt að halda niðri verðlagi á brýnustu lífsnauðsynjum og leggur til að í áföngum verði dregið verulega úr skattlagningu á matvæli. Hin tillagan var að í stað setningarinnar: Raunvextir á útlán- um verði bundnir við 3,5% að há- marki með lögum á lánamarkaðn- um öllum, kom: Raunvextir á útlán- um verði ekki hærri en í viðskipta- löndum okkar. ■ ALÞ ÝÐUBANDALA GIÐ mun ekki sitja undir því í ríkisstjórn að neinn undirbúningur fari fram, s.s. forkönnun, að nýjum herflugvelli á íslandi, hvaða nafni sem hann nefn- ist, segir orðrétt í ályktun um ut- anríkismál. ■ E VRÓPUBANDALA GIÐ varð uppspretta talsverðra deilna á landsfundi Alþýðubandalagsins. Að lokum var samþykkt ályktun þar sem segir m.a. að nauðsynlegt sé að íslendingar undirbúi hið fyrsta tvíhliða viðræður við Evrópubanda- lagið um fiskafurðir, m.a. með því að móta skýra sjávarútvegsstefnu. Þá þurfi íslendingar að meta hvort þeir telji sér hagkvæmt að draga úr einhveijum hömlum varðandi fjármagnshreyfingar og erlenda fjármálaþjónustu. Einnig sé mörg- um stórum og erfiðum spurningum ósvarað varðandi formlegar samn- ingaviðræður EFTA og EB. Ekki sé hægt að fallast á að á næstu vikum sé knúin fram afstaða um aðild íslands að formlegum samn- ingaviðræðum EFTA og EB um myndun evrópsks efnahagssvæðis. Óhjákvæmilegt sé að farið verði vandlega yfír málið í heild og er þingflokki Abl. falið að taka endan- lega afstöðu til málsins. ■ AÐILD að Alþjóðasambandi jafnaðarmanna kom til umræðu á landsfundi Alþýðubandalagsins og voru lagðar fram um það tvær til- lögur, önnur frá félögum í Birtingu og hin frá Haraldi Jóhannessyni og fleirum. Þessar tillögur komu ekki til afgreiðslu heldur var samþykkt tillaga frá Ólafi Ragnari Grímssyni, Steingrími Sigfússyni og Tryggva Þór Aðalsteinssyni um að fela fram- kvæmdastjórn að skipa starfshóp sem afli upplýsinga um erlenda flokka og samtök sem gagnlegt kann að vera fyrir Alþýðubandalag- ið að eiga samskipti við. ■ STJÓRNMÁLAÁL YKTUN landsfundar Alþýðubandalagsins var ekki samþykkt í endanlegri gerð, heldur var Ólafi Ragnari Grímssyni, Steingrími Sigfússyni og Svavari Gestssyni falið að ganga frá endanlegum texta ályktunarinn- ar með tilliti til þeirrar tillögu sem lá fyrir fundinum og breytingartil- lagna sem komu fram við hana. Allt þetta á aðeins: 36.690- stgr. JAPÖNSK GÆÐI • "Instant start” myndsvörun á skjá á einni sekúndu • Fullkomin fjölrása fjarstýring meö upptökuminnum • Bandateljari sem sýnir klukkustundir, mínútur og sekúndur • Skyndiupptaka ”Quick start recording” • Haðvirk myndleitun í báðar áttir • Eins árs upptökuminni með 8 skráningum • Truflunarlaus kyrrmynd/ramma fyrir ramma • Endurtekning á atriði "Lesson repeat” allt að 5 sinnum vSfe: Gunnar Ásgeirsson hf. Suöurlandsbraut 16 • Sími 680780

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.