Morgunblaðið - 21.11.1989, Page 26

Morgunblaðið - 21.11.1989, Page 26
26 MÖRGÖl'ÍBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21: NÓVEMBER 1989 Upprisa á Suðurskautslandinu; Flugvél bjarg-að úr frystinum eftir sextán ár ÁRIÐ 1971 mistókst að ræsa hreyfla Hercules-flutningavélar bandaríska flotans í dimmri hríð á Austurhálendi Suðurskauts- landsins, en staðurinn er í 2.200 m hæð yfir sjávarmáli og kuldi að staðaldri meiri en á flestum stöðum á jarðarkringlunni. Að sögn danska blaðsins Jyllands- Posten var vélin afskrifuð þar eð menn réðu þá ekki yfir tækni- búnaði til að bjarga henni. 11 metra snjólag var yfír henni þegar menn hófiist loks handa árið 1987. [sfúglinn Fönix, sem hér sést á flugi, er af gerðinni Lockheed LC-130F Hercules og búin hjól- um jafiit sem skiðum. Reuter Frá útför prestanna sex sem myrtir voru í San Salvador á fímmtudag. Margir óttast að morðin séu upphaf nýrrar öldu hryðjuverka hægrimanna í hernum, dauðasveitanna, er myrtu þúsundir vinstrimanna snemma á áratugnum. Prestarnir boðuðu svoneftida frelsunarguðfræði er leggur áherslu á baráttu kirkjunnar gegn fátækt og félagslegu misrétti. Erkibiskup E1 Salvador: Dauðasveitir hægrimanna myrtu jesúítaprestana sex San Salvador. Reuter. ARTURO Rivera Damas, erkibis- kup í E1 Salvador, sagði á sunnu- dag að miklar líkur bentu til þess að hryðjuverkasveitir hægrisinn- aðra hermanna hefðu myrt sex jesúítapresta siðastliðinn fimmtu- dag. Búist er við niðurstöðum rannsóknar yfirvalda á málinu á morgun, miðvikudag, að sögn dómsmálaráðherra landsins. Ráð- herrann hefúr sent Jóhannesi Páli páfa persónulegt bréf þar sem hann livetur páfa til að láta vinstrisinnaða biskupa, þ. á m. Rivera Damas, hverfa á brott frá E1 Salvador. Líf þeirra sé í hættu þar sem margir telji þá eiga sök á blóðugum átökum í landinu með því að taka undir slagorð marxískra skæruliða Farabundo Marti-frelsisheyfingarinnar (FMLF). Óþekktir byssumenn myrtu á sunnudag einn af helstu verkalýðsleiðtogum landsins en fjölmiðlar stjórnvalda höfðu áður bendlað hann við baráttu skæru- liðanna. Jóhannes Páll II páfi hefur harm- að grimmdarverkin og hvatt til frið- ar í E1 Salvador. Kirkjuhöfðingjar og stjómmálaleiðtogar frá Banda- ríkjunum, Kanada, Vestur-Evrópu og mörgum löndum Rómönsku Ameríku voru í hópi nær þúsund gesta er fylltu Oscar Romero-kapell- una þar sem útför prestanna fór fram á sunnudag. Kapellan er kennd við Romero erkibiskup er var skotinn Boeing-: Samningar undirritaðir Seattlc. Reuter. Samning'anefnd starfsmanna Boeing-fyrirtækisins, stærsta flugvélaframleiðanda heims, undirritaði á sunnudag kjara- samning með fyrirvara um sam- þykki starfsmanna. Starfsmenn Boeing-verksmiðj- anna hafa verið í verkfalli í um 50 daga. Vinnustöðvunin varð til þess að fresta þurfti afhendingu flugvéla og kom það sér illa fyrir nokkur flugfélög, sem áformað höfðu að auka starfsemi sína. til bana við messugjörð árið 1980. Morðingjarnir hafa aldrei fundist en talið er að þeir hafi verið úr röðum hryðjuverkasveita hægrimanna í hemum, dauðasveitunum svo- nefndu. Sveitirnar myrtu í byijun áratugarins mörg þúsund vinstri- sinna og meinta stuðningsmenn skæruliðanna. Rivera Damas erkibiskup segist treysta því að Alfredo Cristiani for- seti og yfirstjórn hersins muni standa við heit sín um að finna morðingja prestanna og draga þá Samkvæmt skoðanakönnun, sem birt var á sunnudag, bíður Kon- gressflokkur Rajivs Gandhis mikinn ósigur og fær aðeins 195 þingsæti af 545. I kosningunum 1984 fékk hann 415 menn en þá naut Rajiv mikillar samúðar vegna morðsins á móður hans, Indiru. Indverjar standa um margt á krossgötum og flest bendir til, að þeir vilji leggja inn á nýjar brautir. Verði Gandhi steypt vegna ósigurs Kongressflokksins getur það þýtt, að Nehru-ættarveldið sé þar með liðið undir lok en Rajiv Gandhi, afi hans, Jawaharlal Nehru, og Indira, móðir hans, hafa haldið um stjórn- völinn í 37 ár af þeim 42, sem liðin eru frá sjálfstæðistökunni. Hagvöxtur hefur verið mikill á Indlandi á síðustu árum og milli- stéttirnar hafa blómstrað. Samt fyrir rétt. Cristiani, er vár viðstadd- ur útför prestanna á sunnudag, hefur ekkert viljað tjá sig um það hverjir hafi verið að verki en varafor- setinn, Francisco Merino, kenndi skæruliðum vinstrimanna um ódæðin. Stjómmálaskýrendur telja þetta benda til þess að harðlínumenn í stjórnarflokknum, hægriflokki Robertos D’Aubuissons, sem lengi hefur verið talinn standa að baki dauðasveitunum, hafi ákveðið að skáka Cristiani sem talinn er hóf- samari en Merino. hallast þær heldur á sveif með stjórnarandstöðunni vegna þess, að þeim finnst Kongressflokkurinn spilltur, og fátækasti hluti þjóðar- innar hefur ekki séð neina breyt- ingu verða á högum sínum. Kosn- ingarnar að þessu sinni eru líka óvenjulegar fyrir það, að nú er stjórnarandstaðan að mestu sam- einuð gegn Kongressflokknum. Þótt Kongressflokkurinn hafi verið næstum óslitið í stjóm frá 1947 hefur hann aldrei fengið hreinan meirihluta atkvæða í kosn- ingum. Jafnvel í kosningunum fyrir fimm ámm þegar hann fékk 415 þingsæti af 545 hafði hann aðeins 48% á bak við sig. Þessu veldur kosninga- eða kjördæmafyrirkomu- lagið og tveggja eða þriggja pró- sentna tilfærsla getur riðið bagga- Gífurlegrar varúðar og þolin- mæði var gætt þegar jarðýtur drógu vélina upp úr ísnum til að skemma Bardögum stjórnarhermanna og skæmliða tók að linna um helgina í San Salvador, höfuðborg landsins, er skæmliðar hörfuðu til stöðva sinna utan við borgina eftir mestu sókn þeirra í mörg ár. Enn fiugu þó brynvarðar þyrlur og orrustuþot- ur stjórnarinnar yfir og dimmir hvellir í sprengjuvörpum heyrðust öðm hveiju. Að sögn yfirvalda hafa samanlagt nær þúsund manns af liði beggja fallið í sókn skæruliðanna en vitað er að fjöldi óbreyttra borgara hefur einnig týnt lífi. muninn. I skoðanakönnunum kem- ur fram, að hún verði 9% og ekki Kongressflokknum í vil. Líklega munar mestu um, að margir múha- meðstrúarmenn, sem hafa löngum stutt Kongressflokkinn, hafa nú snúið við honum baki vegna deilna þeirra við hindúa um helga staði í Uttar Pradesh, sem hvorirtveggju gera tilkall til. Margl, fleira getur haft áhrif á kosningaúrslitin og þá ekki síst endurminningin um samstjórn stjórnarandstöðuflokkanna frá 1977 til ’79. Fyrir kosningamar þá afnam Indira Gandhi neyðarlög, sem gilt höfðu í tvö ár, og bjöst við, að kjósendur þökkuðu henni fyrir með glæsilegum sigri. Svo fór þó ekki. Indveijar refsuðu henni fyrir að svipta þá fullum mannrétt- indum í þennan tíma og færðu stjórnarandstöðuflokkunum völdin í hendur. Samstjórn þeirra ein- kenndist hins vegar af stöðugum deilum og þeir héldu ekki út nema í tvö ár. Það getur því vel verið, að einhveijir kjósendur ákveði á síðustu stundu, að stjórnarandstöð- unni sé ekki treystandi enda eru margir forystumenn hennar þeir sömu og fyrir áratug. Talsmenn Kongressflokksins hana sem minnst og verkið tók nokkra mánuði. Menn urðu furðu lostnir þegar í ljós kom að enn var þrýstingur á vökvadælum lending- arbúnaðarins, loft í hjólbörðunum, bensín í tönkunum og bensíndælur virkuðu. Hvergi fannst leki eða gat á skrokknum og eftir að búið var að hita hreyflana í klukkustund fannst mönnum eðlilegt að reyna að ræsa þá. Hreyflar skrúfuþotunn- ar eru fjórir og gríðarstórir. Það tókst í janúar á síðasta ári og var vélinni flogið til Christchurch á Nýja-Sjálandi þar sem vandlega var farið yfir allan búnað hennar. Vélin, sem nefnd var ísfuglinn Fönix eftir að hún var endurheimt, er nú í Bandaríkjunum þar sem hún verður endurbyggð. Síðan á að senda hana aftur til Suðurskauts- landsins. Vélin komst áður í heims- fréttirnar árið 1961, ári eftir að hún var send til Suðurskautslandsins til þjónustu þar. Sovéskur vísinda- maður hafði þá veikst alvarlega í bækistöð sinni á Suðurskautsísnum, um hávetur. Flugmönnum Hercu- les-vélarinnar tókst að lenda við stöðina, ná í manninn og hefja sig aftur á loft þótt mánaskinið væri einu lendingarljósin. Rajvi Gandhi forsætisráðherra gerði hlé á kosningabaráttunni á sunnudag til að minnast móður sinnar, Indiru, sem var ráðin af dögum fyrir fimm árum. segjast opinberlega vera vissir um, að hann fái um 300 þingsæti en sín í milli búa þeir sig undir ósigur. „Gandhi urðu á mikil mistök með því að snúast ekki gegn valdaklík- unum í flokknum,“ sagði einn frammámaðurinn. „Nú er flokkur- inn tekinn að rotna innan frá og líklega hefði hann gott af að bíða ósigur. Þá gæfist tækifæri til að hreinsa út óhroðann." Kosningar á Indlandi: Verður bundinn endi á veldi N ehru-ættarinnar ? Ekki ólíklegt að Rajiv Gandhi verði ýtt til hliðar bíði Kongressflokkurinn ósigur Nýju Delhí. Reuter. ALMENNAR þingkosningar hefjast á Indlandi á morgun, miðviku- dag, og bendir flest til, að Rajiv Gandhi forsætisráðherra muni bíða ósigur og Kongressflokkurinn missa völdin í annað sinn frá því landið varð sjálfstætt árið 1947. Þá eru einnig háværar raddir um, að Gandhi sjálfum verði ýtt til hliðar innan flokksins verði úrslitin þau, sem skoðanankannanir gefa til kynna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.