Morgunblaðið - 21.11.1989, Síða 52

Morgunblaðið - 21.11.1989, Síða 52
52 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. NÓVEMBER 1989 ©1987 Unlversal Press Syndicale v þurftir&u oÁ segjcu-fretto-mönnunum ab 09 vaeri 5?aro,?" IP22 O O O O o o o o oooooo oooo oooooo oooo Biður bara um frí sem eftir er dagsins ... HÖGNI HREKKVÍSI í,., Þessir hringdu ... Góður nágranni Gréta Jónsdóttir hringdi: „Nú er margt skrifað um Jósa- fat Arngrímsson en ég vil að það komi fram að hann var nágranni okkar í mörg ár og reyndist okkur mjög góður vinur á allan hátt.“ Slæmt orðbragð Halldóra hringdi: „Ég get ekki orða bundist vegna orðbragðs í Stundinni okk- ar sunnudaginn 12. nóvember. Þar var Eddi efnafræðingur að sýna kúnstir sem voru saklausar og ekkert við þeim að segja. Á eftir honum var Ljónið með ein- hvers konar galdara sem ég ætla að gagnrýna. Hann sagði setningu sem mér misbauð, ekki síst vegna þess að þarna var verið að tala til yngstu kynslóðarinnar. Ljónið galdraði reyk um allt herbergið og sagði síðan: „Opnist allar flóð- gáttir vítis“. Mig langar vinsam- lega að biðja umsjónarfólk þáttar- ins að gæta betur að orðbragðinu. Þetta er jú ætlað yngstu kynslóð- inni og mér er ekki sama hvað borið er á borð fyrir mín börn.“ Gleraugu Gleraugu með dökkum umgerð- um fundust við skýlið á horni Réttarholtsvegar og Bústaðarveg- ar í byijun júlí. Eyrnalokkur með bleikuin steini í tapaðist á svipuð- um tíma. Síminn er 83838. Bankastjóri Kona hringdi: „Það er virðingarvert af bankaráði Búnaðarbankans að velja bankastjóra úr röðum starfs- manna bankans en ekki einhvern pólitíkus eða kaupfélagsstjóra." Úr Úr fannst í Skerjafirði fyrir nokkru. Upplýsingar í síma 75159. Góð dagskrá Hlustandi hringdi: „Mig langar til að hrósa Aðal- stöðinni fyrir góða dagskrá. Þar er leikin þægileg tónlist sem fellur vel að smekk þeirra sem komnir eru á miðjan aldur. Þá vil ég þakka fyrir þáttinn Sálartetrið og hafði ég mjög gaman af síðasta þætti. Ég vona að Aðalstöðin haldi áfram á sömu braut.“ t Avöxtun sf: Reynt að fá brénn greidd Vegna framkominna fynr- spurna óskar Þórður Jónasson, Hagsmunasamtökum Ávöxtunar- bréfaeigenda, að koma eftirfar- andi á framfæri: Hagsmunasamtökin hafa reynt og reyna enn að fá bréfin greidd. Umboðsmaður Alþingis hefur haft málið til meðferðar frá því í vor, og mun embættið mikiq hafa unnið að málinu og gera enn. Óvíst er hvenær umsögn liggur fýrir en vonast er til að það verði á þessu ári. Meðan málið er hjá umboðs- manni er það nánast í biðstöðu. Umsögn hans vegur þungt og getur haft afgerandi áhrif á málið. Þegar sú umsögn liggur fyrir, svo og afstaða fjármálayfirvalda, verður kallaður saman fundur, niðurstöður kynntar og frekari ákvarðanir tekn- ar. Talað hefur verið við íjármála- yfirvöld og óskað viðunandi lausnar á málinu. Vonast er til að umsögn umboðsmanns hjálpi þar til. Frið- samleg lausn er ákjósanlegust fyrir alla aðila málsins eða a.m.k. flesta. Ef hún fæst ekki og fólk sér fram á að tapa verulegum ij'ármunum er dómstólaleiðin eftir. Sú leið er tímafrek og ekki er að vænta að þetta mál fengi fljótari meðferð en önnur. RLR og ríkissaksóknari hafa nú verið með mál Ávöxtunar sf. í rúmt ár, og ekki veit ég til að þau hafi enn verið kærð til dómstóla. Það hefur verið talað við skila- nefnd oftar en einu sinni, nú síðast í haust. Búist hefur verið við frétt- um frá henni og var gert ráð fyrir þeim í september sl. þegar hún varð ársgömul, en ekkert fréttist enn. Skilanefnd er í raun stjórn verðbréfasjóð Ávöxtunar sem enn eru starfræktir, en nú sem inn- heimtufyrirtæki. Sem slík hlýtur nefndin að hafa gert ársreikning og sent viðskiptaráðuneyti og bankaeftirliti. Ekki hefur frést af þeim framkvæmdum. Síðast mun skilanefnd hafa látið í sér heyra í janúar í ár. Okkur í samtökunum finnst hægt að ganga og biðin löng. Þess er þó vart að vænta að málið gangi eins og hugur manns. Þetta er hið versta mál að því er haft var eftir einum Seðlabankastjóranum í DV fyrir nokkru. Fólk er beðið að hafa nokkra biðlund enn þar til mál hafa skýrst og fyrir liggur hver lausn verður í sjónmáli, og þá hvort hægt verður að leysa þetta mál yfirleitt með friði. Strax þegar niðurstöður liggja fyrir verður kallaður saman fundur. Víkyerji Það er til sérstakrar iyrirmyndar, hvað búið er að leggja þægilega og skemmtilega göngustíga í Heið- mörk. Töluverður fjöldi fólks stundar gönguferðir þar, ekki sízt um helgar og nú er búið að auðvelda þær göngu- ferðir mjög með því að ganga frá göngustígum, sem eru smekklega gerðir og falla vel að umhverfi. Þetta minnir Víkveija hins vegar á, að æskilegt væri að ganga betur frá göngustígunum í Fossvogsdal - eða Fossvogi eins og sumir vilja kalla það svæði . Þar myndast í rigningum stórir pollar, sem erfitt er að komast fram hjá. Ekki þarf að gera annað en bera svolítið myndarlega ofan í þessa polla til þess að aðstæður verði viðunandi. Þessu er hér með komið á framfæri við rétta aðila. skrifar Víkveija varð aldeilis á í mess- unni, þegar hann af hógværð fór fram á það við Ríkissjónvarpið að sýna tónleika Ilorowitz í Moskvu í virðingarskyni við miningu þessa mikla píanósnillings. Það kom sem sé í ljós, eins og lesa mátti í dálkum Velvakanda í síðustu viku, að tónleik- arnir hafa verið sýndir í sjónvarpinu. Það er alveg rétt hjá talsmanni Ríkis- sjónvarpsins, að blaðamenn eiga að kanna heimildir sínar betur áður en þeir lyðjast fram á ritvöllinn. Víkveiji mun láta sér þetta að kenningu verða! En m.a.o. - er ekki hægt að endur- sýna þessa tónleika? Þeir hafa áreið- anlega farið fram hjá fleirum en Víkveija! xxx ér í þessum dálki var fyrir viku haft orð á undarlegum gatna- mótum, sem verið er að gera, þar sem ekið er frá Nýbýlavegi og Kái-s- nesbraut í Kópavogi inn á Kringlu- mýrarbraut. Nú hafa þessar fram- kvæmdir tekið á sig skýrari mynd en þama er verið að koma fyrir umferðarljósum, sem er gott. Eitt vill Víkveiji þó benda þeim á, sem að þessum framkvæmdum standa. Nýi kanturinrj, sém steyptur hefur verið veldur jmiklum þrengslum á þessari beygju 'Þegar ekið er úr vest- urbæ Kópavogs og beygt til vinstri inn á þessa akrein þarf ökumaður að gæta sérstaklega að sér til þess að lenda ekki upp á hinum stein- steypta kanti. Þeir geta prófað þetta sjálfir, sem framkvæma verkið. Hönnun kantsins er ekki í lagi!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.