Morgunblaðið - 21.11.1989, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 21.11.1989, Qupperneq 34
Bæjarstj órn skorar á stjórnvöld: Morgunblaðið/Rúnar Þ6r Á hálum ís Það getur verið spennandi að kanna hvort ísinn sem lagt hefur á Pollinum sé mannheldur, en það er líka varhugavert, ef of langt er farið út. Þessi drengur var í könnunarleiðangri um ísinn seinnipartinn í gær er ljósmyndari átt leið hjá. Sjávarútvegsdeild verði að veruleika Morgunbl§ðið/Rúnar Þór Setningabraut gerð við Húsavíkurhöfh Unnið hefur verið að gerð setningabrautar við höfnina á Húsavík síðustu vikur, en þegar hún verður komin í notkun mun það auðvelda smábátaeigendum mjög að taka báta sína upp. Hingað til hafa þeir notað kranabíl til þess verks. Halldór Þorvaldsson hafnarvörður sagði að nokkrar framkvæmdir hefðu verið við höfnina í sumar, m.a. var dælt töluverðu magni af sandi upp úr höfninni, unnið var við hafnargarðinn og einnig í brimvörn. Það verk sem mest er aðkallandi varðandi Húsavíkurhöfn, sagði Halldór vera dýpkun hafnarinnar, hún væri orðin alltof grunn og fragtskip tækju oft niðri eru þau ættu leíð um hana. Á myndinni eru þeir Kristján, Benedikt og Baldvin við vinnu sína við Húsavíkurhöfn í gær. „BÆJARSTJÓRN Akureyrar skorar á Alþingi og ríkisstjórn að tryggja að sjávarútvegsdeild Háskólans á Akureyri verði að veru- leika á árinu 1990. Áætlað er að deildin taki til starfa um áramót, en tryggja þarf að nauðsynlegt húsnæði og búnaður verði til haustið 1990.“ Þannig hljóðar ályktun sem bæjarráð Akureyrar samþykkti á íúndi sínum fyrir helgi og lögð verður fyrir fúnd bæjar- stjórnar í dag. í ályktuninni segir ennfremur að bæjarstjórn telji stofnun háskólans og ekki síst sjávarútvegsdeildar eina stærstu og raunhæfustu að- gerð í byggðamálum á síðari árum. Þá segir í ályktuninni að bæjar- stjórn lýsi sig reiðubúna til að út- hluta Háskólanum á Akureyri óbyggðu svæði, sem afmarkast af Þingvallastræti, Byggðavegi, Þór- unnarstræti og. Hrafnagilsstræti til Bygging dagvistar við Þverholt; Tilboði frá Möl og sandi tekið BÆJARRÁÐ hefúr samþykkt að taka tilboði frá Möl og sandi hf. í byggingu dagvistar við Þver- holt. Reiknað er með að fram- kvæmdir geti hafist fljótlega. Tilboðið miðar að byggingu 225 fermetra húss og hljóðar tilboðs- upphæð upp á rúmar 11,5 milljónir króna. Undanskilið í tilboði eru innréttingar, lagnir, málning og fleira sem áætlað er að kosti tæpar 6 milljónir króna. Auk þess er undanskilinn laus búnaður, frá- gangur á lóð og útileiktæki. Byggingadeild bæjarins hefur verið falið að ganga frá verksamn- ingi, en að sögn Ágústar Berg húsa- meistara er gert ráð fyrir að fram- kvæmdir við byggingu hússins geti hafíst um leið og samningurinn hefur hlotið samþykki bæjarráðs. Sjallinn: Borgarafundur um atvinnumál í kvöld BORGARAFUNDUR um atvinnu- mál, sem atvinnumálanefúd Akur- eyrar efnir til, verður haldinn í Sjallanum í kvöld og hefst hann kl. 20.00. Frummælendur á fundinum verða Hólmsteinn Hólmsteinsson formaður atvinnumáianefndar, Sigurður P. Sigmundsson framkvæmdastjóri Iðnþróunarfélags Eyjafjarðar, Sigfús Jónsson bæjarstjóri og Þorsteinn Konráðsson formaður starfsmanna- félags Slippstöðvarinnar. Fundar- stjóri verður Jóhann Sigutjónsson skóiameistari MA. Á fundinn hafa verið boðaðir þing- menn kjördæmisins, bæjarfulltrúar og varamenn þeirra, en fundurinn er öllum opinn. áframhaldandi uppbyggingar Há- skólans á þessum stað. A því svæði sem um er að ræða er nú tjaldstæði Akureyrarbæjar. Allt-hugbún- aður kynntur KYNNING á Allt-hugbúnaði verð- ur haldin á Hótel Norðurlandi í dag, þriðjudag, frá kl. 13.-19. og á morgun, miðvikudag er notend- um þessa hugbúnaðar boðið til vinnufúndar hjá Felli við Tryggva- braut 22. Bókhaldsskrifstofan Fell ásamt tölvufyrirtækinu Trón mun í sam- vinnu við Allt-hugbúnað vera með kynningu á nýrri útgáfu Allt-hug- búnaðar, sem er aðlöguð að bók- haldshlið virðisaukaskattsins. Einnig verða kynntar aðrar nýjungar, svo sem afstemmingakerfi, spjaldskrá og strikamerkingar. (Úr fréttatilkynningu.) Samdráttur í rekstri FSA: Fjárveitingar duga ekki til að reka sjúkrahúsið á fiillum afköstum FJARVEITINGAR þessa árs duga ekki til að reka Fjórðungs- sjúkrahúsið á Akureyri á fúllum afköstum út árið og í áætlunum sem gerðar voru varðandi rekst- ur sjúkrahússins mánuðina nóv- ember, desember og janúar er mið tekið af rekstrinum eins og hann var yfir sumarmánuðina. Þetta þýðir að þjónusta er nokk- uð skert. B-deild FSA, sem er langlegudeild, hefúr ekki verið opnuð aftur eftir að deildinni var Iokað í sumar, en sjúklingar hennar eru vistaðir á öðrum deildum sjúkrahússins. Rekstrar- gjöld og ýmsar sértekjur sjúkra- hússins eru réttum megin við núllið, en launaliðurinn hefiir farið fram úr áætlun. Við sex mánaðaruppgjör kom í Ijós að hallinn á rekstrinum hafði farið um 20 milljónum fram úr áætlun- um. mánaða uppgjöri og að sögn Hall- dórs lítur heildarniðurstaðan ekki illa út. Þær áætlanir sem unnið er eftir fýrir síðustu tvo mánuði þessa árs og þann fyrsta á næsta ári gera ráð fyrir samdrætti í þjónustu og verður til að mynda ekki ráðið í þau störf sem losna á sjúkrahúsinu. Þá er einnig gert ráð fyrir lítilli starfsemi yfir jól og áramót, eða frá 20 des- ember til 3. janúar. „Þó svo að dregið sé úr starfseminni verðum við ætíð að hafa í huga að við sinn- um bráðavakt alla daga allan ársins hring á öllum deildum, hér getum við ekki vís_að sjúklingum á önnur sjúkrahús. í ljósi þessa höfum við reynt að fá framlag til sjúkrahúss- ins hækkað, en það hefur ekki tekist,“ sagði Halldór. Halldór Jónsson framkvæmda- stjóri FSA sagði að síðasta ár hefði komið nokkuð vel út, en þá var halli á rekstrinum 510 þúsund krón- ur, eða 0,07% af veltu. Frá því sjúkrahúsið var sett á fjárlög árið 1983 og fram til ársins 1988 var halli á rekstrinum á bilinu 1,8-8,4%. Góða útkomu síðasta árs, segir Halldór stafa af því að rekstrar- gjöld og sértekjur hafi komið vel út, auk þess sem aðhald hafi verið í rekstrinum, m.a. varðandi fram- kvæmdir og hluti af fjárveitingu sem ætluð var til viðhalds hafi verið notuð til að brúa bilið er á launaliðinn vantaði. „Það hefur orðið nokkur bati varðandi launakostnað á þessu ári og er hallinn talsvert minni en va_r á síðasta ári,“ sagði Halldór. Á þessu ári kom til 4% niðurskurður á launalið fjárlaga auk þess sem rekstrargjöld og sértekjur eru ekki eins mikiar og var á síðasta ári. Útlitið væri því ekki eins gott varðv andi afkomuna fyrir þetta ár og hið fyrra. Við sex mánaða uppgjör FSA var hailinn um 20 milljónir, en Halldór sagði að eftir því sem liðið hefði á árið hefði afkoman farið batnandi. Unnið er að níu Dagvistardeild Fóstrur Dagvistardeild Akureyrarbæjar auglýsir eftir forstöðumanni og fóstrum til starfa við dag- vistunina Árholt, sem er leikskóli. Starfið er laust frá 1. febrúar nk. Skriflegar umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf skúlu berast til deild- ,arinnar fyrir 15. desember. Allar nánari upp- lýsingar veitir hverfisfóstra í síma 96-24620 alla virka daga milli kl. 10 og 12. Dagvistardeild Akureyrarbæjar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.