Morgunblaðið - 21.11.1989, Síða 40

Morgunblaðið - 21.11.1989, Síða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. NÓVEMBER 1989 Minning: Asgeira Möller Fædd 11. júní 1908 Dáin 12. nóvember 1989 Hún Geira móðursystir mín er látin. Hún fæddist í Ingólfsstræti 10 í Reykjavík og bjó í því húsi alla sína tíð. Foreldrar Geiru voru þau Halldóra og Kristján Möller og var hún yngst fjögurra systkina. Móður sína missti hún barn að aldri en fjölskyldan hélt áfram heimili í Ingólfsstrætinu. Geira lifði því að sjá Reykjavík breytast úr smábæ í stóra borg. Afi minn hélt lengst af heimili með Gunnhildi móður minni og á því heimili voru einnig Geira og Margrét fóstursyst- ir þeirra. Síðan bættist ég undirrit- uð í þennan hóp á hæðinni í Ingólfs- strætinu. Uppi í risinu bjó önnur móðursystir mín með börnum sínum og niðri móðurbróðir minn með sína fjölskyldu. Þetta var því sannkallað fjölskylduhús þarna í Þingholtun- um. Geira giftist aldrei og eignaðist ekki börn en hún var mikil stoð og stytta fyrir systkinabörn sín alla tíð. Móðir mín lést þegar ég var ung að aldri og þá gekk þessi góða móðursystir mér í móðurstað. Móðir mín hafði unnið í fata- geymslu Þjóðleikhússins og að henni látinni tók Geira við því starfi. Ennfremur vann hún í kex- verksmiðjunni Frón um árabil. Þó móðursystir mín væri ákaflega heimakær taldi hún ekki eftir sér að fara með mér, krakkanum, á skíði og ennfremur stundaði hún mikið sund. Þegar ég fluttist til Bandaríkjanna átti ég samt mitt annað heimili hjá Geiru og hún tók á móti mér og börnum mínum hvenær sem var til lengri eða ''skemmri dvalar og ég minnist þess nú hvað börnunum mínum þótti afskaplega gaman að vera hjá Geiru frænku. Þessar heimsóknir endurgalt hún með að koma til okkar í Banda- ríkjunum og var hún þar kærkom- inn gestur. Þegar aldurinn færðist ýfir Geiru og heilsu hennar tók að hraka var oft erfitt að vera búsett svo langt frá henni. En hún átti góða vini. Það voru þau Guðmundur Baldvins- son og Guðný kona hans, eigendur Mokkakaffis. Þau tóku hana algjör- lega undir sinn verndarvæng og reyndust henni svo vel að það verð- ur aldrei fullþakkað. Síðasta árið var hún á elliheimil- inu í Kumbaravogi og undi þar vel hag sínum. Síðustu mánuðina var hún á sjúkrahúsi Suðuriands. Því góða fólki sem annaðist hana á þessum stöðum skal hér þakkað af heilum hug. Að leiðarlokum vil ég þakka móðursystur minni alla þá ástúð, stuðning og skilning sem hún sýndi mér og börnum mínum. Minningin um hana lifir björt og falleg í hugum okkar um ókomna tíð. Blessuð sé minning elskulegrar móðursystur minnar. Dóra Stína „Sælir eru hjartahreinir því að þeir munu Guð sjá.“ (Matt. 5.8) I örfáum orðum langar mig til að minnast góðrar konu. Hún var móðursystir mín. Þegar ég fæddist var hún um tvítug að aldri. Fjöl- skylda okkar bjó þá öll í sama húsi við Ingólfsstræti 10, Rvk. Þar bjó Ásgeira alla sína ævi ógift. Eg man lítið eftir henni frá bernskuá- rum mínum, en vissi þó að þarna . var góð og heiðarieg sál, sem bar hlýhug til allra manna. Hún bar það í hljóði, í hjarta sínu. Leiðir okkar lágu aftur sam- an, þegarég kom aftur til Islands fyrir nokkrum árum, eftir 30 ára dvöl erlendis. Ég átti þá hvergi í hús að venda. Hún var þá ein eftir af stórri fjölskyldu okkar í Ingólfs- stræti 10, þar sem ég ólst upp. Hún tók mig inn til sín og ég bjó hjá henni, þangað til hún missti heilsu fyrir um 2 árum og varð að dvelja á sjúkrahúsi þar til yfir lauk. Ásgeira vann fyrir sér af miklum dugnaði allt fram á háan aldur og var duglegur og hraustur vinnu- kraftur. Sambúð okkar var góð, þó sinnti • ég henni ekki eins vel og hún átti skilið og fæ henni það ekki bætt í þessu lífi. Ég kveð Geiru mína og bið Guð að geyma hana um alia eilífð. H.H. Kartöflur og kartdflugeymsla 80 kr. kílðid Kartöflusalan v/Bilanausl. ■ BREFA- I BINDIN ! frá Múlalundi... ...þarerugögninágóðumstað. 5 Múlalundur NOKKRAR GRÁÐUR Á CELSÍUS GETA RÁÐIÐ ÚRSUTUM NÁKVÆM ÞJÓNUSTA TRYGGIR VERÐMÆTI Þekking flutningafyrirtækis á þörfum viðskiptavina speglast í öruggu flutninga- - kerfl enda ræður vörumeðferð oft úrslitum um hvaða verð fæst fyrir farminn þegar á markað er komið. Þegar EIMSKIP flytur vandmeðfama vöru á borð við fisk eða ávexti fylgjast starfsmenn félagsins nákvæmlega með hitastigi og ástandi gáms - allt frá dyrum seljanda að dyrum kaupanda. Gámar EIMSKIPS eru í stöðugri endur- nýjun og eru þeir ásamt vöraskáium félags- ins sniðnir að kröfum viðskiptavina um meðferð og hitastig liverrar vöru. ALHLIÐA ÞJÓNUSTA LÆKKAR KOSTNAÐ Þau fyrirtæki, sem velja alhliða flutn- ingaþjónustu EIMSKIPS, komast hjá óþarfa umstangi og áhættu og Iækka þann- ig heildardreifingarkostnað sinn. Fullkomið upplýsingakerfi EIMSKIPS auðveldar eftirlit með vöram viðskiptavina og dregur úr hættu á að sendingar þeirra misfarist. Þeir geta á skömmum tíma fengið nákvæmar upplýsingar um hvar varan er í flutningakerfinu. Sú vitneskja reynist ómetanleg við birgðahald, skipulagningu og í samskipt- um við erlenda viðskiptaaðila. ÖRUGG ÞJÓNUSTA GREIÐIR FYRIRVIÐSKIPTUM Forráðamenn fyrirtækja vita að í áætl- unum sínum geta þeir reitt sig á faglega þjónustu og þróað flutningakerfi EIMSKIPS. Það ef EIMSKIP kappsmál aðnjóta þess trausts áfram með því að vera vakandi yfir síbreytilegum þörfum viðskiptavina sinna. EIMSKIP VIÐ GREIÐUM ÞÉR LEIÐ

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.